Morgunblaðið - 04.10.1986, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LÁUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986
AP/Símamynd
Alþjóðasöngur verkamanna var að venju sunginn að loknu þingi Verkamannaflokksins og hér er Kinnock
annar frá hægri. Honum á hægri hönd er kona hans, Glenys.
Breski Verkamannaflokkurinn:
Vill bandarískar
kjarnaflaugar burt
London, frá Valdimar Rúnari VaJdimarssyni, fréttaritara Morgimblaðsms.
LANDSÞING breska Verka-
mannafloksins leggur nú línum-
ar í hveijum málaflokknum af
öðmm. Einna mesta athygli hef-
ur vakið samþykkt þingsins um
brottnám bandarískra kjama-
flauga af breskri grund.
Þingið lagði í gær með miklum
meirihluta atkvæða blessun sína
yfír þá stefnu verkamannaflokksins
Beirút:
Orðsending
á mynd-
bandi
úr fanga-
vistinni
Beirút, AP.
SAMTÖKIN „Heilagt stríð“ í
Líbanon sendu í gær frá sér
myndbandsspólu, þar sem tveir
Bandaríkjamenn í haldi hjá þess-
um samtökum, skomðu á
Bandaríkjastjórn að fá þá lausa.
Skírskotuðu mennimir til þess,
að blaðamaðurínn Nick Daniloff
hefði nýlega verið leystur úr
haldi í Moskvu fyrir atbeina
Bandaríkjastjórnar.
Báðir mennimir, Terry A. Ander-
son og David Jacobsen skýrðu svo
frá, að samlandi þeirra, William
Buckley, hefði verið myrtur, á með-
an hann var í haldi hjá þessunm
samtökum.
Þetta var í fyrsta sinn, sem And-
ersson kemur fram á myndbands-
spóla með þessum hætti, síðan
honum var rænt í vesturhluta Beir-
út 16. marz 1985, en hann er aðal
fréttaritari Associated Press frétta-
stofunnar.
að gera Bretland kjamorkuvopna-
laust. Er ljóst að komist flokkurinn
til valda mun hann meðal annars
beita sér fyrir því að allar banda-
rískar kjamaflaugar verði fjarlægð-
ar af breskri grand innan árs.
Stefna Verkamannaflokksins í
afvopnunarmálum hefur vakið tölu-
verða umræðu í Bretlandi að
undanfömu, ekki síst vegna þeirrar
gagnrýni sem þessi stefna hefur
sætt af hálfu Bandaríkjamanna.
Hafa talsmenn verkamannaflokks-
ins bragðist ókvæða við því sem
þeir kalla afskipti Bandarikjamanna
af breskum innanríkismálum. Neil
Kinnock sagði til dæmis á lands-
þingi Verkamannaflokksins að
yfírlýsingar Bandaríkjamanna um
stefnu flokksins í afvopnunarmál-
um gerðu ekki annað en grafa
undan þeirri meginhugsjón sem
lægi að baki vamarsamstarfí vest-
rænna þjóða, þeirri ófrávíkjanlegu
kröfu að sérhver þjóð fái með lýð-
ræðislegum hætti að ákveða eigin
framtíð.
Stefna Verkamannaflokksins í
utanríkismálum þykir róttæk en þó
vilja sum öfl innan flokksins ganga
enn lengra og láta sér til dæmis
ekki nægja kjamorkuvopnalaust
Marcoshjónin yfirheyrð:
Hundsa óþægi-
legar spurningar
Honolulu.AP.
FERDINAND og Imelda Marcos, fyrrverandi forsetahjón á Filipps-
eyjum, hafa verið tekin til yfirheyrslu á Hawaii-eyjum, vegna
málshöfðunar filippínskra stjórnvalda á hendur þeim. Ferdinand
Marcos hefur 197 sinnum neitað að svara spurningum sem fyrír
hann voru lagðar og Imelda 200 sinnum.
Þau neita að svara spumingum
tengdum morðinu á Benigno Aquino
og um fjármuni, allt að 10 milljörð-
um Bandaríkjadollara, sem þau era
talin hafa komið undan, að því er
embættismenn stjómvalda á
Filippseyjum sögðu í gær. Yfír-
heyrslumar fóra fram á þriðjudag
og miðvikudag og sögðu hjónin í
yfírlýsingu er þau gáfu út á mið-
vikudag, að þau notuðu stjómar-
skrárbundinn rétt sinn til að neita.
að svara spumingum. Yfírvöld á
Filippseyjum væra að reyna að fá
fram upplýsingar í Bandaríkjunum
til að nota við réttarhöld á Filipps-
eyjum, en neituðu Marcoshjónunum
um leyfí til að fara til Manila og
skýra sitt mál.
