Morgunblaðið - 18.09.1986, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 18.09.1986, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986 13 Guðbjartur Ólafsson tæknifræðingur Blönduóshrepps fyrir framan hinn nýja 970 rúmmetra vatnstank. Vatnstankur bætir úr brýnni þörf á Blönduósi Blönduósi. NÚ ER að ljúka byggingu á 970 rúmmetra vatnstanki sem tekur við vatni frá Laugahvammslind- um skammt ofan við Blönduós. Með tilkomu þessa vatnstanks leysist það vandamál sem skapast einkum á haustin þegar slátur- húsið starfar, en það er að þrýstingur fellur og vatnsmagn er tæpast nægilegt. Guðbjartur Ólafsson tæknifræðingur Blönduóshrepps er umsjónar- maður þessa verks jafnframt því að vera hugmyndafræðingur og arkitekt vatnstanksins. I samtali við Morgunblaðið sagði Guðbjartur að tilkoma tanksins tryggði að hægt væri að safna vatnsbirgðum til tveggja sólar- hringa. Áður var einungis til 38 rúmmetra geymslurými svo hér er mikill munur á. Guðbjartur sagði jafnframt að nú væri í fyrsta sinn nægilegt slökkvivatn til staðar fyrir sveitarfélagið. Þak er enn ókomið á vatnstankinn en það verður úr trefjaplasti og er í smíðum hjá Treflaplasti hf. á Blönduósi. Jón Sig. Að lifa og deyja 1LA. Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Á fullri ferð í L.A. (To Live and Die in L.A.) sýnd í Bióhús- inu. Stjörnugjöf: ★ ★ ★ Bandarísk. Leikstjóri: William Friedkin. Handrit: William Friedkin og Gerald Petievich, byggt á sögu Petievich. Framleiðandi: Irving H. Levin. Kvikmyndataka: Robby Muller. Tónlist: Wang Chung. Aðalhlutverk: William L. Pet- ersen, Willem Dafoe, John Pankow og Dean Stocwell. Lögreglumyndir bandaríska leikstjórans, William Friedkins (The French Connection, Cruis- ing) hafa tilhneigingu til að enda illa. í Franska sambandinu slepp- ur bófinn úr höndunum á Gene Hackman og í Cruising endar lög- reglan, sem A1 Pacino leikur, á því að myrða sjálfur. Á fullri ferð í L.A. (To Live and Die in L.A.) endar líka eymdarlega. Og löggumar í myndum Fried- kins eru alltaf svolítið bilaðar eða verða það a.m.k. þegar á líður. Richard Chance (William L. Pet- ersen) og John Vukovits (John Pankow) í þessari nýjustu mynd hans eru svo gagnteknir af því að hafa hendur í hári peningafals- arans Eric Masters (Williem Dafoe), sem drepið hefur sam- starfsmann þeirra, að þeir hætta að gera greinarmun á réttu og röngu þar til lítill munur er orðinn á þeim og glæpamönnunum sem þær elta og það er engin leið að hætta. Eins og bófamir lifa þeir og deyja í Los Angeles. Það gætir vissulega nokkurra endurtekninga í þessum efnum hjá Friedkin en hann er alltaf í það minnsta athyglisverður og hann svíkur ekki aðdáendaklúbb- inn sinn. Hann kann ennþá að stjóma spennandi bílaeltingaleik og þótt persónur hans í þessari nýju mynd séu ekki sérlega sann- færandi og raunverulegar standa þær þó nær manni en ódrepandi Masters(WillemDafoe) mundar riffilinní mynd Williams Fried- kin, Á fullri ferð í LA. ofurmenni á borð við Rambó og hans líka. William L. Petersen er nýtt andlit á hvíta tjaldinu og gerir hlutverki Chance góð skil með kuldalegu og töffaralegu fasi. Chance hefur gaman af að sýna hugrekki sitt og karlmennsku með því að henda sér fram af frjall- hárri brú festur í vír. Og erkifjandi hans, Masters, sem Willem Dafoe leikur, illskeyttur og ógnvekjandi er líka svolítið sérstakur. Fyrir utan að vera morðingi og peninga- falsari er hann listmálari en hann brennir verk sín jafnóðum og hann gerir þau. John Pankow fer vel með breytinguna úr hræddum og taugaveikluðum aðstoðarmanni Chance í arftaka hans og Dean Stockwell er frábær í aukahlut- verki sem lögfræðingur Masters. Blóðugt ofbeldi og kynlíf eru fylgifískar mynda Friedkins og hér er nóg af því. Los Angeles nýtur sín mjög ve! í meðförum leikstjórans og myndatökumanns- ins Robby Mullers, sem bakgrunn- ur sögunnar og á góðan þátt í að gera myndina næstum dulmagn- aða. Það er svartsýnn tónn í Friedkin, líf og dauði skiptir ekki máli aðeins hefndin og réttlæti er hvergi að finna. Samleikur í Norræna húsinu Tónlist Jón Ásgeirsson Þriðjudaginn 16. sept. voru haldnir tónleikar í Norræna hús- inu og komu þar fram Guðný Guðmundsdóttir, konsertmeistari, og Catherine Williams, píanóleik- ari. Verkefni tónleikanna voru eftir Mozart, Bach, Bloch, Tchaik- ovsky, Saint-Saens og_ Jónas Tómasson. Síðan Björn Ólafsson leið hefur orðstír íslenskra fiðlu- leikara að stórum hluta hvflt í hendi Guðnýjar Guðmundsdóttur, þó vissulega standi við hlið henn- ar