Morgunblaðið - 18.09.1986, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
Ný loðnuverksmiðja á Vopnafirði:
„Sjómenn sætta sig
ekki við núverandi
loðnuverð til lengdar“
— segir Pétur Olg’eirsson,
f ramkvæmdastj óri Tanga hf.
Á Vopnafirði er nú unnið að
uppsetningu nýrrar loðnuverk-
smiðju í gamalli loðnu- og síldar-
verksmiðju, sem þar var fram til
ársins 1981. U.þ.b. 30 manna
hópur hefur unnið að verkinu
síðan í byijun júlí-mánaðar, en
verksmiðjan var keypt að mestu
frá Danmörku og hluti frá Nor-
egi. Áætlaður kostnaður nemur
40 milljónum króna og að sögn
Péturs Olgeirssonar, fram-
kvæmdastjóra Tanga hf., er
hugmyndin að koma verksmiðj-
unni af stað nokkurn veginn
innan þeirra marka.
Pétur sagði að afkastageta nýju
verksmiðjunnar væri 300 tonn á
sólarhring. Verksmiðjuhúsið sjálft
Óli Jacobsen, formaður Fiski-
mannafelags Foroya, nýkjör-
inn formaður Verkalýðs-
hreyfingarinnar í Norður-
Átlantshafi.
V erkalýðshrey f ingin
í N-Atlantshafi:
er um 1.200 fermetrar að stærð og
auk þess er þarna til staðar 2.000
fermetra fiskimjölsgeymsla. Pétur
sagði að gamla verksmiðjan hefði
verið orðin úrelt og því hefði hún
verið af lögð fyrir fimm árum. „Þá
fékkst bæði lítil loðna og lítið fé til
endurbyggingar svo við keyptum
nýja beinamjölsverksmiðju frá
Svíþjóð og settum upp þarna sem
afkastar 100 tonnum á sólarhring.
Hún verður áfram til staðar og
ætlunin er að samtengja þessar
tvær verksmiðjur þegar fram líða
stundir þannig að hægt verði að
vinna 400 tonn af loðnu á sólar-
hring.“
Tangi hf. fær tæplega 10 millj-
óna króna lán frá Fiskveiðasjóði,
sem er u.þ.b. 25% af kostnaðar-
verði verksmiðjunnar. Þá sagði
Pétur að 8 milljóna króna lán yrði
tekið erlendis frá og nú þegar hefði
fyrirtækið fjármagnað sjálft ríflega
átta milljónir kr., eins og áætlað
var í upphafi. Þá verður eitthvað
tekið af skammtímalánum í viðbót.
Pétur sagði að stefnt yrði að því
að hefja loðnumóttöku um mánaða-
mótin október/nóvember. „Eg er
mjög bjartsýnn á rekstur loðnuverk-
smiðjunnar, enda hefðum við ekki
ráðist í þetta annars. Það virðist
vera mikið til af loðnu og löndunar-
bið allt upp í tvo til þtjá sólarhringa
hér á Norður- og Austurlandi og
meira að segja dæmi þess að skipin
sigli með afla sinn suður. Við byij-
um ekki fyrr en eftir einn og hálfan
mánuð og þá hef ég trú á að fijálsa
verðið heyri sögunni til. Eg hef
ekki trú á að sjómenn sætti sig við
núverandi verðlag til lengdar - það
er í i'aun bara eitt verð í gangi
þrátt fyrir fijálsa verðið. Mér skilst
að Síldarverksmiðjur ríkisins gefi
út sitt verð og síðan fylgi hinar
verksmiðjurnar þeirri línu,“ sagði
Pétur.
Guðrún Elíasdóttir pakkar rækju. MorKunbWH4Æjðm
Ólafsvík:
Framleiðsla hafin hjá
nýrri rækjuvinnslu
Ólafsvik.
NÝLEGA hófst framleiðsla í
nýrri rækjuvinnslu hjá Hrað-
frystihúsi Ólafsvíkur hf. Tveir
bátar leggja upp rækju hjá
vinnslunni, þeir Garðar II SH
og Gunnar Bjarnason SH, og
hafa þeir aflað ágætlega. Þetta
er önnur rækjuvinnslan í ÓI-
afsvík en fyrir var rækju-
vinnsla Stakkholts hf. og vinna
þeir rækju af 5 bátum.
Með því að gera út á rækjuna
og rækjuvinnsluna hefur úthald
báta verið lengt og skapar mikla
vinnu í landi því bátar hér áttu
flestir lítið eftir af þorskkvóta
sínum eftir mjög góða vertíð sl.
vetur, og svo gott hefur atvinnu-
ástandið verið hér í Ólafsvík í
sumar að fólk hefur vantað í allar
greinar fiskvinnslu.
