Morgunblaðið - 04.10.1986, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 04.10.1986, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986 Til varnar Yilmundi Gylfasyni eftir ÓlafRagnar Grímsson Á þriðjudaginn var þjóðinni til- kynnt að Bandalag jafnaðarmanna hefði verið lagt niður um nóttina. Sama dag birti DV viðtal við for- mann Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson. Þar tilkynnir hann að Guðmundur Einarsson, sem kos- inn var þingmaður Bandalags jafnaðarmanna í síðustu alþingis- kosningum, muni ávarpa flokksþing Alþýðuflokksins. Síðan bætir Jón Baldvin við: „Þar með hafa tekist sögulegar sættir og þar með bætt fyrir þau mistök þegar Vilmundur Gylfason gekk úr flokknum." Þessi yfírlýsing var síðan sett í fyrirsögn á viðtalinu: „Bætt fyrir þau mistök þegar Vilmundur fór úr Alþýðu- flokknum." í nokkra daga beið ég eftir því að Guðmundur Einarsson og Stefán Benediktsson, sem meira en aðrir menn hafa notið góðs af lýðhylli Vilmundar, myndu gera athuga- semd við þessi ummæli Jóns Baldvins. En þessir tvímenningar virðast við inngönguna í Alþýðu- flokkinn svo heillum horfnir, að þeir skeyta engu um heiður hins látna foringja. Þeir gera ekki at- hugasemd við að Jón Baldvin skuli veitast svona ósmekklega að minn- ingu Vilmundar. í Morgunblaðinu fímmtudaginn 2. október birtist hins vegar lof- grein sem Jón Baldvin skrifar um sjálfan sig undir heitinu „Sögulegt Það er tilvalið að koma í JL Byggingavörur við Hringbraut eða Stórhöfða. Þiggja góð ráð frá sérfræðingum um allt mögulegt sem lýtur að húsbyggingum, breytingum og viðhaldi húseigna. Við höfum ætíð heitt kaffi á könnunni. Laugardaginn 4. október verður kynningu háttað sem hér segir: JL Byggingavörur v/Hringbraut. JL Byggingavörur, Stórhöfða. Laugardaginn 4. októberkl. 10-16. Laugardaginn 4. októberkl. 10-16. PCI FÚGUEFNI, FLÍSALÍM OG PLASTEINANGRUN FRÁ VIÐGERÐAREFNI. SKAGAPLAST PILKINGTON VEGGFLÍSAR Vönduð vara. Sérfræðingar á staðnum. - KYNNINGARAFSLÁTTUR - - KYNNINGARAFSLÁTTUR - Komið, skoðið, fræðist JL BYGGINGAVÖRUR 2 góðar byggingavöruverslanir. Austast og vestast í borginni Stórhöfða, sími 671100 • v/Hringbraut, sími 28600 flokksþing". Þar heldur hann áfram aðförinni að sögu Vilmundar Gylfa- sonar. Það er því ljóst að ummælin í DV voru ekki tilviljun. Hér er á ferðinni markviss og ósvífín tilraun til að festa í sessi sögufölsun í þágu stundarhagsmuna Jóns Baldvins og pólitískrar leiksýningar í Hvera- gerði. í greininni í Morgunblaðinu ítrekar Jón Baldvin að nú sé verið „að bæta fyrir“ mistök Vilmundar Gylfasonar og herðir reyndar föls- unartökin með því að gefa hér einkunnina hin „alvarlegu mistök". Það er því óhjákvæmilegt að við sem þekktum þessa sögu vel vegna tíðra viðræðna við Vilmund og aðra forystumenn Alþýðuflokksins mót- mælum þessari kokhreisti í Jóni Baldvin, þótt vissulega hefði verið viðkunnanlegra að félagar Vil- mundar úr þingflokki BJ hefðu haft manndóm til að svara. Ef eng- inn gerir athugasemd er hætta á að sagan verði skráð á grundvelli blekkinga Jóns Baldvins. Það voru ekki mistök að Vil- mundur Gylfason gekk úr Alþýðu- flokknum. í nokkur ár reyndi hann til þrautar að fá þingmenn og aðra forystumenn Alþýðuflokksins til að taka upp baráttu fyrir breyttu stjómkerfí. Vilmundur setti fram ítarlegar tillögur um þessi efni: Þjóðkjör forsætisráðherra, breytt hlutverk Alþingis, nýskipan á stjóm banka og opinberra stofnana, vald- dreifíngu til héraðsstjóma, beinna lýðræði og breyttar siðferðisreglur á ýmsum sviðum. Kjaminn í stefnu Vilmundar var að breytingar á stjómkerfínu væm forsenda þess að Islendingar næðu árangri i stjóm efnahagsmála og annarra mikilvægra þjóðmála. Þessi viðhorf vom burðarásamir í stjóm- málahugsjón