ágætur hópur góðra fiðlara, því hennar verk hefur ekki aðeins verið að leiða fiðluflokk Sinfóníu- hljómsveitar íslands, heldur og að styðja unga fiðluleikara til náms og þroska, sem einn af aðal- kennurum við Tónlistarskólann í Reykjavík. Auk þess hefur Guðný verið dugmikill einleikari og kam- mertónlistarmaður og fyrir utan að flytja meistaraverk erlendra snillinga hefur hún sennilega flutt nærri allt sem íslenskir tónhöf- undar hafa samið fyrir fiðlu. Með Guðnýjhu að þessu sinni lék ung- ur píanóleikari, Catherine Will- iams, sem hefur starfað hjá íslensku óperunni og við Söng- skólann í Reykjavík. Tónleikarnir hófust á Sónötu eftir Mozart K. 296 og þar á eft- ir flutti Guðný g-moll-einleikssó- nötuna, þá fyrstu, eftir Bach. Fallegasti þátturinn í Mozart- sónötunni var hægi þátturinn, þó ýmislegt færi þeim vel úr hendi í þeim fyrsta og síðasta, t.d. hvað varðar skýrleika í allri útfærslu. Það er ekki um það að tala, að sólósónötur meistara Bachs eru líklega það erfiðasta sem fiðluleik- arar takast á við. Það var töluverð reisn yfir leik Guðnýjar, þó fyrir undirritaðan hafi hraðaskipan ve- rið einum of kappsfull. Eftir hlé flutti Guðný einleiksverk eftir Jónas Tómasson, er hann nefnir Vetrartré. í heild er verkið nokkuð tónalt í gerð. Tónhendingar þess eru helst til stuttar og ná á köflum ekki að mynda tónrænt sam- hengi. Það var helst í tveimur síðustu köflunum og þá í niður- lagi þess þriðja, að tónbálkurinn varð samfelldur og í síðasta laginu fékk fíðlan að njóta tóngæða sinna. Guðný flutt verkið á sann- færandi máta. Trúlega á það best við Guðnýju að flytja safaríka og „virtúósíska" tónlist, enda var eins og hún efldist öll í leik sínum er hún tók til við að leika Baal Shem Nigun, eftir Emest Bloch. Bloch er eini tónhöfundurinn af gyðingaættum, sem hefur lagt sig eftir að skapa verk sín í stíl, er rekja má til gyðinga, og hefur náð með verkum sínum alþjóðlegri við- urkenningu. Þrír myndrænir söngvar eru byggðir á gamalli sögn um að allt sé skapað af Guði, jafnvel djöfullinn, og þeir sem tileinka sér þennan svonefnda Hasidisma trúa á góðmennskuna, gleðina og ánægjuna og því er dansinn meðal annars þóknanleg- ur Guði. Baal Shem var mjög vel flutt af Guðnýju og var leikur hennar vel studdur í skýmm og vel útfærðum undirleik. Vals- Scherzo op. 34 eftir Tchaikovsky var næst á dagskránni og þar fór Guðný á kostum. I síðasta verk- efninu, Inngangi og Rondo eftir Saint-Saéns, lék Guðný meistara- lega vel og trúlega betur en oft áður sem hún hefur leikið þetta verk. Það hafði og nokkuð að segja hversu vel var leikið á píanó- ið, en Catherine Williams er sérlega góður undirleikari og er eftirtektarvert hversu hreinn leik- ur hennar er og hversu sparlega hún notar „pedalinn“, svo að allar „fraseringar“ njóta sín í vel út- færðum leik hennar. í heild voru tónleikarnir góðir og sérlega fyrir mjög gott samspil og ágætan leik. SJALFST FRA UHOPAR: IÐNI GÆÐÁAUKNING Námskeiðið kynnir hvernig unnt er að bæta framleiðni, gæði og heildarárangur fyrirtækis með þvi að koma á fót sjálfstæöum vinnuhópum. Kennslan fer fram bæði I formi fyrirlestra og verkefna I þeim tilgangi aö gefa þátttakendum innsýn I gagnsemi sjálfstæðra vinnuhópa. Effni: Skilgreining á sjálfstæðum vinnuhópum. Mismunandi vinnukerfi. Tæknilegar æfingar — „Hollow Squares". Mótun og val i samstarfshópa. Skipuiegt aðhald. Stofnun vinnuhópa. Hvar eru vinnuhópar hagkvæmir. Sjálfstæöir vinnuhópar á skrifstofum. Árangur, kostnaöur og framtið sjálfstæöra vinnuhópa. Þátttakendur Námskeiðið er ætlað ráðgjöfum og stjórnendum fyrirtækja sem bæta vilja framleiðni og gæði i fyrirtæki sinu með auknu sjálfstæði starfsmanna þess. Leiðbeinandi: Stuart Winby, en hann er aöstoöarframkvæmdastjóri ráögjafadeildar American Productivity Center. Stuart Winby stundaói sálfræöinám viö San Jose State University og Stanford háskólann I Kalifornlu og lauk einnig námi frá Columbia háskólanum I stjórnunarfræöum. Hann hefur unnió sem ráögjafi viö mörg fyrirtæki s. s. Kaiser Aluminum & Chemical Corporation, ITT, General Foods Corp., Amoco Oil Corp., Rauða Kross samtökin I Bandarlkjunum, Hafnaryfirvöldin I New YorWNew Jersey og Lockheed flugvélaverk- smiöjurnar. Stuart Winby hefur einnig setiö I nefndum um framleiöslumál á vegum Hvlta hússins. Námskeiðiö fer fram á ensku. Timi og staöur 1. október, kl. 08.30—16.00 á Hótel Loftleióum. Námseiningar 0,6. Metsölublað á hverjum degi! 85 42

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.