Morgunblaðið - 18.09.1986, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 18.09.1986, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986 Sovétmenn skeyta engn um norsk lög Mengun frá verksmiðjuskipi drepur þúsundir laxa Ósló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunbladsins. ÁHÖFN sovésks verk- smiðjuskips, sem liggur við festar úti fyrir Björgvin, hefur ítrekað brotið norsk lög með því að framleiða fiskimjöl um borð. Hefur það valdið mikilli mengun á svæðinu og þúsundir laxa í nálægri laxeldisstöð drepist af hennar völdum. Sovéska verksmiðjuskipið, sem hefur verið fyrir utan Björgvin í næstum mánuð, hefur leyfi til að kaupa makríl af norskum bátum enda veiðist meira af honum en unnt er að taka við í landi. Fyrir þremur vikum kom hins vegar í ljós, að Sovétmennirnir framleiddu fiski- mjöl um borð en slík framleiðsla er bönnuð innan norskrar lögsögu. Yfirvöldin gripu í taumana og bönn- uðu bræðsluna en nú virðist sem Sovétmennirnir hafi haft bannið að engu. Mikil lýsisbrák frá skipinu hefur valdið gífurlegri mengun og aðeins í einni laxeldisstöð eru 5.500 laxar dauðir. Köfnuðu þeir í lýsinu. Eig- andi stöðvarinnar hefur snúið sér til lögfræðings, sem í gær krafðist þess, að lögreglan færði sovéska skipið til hafnar. „Við krefjumst þess að sjálfsögðu, að eigendur skipsins bæti þennan skaða,“ sagði lögfræðingurinn. Joseph Kennedy býður fram fyrir demókrata New York, AP. JOSEPH P. KENNEDY II sigraði í forkosningum Demókrataflokksins um frambjóðanda til þingsætis fyrir Massachusetts-fylki. Föðurbróðir hans, John F. Kennedy, sat eitt sinn í þessu þingsæti. Forkosningar um frambjóðend- ur í öll sæti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og þriðjungs sæta í öldungadeildinni fóiu einnig fram víðar í Bandaríkjunum á jiriðjudag. Kennedy hlaut 52 prósent fylgi í áttunda hverfí Boston, en keppi- nautur hans, öldungadeildarþing- maðurinn George Bachrach, hlaut 28 prósent atkvæða. Joseph Kennedy hefur um langt skeið verið talinn sjálfsagður arf- taki Kennedy-fjölskyldunnar á sviði stjómmála. Hann er sonur Robert F. Kennedy. Þegar Joseph var ellefu ára fékk hann bréf frá föður sínum: „Þú ert elsti karlmað- urinn af bamabörnunum. Þú hefur nú sérstökum skyldum að gegna og ég veit að þú munt uppfýlla þær. Mundu allt það, sem Jack átti upptökin að - vertu góður við þá, sem fengu erfiðara hlutskipti en við - og elskaðu land okkar." Þetta var skrifað daginn, sem John F. Kennedy forseti var borinn til grafar. Hermenn á hveiju strái á alþjóðaflugvellinum í Seoul í Suður- Kóreu. Sprengja varð fimm manns að bana á flugvellinum á ... sunnudag. • • Qryggisráðstafanir í Suður-Kóreu: Háskólum lokað meðan á Asíuleikunum stendur Joseph Kennedy II heldur hér sigri hrósandi ræðu eftir sigur- inn í forkosningum demókrata- flokksins um frambjóðanda í Massachusetts til þingkosning- anna í nóvember. Seoul, AP. TVEIMUR háskólum var lok- að í Seoul í gær og hefur þá fimm skólum verið Iokað um stundarsakir vegna mótmæla- aðgerða námsmanna í tilefni Asíuleikanna í íþróttum, sem hefjast eiga í höfuðborg Suð- ur-Kóreu á laugardag. Að sögn talsmanns mennta- málaráðuneytisins hefst kennsla í háskólunum ekki að nýju fyrr en að loknum Asíuleikunum, eða 6. október. Jafnframt því sem skólunum var lokað var settur þar öflugur örygg- isvörður hermanna og lögreglu- þjóna. Yfirvöld hafa gripið tii öflugra ráðstafana við mennta- stofnanir í framhaldi af sprengingu á Kimpo-flugvelli í Seoul á sunnu- dag, þar sem fimm menn biðu bana. Kim Young-Sam, leiðtogi stjóm- arandstöðunnar, hvatti náms- og andófsmenn til að halda aftur af sér meðan á Asíuleikunum stæði til þess að umheimurinn héldi ekki að upplausn væri í þjóðfélaginu og þjóðin klofín í stríðandi fylkingar. Norðmenn hneykslast á þingmönnum: Lystireisa á kostn- að skattborgaranna Ósló, frá Jan Erik Laurc, fréttaritara NEYTENDA- og stjórnunar- nefnd norska Stórþingsins er um þessar mundir í kynningarferð um Bandarikin og hefur ferða- lagið vakið mikla athygli heima í Noregi. Eftir norskum sendi- mönnum i New York er nefnilega haft, að ferðin sé sannkölluð Norsk skip flytja olíu til S-Afríku Osló, fra J. E. Laure, fréttaritara Morgun blaðsins og AP. Suður-Afrika heldur jng Research Bureau) hefur látið frá sér fara. Athygli vekur, hve mikinn þátt norsk skip eiga í þessum flutningum. Alls lönduðu 83 olíuskip 15,5 millj. tonnum af hráolíu í Suður- áfram að flylja inn mikið magn af hráolíu þrátt fyrir bann Sameinuðu þjóðanna við sölu á olíu