Morgunblaðið - 04.10.1986, Síða 24
~24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986
■leiðtogafundurinn í REYKJAVÍkH
Staðfestingar um húsnæði krafist af ferðamönnum:
Reglur stjómvalda
valda vonbrigðum
„Hélt að ísland væri vestrænt ríki,“
segir formaður samtaka til stuðn-
ings gyðingum í Sovétríkjunum
ÝMIS samtök til stuðnings
sovéskum gyðingum ætla
að koma hingað til lands
meðan á fundi Ronalds Re-
agan og Mikhails Gorbac-
hev stendur í Reykjavík 11,
og 12. október til að gefa
út „sýnilega, opinbera yfir-
lýsingu" eins og einn full-
trúi slíkra samtaka orðar
það. Nú gæti aftur á móti
komi babb í bátinn hjá þess-
um samtökum, þvi að
dómsmálaráðuneytið hefur
gefið út reglur, sem kveða
á um að erlendum ferða-
mönnum verði ekki leyft
að koma inn í landið dagana
3. til 13. október, nema þeir
hafi í höndum staðfestingu,
sem flugvallarstarfsmenn
meta gilda, um að þeir hafi
tryggt sér húsnæði hér á
landi. Reyndar eru frétta-
menn, sem hingað koma til
að fylgjast með fundinum,
undanþegnir reglugerð-
inni.
„Mér þykir miður að þessi
ákvörðun skuli hafa verið tek-
in,“ sagði Jerry Goodman,
formaður samtakanna „The
National Conference on Soviet
Jewiy", sem höfuðstöðvar hafa
í New York, í samtali við Morg-
unblaðið.
Spurning um val
fundarstaðar
„Hér er augljóslega verið að
takmarka rétt manna og frelsi.
Fyrst íslendingar þurfa að
grípa til slíkra aðgerða til að
tiyggja öryggi hlýtur sú spum-
ing að vakna hvort réttur
staður hafí orðið fyrir valinu
þegar ákveðið var að halda
Reykjavíkurfundinn," sagði
Goodman og bætti við að
greinilega hefði verið gripið til
þessara aðgerða til þess að
komast hjá „óþægindum".
„Þetta mun ekki einangra
ísland, heldur afmarka íbúa
landsins frekar á landakortinu.
ísland tilheyrir hinum frjálsa
heimi og aðgerðir sem þessar
myndu ekki falla að fólki í
Bandaríkjunum.
Ég vil benda á að þegar leið-
togafundurinn var haldinn í
Genf kom ekki til væringa milli
lögreglu og gyðinga. Enda vor-
um við ekki þangað komin til
að fara ófriðlega heldur koma
okkar sjónarmiðum á framfæri
á friðsamlegan hátt.“
Ýkjukennd viðbrögð
Goodman telur reglumar
bera ýkjukenndum viðbrögðum
vitni: „íslendingar hafa aflað
sér velvildar erlendis með því
að samþykkja að halda leið-
togafundinn á íslandi. Aftur á
móti má búast við að þessi
velvild hverfí eins og dögg fyr-
ir sólu vegna reglnanna, sem
bera merki asa og fljótræðis.
Einnig er verið að gefast upp
fyrir hryðjuverkamönnum með
því að loka þjóðfélaginu, stað
þess að halda í lýðræðislegar
dyggðir."
Goodman heldur áfram:
„Hér gafst íslendingum kostur
á að sýna allar sínar bestu hlið-
ar. Og vissulega er til fólk, sem
vill vera viðstatt sögulegan við-
bur, kemur til íslands og rennir
blint í sjóinn með húsnæði.
Leiðtogar stórveldanna hittast
ekki daglega. Þetta fólk hlýtur
að verða fyrir vonbrigðum
vegna þessara ströngu hafta.
Eg vona aðeins að íslenskum
yfírvöldum veitist tími til að
draga úr þessum höftum án
þess að raski lögum og reglu,“
sagði Goodman.
Yuri Stem, talsmaður
„Menntunar- og upplýsinga-
stofnunar sovéskra gyðinga",
sem aðsetur hefur í Jerúsalem,
lýsti yfír því á þriðjudag að
ákveðið hefði verið að halda
leiðtogafundinn á íslandi til
þess að koma í veg fyrir að
efnt yrði til mótmæla. Gyðing-
ar myndu þó ekki láta það á
sig fá heldur koma til íslands
og tryggja að hlustað yrði á þá.