— Helgi
Jóhannes Sigurðsson suðumaður við vélarnar.
V estmannaeyj ar:
Gjafmild-
ir Kiwan-
ismenn
Vestniaunaeyjuni.
KIWANISMENN í Vestmanna-
eyjum komu færandi liendi í
Iþróttamiðstöðina í síðustu viku
og var það ekki í fyrsta sinn. I
tilefni 10 ára vigsluafmælis
Iþróttamiðstöðvarinnar á þessu
ári ákváðu félagar í Kiwanis-
klúbbnum Helgafelli að gefa
sérhannaða æfingabrúðu til
kennslu á blástursaðferðinni og
hjartalinoði.
Brúða þessi er af fullkomustu
gerð og mun því koma að góðum
notum við kennslu þessara þýðing-
armiklu þátta. Smári Guðsteinsson,
forseti Helgafells, afhenti forráða-
mönnum íþróttamiðstöðvarinnar
brúðuna og voru stjórnarmenn
Helgafells viðstaddir athöfnina.
Kom fram í máli Smára við það
tækifæri að það væri ósk Kiwanis-
manna að tæki þetta mætti koma
að sem mestum notum við kennslu
lífgunar úr dauðadái.
Fram kom hjá forstöðumanni og
stjórnarmönnum Iþróttamiðstöðv-
arinnar mikið þakklæti til Kiwanis-
manna fyrir rausnarlega gjöf sem
þeir sögðu að myndi strax verða
notuð við kennslu í 6. bekk. Sögðu
þeir að Kiwanismenn hefðu oft áður
komið með góðar gjafir á þennan
stað. . hkj.
Dansstúdíó Sóleyjar:
Danshópur val-
inn um helgina
LAUGARDAGINN 20. septem-
ber nk. klukkan 14.00 mun
Dansstúdió Sóleyjar, Sigtúni 9,
velja sér tólf manna danshóp.
Cornelius Carter mun æfa dans-
hópinn og er ætlunin að hann komi
síðan fram fyrir hönd Dansstúdíós-
ins í vetur.
Allir sem eru eldri en 17 ára og
hafa áhuga eru hvattir til að mæta
og sýna hvað í þeim býr. Mikil
reynsla er ekki skilyrði.
Dómnefndina skipa þau Shirlene
Blake, Sóley Jóhannsdóttir og Corn-
elius Caiter.
Öli Jacobsen
tekur við
af Asmundi
Lögvernd sendir fréttir um starfsemi
sína til fj ölmiðla á N orðurlöndum
ÓLI Jacobsen, formaður
Fiskimannafelags Faroya var
kosinn formaður Verkalýðs-
hreyfingarinnar i Norður-
Atlantshafi á aðalfundi
samtakanna, sem haldinn var
í Borgarnesi fyrir síðustu
helgi. Hann tekur við af Ás-
mundi Stefánssyni, forseta
Alþýðusambands Islands.
Verkalýðshreyfíngin í Norð-
ur-Atlantshafi er samstarfsvett-
vangur hreyfinganna á Islandi,
í Færeyjum og á Grænlandi.
í fréttatilkynningu frá ASÍ
er haft eftir Ásmundi Stefáns-
syni að augljóst sé, að launafólk
í þessum löndum eigi mörg sam-
eiginleg hagsmunamál; löndin
séu fámenn og harðbýl og byggi
á svipuðum atvinnugreinum. Þá
séu og augljósir hagsmunaá-
rekstrar, t.d. varðandi nýtingu
fiskistofna.
Fundinn sóttu fjórir Færey-
ingar, sex Grænlendingar og sex
íslendingar. Þeir skiptust á upp-
lýsingum um ýmis réttinda- og
baráttumál og ástand á vinnu-
markaði í heimalöndum sínum.
Næsti aðalfundur samtak-
anna verður haldinn í Þórshöfn
í Færeyjum eftir tvö ár.
SAMTÖKIN Lögvemd munu
taka upp nýja starfshætti á
næstu dögum og senda fram-
vegis a.m.k. tvisvar í mánuði
fréttaskeyti til fjölmiðla á Norð-
urlöndum með umfjöllun um
starfsemi Lögverndar en forsæt-
is- og dómsmálaráðuneyti verða
send afrit af öllum skeytum.
Þetta kom m.a. fram á fundi með
blaðamönnum á skrifstofu Lög-
verndar og í bréfi sem Lögvernd
sendi Steingríini Hermannssyni
forsætisráðherra þann 15. sept-
ember sl.