Vilmundar. Þegar Alþýðuflokkurinn hafnaði þessari hugsjón þá var rökrétt að Vilmundur segði skilið við Alþýðu- flokkinn. Vilmundur var fyrst og fremst hugsjónamaður og var reiðu- búinn að fóma frama til að beijast fyrir framgangi stefnu sinnar. í hans huga var hugsjónin æðri flokksþjónkuninni. Þess vegna sagði hann skilið við Alþýðuflokk- inn. Brottgangan var ekki mistök heldur rökrétt staðfesting á því að Vilmundur var trúr eigin boðskap. En það er kannski ekki von að Jón Baldvin skilji það. Um Stefán og Guðmund gegnir öðm máli. í nokkur ár vom skrifstofur okk- ar Vilmundar í sama húsi. Vegna gamallar vináttu og sameiginlegs áhuga á eðli og uppbyggingu stjóm- kerfa ræddum við oft um framvindu þessara deilna í Alþýðuflokknum. Aðrir forystumenn Alþýðuflokksins vom einnig í þessu húsi og ég kynntist þeirra viðhorfum. Það var djúpstæður ágreiningur milli þeirra og Vilmundar um afstöðuna til stjómkerfísbreytinganna og mikil- vægustu áhersluatriða í stjóm- málabaráttunni. Brottför Vil- mundar úr Alþýðuflokknum var því víðs íjarri því að vera „alvarleg mistök" sem þurfí „að bæta fyrir" svo að notuð séu orð Jóns Bald- vins. Hún var sönnun þess að Vilmundur var stórbrotinn stjóm- málamaður sem setti stefnuna ofar eigin hagsmunum. Þótt ég hafí verið ósammála mörgu í tillögum Vilmundar og hvað efnisþætti varðar gæti tekið undir rök þeirra sem hafna þjóð- kjöri forsætisráðherra, þá get ég ekki setið þegjandi þegar Jón Bald- vin fer að falsa söguna í þágu skrautsýningar á Hótel Örk. Sumir líta á stjómmálin sem skák. í þeirra huga em allir leikir leyfílegir ef þeir leiða til vinnings. Jón Baldvin skipar sér í þá sveit og velur „Miðtaflið" sem kaflaheiti i lýsingunni á formannsferli sínum sem birt var f Morgunblaðinu sl. fímmtudag. Aðrir skoða stjómmálin sem vett- vang fyrir hugsjónabaráttu. Vil- mundur Gylfason var slíkur hugsjónamaður. Menn geta verið ósammála stefnu hans en það er ódrengilegt að vera svo upptekinn við hraðskákinni um eigið vald að gripið sé til blekkinga um feril lát- ins foringja. Höfundur er formaður Fram- kvæmdastjómar AJþýðubanda■ lagsins. Bandalagjafnaðarmanna: Stefna á fram- boð um land allt Hluti Landsnefndar Bandalags jafnaðarmanna hefur komið saman og var ákveðið að mynda starfshóp fimmtán manna. Fund- urinn samþykkti yfirlýsingu þar sem kemur fram að flokkurinn muni bjóða fram tíl alþingis og sagði Þorgils Axelsson að það ætti við um »11 kjördæmin. í yfírlýsingunni segir: í tilefni þess að þrír þingmenn BJ telji sig eiga betri möguleika á vegum Al- þýðuflokksins og þeir láta líta svo út að Bandalag jafíiaðarmanna hafí verið lagt niður, þá lýsist yfír eftir- farandi: 1. Bandalag jafnaðar- manna hefur ekki verið iagt niður. 2. Haldinn verður Landsfundur BJ eins og lög BJ gera ráð fyrir. 3. Starfandi er fólk sem vinnur að stefnumálum BJ. 4. Bandalag Jafn- aðarmanna býður fram til alþingis. 5. Bandalag jafnaðarmanna mun sækja styrk sinn til almennings. Þorsteinn Hákonarsson, vara- formaður Landsnefndar og Öm S. Jónsson, formaður framkvæmda- nefndar, voru meðal þeirra sem sátu fundinn, en Vilhjálmur Þor- steinsson varaformaður komst ekki. Jónína Leósdóttir, varamaður Stef- áns Benediktssonar sem genginn er i þingflokk Alþýðuflokks, hefur lýst því yfír að hún muni ekki taka sæti á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn ef til þess kæmi. Haft var samband við Guðmund Einarsson fyrrum formann Banda- lags jafnaðarmanna, sem nú er genginn í þingflokk Alþýðuflokks, en hann vildi ekki tjá sig um stöðu mála að svo stöddu. MARIA E. INGVADOTTIR KOSNINGASKRIFSTOFA í NÝJABÍÓHÚSINU, LÆKJARGÖTU. SÍMAR:12540,14494,14558. OPIÐ FRÁ14.00-22.00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.