Morgunblaðið - 04.10.1986, Side 22

Morgunblaðið - 04.10.1986, Side 22
Verða gestir allrar þjóðar- innar en ekki bara ríkis- sljórnarinnar MATTHÍAS Á. MATHIESEN ut- anríkisráðherra hélt í gærmorg- un fund með utanríkismálanefnd Alþingis, þar sem hann greindi nefndinni frá skipulagningu og undirbúningi vegna leiðtoga- fundarins i næstu viku. Eyjólfur Konráð Jónsson formað- ur utanríkismálanefndar sagði í samtaii við blaðamann Morgun- blaðsins í gær að þetta hefði verið jákvæður og gagnlegur fundur og allir hefðu verið sammála um það sem gera þyrfti. Honum hefði verið falið að sem formanni nefndarinnar að vera í sambandi við utanríkis- ráðuneytið og kalla nefndina saman á nýjan leik, ef nauðsyn krefði. „Við göngum út frá því að það er ekki ríkisstjómin sem er gest- gjafinn," sagði Eyjólfur Konráð, „heldur er það þjóðin öll. Þess vegna eiga allir þingflokkar, fulltrúar allr- ar þjóðarinnar aðild að því að vera gestgjafar hér.“ Gífurlegnr kostnaður hjá erlendum sjón- varpsstöðvum: Níu sjónvarps- stöðvar koma með sínar eig- injarðstöðvar LJÓST er að kostnaður erlendra sjónvarpsstöðva við fund leið- toga risaveldanna verður gífur- lega mikiil. Nú hafa 9 erlendar sjónvarpsstöðvar sótt um leyfi hjá Pósti og sima um að fá að flytja sínar eigin jarðstöðvar tU landsins, svo þær geti verið með beinar útsendingar frá fundi leiðtoganna. Ólafur Tómasson, póst- og simamálastjóri sagði i gær að stövarnar fengju tilskilin leyfi, svo fremi sem þær ábyrgð- ust greiðslur fyrir afnot af gerfihnöttum, sem stofnunin myndi svo greiða þeim sem reka gerfihnettina. Jarðstöðvamar eru mismunandi að stærð og umfangi, en flestar verða fluttar hingað til lands með venjulegum flugvélum. Jarðstöðin sem Cable News Intemational flyt- ur hingað er geyslilega mikil að umfangi, samvkæmt upplýsingum Jim Clancy fréttamanns stöðvarinn- ar. Hún verður flutt hingað með sérstakri flugvél, C - 130, og verð- ur kostnaður stöðvarinnar við jarðstöðina, og flutninga til og frá landinu, samkvæmt hans upplýs- ingum 600 þúsund dollarar, eða um 24 milljónir fslenskra króna. Flestar jarðstöðvamar munu koma frá Bandaríkjumum, eða a. m.k. 7 þessara níu. Sjónvarpsstöðin WTN mun flytja tvær stöðvar hing- að, IT eina, ABC eina, CBS eina, NBS eina og CN eina. Þá hefur sjónvarpsstöðin CBS tekið Hótel Örk í Hveragerði á leigu eins og það leggur sig, frá morgun- deginum og fram yfír fundinn. Þar verða höfuðbækistövar sjónvarps- stöðvarinnar. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986 Morgiublaðið/Bjarni. Innlendir og erlendir fréttamenn þegar fundinum i Borgartúni var að ljúka, en þá var vænst sameiginlegrar yfirlýsingar um hver fundar- staður leiðtoganna verður. Hún kom ekki, og kemur jafnvel ekki fyrr en á mánudag. Eyjólfur Konráð Jóns- son, formaður ut- anríkismálanefndar: Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson. Bifreið sú, sem verður til afnota fyrir Mikhail Gorbachev, var flutt flugleiðis til landsins i gær. Henni var ekið beint frá Keflavíkurflugvelli að húsum sovéska sendiráðsins við Garðastræti. Hér sést, þegar verið að koma bifreiðinni inn i bilskúr. Maraþonfundir um fimdarstað leiðtoganna FULLTRÚAR leiðtoga stórveld- anna og ríkisstjórnar íslands funduðu i gær i Borgartúni 6 um það hvar aðalfundarstaður leið- toganna skuli verða. Fundurinn hófst f Borgartúni kl. 16 og stóð til kl. að verða 18. Um 15 fulltrúar hvorrar stórþjóðar voru mættir til fundarins ásamt íslensk- um embættismönnum. Sendiherrar beggja landanna hér á landi voru jafnframt á fundinum. Birgir Þorgilsson ferðamaálstjóri gekk í gær frá samningi við norskt skipafyrirtæki um að hingað komi norska ferjan Bolette, sem verði hótelskip hér í Reykjavíkurhöfn fram yfír leiðtogafundinn. Feijan getur hýst 400 manns í tveggja manna klefum. Birgir kvaðst telja að með þessari tilhögun, ásamt því gistiiými sem boðið hefði verið fram af einkaaðiium og því sem boðið hefði verið fram af Menntaskólan- um á Laugarvatni og Húsmæðra- skólanum þar væri búið að leysa vandann. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins að Birgir hefði gengið frá þessum samningi fyrir milligöngu Eimskips hf. eftir að ríkisstjómin hafði fyrir sitt leyti veitt heimild til þess að norska fyrirtækinu yrði lofað að skipið yrði fullbókað, þann tíma sem það verður hér, en það var skilyrði af hálfu Norðmannanna. Steingrím- ur sagði að það kostaði á milli 10 og 11 milljónir króna að fá skipið hingað þennan tíma. „Það á ekki að fylgja því nein áhætta að stilla verðinu þannig, að þær tekjur fáist inn,“ sagði forsætisráðherra. Forsætisráðherra var spurður hvaða augum ríkisstjómin liti þann möguleika að bandaríski blaðamað- urinn Daniloff komi hingað til lands til þess að annast fréttaskrif um Morgunblaðið/Bjami Sendiherra Bandaríkjanna Nicholas Ruwe kemur til fundarins í Borgartúni siðdegis í gær. leiðtogafundinn: „Ríkisstjómin hef- ur vitanlega engin minnstu afskipti af því, en persónulega finnst mér það alls ekki klókt af hálfu Banda- ríkjamanna að koma með hann, ef þeir gera það,“ sagði Steingrímur. 03

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.