Morgunblaðið - 04.10.1986, Síða 10

Morgunblaðið - 04.10.1986, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986 Hver ræður ferðimii? eftir Jón Magnússon í júnímánuði 1983 skrifaði ég grein sem birtist í Morgunblaðinu undir heitinu „Einokunarsölur og samkeppnishömlur eru neytendum í óhag, Islenskur landbúnaður á tima- mótum." í greininni var varað við áformum um að koma á einokunarsölu með egg, sem þá var á döfinni, bent á að verðhækkanir á búvörum væru Benedikt Gunnarsson með likan af altaristöflunni. Kvenfélag Háteigssóknar: Kökusala í Blómavali KVENFÉLAG Háteigssóknar verður með kökusölu i Blómavali við Sigtún, í dag, 4. október. All- ur ágóði af sölunni rennur til gerðar altaristöflu í Háteigs- kirkju. Kvenfélagið gefur altaristöfluna, sem verður í mósaík, tilbúna á kór- vegg. Listaverkið er gert af Benedikt Gunnarssyni og er til sýn- is til 7. október í Listasafni alþýðu, við Grensásveg. Kvenfélagið, sem hefur engar tekjur nema af kaffi- og kökusölu, auk basars, sem haldinerí nóvemb- erbyrjun hvers árs, hefur áður gefið skímarfont, hljóðfæri til Háteigs- kirkju. Auk þess hefur kvenfélagið fjármagnað stóran hlut í kirkju- klukkunum. meiri en neysluvörum almennt, því haldið fram að frelsið tryggði lægra verð til neytenda og nauðsjm bæri til að koma á breytingum í land- búnaði. Þessi grein olli því, að landbúnaðarforustan sendi hvem rit- snillinginn af öðrum fram á völlinn til að mótmæla þeim sjónarmiðum sem sett voru fram í ofangreindri blaðagrein og svargreinum. Nú, tæp- um flórum árum síðar, er ástæða til að kanna hvort eitthvað hafi komið fram, sem sýni að ályktanir mínar voru réttar eða Ingi Tryggvason og félagar hafi flutt boðskap sem var til þess fallinn að bæta hag sinna umbjóðenda. Hvað hefur komið í ljós? Fyrirtækið ísegg, sem átti að verða markaðsráðandi um flokkun, dreifingu og sölu á eggjum, var stofn- að, en fyrir dugnað nokkurra fram- leiðenda og andstöðu neytenda fékk það aldrei einokunarstöðu á mark- aðnum. Þetta gæluverkefni þeirra Inga Tryggvasonar og Jóns Helga- sonar landbúnaðarráðhera fékk alla þá opinberu fyrirgreiðslu, sem hugs- ast gat, en nú þremur árum síðar er ljóst að fyrirtækið rambar á barmi gjaldþrots, smáframleiðendumir, sem ginntir voru til þátttöku í ævintýrinu, eru sáróánægðir. Neytendasamtökin bentu hins vegar á það, þegar stofii- un þessa fyrirtækis var á döfinni, að eðlilegra væri að setja almennar regi- ur um flokkun, eftiriit og gæðamat á eggjum en láta markaðnum eftir framhaldið, þar sem samkeppni var á þem tíma næg til að tryggja neyt- endum lágt verð á vörunni. Nú liggur fyrir, að peningum hefur verið sóað án nokkurs árangurs nema e.t.v. að samkeppni eggjaframleiðenda hafi orðið takmarkaðri en hún var fyrir stofnun íseggs til tjóns fyrir neytend- ur. Dómurinn í þessu efni er því ótvíræður. Landbúnaðarforustan hafði rangt fyrir sér. Frelsið tryggir lægraverð Því var haldið fram að frelsið tryggði lægra verð og bent á verð- lagsþróun og verðþróun til margra ára á afurðum svonefndra bundinna greina landbúnaðarins og þeirra frjálsu. Landbúnaðarforustan byijaði á því að mótmæla þeim útreikning- um, sem ég lagði til grundvallar sem röngum, en enn í dag geri ég mér ekki grein fyrir til hvers þeir eyddu tíma sínum