Morgunblaðið - 04.10.1986, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986
leik 16. — Bg6 og staðan ætti að
vera u.þ.b. í jafnvægi.
17. Rxf7 - Rxf7,18. Rb3 - Dxg3,
19. hxg3 - Bb6, 20. Rd4 - c5,
21. Rf5 - Hfe8, 22. axb5 - axb5,
23. Re7+!
Það er einn helsti styrkleiki Jus-
upovs hversu vel hann teflir
endatöfl og nákvæmni hans við
tæknilega úrvinnslu er við brugðið.
Það teflir þó enginn betur en staðan
leyflr og nú bætir Sokolov aðstöðu
sína með hveijum leik.
- Kf8, 24. Rg6+ - Kg8, 25.
Hxa8 - Hxa8, 26. Be3!
Biskupaparið nýtur sýn afskap-
lega vel og nú getur hvítur sótt að
svörtu peðunum á c5 og d5. Jus-
upov grípur því til þess örþrifaráðs
að fóma peði:
26. - d4!?, 27. cxd4 - c4
Eftir 27. — cxd4?, 28. Bf4 getur
svartur ekki hindrað hvítan í að
leika Bc2-b3 með óþolandi leppun
riddarans á f7.
28. b3 — Rd6, 29. bxc4 — Rxc4,
30. Hbl - Ra3, 31. Hal - b4,
32. Bb3+— Kh7, 33. Re7!
Jusupov átti nú aðeins flmm
mfnútur eftir f þessari erfíðu stöðu
og tfmahrakið kostar hann annað
peð:
- He8, 34. Rc6 - Rb5, 35. Bc4
- Rc3, 36. Rxb4 - Rg4,37. Bd3+
- Kg8, 38. Hd — Rxe3, 39. fxe3
- Hxe3, 40. Kxc3 - Hel+. Hér
fór skákin í bið en Jusupov gafst
upp án frekari taflmennsku, því
eftir 41. Kh2 hefur hann engar
bætur fyrir manninn.
eru almennt nefnd meðal safnara.
Munu þau sýna fugla, dýr, bíla,
skip o.s.frv. Lftil samkeppnisdeild
verður einnig og þar sýnt flugsafn,
spjaldbréfasafn og átthagasafn frá
Hafnarfírði. — Þá verður safíi póst-
korta með myndum úr Reylq'avík.
Fer vel á því og er líka í samræmi
við heiti sýningarinnar, sem ber upp
á 200 ára afmæli Reykjavíkur, enda
er hún í tengslum við það.
Sunnudaginn 12. október verður
svo skiptimarkaður í Síðumúla 17
milli kl. 13 og 16 og er öllum op-
inn. Ef að vanda lætur verður hann
vel sóttur, enda hafa menn á þess-
um mörkuðum bæði losað sig við
umframefni og eins og ekki síður
getað keypt ýmislegt í söfn sín við
hóflegu verði.
Aðgangur er ókeypis, en menn
eiga þess kost að kaupa skemmti-
legt aðgangskort með REYKJA-
VIKUR-stimplum frá upphafí og
fram á 6. áratug aldarinnar. Er það
gefið út tölusett og í takmörkuðu
upplagi. Gildir það sem happdrætt-
ismiði, og er vinningurinn frí-
merkjasafn, Reykjavík 200 ára.
Verður það til sýnis í ramma nr.
1. Ekki er ólíklegt að mörgum
muni þykja þetta kort áhugaverður
safngripur, enda getur hann gilt
bæði fyrir frímerkj asafnara og
kortasafnara.
Stefnt mun verða að því að koma
upp einhveijum sýningarrömmum
með frímerkjaefni á pósthúsum
borgarinnar og e.t.v. víðar til að
minna vegfarendur á Dag frímerk-
isins og frímerlqasöfnunina.
Sérstimpill Dags frímerkisins
verður einnig notaður á Akureyri
og Húsavík, en að því er ég hef
fregnað, munu þeir Öskjumenn á
Húsavík einir norðan heiða ætla sér
að koma upp sýningarefni í nokkr-
um römmum á pósthúsi staðarins.
