Morgunblaðið - 18.09.1986, Qupperneq 60
SEGÐU
RNARMÓLL
ÞEGAR
ÞO EERÐ ÚTAÐ BORÐA
----SÍMI18833--
STERKT KORT
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Krafist tveggja mánaða gæsluvarð-
halds og geðrannsóknar:
Grunaður um
að vera valdur
að dauða konu
KRAFIST hefur verið tveggja mánaða gæsluvarðhalds yfir þrítugum
Reykvíkingi, sem grunaður er um að vera valdur að dauða 31 árs
gamallar konu er fannst látin í íbúð sinni í Hátúni 12 í Reykjavík
síðdegis á sunnudaginn. Maðurinn var handtekinn í gærmorgun og
var krafa um að hann yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald og geðrann-
sókn lögð fram í Sakadómi Reykjavíkur síðdegis, skv. upplýsingum
Helga Daníelssonar, yfirlögregluþjóns Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Talið er að konan hafi verið látin
í allt að 30 klukkustundir þegar hún
fannst í blóði sínu um kl. 18 á
. sunnudaginn. Grunsamlegir áverk-
1 ar á höfði hennar leiddu til þess,
að lögreglumenn RLR hófu þegar
að kanna hvemig þeir væru til-
komnir og hvort þeir hefðu valdið
dauða konunnar. Sú rannsókn leiddi
til þess, að maður þessi var hand-
tekinn í gærmorgun.
Við fyrstu yfirheyrslur í gær við-
urkenndi hann að hafa komið
ölvaður inn í íbúð konunnar seint
aðfaranótt laugardagsins og að
hafa hrundið henni. Hann mun hafa
( farið á brott án þess að gæta að
því hvort konan hefði hlotið meiðsli
af fallinu.
Konan hafði verið á skemmtistað
fyrr um nóttina ásamt fleira fólki.
Rannsókn var skammt á veg komin
í gærkvöld og var því ekki vitað
hvort maðurinn, sem handtekinn
var í gærmorgun, hafði einnig verið
á þeim skemmtistað. Vitað er þó,
að þau þekktust ekki.
V estmannaeyjar:
Uppboð aug-
lýst en bátur-
inn á hafsbotni
Vestmannaeyjum.
f Lögbirtingablaðinu sem
út kom 16. sept. sl. auglýsir
bæjarfógetaembættið í Vest-
mannaeyjum nauðungarupp-
boð á báti sem nú hvílir á
sjávarbotni. Þar var bátnum
fyrirkomið af mannavöldum
fyrir tilverknað lagaákvæða
um úreldingu fiskiskipa.
Bátur þessi, Þórir Ve., var
dæmdur í úreldingu' og honum
fyrir nokkru sökkt í skipakirkju-
garð norð-vestur af Eiðinu í
Eyjum. Á bátnum hvfldi þá
ógreidd dómskuld að fjárhæð
krónur 383.928,00 auk vaxta
og kostnaðar og hafði Innheimta
ríkissjóðs krafist uppboðs á
bátnum til lúkningar þessari
skuld. Uppboðið átti að fara
fram 24. október nk.
Að sögn Jóns R. Þorsteins-
sonar bæjarfógeta í Eyjum, var
þess ekki gætt við úreldingu
skipsins að ganga lögformlega
frá þessari áhvflandi skuld. Það
hefði nú verið gert og málið
væri þar með úr sögunni en Ijóst
væri að hér hefði ekki verið stað-
ið rétt að málum.
Það kemur því ekki til þess
að uppboð fari fram „á eigninni
sjálfri" enda varla von til að
fengist hefði fram „viðunandi
boð“.
— hkj.
Gert er ráð fyrir að tekin verði
afstaða til kröfu RLR um gæslu-
varðhaldið og geðrannsóknina í
Sakadómi Reykjavíkur í dag.