Ætlaaðkomaog
farasamadag
Goodman sagði að reglu-
gerðin myndi vissulega setja
strik í reikninginn hjá samtök-
um stuðningsmanna gyðinga í
Sovétríkjunum. Aðgerðir sam-
takanna yrðu smærri í sniðum
en ella. Þó hefði fjöldi gyðinga
ákveðið að koma og fara sam-
dægurs og bjóst Goodman við
að íslensk yfirvöld myndu
hleypa þessu fólki inn í landið.
Hann vildi leggja áherslu á
að hér væri ekki um mótmæli
að ræða heldur „sýnilega yfir-
MICHAL Shirman er haldinn
hvítblæði og þarf á beinmergs-
aðgerð að halda. Hans eina von
er systir hans f Sovétrflgunum.
Hún hefur aftur á móti ekki
fengið vegabréfsáritun hjá sov-
éskum yfirvöldum til að fara
til ísraels og gefa bróður sínum
beinmerg.
Shirman kvaðst f viðtali við
Morgunblaðið vita af þeim að-
gerðum, sem „Menntunar- og
upplýsingastofnun sovéskra gyð-
inga“ í Jerúsalem, ráðgera á
íslandi í tilefíii að Reykjavíkur-
fundinum.
„Ég vona að heilsa mín ieyfí
mér að koma til íslands og taka
þátt f að afhenda leiðtogunum
viljayfírlýsinguna og taka þátt f
baxáttunni," sagði Shirman.
lýsingu á almennum vett-
vangi“.
Myma Scheinbaum, fram-
kvæmdastjóri „The National
Conference on Soviet Jewry",
sagði í samtali við Morgun-
blaðið að ætlunin væri að ýmsir
málsmetandi gyðingar legðu
fram nokkurs konar viljayfir-
lýsingu á leiðtogafundinum.
Þar verði Reagan hvattur til
að standa við skuldbindingar
sínar og ræða ekki aðeins
mannréttindamál við Gorbac-
hev heldur einnig minnast
sérstaklega á málefni gyðinga
í Sovétríkjunum. Þá verður í
yfírlýsingunni áminning til
Gorbachevs um brjóta ekki rétt
sovéskra gyðinga, að sögn
Scheinbaum.
Hún sagði að ákveðið hefði
verið að leigja Boeing far-
þegavél til að flytja þátttakend-
ur í „friðsamlegum aðgerðum"
til íslands og mætti gera ráð
fyrir að nokkur hundruð manns
kæmu til landsins frá .Banda-
ríkjunum. Einnig kæmi flöldi
fólks frá Vestur-Evrópu og
ísrael.
Athygli fjölmiðla
eins og leysigeisli
Scheinbaum kvaðst búast
við að gyðingamir kæmu 10.
október „Þá verður safnast
saman og gildir einu þótt leið-
togamir verði ekki komnir."
Goodman tók í sama streng:
„Það skiptir ekki máli hvenær
aðgerðir okkar fara fram. At-
hygli mikilvægustu ^ölmiðla
heims beinist nú að íslandi.
Það má líkja þessu við leysi-
geysla. Búast má við því að
fréttaleynd ríki yfir viðræðum
leiðtoganna og munu frétta-
mennimir því verða að gera sér
allt að fréttum. í Genf vom
fréttamenn bandarísku sjón-
varpsstöðvanna famir að taka
viðtal hver við annan. Allar
uppákomur á Reykjavíkur-
fundinum verða því í sviðsljós-
inu.“
„Pyrir átta mánuðum sótti syst-
ir mfn, Inessa, um vegabréfsárit-
un til að mega koma hingað til
ísraels til þess að læknar gætu
framkvæmt aðgerðina, sem ég
lífsnauðsynlega þarf á að halda.
Henni var synjað. 20. júlí sótti
hún um leyfí til að mega flytjast
brott frá Sovétríkjunum. Henni
var veitt leyfíð, en þeir hafa ekki
ennþá látið hana hafa vegabréfsá-
ritun."
Shirman sagði að læknar hans
segðu að lífslfkur hans myndu
aukast verulega gæti hann geng-
ist undir aðgerðina nú. En fengi
systir hans ekki að fara frá Sov-
étríkjunum innan tíðar ætti hann
skammt eftir ólifað, f mesta lagi
tvö ár.
