Morgunblaðið - 04.10.1986, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986
Um eignarskatt
eftirMaríuE.
Ingvadóttur
Þegar hugmyndir varðandi hækk-
un eignaskatts ber á góma, er vert
að hafa í huga hver tilgangurinn er
með álagningu hans. I fyrsta lagi
má spyija hvort eignarskattur eigi í
raun rétt á sér. Hér er um að ræða
að skattleggja enn einu sinni þær
tekjur sem ráðstafað hefur veriðt il
eignamyndunar, og endurtaka svo
þá skattlagningu árlega.
Hveijir greiða
eignaskatt
Ef eignaskattur á rétt á sér, hveij-
ir eiga þá að greiða hann? Er það
svo að sumir fái betri tækifæri en
aðrir til að breyta tekjum sínum í
„Ef eignaskattur á rétt
á sér, hverjir eiga þá að
greiða hann? Er það svo
að sumir fái betri tæki-
færi en aðrir til að
breyta tekjum sínum í
arðbærar eignir, þannig
að á þá er lagður enn
einn útjöfnunarskattur-
inn og nú kallaður
eignarskattur. Ef svo er,
hveijir eru þá þessir út-
völdu sem jafna þarf
um.“
arðbærar eignir, þannig að á þá er
lagður enn einn útjöfnunarskatturinn
og nú kallaður eignaskattur. Ef svo
er, hverjir eru þá þessir útvöldu sem
jaöia þarf um.
Ef við skoðum álagningarseðilinn
frá skattinum vegfna ársins 1985,
kemur í ljós að í þessum hópi eru
allir þeir sem eiga hreina eign að
verðmæti meira en 1.248 þúsund
krónur um síðustu áramót. Ef hrein
eign hjóna er meiri en sem nemur
2.496 þúsund krónum greiða þau
0,95% eignaskatt af því sem umfram
er upp að 4.352 þúsund krónum,
1,2% eftir það, nema þeir sem eru
67 ára og eldri greiða áfram 0,95%.
Eignaskatturinn leggst á heimilin
strax og skuldabagginn á íbúðinni
minnkar. Ef annar makinn fellur frá,
verður frádráttur frá eignaskatts-
Haustlaukar
■gsssssæss?
Jólahyaslntur JR“*j"arsí[ama (AmmaryUs) ofl
SYtfsláttur
ÆUPnilaukunH
Jólatúlípanar
^ntilboðin vinsselu
4
™rJLJ&
ssfe: 7
r/
stofni aðeins einn. Eftirlifandi maki,
sem þá er orðinn eina fyrirvinna
heimilisins, greiðir þá eignaskatt af
eign sem hjónin greiddu e.t.v. ekki
af áður. Það sama gildir um aðra
einstaklinga sem standa fyrir heim-
ili, eignaskattsstofriinn leggst þar á
einn skattgreiðanda með einn frá-
drátt. Þama er brotalöm sem þarf
að lagfæra.
Hækkun frádráttar
Það sem erfitt er í framkvæmd
að ákvarða einn eignaskattsstofn
heimilisfólks, hlýtur að þurfa að
hækka frádrátt hvers skattgreiðanda
frá eignaskattsstofni, þannig að ein-
staklingar, einstæðir foreldrar og
fólk á miðjum aldri sem greitt hefur
niður sín íbúðarlán, og fara að standa
betur efnahagslega, greiði ekki
eignaskatt. Hér er ég að tala um
fólk með almennar launatekjur.
Það er varla meiningin að leggja
stein í götu þeirra sem eiga vilja þak
yfir höfuðið og styrkja með því þann
homstein sem heimilið er hverri §öl-
skyldu. Um 75% framteljanda greiða
eignaskatt, og á árinu 1985 voru
tekjur ríkissjóðs vegna hans um 763
milljónir króna.
Stóreignaskattur
Framsóknar og
Alþýðuflokks
Margir þingmenn Framsóknar-
flokksins em fylgjandi hugmyndum
um hækkun eignarskatts
í tillögum Alþýðuflokksins frá í
vetur er gert ráð fyrir stighækkandi
eignaskatti, þó svo að skattbyrði
heimila með meðaltekjur, eigin Mð
og bifreið eigi ekki að aukast vegna
eignaskatts. Þetta kemur ekki heim
og saman þegar eignaskattsmörkin
em nú þegar of lág. Tillögur Al-
þýðuflokksins bera með sér að í þeim
felst í raun að skattbyrði vegna
eignaskatts á meðalhúsnæði þyngist
til muna.
Lægri eignaskatta
í stefiiuskrá Sjálfstæðisflokksins
kemur skýrt fram að skattbyrði
heimilanna skuli vera réttlát og ekki
til þess fallin að draga úr vilja manna
til fjárfestinga. Þess vegna verður
að mínu mati að hækka eignaskatts-
mörkin þannig að venjulegt launafólk
greiði ekki eignaskatt.
Höfundur er viðskiptafræðingur og
fommður Hvatar.
Flugleiðir;
Flestir sem tengjast
leiðtogafundinum
borga fullt fargjald
„ÖLLUM sérfargjöldum fylgja ýmsar kvaðir og það kemur eiginlega
af sjálfu sér að þeir sem hingað koma vegna leiðtogafundarins,
geta ekki ferðast á slíkum afsláttarfargjöldum,“ sagði Margrét
Hauksdóttir, hjá kynningardeild Flugleiða í samtali við Morgun-
blaðið.
Þar sem ekki var vitað fyrr en í
þessari viku að leiðtogafundur
Reagans og Gorbachevs yrði hald-
inn hér, gátu blaðamenn og aðrir,
sem hingað koma í tengslum við
hann, ekki tryggt sér flugfar með
afslætti. Slík fargjöld eru háð ýms-
um takmörkunum, og verður
ferðalangurinn í sumum tilvikum
að ákveða brottfarar- og komudag
og lengd dvalar langt fram í tímann.
Farpantanir streyma nú til Flug-
leiða og verður ferðastraumurinn
til landsins mestur í næstu viku.
„Flestir sem koma til landsins á
þessum tíma eru í tengslum við leið-
togafundinn og mér fínnst líklegt
að þeir greiði allir fullt fargjald,"
sagði Margrét. „Þegar svona að-
staða kemur skyndilega upp, er
raunverulega ekki um önnur en
venjuleg fargjöld að ræða fyrir
ferðamennina. Annars er þetta svo
sérstakt tilfelli að við höfum aldrei
komist í kynni við slíkt áður,“ sagði
hún.
Félagsmálaráð:
Áframhald á hópstarfi
gegn vímuefnum
HÓPSTARFI með unglingum
gegn vímuefnum, sem hófst í
febrúar sl. en legið hefur niðri
í sumar, verður haldiðáfram eft-
ir áramót.
„Það er tóm endaleysa að leggja
eigi hópstarfíð niður,“ sagði Ami
Sigfússon formaður Félagsmála-
ráðs Reykjavíkurborgar vegna
fréttar í Þjóðviljanum þar að Tút-
andi. Ámi sagði að komið hefði til
tals að mynda nýjan hóp unglinga
nú í haust en til þess þyrfti aukafj-
árveitingu frá borginni. Hann hefði
því lagt til að málið yrði sérstaklega
tekið fyrir við gerð fjárhagsáætlun-
ar eftir áramót og gert ráð fyrir
að nýir hópar verði myndaðir.
„Menn eru hlynntir þessu starfí,“
sagði Ámi.