Óvænt úrslit
úr biðskákum
ÞRIÐJA umferðin í landsliðs-
flokki á Skákþingi íslands, sem
haldið er í Grundarfirði, var
tefld í gærkvöldi. Urslit urðu þau
að Margeir Pétursson vann Dan
Hanson, Jóhann Hjartarson vann
Þröst Árnason, Guðmundur Sig-
uijónsson vann Hannes Hlífar
Stefánsson og Karl Þorsteins
vann Sævar Bjarnason. Þröstur
Þórhallsson og Davíð Ólafsson
gerðu jafntefli og sömuleiðis Jón
L. Árnason og Björgvin Jónsson.
Urslit úr biðskákum úr 2. umferð
urðu mjög óvænt. Hannes Hlífar
Stefánsson vann Jón L. Ámason,
nýbakaðan stórmeistara, og Þröst-
ur Þórhallsson vann Karl Þorsteins,
alþjóðlegan meistara. Staðan á
mótinu er því sú að Margeir Péturs-
son hefur þijá vinninga, Þröstur
Þórhallsson 2 '/2 vinning, Guð-
mundur Siguijónsson og Hannes
Hlífar Stefánsson hafa 2 vinninga
hvor. Jóhann Hjartarson, Karl Þor-
steins, Jón L. Árnason og Dan
Hanson hafa U/2 vinning. Davíð
Ólafsson og Sævar Bjarnason hafa
1 vinning hvor, Björgvin Jónsson
hálfan vinning og Þröstur Ámason
hefur engann vinning.
Síðustu köst sumarsins
Morgnnblaðið/RAX
Laxveiði í ám landsins er nú að Ijúka en henni lauk í þeim flestum 10.—15. september en í fáeinum
er veitt til 20. september. í Grímsá í Borgarfirði lauk veiði í gær, 17. september og veiðimaðurinn
á myndinni var að taka síðustu köst sumarsins. Eins og sjá má var hánn að draga lax fram undir
vertíðarlok.
Síldarsaltendur um síldveiðikvóta:
Sættust á 25% kvóta mið-
að við söltun síðustu 8 ára
FÉLAG síldarsaltenda á Norður-
og Austurlandi og Félag síldar-
saltenda á Suðurlandi sættust i
gær á það, að síldveiðikvótinn í
ár verði 25%, miðað við söltun
sl. 8 ára.
Sunnlendingar vildu fyrst sam-
þykkja tillögu stjóma beggja
félaganna um að kvótinn verði auk-
inn í 40% veiðanna, miðað við söltun
undanfarinna 8 ára, en Austfirðing-
ar vildu halda sig við 20% sem voru
á síðustu vertíð og buðu að miðað
yrði við söltun undanfarinna 8 ára,
í stað þess að miðað var við 6 sl. ár
á síðustu vertíð.
Þeir sem salta sunnanlands segj-
ast þurfa að sækja síldina lengra
en Áustfirðingar. Með því að auka
Hermann Hansson og Ólafur B. Ólafsson.
Morgunblaðið/Þorkell
kvótann verði um aukna hagi-æð-
ingu að ræða, þar sem menn þurfi
ekki að flýta sér jafnmikið við veið-
arnar, kostnaður verði minni og
skiptingin sanngjarnari.
Norðlendingar og Austfirðingar,
segja aftur á móti að kvótinn geri
það að verkum, að skipin sigli
lengi'a með síldina, þannig að gæð-
in fari minnkandi og þannig sé það
miklu lélegi'a hráefni sem fáist í
land. Orri Vigfússon, hjá Demants-
síld á Reyðarfirði, sagði m.a. í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins: „Á sama tíma og Rússar
gera auknar kröfur um heilsaltaða
síld, sem er miklu viðkvæmari og
þarf að saltast miklu ferskari, gera
Sunnlendingar kröfu um aukinn
kvóta. Þorri síldarsaltenda hefur
alla tíð verið á móti þessum síldar-
kvótum.“
Sjá bls. 34: Rússar áskilja sér
einhliða rétt til að úrskurða í
deilumálum.