Segir í bréfinu að stjórn Lög-
vemdar telji það skyldu sína að
tilkynna ráðherra um þessar starfs-
aðferðir vegna þess að búast megi
við að erlendir fréttamenn muni af
þessum sökum snúa sér að íslensk-
um alþingismönnum í auknum
mæli á næsta þingi Norðurlanda-
ráðs.
Lögvemd var stofnuð 16. mars
á síðasta ári en tilgangur samtak-
anna er að auka réttaröryggi
almennings, vinna gegn undir-
heimakerfí og hverskonar
fjárglæfrastarfsemi eins og segir í
bréfi til forsætisráðherra. Þar er
einnig birtur úrdráttur úr þeim
málaflokkum sem fjallað verður um
fyrstu vikurnar en þeir eru þessir:
Verðtrygging, vanskil, uppboð, lög-
menn og réttarhjálp.
í bréfinu er fjallað um ýmsa
þætti þessara málaflokka og galla
þeirra. Segir að útfærsla verðtrygg-
ingar samræmist ekki því sem
gerist í öðmm löndum. Laun séu
óverðtryggð og sé það ekki í nokkm
samhengi við raunvemleikann að
launafólk sé nauðbeygt til að taka
verðtryggð lán en kaupa alla þjón-
ustu samkvæmt síhækkandi vísi-
tölum. Þegar annað eins misrétti
nær fram að ganga og misgengi
launa og lána lendi fólk í vanskilum
í stómm stfl. Lántakendur standa
varnarlausir gagnvart aldagömlum
hugsunarhætti embættismanna-
kerfisins og ekki sé betur séð en
RÍKISSAKSÓKNARI telur ekki
efni til að láta reyna á það með
ákæru hvort viss þáttur í starf-
semi Ávöxtunar sf. hafi verið
ólögmætur og athæfi forráða-
manns félagsins refsivert.
Embætti ríkissaksóknara óskaði
eftir því í maí sl. að rannsóknarlög-
regla ríkisins kannaði ætluð brot
að þeir séu vraðir af pólitískum
hagsmunahópum sem skipta á milli
sín þeim gróða sem auðtekinn er
af varnarlausum launþegum. Upp-
boðum fjölgi með hverjum mánuði
og samkvæmt skýrslu frá borgar-
fógetaembættinu í Reykjavík eru
íbúðir seldar á uppboði á allt að 2,5
milljónum lægra verði en áhvílandi
skuldir. Segir ennfremur að mörg
dæmi séu um að fólk hafí svipt sig
lífi eftir þá niðurlægingu sem það
hefur orðið fyrir vegna skulda sem
eru nær eingöngu tilkomnar vegna
verðbólgu og það þess vegna ekki
stofnað til.
Um lögmenn segir að þeir vinni
forráðamanna Ávöxtunar sf., eink-
um er varðaði þann þátt í starfsemi
félagsins er lyti að viðtöku félagsins
á fé frá almenningi til ávöxtunar.
Taldi rikissaksóknari, að fengnum
rannsóknargögnum frá rannsókn-
arlögreglunni, að ekki sé ástæða
til frekari aðgerða í máli þessu af
ákæruvaldsins hálfu.
Rannsókn á Ávöxtun sf.:
Ríkissaksóknari telur ekki
ástæðu til frekari aðgerða
sjálfstætt og eftirlitslausir á ís-
landi, semji sínar eigin reglur og
skipi sína eigin siðanefnd. Þeir
semji sína eigin gjaldskrá og sam-
kvæmt henni sé þeim heimilt að
setja upp hvaða upphæð sem er
fyrir þjónustu sína. Starfsmenn
skrifstofu Lögverndar hafi séð ótal
reikninga frá starfandi lögmönnum
sem eiga það sameiginlegt að upp-
hæð hvers reiknings er á við tvöföld
mánaðarlaun verkamanns en ekki
að sjá að innt hafi verið af hendi
teljanleg vinna né heldur útlagður
kostnaður sem neinu nemi.
Er sagt í bréfinu að lögmenn
hafí augljóslega unnið gegn starf-
semi Lögvemdar og að það hafi
skeð oftar en einu sinni að félögum
hafi verið neitað um að semja um
vanskilaskuldir nema þeir hættu
starfi hjá Lögvernd. Einnig er bent
á að ísland sé eitt Norðurlanda sem
hefur ekki neina sérstaka réttar-
hjálp til handa láglaunafólki.
ÝNNLEINTT