Morgunblaðið - 04.10.1986, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986
32
Borgarstjórn Reykjavíkur:
Deilt um hafnar-
aðstöðu fyrir smá-
báta í Reykjavík
Á borg’arstjórnarfundi á fimmtudagskvöldið lagði Bjarni P. Magnús-
son (A) fram tillögu um, að borgarstjórn feli Hafnarstjórn að byggja
upp hafnaraðstöðu fyrir smábáta í Reykjavikurhöfn, ef könnun á
vegum hafnarstjóra leiddi í ljós að mikil þörf væri á slikri aðstöðu.
Guðrún Kristjánsdóttir við eitt verka sinna.
Kjarvalsstaðir:
Sýning á verkum
Guðrúnar Kristjáns-
dóttur opnar í dag
Bjami sagðist leggja þessa til-
lögu fram til að borgarstjóm gæti
tekið af öll tvímæli um vilja sinn f
þessum efnum. Taldi hann þörfina
^ á aukinni aðstöðu fyrir smábáta
vera mikla og leiðinlegt ef borgar-
stjóm léti mál sem þessi velkjast
lengi í nefndum og ráðum.
Bjami hafði áður lagt fram til-
lögu um gerð smábátakvía og
smábátaaðstöðu í gömlu höfninni á
fundi hafnarstjómar 25. september
s.l. Á þeim fundi samþykkti hafnar-
stjóm samhljóða bókun, þar sem
Viðræður
enn um rekst-
ur Hótels
Húsavíkur
Húsavfk.
Samvinnuferðir-Landýn hefur
haft Hótel Húsavík á leigu sl.
eitt og hálft ár, en sá samningur
rann út 1. október. Undanfarið
segir m.a., að hafnarstjóm hafi flár-
magnað gerð aðstöðu fyrir smábáta
og trillur, sem notaðar era í at-
vinnuskyni, á tveimur stöðum í
gömlu höfninni og borgarsjóður
hefði íjármagnað aðstöðu fyrir
skemmtibáta í Skeijafirði og Elliða-
vogi. Taldi hafnarstjóm ekki
tímabært að leggja ný svæði í
gömlu höfninni undir smábáta en
fól hafnarstjóra að gera úttekt á
þörf hafnargerðar fyrir smábáta í
Reykjavík.
Guðmundur Hallvarðsson (S)
sagði þessa tillögu lagða fram með
óvenjulegum hætti og með sam-
þykkt hennar væri verið að taka
ábyrgð og forræði í þessum málum
af hafnarstjóm. Sagði Guðmundur
róttækar breytingar vera í vændum
á svæðinu f kringum Reykjavíkur-
höfn og óvíst með notkunargildi
hennar f framtíðinni. Sá hann því
ekki ástæðu til að flytja þessa starf-
semi þangað, heldur væri nær að
bæta hana á þeim stöðum, þar sem
hún nú er.
Tillaga Bjama var felld með níu
atkvæðum gegn einu.
SÝNING á verkum myndlistar-
konunnar Guðrúnar Kristjáns-
dóttur verðuyr opnuð á
Kjarvalsstöðum f dag kl. 14. Þar
sýnir Guðrún 50 verk, flest unnin
á þessu ári og eru þau öll til sölu.
Flest verk Guðrúnar era „sam-
sett“ (collage) úr handgerðum
pappfr, sem hún hefur gert sjálf,
og einnig úr máluðu taui.
Guðrún Kristjánsdóttir er 36 ára
Reykvíkingur. Hún nam við Mynd-
listarskóla Reykjavíkur og við
listaskóla í Aix-en-Provence, í
Frakklandi um nokkurra ára skeið.
Guðrún hefur tekið þátt f samsýn-
ingu FÍM 1983, Kvennasýningunni
„Hér og nú“ f fyrra og „Reykjavík
í myndlist," á Kjarvalsstöðum á
þessu ári.
Sýningin, sem opnar í dag, er
fyrsta einkasýning Guðrúnar. Sýn-
ingin verður opin daglega kl. 14-22,
dagana 4. til 19. október.
Króksfjarðames:
12% dilka
í O flokk
Miðhúsum, Reykhólasveit.
FYRSTA hálfa mánuðinn fóru
rúmlega 12% af slátruðum lömb-
um f sláturhúsi kaupfélagsins í
Króksfjarðarnesi f 2. flokk O, eða
offituflokkinn sem svo er kallað-
ur.
