Morgunblaðið - 18.09.1986, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
Stofnfundiir Lagnafélags íslands
eftir Friðrik S.
Kristinsson
Stofnfundur Lagnafélags íslands
verður haldinn laugardaginn 4.
október næstkomandi kl. 13.30 í
ráðstefnusal Hótels Loftleiða.
Stofnfundurinn verður jafnframt
fyi'sti fræðslufundur félagsins og
fjallar um varmaendurvinnslu í loft-
ræsikerfum, sögu þeirra, reynslu
af notkun og tæknilegan giundvöll.
15. maí sl. var haldinn fundur
til undirbúnings stofnunar Lagnafé-
lags Islands.
Þar vom mættir aðilar frá mörg-
um félögum og stofnunum. A
þessum fundi var rætt um markmið
og verksvið félagsins, og kosið í
átta manna undirbúningsnefnd.
Hlutverk félagsins' er að vinna
að þróun lagnatækni á Islandi með
því að:
a) Skipuleggja fyrirlestra og nám-
skeið ásamt útgáfu fræðslurita.
b) Stuðla að rannsóknum og
tæknilegum umbótum í lagna-
tækni.
c) Stuðla að og fylgja eftir hæfni
og menntunarkröfum þeirra er
að lagnaframkvæmdum standa.
d) Taka þátt í alþjóðasamstarfi á
þessu sviði.
Eflaust mætti fleira tína fram,
en tíminn mun leiða í ljós hver þörf-
in er.
Eitt er víst, að fyrir löngu var
orðið tímabært að bindast samtök-
um, til að efla samstarf og gagn-
kvæman skilning milli aðila sem
starfa að fræðilegri og hagnýtri
lagnatækni.
Hveijir eiga erindi í svona félag?
Allir sem í starfí sínu hafa nána
snertingu við tæknileg og/eða fag-
ieg vandamál á sviði lagnatækni
og hafa til að bera þekkingu eða
reynslu á því sviði.
Hér má tilnefna einstaklinga frá
meistara- og sveinafélögum blikk-
smiða og pípulagningarmanna,
verkfræðinga, tæknifræðinga, selj-
endur, fulltrúa stofnana og skóla.
Þessi upptalning telst þó engan
veginn tæmandi, hér verður hvei'
og einn að líta í eigin bann og
spytja sjálfan sig hvort ekki sé
ástæða til að styðja þetta félag, sér
og öðrum til gagns og ánægju.
Þörf er á auknum umræðum og
skoðanaskiptum allra aðila, sem á
þessu sviði starfa. Ekki er nóg að
binda sig einvörðungu við þröng
áhugasvið, hvort sem um er að
ræða það faglega eða fræðilega.
Innsýn í störf annarra, í vinnslu-
keðjunni, hljóta að stuðla að
jákvæðari og árangursríkari sam-
skiptum. Þörfm á samræmdri
túlkun og framsetningu gagna er
brýn, svo allt gangi eins og til er
ætlast.
Þetta nær aldrei fram að ganga,
svo viðunandi sé, nema menn beri
virðingu fyrir verkþáttum hver ann-
ars. Þetta gildir fyrir allan vinnslu-
ferilinn, frá frumhönnun til
lokafrágangs að ógleymdu viðhaldi
sem öll kerf þurfa á að halda.
Til stuðnings framsetningu og
túlkunar gagna gefum við út staðla
og reglugerðir, sem sífellt er verið
að vitna til. Ekki kemur það að
nægjanlegu gagni, ef dreifingu og
kynningu útgáfuaðila er áfátt.
Hér þarf mikið verk að vinna,
svo viðunandi sé. Þetta á reyndar
ekki eingöngu við á sviði lagna-
tækni.
Árið 1979 var gefin út bygging-
arreglugerð sem gilda á hvarvetna
á landinu. Þar eru áberandi tilvís-
anir í islenska staðla, sem eru enn
þann dag í dag óútkomnir. Hér er
eflaust um að kenna fjármagns-
svelti til handa Iðntæknistofnun
íslands, sem á að standa að útgáfu
þessari. Þetta gildir áreiðanlega um
fleiri stofnanir sem vinna að útgáfu
reglugerða, til að marka lágmarks-
kröfur um frágang og öryggi í
húsum og öðrum mannvikjum. Auð-
vitað setur fámennið okkur ýmsar
skorður í þessum efnum, og því
nauðsynlegt að styðjast við erlenda
# -------W'*' TT-
Friðrik S. Kristinsson
„Ekki megnm við held-
ur gleyma þörfinni á
upplýsingum og skýr-
um ábendingum til
notenda til að stuðla að
rekstrarörygggi og
hámarksnýtingu lagna-
kerfa. Ekki er nóg að
hanna og setja upp
flókin kerfi og skilja
þar við.
staðla, sem byggjast á áralöngum
rannsóknum og eru í sífelldri endur-
skoðun.