í að mótmæla tölulegum staðreyndum. Þá var reynt að gera verðlagningu í fijálsu greinunum tor- tryggilega með því að benda á verðsamanburð við nágrannalönd okkar, þar sem fram kom að verð á sömu afurðum var mun lægra þar. í hinu orðinu hélt landbúnaðarforust- an því fram, að samkeppnin í fijálsu greinunum væri þess eðlis, að verð afurðanna væri orðið svo lágt, að hætta væri á að fjölmargir framleið- endur þyrftu að hætta starfeemi sinni. Þó að þetta liti út eins og þver- sögn, þegar það er sett í þetta samhengi, þá ber að viðurkenna að báðar þessar staðhæfingar land- búnaðarforustunnar voru réttar. Það er rétt að verð á afurðum í fijálsu greinunum, þ.e. eggjum, kjúklinga- og svínakjöti, er hærra en í ná- grannalöndunum. Markmiðið hlýtur þá að vera, að íslenskir framleiðend- ur geti framleitt þessar vörur á sambærilegu verði og nágrannalönd- in í framtíðinni. Það mundi þýða lækkað verð. Markmið landbúnaðar- forustunnar var hins vegar annað. Þeir telja rétt að framleiðsla á þessum greinum haldi áfram með svipuðum hætti og hingað til. Þannig að allir, sem stundi þennan búskap nú, geri það áfram. Slíkt hefði í raun þýtt stöðugt hærra verð til neytenda og gert bundnu greinamar samkeppnis- hæfari við þær fijálsu og hvort sem mönnum líkar það betur eða verr, þá er staðreynd málsins þessi: Forustumenn iandbúnaðarins vilja framleiðsiu og verðlagn- ingu frjálsu landbúnaðargrein- nnnn nndir ákvörðunarvald sitt, til að geta stjómað framleiðslu- magni og verði afurðanna tíl imyndaðra hagsbóta fyrir fram- leiðendur búvöru, á kostnað neytenda. Breytinga var krafist í áðumefndri grein var bent á, að breytinga væri þörf. Þar segir orð- rétt: „Landbúnaðurinn á vissulega við möig vandamál að etja, en það verður að vinna að því að leysa þau, í stað þess að hnýta hnútana það fasta, að óhjákvæmilegt verði að lok- um að höggva á þá. Það skiptir miklu fyrir velferð íslenskrar bændastéttar og hag neytenda að breytt verði um stefiiu. Búum þarf að fækka og þau verða að stækka, til að aukin hag- kvæmni í framleiðslu geti átt sér stað og svigrúm skapað fyrir dugmik- ið fólk í bændastétt til að njóta afraksturs vinnu sinnar, hugvits og fjárfestingar. Felsi í verðlagningu og sölu á búvörum verður að auka, þannig að hagkvæmni markaðskerf- isins fái að njóta sfn í sama mæli hjá bændum og öðrum framleiðend- um f landinu." Auk þess var bent á að þessar breytingar gætu ekki orðið á skömm- um tíma, en nauðsyn bæri hins vegar til að breytt væri um stefnu. Þá var sett fram sú skoðun að ríkið ætti að kaupa óhagkvæmar bújarðir á mats- verði af þeim bændum sem vildu bregða búi. Slíkt væri eðlileg sann- gimiskrafa og ódýrari kostur en óbreytt stefiia. Á þessu ári hafa allmiklar umræð- ur orðið um landbúnaðarmál og ég sé það mér til mikillar ánægju, að ýmsir af andmælendum mínum frá því umrædd grein var skrifuð eru farnir að viðurkenna nauðsyn stefiiu- breytingar í þá átt sem ég benti á. Mér kom satt að segja á óvart eftir að greinin birtist, en hún var öfgalaus framsetning á staðreyndum sem blöstu við, hversu hörð andstaða forustumanna bænda varð við henni. Hefðu menn hafist handa við að framkvæma breytingar á þeim tíma væri hagur þessarar atvinnugreinar betri í dag en raun ber vitni. Kvótakerfi og