Morgunblaðið - 18.09.1986, Síða 50
t
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
Einar Karlsson verkalýðsforinjji og Signrður Skúli Bárðarson hótelstjóri. Morgunbl»ð»a/Ami Heigaaon
Mallorkaferð á
Hótel Stykkishólm
Stykkishólmi.
Á ÞESSARI mynd sem fréttarit-
ari Morgunblaðsins tók fyrir
utan pósthúsið i Stykkishólmi eru
tveir kunnir og málsmetandi
Hólmarar að bera saman bækur
sínar, eftir að hafa verið búnir
að fara í pósthólfin og athuga
bréfin sín.
Þetta eru þeir Einar Karlsson,
formaður Verkalýðsfélags Stykkis-
hólms og Sigurður Skúli Bárðarson
hótelstjóri í Stykkishólmi. Einar
hefir verið í fyrirsvari verkalýðsins
hér í Hólminum um áraraðir og
haft þar mikil umsvif. Auðvitað
hefír hann í mörg horn að líta.
Þegar ekki er nóg að gera þarf að
athuga um hvort þessi eða hinn
eigi ekki rétt atvinnubóta og þá
kemur til kasta Einars. Um fundar-
höld er minna að ræða því fjölmenni
er ekki til að dreifa á almennum
fundum eða aðalfundi. Þar hefir
fólk lítinn áhuga og verða því störf
Einars oft erfiðari viðfangs. Það
er öðruvísi en fyrir 30 til 40 árum
þegar samkomuhúsið rúmaði tæp-
lega alla fundarmenn. En þá var
hvorki sjónvarp né myndsegulband.
En það er eins og Sigurður Skúli
sé að inna Einar eftir haustinu.
Verður friður á vinnumarkaðinum?
Hvetjar verða kröfumar og hvernig
líst þér á framtíðina. Þetta gæti
verið inntak umræðnanna og svo
þarf Einar iíka að fá upplýsingar
um hótelreksturinn og ferðamanna-
þjónustuna, en Sigurður Skúli er
einn af ötulustu skipuleggjurum og
árvökrustum í þeim efnum og bæði
er hann frumlegur og hugar að
framtíðinni. Menn þurfa ekki nema
að koma inn í hótelið í Hólminum
og sjá að þar ræður ríkjum andi
framtíðar.
Og hótelið er vel sótt. Margir
koma um helgar og eyða þar dögum
og ég hefi heyrt ýmsa tala um sína
Mallorkaferð þar í sambandi. Og
víst um að þegar allt er gert upp,
veit ég ekki hvor hefir betur Mall-
orka eða hótelið í Stykkishólmi.
En þetta hafa þeir verið að ræða
um félagamir fyrir utan pósthúsið
í Stykkishólmi ef, fréttaritari hefír
getið rétt til.
Árni
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
JttofjpwMíifoífo
Hádegisverðarfundur
Fyrirlesari: Tryggvi Pálsson,
Landsbanka íslands.
Efni: Hvert stefnir á fjármagns-
markaði. Tryggvi Pálsson, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs
Landsbanka íslands mun fjalla um
þróun mála á erlendum og inn-
lendum fjármagnsmarkaði undan-
farin ár.
Jafnframt verður fjallað um hvað er framundan í
vaxtamálum og fjármálum.
Fundarstaður: Þingholt, Hótel Holti, fimmtudaginn
18. september kl. 12.00.
Mætið tímanlega því síðast var uppselt.
Félag viðskipta- og hagfræðinga
Nvtt N vtt
GÖMLU DANSARNIR
1 KVOLD KL. ! 9—1
Hljómsveitin Danssporið leikur fyrir dansi
Ásadanskeppni SJytárt
Banatilræðiö við Pinochet:
Arásarmennirnir
komu frá Havana
Mílanó, Ítalíu, AP.
Sjálfsmorðssveit, sem bæki-
stöð hefur á Kúbu, stóð að baki
banatilræðinu við Augusto
Pinochet, forseta Chile, fyrr í
þessum mánuði. ítalska blaðið
Corriere Della Sera skýrði frá
þessu í gær og hafði fyrir frétt-
inni mann úr hópnum.
Chile-maðurinn, sem í frétt
blaðsins var sagður heita Juan Car-
los, sagði, að „Föðurlandsfylking
Manuels Rodriguez" hefði skipulagt
árásina og að allir félagar sveitar-
innar hefðu komist heilir á húfi
aftur til Kúbu. Viðtalið í Corriere
Della Sera, sem er stærsta dagblað
á Ítalíu, birtist á forsíðu þess og
var sagt, að fréttamaðurinn hefði
hitt Juan Carlos að máli á kaffihúsi
í Santiago.
„Við vorum búnir undir að deyja
en komumst allir lifandi burt. Áð
því leyti tókst árásin vel þótt við
misstum Pinochets," sagði Carlos
og bætti því við, að önnur sveit
væri nú á leiðinni til Chile, menn,
sem færu til landsins undir því
yfirskini, að þeir væru ferðamenn.
Ný
hljóm-
sveit
með
tón-
leika
á HÓTEL BORG
I kvöld.
HúslA opnað kl. 22.00.
S: 11440.
» Gódan daginn!