Morgunblaðið - 04.10.1986, Síða 46

Morgunblaðið - 04.10.1986, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1986 fclk í fréttum Marínó Ólafsson, hljóðstjóri, á tali við John Wallis og Gur Melsingh. Melsingh er búsettur f Danmörku og stjóraar uppsetningu tækja frá Sony f stöðinni. Hann er af indversku bergi brotinn eins og vefjarhötturinn vitnar um Julio Iglesias hefur ætfð verið vel til kvenna. FYLGSTMEÐ FRAMKVÆMDUM í STÖÐ2 Diana Ross hefur f mörg ár verið hún gift norskum. Julio Iglesias gerir hosur sínar grænar fyrir sænskri stúlku Aðeins * hjónaband getur bjargað Igiesias segja vinir hans stoð og stytta Julios, en nú er Söngstjaman fræga frá Spáni, Julio Iglesias, hefur um tíma verið langt niðri, en nú er að birta til hjá þessu helsta átrúnaðargoði kvenfólksins. Sagan segir að hann sé í hjónabandshugleiðingum og draumurinn sé sænska fríðleiks- stúlkan Cecilia Hörberg. Samband þeirra hófst fyrir tveim- ur árum. Þá fór Iglesias til Stokk- hólms til að taka þátt í sjónvarps- þætti og styttu sænskar ljósmyndafyrirsætur honum stund- imar. Ein þeirra var Cecilia Hörberg frá Gautaborg. Igleasis gleymdi ekki þessum kynnum og fyrir skömmu hittust þau aftur. Með mikilli leynd flaug hann tii Gautaborgar í einkaþotu sinni og stuttu síðar hélt hann með Ceciliu til Boston í Bandaríkjunum. Hvort sem af hjónabandi verður eða ekki, hefur sænska augnayndið fært spænska söngvaranum lífskraftinn á ný. Og þeir sem best til þekkja eru sannfærðir um, að Igleasis vonast eftir jái, þegar hann ber upp bónorðið við Ceciliu. A leiðinni í Starfsfólk íslenska sjónvarps- félagsins - Stöðvar 2 - var í óða önn að flytja inn f húsakynni sín á Krókháisi þegar blaðamaður Morgunbiaðsins kom þar f heimsókn á fimmtudag. Gnýrinn í borvélum, hamarshögg, hróp og köll bergmál- uðu um allt. Tæknimenn földu sig bak við plastdúka til þess að vetja dýr tæki ryki, í einni skrifstofanna var bjartsýnismaður að vinna, þótt hurðarhúninn vantaði og smiður væri að setja rúðu í gluggavegginn. „Hér er allt á tjá og tundri eins og sjá má“ sagði Hans Kristján Áma- son, fjármálastjóri, „en allir þeir sem unnið hafa að undirbúningi svona stórra verkefna þekkja þann hamagang sem einkennir síðustu dagana fyrir opnun.“ Fyrsta útsending sjónvarpstöðv- arinnar er áætluð næsta fimmtu- dag. Þeir sem unnu að uppsetning- unni sögðust staðráðnir f þvf að láta dæmið ganga upp. „Við emm að verða vitni að litlu kraftaverki" sagði John Wallis, tæknilegur ráð- gjafi stöðvarinnar „Fýrir þremur mánuðum vom héma berir veggir, núna er að fæðast fullkomin sjón- varpstöð. Ég er sannfærður um að slíkt gæti aðeins gerst á íslandi. Útlendingar em ekki vanir því að vinna af svona krafti - þeir hefðu fundið meinbugi á öllu saman." Wallis talar af langri reynslu, því hann var tæknistjóri London Week- end Television í fjölda ára og rekur ráðgjafarfyrirtæki á sviðið sjón- varpsmála í Lundúnum. Þeir Sighvatur Blöndal, markað- stjóri og Sigurður Kolbeinsson, yfirmaður áskriftadeildar, réðu ráð- um sínum inn á einu skrifstofunni sem virtist nokkum vegin tilbúin. Þeir sögðu pantanir áskrifenda streyma inn, og koma nú vikulega sendingar af hinum margumtöluðu „afmglumm" eða „lyklurn" til landsins. Þessi tæki em nauðsynleg hverjum þeim sem vill sjá þann hluta dagskrárinnar sem verður sendur í loftið brenglaður. „Vanda- málið sem við vinnum að því að leysa er að gera framleiðanda lykl- anna í Frakklandi það ljóst hversu eftirspumin á íslandi er mikil“ sagði Sigurður. Útlit stöðvarinnar, jaftit innan- loftið húss, f upptökusal, á skrifstofunum og þess sem birtist á skjánum var hannað af Valgerði Matthfasdóttur, arkitekt. „Ég stjóma hönnunardeild stöðvarinnar, og hef haft það með höndum að ákveða allt útlit hér innan húss“ sagði Valgerður. „Mitt verkefni verður líka að hanna leik- myndimar og allt það myndræna sem áhorfendur Stöðvar tvö koma til með að sjá.“ Hún sagði að sinn nánasti samstarfsmaður næstu mánuðina yrði Kristján Karlsson. Hann er höfundur stöðvarmerkisins og hannar titla, kynningar og grafík í þeim þáttum sem stöðin mun gera sjálf. Jón Haukur Edwald, útsendingarstjóri frétta, ræðir málin við Svein M. Sveinsson og Guðmund Kristjánsson, eigendur Plús film. Þeir munu hlaupa undir bagga við kvikmyndatökur fyrir fréttastofuna næstu daga, og veitir ekki af því sjónvarpsþyrst augu umheimsins munu beinast að íslandi. 4 Fjarritinn frá Reuter var að byija að tifa. Þórir Guðmundsson, erlendur frétttamaður, stendur kampakátur við prentarann og Ómar Valdimarsson, innlendur fréttamaður, fylgist með. Páll Hafsteinn Andrésson, tæknimaður SONY, tók ysinum og þysinum með stóiskri ró. Hvaða þræðir það eru sem hann haf ði í hendi sér þegar myndin var tekinn veit blaðamaður ekki, en augsýniiega var „tími tilkominn að tengja“ eins og segir í kvæðinu. >

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.