fram- leiðslustjómun Þó að mál hafi þokast fram á við, fer því enn víðs flarri að horfet sé í augu við raunveruleikann. Biigðir af búvörum hlaðast upp og sölumögu- leikar úr landi eru vægast sagt takmarkaðir, vegna þess að alls stað- ar f kringum okkur er um offram- Ieiðslu á búvörum að ræða. Viðbrögð stjómvalda eru þau að herða fram- leiðslustjómunina og kvótakerfíð. Slíkt leysir engan vanda. Miðað er við framleiðslumagn, sem útilokað er að selja, og miðað er við að halda sem flestum í bændastétt með því að halda öllum á horriminni. Slfkt er ömurlegt hlutskipti einnar afc- vinnustéttar og getur ekki gengið til lengdar. Kerfið virkar því í dag bæði til tjóns fyrir neytendur, því þeir borga brúsann með einum eða öðrum hætti, en einnig til tjóns fyrir bænd- ur, sem kerfið átti upphaflega að þjóna. Staðreyndin sem blasir við í dag er því þessi: íslenskir neytendur þurfa að kaupa mikilvægustu neysluvörur sínar á mun hærra verði en neytend- ur í nágrannalöndum okkar. Skatt- greiðendur þurfa áriega að greiða stórfé til að hægt sé að halda núver- andi kerfi við lýði, en þrátt fyrir þetta er afkoma bænda í hættu. Jón Magnússon „Staðreyndin sem blasir við í dag- er því þessi: Islenskir neytend- ur þurfa að kaupa mikilvægustu neysluvör- ur sínar á mun hærra verði en neytendur í nágrannalöndum okkar, Skattgreiðendur þurfa árlega að greiða stórfé til að hægt sé að halda núverandi kerfi við lýði, en þrátt fyrir þetta er afkoma bænda í hættu.“ Þegar ég les nú yfir skrif um land- búnaðarmál undanfarinna ára fæ ég ekki betur séð, en hver einasta stað- hæfing, sem ég setti fram í ofan- nefndri grein hafi komið fram. Ég fæ heldur ekki séð annað, en þver- girðingsháttur andmælenda minna hafi hnýtt hnútana svo fasta að við liggur að ekki sé lengur hægt að leysa þá, það verði að höggva. Er ekki mál til komið að taka upp aðrar viðmiðanir og viðurkenna vam- aðarorð þeirra manna, sem fyrst og femst vilja leita lausna vandans. Fýrir rúmum tveimur áratugum skrifaði sá framsýni stjómmálamað- ur Bjami Benediktsson í áramóta- grein í Morgunblaðinu það sem ég vil gera að lokaorðum mínum: „Enginn ágreiningur er um það, að íslenska þjóðin verður að viðhalda landbúnaði, en hann verður að laga eftir þörfum þjóðarinnar. Bændum q'álfum er það til mestrar óþurftar, ef þeir leiðast til framleiðslu, sem verður þjóðarheildinni til varanlegra þyngsla." Höfundur er varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík. SIMAR 21150-21370 SOLUSTJ LARUS Þ VAIDIMARS LOGM JOH Þ0RÐARS0M HUI Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Á sunnanverðu Seltjarnarnesi Vel byggt parhús m. rúmgóða 5 herb. íb. ó tveim hæðum um 77x2 fm. Svalir á báðum hæðum. Sárfb. 2ja herb. f kj. Bflsk. um 30 fm. Skipti mögul. á minna einbýfi. Einbýlishús eða tvíbýlishús á stórri eignarlóð i Garðabæ. Húsið er nánar tiltekiö nýendurbyggð hæð 132 fm. Jarðhæð um 74 fm ekki fullgerö. Getur nýst meö hæð- inni eöa sem séríb. eða gott vinnuhúsnæöi. Góður bílsk. 45 fm. Eignarlóð 4700 fm. Elgnaskipti mögul. Á úrvalsstað í Grafarvogi Rúmgóð raðhús f smfðum f Funafold. Ibúðarflötur um 170 fm auk geymslu. 