Samkvæmt upplýsingum frá Sig-
urði Bjamasyni kaupfélagsstjóra í
KróksQarðamesi var fyrsta hálfa
mánuðinn slátrað í sláturhúsinu þar
4.847 dilkum og var meðalfallþungi
15,7 kg. Er þetta svipaður meðal-
fallþungi og í fyrra. Á þessum tíma
fóra 500 dilkar í O flokkinn og var
meðalvikt þar 19 kíló. Lenda því
12,4% af dilkunum f verðskerðingu
vegna offitu.
Siglufjörður:
Mikil hálka
Sigliiflrði.
MIKIL hálka hefur verið á Siglu-
firði undanfarna daga en engin
umferðaróhöpp hafa þó orðið,
að sögn lögreglunnar.
Margir þakka þetta því að hám-
arkshraðinn hér innanbæjar er 35
km og fara menn því yfirleitt mjög
varlega.
hafa staðið yfir viðræður milli
aðilanna nm áframhaldandi
leigu, en ennþá hefur ekki ennþá
náðst samkomulag.
Herbergjanýting á hótelinu hefur
verið með betra móti þetta ár, en
ráðstefnur færri en oft áður enda
hefur hótelum með aðstöðu fyrir
ráðstefnuhald flölgað á undanföm-
um áram en fæst hafa þó hótelin
þá staðsetningu að vera mitt í einu
eftirsóknasta ferðamannahéraði
landsins. Nýlunda var að hér vora
á sl. vetri haldin þijú Iandsmót í
bridds sem þóttust takast vel.
Fréttaritari
Myntsafnarafélag íslands:
'O
INNLENT
Danskur myntsérfræð-
ingur með fyrirlest-
ur í Norræna húsinu
HÉR Á landi er staddur danskur
myntsérfræðingur, Jerry Mayer
og mun hann flytja fyrirlestur
um danska og islenska sérmynt
í Norræna húsinu á sunnudag.
Mayér hefur sérhæft sig í söfnun
sérmyntar, sem er óopinber mynt
sem notuð var fyrr á öldum, í
stað venjulegra peninga, og eru
reyndar enn notuð í Danmörku.
Elsta danska sérmyntin er frá
miðöldum, og var blýmyntin notuð
Mistök í auglýsingu:
Kaupstaður seldi lamba-
kjötið á 100 kr. undir verði
í AUGLÝSINGU í Morgunblað-
inu á miðvikudag var auglýst
lambakjöt af nýslátruðu til sölu
í versluninni Kaupstaði á 198
krónur kflóið, en í ljós kom að
mistök höfðu orðið í auglýsinga-
gerð og var rétt verð á kjötinu
298 krónur kflóið.
„Við seldum kjötið á auglýstu
verði, á meðan birgðir entust,"
sagði Elís Helgason, verslunarstjóri
Kaupstaðar, í samtali við Morgun-
blaðið á fímmtudag. „Þetta vora
að vísu leið mistök, en ég held að
allir hafi nú verið sáttir við hvemig
málinu lyktaði." Elís gat ekki sagt
með vissu hvað mikið af kjöti var
*6elt á lága verðinu, en á fimmtudag
komu nýjar birgðir og vora þær
seldar á réttu verði.
„Salan hefur gengið alveg ljóm-
andi í dag, enda^ er rétta verðið
einnig mjög gott. Ég vonast til þess
að við seljum jafn mikið og á mið-
vikudaginn," sagði Elís.
9 Gunnar Steinn Pálsson hjá Aug-
lýsingaþjónustunni GBB, sem sér
um gerð auglýsinga fyrir Kaupstað,
sagðist sjálfur bera ábyrgð á mi-
stökunum.
„Mistökin snérast nú upp í hið
ánægjulegasta mál, þannig að fólk
streymdi til innkaupa í Kaupstað
og kjötið seldist upp á skömmum
tíma,“ sagði Gunnar Steinn.
„Við tókum þá stefnu strax um
morguninn að selja kjötið á aug-
lýstu verði og samþykktum að gera
það með bros á vör. Mér fannst við
bara snúa þessu snyrtilega okkur f
hag. Við auglýstum líka í útvarpi
„lambakjöt á sprenghlægilegu
verði" og allir höfðu mjög gaman
af. Því miður gátum við ekki hatdið
þessu áfram fram að helgi, bæði
vegna þess að nægilegt kjötmagn
hefði aldrei fengist og einnig vegna
þess að margir ætluðu sér ef til
vill einum of stóran hlut af því kjöti
sem til sölu var,“ sagði Gunnar
Steinn að lokum.
f sfldarolássum, eins og sfðar var
gert á Islandi. Sérmynt frá þessum
tíma er mjög sjaldgæf og era ein-
ungis til 15 gerðir frá tfmabilinu
1200 til 1300. Notkun sérmyntar
af þessu tagi var sfðan ekki tekin
upp aftur í Danmörku fyrr en 1850
og vora þá slegnir sérstakir pening-
ar fyrir hótel og veitingahús, auk
þess sem mörg fyrirtæki áttu það
til að greiða starfsfólki með eigin
mynt, sem fólkinu var svo skylt að
versla fyrir í búðum fyrirtækjanna.