Bretland. Lögðu vinstrimenn fram
tillögu á landsþingi þess efnis að
Bretland segði sig úr NATO og öll-
um bandarískum herstöðvum yrði
lokað hið snarasta. Landsþingið
felldi þessa tillögu en bersýnilegt
var þó á allri umræðu að þingfull-
trúar era flestir mjög tortryggnir í
garð Bandaríkjastjómar og þeirrar
utanríkisstefnu sem Reagan forseti
stendur í forsvari fyrir. Kom það
til dæmis glögglega fram í ræðu
Neils Kinnock á dögunum er hann
fordæmdi Bandaríkjamenn fyrir
afskipti af innanríkismálum í Nic-
aragua og stuðning við Contra-
skæraliða. Fékk sú gagnrýni
mikinn hljómgrann meðal þingfull-
trúa eins og flest annað sem
Kinnock hefur látið frá sér fara á
undanfömum dögum. Er ljóst að
formaðurinn hefur á þessu lands-
þingi Verkamannaflokksins mjög
treyst tök sín á flokksvélinni og
ratt úr vegi ýmsum hindranum sem
angrað hafa ráðandi öfl í flokknum
upp á sfðkastið. Ber þar hæst þá
flokksmenn sem lengst standa til
vinstri, þeir hafa farið halloka að
undanfömu og meðal annars misst
nokkra fulltrúa úr mikilvægum
trúnaðarstöðum innan flokksins.
Ekki leiðum að líkjast
Sam Knurr frá Denver (til vinstrí) og 6 ára gamli hundur hans
voru hinir kátustu, eftir að þeir höfðu unnið keppni um, hveij-
ir væru líkastir hver öðrum, húsbóndi og hundur. Keppni þessi
fór fram í Denver i vikunni.
Svíþjóð:
Verkfall opinberra starfs-
manna dregst á langinn
Frá fréttaritara Morgnnblaðsins, Pétri Péturssyni.
EKKERT útlit er fyrir að verkfall opinberra starfsmanna hér í
Svíþjóð, sem hófst á þriðjudaginn var, Ijúki á næstunni.
Hvem dag sem líður bætast
nýir hópar inn í verkfallsaðgerð-
imar og samningaumleitanir
virðast engan árangur bera.
í gær fóra um 17 þúsund laun-
þegar í alþýðusambandinu í
verkfall og næsta skrefíð í þessum
átökum er yfirvinnubann sem
verkalýðsfélögin hafa boðað og
kemur það til með að setja strik
í reikninginn hjá stóram opin-
beram stofnunum svo sem pósti
og sjúkrahúsum sem þegar hafa
orðið fyrir truflunum.
Hluti hjúkranarfólks er í verk-
falli og er mikill baráttuhugur í
hjúkranarkonum sem hafa farið
fram á allt að 30 prósenta launa-
hækkun. Þær virðast hafa samúð
almennings og jafnvel þeirra
sjúklinga sem verkfall þeirra bitn-
ar á. Þær benda réttilega á að
þær hafi dregist aftur úr öðram
hópum launþega undanfarin ár
og að þær hafí oft á tíðum mjög
óþægilegan vinnutíma.
Fóstrar og starfsfólk á dag-
heimilum hafa einnig farið í
verkfall á nokkrum stöðum svo
sem í Lundi og Uppsölum. Margir
hafa því ekki getað komist til
vinnu sinnar vegna þessa. Deilan
virðist nú standa um aðeins 50
skr. launahækkun á mánuði. Full-
trúar atvinnurekenda, í þessu
tilfelli ríkis- og sveitarfélaga, hafa
bragðist mjög hart við öllum
launakröfum og segja ekkert rými
fyrir hærri laun hjá hinu opinbera
ef hagkerfíð á að haldast í jafn-
vægi. í samningunum hafa full-
trúar launþega auk þess farið
fram á tryggingu fyrir því að laun
opinberra starfsmanna fylgi
nokkum veginn launaþróun hjá
þeim hópum sem starfa í iðnaði.
Ferðir lesta og strætisvagna
hafa traflast vegna verkfallanna
og er þetta einkum áberandi í
Stokkhólmi. Fólk tekur í auknum
mæli einkabfla sína til þess að
komast í vinnu úr úthverfum
borgarinnar og hefur nokkurt
umferðaröngþveiti skapast í mið-
borginni, ekki bætir úr skák að
stöðumælaverðir era í verkfalli og
bflstjórar geta því lagt bflum
sínum þar sem þeir fínna pláss,
en þeir era oft fyrir annarri um-
ferð. Starfsfólk í miðaafgreiðslu
er í verkfalli og þess vegna er nú
orðið hægt að ferðast ókeypis á
sumum leiðum. Það er eini ljósi
punkturinn í þessari vinnudeilu
það sem af er en bætir vart hag
launþega þegar fram í sækir.