4 rúmgóð svefnherb. Sólsvalir um 24 fm. Tvöfaldur bílsk. Nánari uppl. á skrifst. Byggjandi er Húnl sf. Góð eign — Laus strax Á útsýnisstað f Selási. Nýtt steinhús 140x2 fm. Ræktuö lóð. Rúmgóð- ur bílsk. Nýlegt steinhús — Ein hæð Á úrvalsstað í Seljahverfi. 158 fm m. bílsk. 4 njmgóð svefnherb. m. innb. skápum. Stór ræktuð lóð. Húsið verður laust 1. sept. 1987. Margskonar skiptamöguleikar Fjársterkir kaupendur óska eftir sórhæðum, 3ja, 4ra og 5 herb. ibúð- um og einbýlishúsum. Margskonar eignaskipti mögul. Látið Almennu fasteignasöluna finna fyrir ykkur róttu eignina I makaskiptum eða beinni sölu þegar ðnnur eign er fundin. Opið í dag laugardag kl. 11.00 tilkl. 15.00. Lokað á morgun sunnudag. ALMEN^A FASTL IGHASkHN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 Píanóleikur — Norræn- ir tónlistardagar Tónllst Jón Ásgeirsson Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanóleikari lék verk eftir flóra norræna höfunda á tónleikum f Langholtskirkju sl. miðvikudag. Hijómun kirkjunnar, sem æði oft hefur verið til umræðu, er heppi- leg fyrir söng en nokkuð um of þegar um er að ræða hljóðfæra- tónlist. Þrátt fyrir mikla endur- óman komst leikur Önnu Áslaugar mjög vel til skilá. Tónleikamir hófust á Turbulens-laminar, op. 92, eftir Ib Nörholm. Þar gat að heyra margt mjög fallega gert og þrátt fyrir að verkjð sé á köflum erfitt, var leikur Önnu Áslaugar sannfærandi, en nokkuð vantaði þó af þeirri ólgu sem höfundur hefur líklega haft í huga. Vera má að þar ráði nokkru hversu verkið er nýtt fyrir píanóleikar- ann, en þá vill leikurinn oft vera stílaður á það að gera rétt frekar en að sleppa fram af sér beisljnu. Annað verkið var pfanósónata, sem ber undirtitilinn Glerkaktus, eftir Tabio Nevanlinna. Verkið er nokkuð stórt í sniðum og ekki auðvelt f Ieik, með alls konar tón- tiltektum, sem mjög voru ný af nálinni fyrir svona tuttugu til þijátíu árum. Á köflum var hljóm- skipan mjög „glær“, sem á að tengjast hugmyndum dregnum af undirtitli verksins, og vöxtur tón- málsins á að svara til vaxtar nefndrar Jurtar". Spyija má hvaða skáldskap skuli finna í slíkum tónlíkingum eða er líkingin eins og hver önnur nafngift, fund- in eftir á, sem eins konar afsökun eða útlistun á atferli. Þessi árátta, að skilgreina tónfræðilega og formfræðilega byggingu tónverka með samifkingum við alls konar fyrirbæri, kemur einnig framhá Per Nörgárd, en í verki hans er byggingin miðuð að því að túlka kapphlaup Akkilesar og skjald- bökunnar. Það sem heyra má samsvarandi þessum íþróttavið- burði í tónverkum er samskipan f hröðu og hægu tónferli, sem í raun er ekki ólíkt því sem heyra má f allri tónlist, nema þar sem hrynferlið er samstfgt f öllum röddum. Þrátt fyrir þetta má heyra kraftmikil átök í verkinu, sem eru nægilega sannfærandi sjálf til að standa undir ánægju- legri hlustun. Anna Áslaug Ragnarsdóttir lék öll þessi verk mjög vel en samt innan þeirra marka að nokkuð skorti á tilfinningalega skerpu. Sú skerpa kom hins vegar n\jög vel fram í fimm Prelúdíum er hún iék eftir Hjálmar R. Ragnarsson. Hún lék Prelúdíumar mjög vel og með þeim hætti að tónmál verk- anna fékk dýpri tilfinningalega merkingu en fyrri verkin tilfinn- inga merkingu er ekki verður skilgreind en aðeins fundin og má heyra hjá flytjendum sem vax- ið hafa frá leikvandanum inn á lendur túlkunarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.