Við verðum að koma af stað
umræðum og reyna að marka okk-
ur einhveija sameiginlega stefnu í
þessum málum. Því má segja, að
félag sem þetta er tilvalinn grund-
völlur til að knýja á um úrbætur í
þessum málum. Ekki er nóg að
gefa út staðla og reglugerðir ef
kynning og eftirlit er af skornum
skammti. Við verðum að stuðla að
gagnlegum umræðum og kynningu
á því efni sem út er gefið, sem
okkur er ætlað að vinna eftir. Það
hlýtur að vera okkur til famdráttar
og stuðningur við stofnanir sem að
þessum málum vinna.
Við ættum einnig að geta hjálpað
til við þróun kennslumála, með því
að fá í okkar raðir fulitrúa frá skól-
um, svo reynsla fyrrverandi nema
megi styðja við skólastarfð.
Ekki megum við heldur gleyma
þörfinni á upplýsingum og skýrum
ábendingum til notenda, til að
stuðla að rekstraröryggi og há-
marksnýtingu lagnakerfa. Ekki er
nóg að hanna og setja upp flókin
kerfi og skilja þar við. Állur raf-
og hreyfibúnaður þarf reglubundið
eftirlit og ættu greinargóðar upp-
lýsingar að liggja fyrir, sem segja
til um hvernig að þessu eigi að
standa. Umfang þessara upplýsinga
fer auðvitað eftir stærð og gerð
kerfa, og þeim kröfum sem settar
em um rekstraröryggi þeirra.
Því miður skortir skilning á þörf
þessari, og sá tími vanmetinn sem
fer í vinnslu þessara gagna. Kröfur
verkkaupa um frágang og umfang
leiðbeininga eru sjaldnanst fyrir
hendi og því injög misjafnt hvemig
til tekst við gerð þeirra, ef þá nokk-
uð er gert.
Borgarverkfræðingurinn í
Reykjavík, byggingardeild, er eini
aðilinn sem setur fram einhveijar
kröfur um frágang slíkra gagna,
fyrir hita- og loftræsikerf, sem þó
eru enn í mótun.
Rík ástæða er til að styðja þetta
frumkvæði, því ef vel tekst til, mun
það stuðla að markvissri stefnu í
þessum málum.
Allt of algengt er, að óánægju
með lagnakerf megi rekja til ófull-
nægjandi lokaprófana og stillinga,
auk lélegs viðhalds. Mat á þýðingu
þessara verkþátta endurspeglast í
verðmati verktaka í tilboðum og
vilja verkkaupa til borgunar á þeim.
Hönnuðir þyrftu líka að fastmóta
betur kröfur sínar um vinnubrögð
við prófanir og stillingar.
Einnig kemur til lélegt upplýs-
ingastreymi til hönnuða, er varðar
kröfur og óskir um sveigjanleika
vegna hugsanlegra breytinga síðar
meir.
Hér hefur verið stiklað á stóru,
og eflaust ekki allir sammála öllu
því sem fram er sett. En er ekki
einmitt hugmyndin með stofnun
Lagnafélags Islands að skapa um-
ræður um málefni sem snerta svið
okkar.
Ég skora á alla, sem telja sig að
öllu eða einhvetju leyti helga starfs-
krafta sína lagnatækni, að fjöl-
menna á stofnfund Lagnafélags
Islands 4. október næstkomandi.
Höfundur er tæknifræðingur á
Verkfrædistofunni Onn sf.
Námskeiðið í sam-
skiptum fjölskyldu
NÝLEGA hóf starfsemi sína fyr-
irtækið Samskipti: fræðsla og
ráðgjöf sf. Markmið fyrirtækis-
ins er m.a. að halda námskeið
fyrir foreldra i samskiptum for-
eldra og barna.
Nfeiðimenn
Námskeiðin byggja á hugmynd-
um bandaríska sálfræðingsins dr.
Thomas Gordon. Þau fjalla um það,
hvernig foreldrar geta komist hjá
valdbeitingu í uppeldi barna sinna
með því að vinna að lausn uppeldis-
vandamála með börnunum.
Námskeið sem þessi hafa verið
haldin í Bandaríkjunum og á Norð-
urlöndum. Aðstandendur hér eru
sálfræðingamir Hugo Þórisson og
Wilhelm Norfjörð. Þeir hafa báðir
starfað við Ráðgjafar- og sálfræði-
þjónustu skóla um árabil, kennt við
Kennaraháskóla íslands og haldið
fjölda námskeiða og fyrirlestra um
samskipti fullorðinna og barna.
í „veiðitilboði" Hótels Borgarness
sameinast spenna veiðiferðarinn-
ar og áhyggjulaus dvöl á notaleg-
um gististað. Við útvegum ykkur
veiðileyfi á fengsælum veiðisvæð-
um Borgarfjarðar, nesti og korttil
veiðiferðarinnar, jafnframt því
sem við bjóðum upp á allar veit-
ingar og þjónustu árshótela. í
Borgarnesi er einnig góð sund-
laug þar sem hægt er að fara í
Ijós, heitan pott og gufubað að
lokinni ánægjulegri veiðiferð.
Upplýsingar í síma: 93-7119 og
7219.
X-Töföar til
XX fólks í öllum
starfsgreinum!