15
Norrænir tónlistardagar:
Tríó og kvintettar
T6nll«t
Jón Ásgeirsson
Ekki má skilja það sem ein-
hveija karlrembu, þó vikið sé að
því að konur eigi hlut að þeirri
tónlist, sem flutt var að þessu
sinni í Norræna húsinu, á vegum
Norræna tónskáldaráðsins. Það
vill svo til að tvö af fjórum verkum
þessara tónleika eru eftir konur,
svo að þar er vel séð fyrir jafnrétt-
inu. En því er vert að minnast á
þetta atriði, að verk kvennanna
voru gædd einhveijum þeim ein-
kennum, er bera merki ferskleika
og nýstárleika. Fyrsta verkið á
tónleikunum er eftir Áse
Hedström og ber nafnið Right
after. Hver eru þau augnablik sem
upplifuð verða „strax á eftir", er
spuming sem nú ónáðar alla og
sérlega þá sem nýorðnir em arf-
þegar þeirrar eignar, að vera
orðnir fullvaxta en með lengri
stundir óiifaðar en gengnar em.
í verki Áse Hedström býr þessi
spum, sem ekki verður svarað
fyrr en „strax á eftir" og þá mun
svarið e.t.v. aðeins lifa ómun sína
og deyja síðan inn í eilíft hljóm-
leysi dauðans. Note-Book eftir
Mogens Wilken-Holm er, eins og
nafnið bendir til, stuttar skissur
úr minnisbók, þar sem upphafs-
skissan verður einnig niðurlagið.
Inn á milli má heyra alls konar
tilfínningaviðbrögð, sem jafnvél
má líkja við galdratilburði eins og
dans, tuldur, öskur og söng og
alls kyns undarlegt iátæði. Verkið
er í þrettán stuttum þáttum og
með orðum tónskáldsins eiga þeir
að vera sprottnir upp úr þeim
draum að skapa „galdrabók".
Vegna veikinda hljóp einn hljóð-
færaleikari f skarðið og fyrir
bragðið má vera að flutningur
verksins hafí ekki náð þeim
galdrastemmningum, sem vel má
ná f þessu skemmtilega verki.
Þriðja verkið var Þríleikur eftir
Áskel Másson._ Nú bregður svo
við að tónmál Áskels er bæði lag-
rænt og tóntegundabundið, ljúf-
lega streymandi og elskulega
fallegt. í miðþættinum hrá Áskell
fyrir sig gamansemi og er sá þátt-
ur mjög skemmtilega gerður, sem
og reyndar allt verkið. Síðasta
verkið heitir Helices og er eftir
Cecilie Ore. í þessu verki er leikið
með trillur og verður úr því sér-
kennileg tónun, sem á köflum er
mjög skemmtilegt nýnæmi. Til að
vitna aftur til þess, að tvö tón-
verkin eru eftir konur, þá er það
ljóst að konur eiga til að bera ein-
hveija dulda akra fegurðar, sem
við karlamir erum utangarðs við.
í verkunum eftir Áse Hedström
og Cecilie Ore var slegið á strengi
nýrrar ómunar um gömul og góð
þemu, sem er ekki lítilvægt í því
flóði fjölmiðlunar, sem næstum
því er að verða ærandi og við ís-
lendingar erum teknir að dansa
eftir nauðugir viljugir. Flytjendur
voru Daði Kolbeinsson, Einar Jó-
hannesson, Hafsteinn Guðmunds-
son, Bemhard Wilkinson, Joseph
Ognibene, Krisfján Stephensen,
Sigurður I. Snorrason, Rúnar Vil-
bergsson, er hljóp í skarðið fyrir
Bjöm Ámason, Sean Bradley,
Carmel Russil og David Knowles,
er allir gerðu sitt besta og sumt
mjög vel, enda reyndir og ágætir
tónlistarmenn.
Sjálfstæðismenn
Næstu daga munum við stuðningsmenn dr. Vilhjálms Egilssonar dreifa til allra
sjálfstæðismanna í Reykjavík kosningablaði okkar. Kynnist viðhorfum Vil-
hjálms. Það höfum við gert.