Fyrir aldamótin síðustu var sleg-
in samskonar mynt hérlendis og
vora það svonefndir „brauðpening-
ar.“ Fór þá fólk með sekki af mjöli
til bakarans og fékk sérstaka
brauðpeninga fyrir, en bakarinn tók
helming mjölsins í greiðslu fyrir að
baka brauð úr mjölinu.
Vændiskonum í Kaupmannahöfn
var skylt á sfðustu öld að fara f
læknisskoðun og keyptu gleðikon-
umar sérstaka peninga hjá lögregl-
unni til að greiða fyrir þjónustu
lögreglulæknisins.
Áhugi Mayers á myntsöfnun
hófst árið 1959 en árið 1962 hóf
hann að safna sérmynt fyrir alvöra.
Hann átti þá 20 slfka peninga, en
safn hans telur nú um 3.000 pen-
inga. Mayer á tæplega 30 fslenska,
óopinbera peninga og era vörapen-
ingamir frá því fyrir 1930 mjög
verðmætir. Tunnumerkin svoköll-
uðu frá sfldaráranum, era öllu
algengari, og á Mayer töluvert safn
af þeim.
Mayer er hér í boði Myntsafnara-
félags íslands og mun hann fjalla
Morgunblaðið/O
Jerry Mayer, sérfræðingur í
danskri sérmynt.
um bæði íslenska og danska sér-
mynt á fyrirlestrinum í Norræna
húsinu á sunnudag og sýna skyggn-
ur af nokkram slíkum peningum.
Fyrirlesturinn hefst kl. 15.
Kvennalistakon-
ur bjóða fram
Kvennalistakonur í Reykjavík
ákváðu á félagsfundi sem hald-
inn var á miðvikudagskvöld að
bjóða fram í næstu kosningum
til Alþingis f Reykjavíkurkjör-
Opið prófkjör A-listans
AÐALFUNDUR kjördæmisráðs
Alþýðuflokksins f Reykjanes-
kjördæmi var haldinn í Stapa f
Njarðvík 30. september sl.
í stjóm vora kjömir Hörður Zóp-
haníasson formaður, Gísli Ólafsson
og Gunnlaugur Guðmundsson. í
varastjóm: Georg Tryggvason, Öm
Eiðsson og Petrina Baldursdóttir.
Fráfarandi formaður, Sigþór Jó-
hannesson, baðst undan endurkosn-
ingu.
Á fundinum var ákveðið að við-
hafa opið prófkjör um 5 efstu sæti
A-listans í Reykjaneskjördæmi
fymhluta nóvembermánaðar.
í samræmi við lög Alþýðuflokks-
ins kaus kjördæmisráðið 5 menn í
flokksljóm Alþýðuflokksins og tvo
til vara. Þessi vora kosin: Anna
Margrét Guðmundsdóttir, Keflavík,
Gestur Geirsson, Garðabæ, Hauður
Helga Stefánsdóttir, Kópavogi,
Magnús Ólafsson, Grindavík og
Margrét Pálmarsdóttir, Hafnarfirði
og til vara Ólafur H. Einarsson,
Mosfellssveit og Eðvald Bóasson,
Njarðvík.
dæmi. Framboðið var samþykkt
einróma.
í fréttatilkynningu frá kvenna-
listakonum segir:
„Fram kom á fundinum að
Kvennalistakonur telja allar fyrri
ástæður fyrir sérframboði kvenna
enn í fullu gildi. Aðstæður kvenna
hafa versnað í tið núverandi ríkis-
stjómar og því aldrei nauðsynlegra
en nú að konur láti til sín taka
hvar sem ráðum er ráðið. Ein af
ástæðum þess að konur ákváðu á
sínum tíma að bjóða fram kvenna-
lista til Alþingis var nauðsyn
hugarfarsbyltingar í íslensku þjóð-
félagi og nýrra starfshátta í íslensk-
um 8tjómmálum. Ljóst er að hvort
tveggja á enn langt í land. Ljóst
er einnig að konur verða sjálfar að
betjast fyrir rétti sínum og betri
heimi, aðrir gera það ekki fyrir
þær. Þess vegna bjóða Kvennalista-
konur fram nú.“