Mannslíf veltur
á sovéskri vega-
bréfsáritun
Pressena Bild/Símamynd
Sovéska feijan „Georg Ots“, sem nú er á leið til íslands vegna leið-
togafundarins. Fylgdarlið Gorbachevs ætlar að nota hana sem
aðsetur að einhverju leyti. Myndin var tekin í höfninni í Helsinki,
en feijan var í förum milli hennar og Tallinn í Eistlandi.
Reykjavík - tákn-
rænt nafn í
finnskum fréttum
Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunbiadsins.
í FINNSKUM fjölmiðlum hefur
nafnið „Reykjavík" undanfama
daga fengið samskonar tákn-
ræna þýðingu og „Genf“ eða
„Helsinki-sáttmálinn**. En það er
augljóslega einungis tákn. Þrátt
fyrir að mörg blöð noti orðið
„Reykjavík“ í fyrirsögnum, hef-
ur varla neinn fjallað alvarlega
um þátt íslendinga i þessum við-
ræðum. Fréttir frá íslandi segja
frá siyókomu og að landið vanti
herlið sem geti séð um öryggi
leiðtoganna tveggja.
Sjónvarpið var um daginn með
fréttaþátt um undirbúning fundar-
ins, en samkvæmt þeim þætti er
allt úr skorðum í Reykjavík vegna
fundarins. Finnar sem eru stoltir
af því að þeir fengu að sjá um
Helsinki-fundinn 1975 eru spenntir
að sjá hvort íslendingum tekst að
skipuleggja svona athöfn.
Höfuðborg íslands virðist vera
fíarlægur og dálítið spennandi
fundarstaður í augum Finna.
Grafíklistamenn sjónvarpsins voru
fljótir að teikna ímynd Reykjavíkur-
fundarins: Bandarískur og sovéskur
fáni sem hittast fyrir ofan hvíta
klessu.
Það má kannski búast við að
Reykjavík og ísland fái það mikla
athygli í fréttum að landið verði í
hugum Finna aðeins meira en hvítur
blettur, hvað þá hvít klessa.
Finnar telja sig aðeins með í
undirbúningsvinnu Reykjavíkur-
fundarins. Á meðan fundurinn
stendur verða fínnskir ferðamenn á
leið suður yfír Finnska flóann að
taka rútubíl og aka alla leið fyrir
botn flóans og verða þá að skoða
Leningrad um leið. Þetta stafar af
því að sovéska farþegaskipið
„Georg Ots“ sem siglir milli Hels-
inki og Tallinn sunnan við Finnska
flóann hefur verið tekið úr umferð
í um tvær vikur. Sovétmenn hafa
ekki tjáð hvers vegna, en orðrómur
er á kreiki um að Rússar ætli að
nota skipið sem bækistöð í
Reykjavík. Þetta virðist vera rök-
rétt með hliðsjón af því að hótel-
herbergin í Reykjavík eru löngu
uppseld.
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
VAXANDI atvinnuleysi í
Bandaríkjunum ( september
varð til þess að Bandaríkja-
dollar lækkaði i Vestur-Evr-
ópu í gær. Reyndist atvinnu-
leysið hafa verið 7% eða 0,2%
meira en mánuðinn á undan.
Þetta er skoðað sem vísbend-
ing um, að hagvöxtur verði
minni þar f landi á næstunni
en áður var talið.
Þá hafði einnig verið gert ráð
fyrir því, að vestur-þýzki seðla-
bankinn myndi grípa til ráðstaf-
ana til styrktar dollaranum, en
svo varð ekki. Hafði þetta einnig
áhrif til lækkunar á dollarinn.
Síðdegis í gær kostaði sterl-
ingspundið 1,44225 dollara
(1,4360), en annars var gengi
dollarans þannig, að fyrir hann
fengust 1,9965 vestur-þýzk mörk
(2,0065), 1,6155 svissneskir
frankar (1,6352), 6,5365 franskir
frankar (6,6035), 2,2555 hol-
lenzk gyllini (2,2775), 1.380,875
ítalskar lírur (1.393,50), 1,38675
kanadískir dollarar (1,3873) og
153,78 jen (154,33).