þangað. Kem- ur þetta fram I skýrslu, sem hollenzkt fyrirtæki (Shipp- Sænskur hommi sví- virti rænulaus böm Stokkhólmi, frá AP og Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞRJÁTÍU og sjö ára Svíi, sem starfað hefur sem hjúkrunar- fræðingur á skurðdeild barnadeildar Ostra-sjúkrahússins í Gautaborg, hefur viðurkennt að hafa í rúman áratug haft kynmök við a.m.k. 80 drengi á aldrinum 3ja-12 ára meðan þeir biðu þess að vakna eftir svæfingu. „Þetta er reiðarslag. Það tók enginn eftir neinu. Maðurinn kom mjög vel fyrir og vakti traust hjá öllum. Hann virtist mjög skyn- samur og aðgætinn og við sýndum honum fyllsta traust,“ sagði Ulla Leissner, starfsmannastjóri sjúkrahússins. Að sögn lögreglu svívirti öfug- ugginn börnin þegar hann var á næturvakt á sjúkrahúsinu. Gat hann þá athafnað sig óáreittur í herbergi, þar sem börnin voru sett að lokinni skurðaðgerð meðan þau voru að vakna eftir svæfingu. Maðurinn var handtekinn í síðustu viku að ábendingu fram- köllunarfyrirtækis í Stokkhólmi. Hann hafði það fyrir sið að taka ljósmyndir af sér við óhæfuverkin með tímastilltri myndavél. Árum saman notaði hann svarthvíta fílmu, sem hann framkallaði og kópíeraði sjálfur. Nýlega tók hann hins vegar litfilmur í notkun og sendi þær til framköllunar í Stokkhólmi. Að sögn lögreglu, sem kveðst ekki hafa fengist við andstyggi- legra mál, fundust á heimili hommans hundruð ljósmynda, sem afhjúpuðu hann. Hann hefur verið ákærður fyrir hið ósiðlega athæfi og á yfír höfði sér allt að átta ára fangelsi. Nafn hans hefur ekki verið birt. Talið er að maður- inn hafi byijað þessa iðju fljótlega eftir að hann hóf störf á Östra- sjúkrahúsinu upp úr 1970. Afríku á árunum 1983-1984. Var það meira en helmingur þeirrar olíu, sem Suður-Afríka þurfti að flytja inn a þessu tveggja ára tíma- bili. Fimmtíu og eitt þessara skipa var norskt og fluttu þau sem nam þriðjungi af olíuþörf Suður-Afríku. Tölur fyrir árið í ár eru ekki enn fyrir hendi, en víst er, að hlutur norskra skipa í olíuflutningum til Suður-Afríku er enn mjög mikill. Það eru einkum fjögur norsk skipafyrirtæki, sem aðsetur hafa í Noregi, er þátt eiga í þessum flutn- ingum. Talsmenn þessara fyrir- tækja halda því hins vegar fram, að þessir flutningar séu nú að mestu úr sögunni. Morgunblaðsins. lystireisa á kostnað norskra skattborgara. Til þessa hefur ferðin verið fólg- in í tveggja daga heimsókn í Disney-skemmtigarðinum á Flórída, helgardvöl í New Orleans þar sem sóttir voru jassleikar og ekkert sparað í mat og drykk og í ferðalagi með langferðabíl eftir endilangri vesturströnd Banda- ríkjanna. Norskir skattgreiðendur borga að sjálfsögðu reikninginn. Ferðakostnaðurinn einn er rúmlega ein milljón ísl. kr., gisting og matur kosta rúmlega 2,1 milljón og svo kemur risna að auki. Samtals á kynningarferðin að kosta 3,33 millj- ónir ísl. kr. Það þykir best sýna alvöruna, sem býr að baki þessari svokallaðri kynningarferð, að margir þing- mannanna hafa með sér maka sinn og börn. Til þess er þó ætlast, að þau'kosti sig sjálf. Forsætisnefnd Stórþingsins verður ávallt að leggja blessun sína yfír ferðir af þessu tagi og það gerði hún nú. Ljóst þykir þó, að dagskrá ferðarinnar hefur verið breytt og ekki í þá átt að auka ferðalöngunum erfiðið. Nokkrir þingmenn ætla að taka þetta mál fyrir á Stórþinginu, t.d. Carl I. Hagen, formaður Fram- faraflokksins. Segir hann, að ekkert sé við það að athuga, að þingmenn kynni sér siðu og háttu útlendra þjóða svo fremi þeir læri af því og geti betur gegnt stöðu sinni. Ekki komi hins vegar til mála að þeir séu að frílista sig með fjölskyldunni á kostnað skattgreiðenda. Pakistan: Sovétmaður drepinn IslnmahaH Moskvn AP “■ Islamahad, Moskvu, AP. Hermálafulltrúi við sovéska sendiráðið í Pakistan var skotinn til bana í borginni Islamabad sl. þriðjudag. Morðinginn, sem tal- inn er veill á geðsmunum, var handtekinn. Hermálafulltrúinn, Fyodor Gor- enkov, ók í bifreið ásamt konu sinni og 11 ára dóttur eftir einni af aðal- götum borgarinnar, er árásarmað- urinn, er oft hefur sótt um að fá að flytjast til Sovétríkjanna, skaut hann. Mæðgumar sakaði ekki. Tass, fréttastofan sovéska, sagði í gær, að morðið á Gorenkov sýndi hve illa yfirvöld í Pakistan gættu öryggis erlendra embættismanna og myndi hafa slæm áhrif á sambúð ríkjanna tveggja. Hún er stirð fyrir þar sem Pakistanir hafa stutt við bakið á skæruliðum í Afganistan er beijast við Sovétmenn og her- menn leppstjómar þeirra þar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.