Morgunblaðið - 02.11.1986, Side 1

Morgunblaðið - 02.11.1986, Side 1
247. tbl. 72. árg. Rússar hleruðu sænska sendiráðið Gautaborg, frá Kristjáni Einarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. SOVÉTMENN hafa hlerað sænska sendiráðið í Moskvu frá því í lok sjötta áratugarins, að þvi er utanríkisráðuneytið í Stokkhólmi skýrði frá í gær. Ing- var Carlsson, forsætisráðherra, hefur komið skriflegum mótmæl- um á framfæri við yfirvöld í Moskvu. Því er spáð að hleranimar eigi eftir að hafa áhrif til hins verra fyrir sambúð Svía og Sovétmanna. Þær uppgötvast á sama tíma og ríkin reyna að útkljá deilu um mörk lögsögu ríkjanna undan Gotlandi. Utanríkisráðuneytið hefur vilja sem minnst um málið segja nema að umfangsmikill og flókinn hler- unarbúnaður hafi fundist í sendi- ráðsbyggingunni þegar sænskir iðnaðarmenn unnu að lagfæringum í húsinu. Talið er að ekki séu öll kurl komin til grafar þar sem eftir er að bijóta upp veggi og athuga hvort búnaður leynist víðar en hann hefur fundist. Tomas Bertilman, sendiráðu- nautur í Moskvu, sagðist efast um að Rússar hefðu náð að hlera mikil- væg samtöl og fjarskipti sendiráðs- ins, sem færu fram með sérstökum búnaði til að gera hlerun illmögu- lega. Uppgjör í Sinn Fein Dyflinni, AP. KLOFNINGUR er í röðum Sinn Fein, hins pólitíska arms írska lýðveldishersins (IRA), og greinir liðsmenn á um það hvort samtökin skuli skella sér út í hefðbundna stjómmálaþátttöku og taka sæti á þingi. Arsfundur Sinn Fein ér í dag og verður þá tekin afstaða til tillögu framkvæmdastjórnar samtakanna þess efnis að frambjóðendur flokks- ins tækju þingsæti, sem ynnust í kosningum. Hingað til hefur það verið stefna samtakanna að taka ekki sæti á þingi og vilja harðlínu- menn í röðum flokksmanna óbreytta stefnu í því efni. Þeir segja að með því að taka sæti á þingi viðurkenndi Sinn Fein í raun skipt- ingu írlands og þær stofnanir sem samtökin hafa barizt gegn. Litið er á fundinn, sem 600 full- trúar sitja, sem uppgjör. Annars vegar millli ungu kynslóðarinnar í samtökunum, sem óttast að þau einangrist og að rödd þeirra nái ekki eyrum fólks meðan hún hljómi ekki á þingi, og hins vegar þeirra sem vilja halda fast i sömu stefnu og samtökin höfðu að leiðarljósi i sjálfstæðisbaráttunni og borgara- stríðinu 1921-23. „Gamla varðliðið" er mestallt sveitamenn úr lýðveld- inu og er búizt við að það verðj undir á fundinum. STOFNAÐ 1913 112 SÍÐUR B/C SUNNUDAGUR 2. NOVEMBER 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsiiis Vífilsfell í vetrarbúningi Morgunblaðið/Karl Sæmundsson Bandaríkin: Shultz veitist að Sovétmönn- um vegna mannréttindabrota Washington, Los Angeles, AP. GEORGE P. Shultz, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sakaði stjórn Sovétríkjanna á föstudag um að miskunnarlausa kúgun þegna sinna og sagði að Sovét- menn yrðu „á eftir tímanum og útskúfuð úrhrök“ úr samfélagi manna þar til sakaskrá þeirra breyttist til hins betra. Shultz hélt því fram að Sovét- menn hefðu opnað glugga almanna- tengsla til vesturs og hleypt nokkrum kunnum andófsmönnum úr landi undanfarið til þess eins að þyrla ryki í augu almennings. Þessi herferð Sovétmanna væri til þess gerð að leiða athygli almennings frá kerfisbundnum mannréttinda- brotum í Sovétríkjunum. Ummæli Shultz á ráðstefnu Heimsmálaráðsins í Los Angeles á vesturströnd Bandaríkjanna eru þau hörðustu, sem Bandaríkjastjóm hefur látið frá sér fara um mann- réttindamál í Sovétríkjunum í marga mánuði. Shultz sagði að það hefði komið í ljós í Reykjavík að stjóm Mikhails Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna, sem nú hefði setið 19 mánuði, væri fær um að semja af alvöru. En hann bætti við: „Sáttmálar um takmörkun vígbúnaðar við stjóm, sem brýtur mannréttindi, geta ekki tryggt öryggi heimsins. Ef sovésk yfirvöld vilja að litið sé á Sovétmenn sem jafningja í samfélagi þjóða verða þeir að virða rétt þegna sinna," sagði Shuitz. „Annars eiga Sovétmenn ekki völ á öðru en að varðveita hina hræði- legu arfleifð sína, vera á eftir tímanum og útskúfuð úrhrök á hjara veraldar vorra tíma.“ Shultz kvaðst ætla að gera so- véskum embættismönnum grein fyrir þessum atriðum þegar hann færi til Vínar í þessari viku í for- svari sendinefndar Bandaríkjanna á ráðstefnu 35 þjóða um öryggismál og samstarf í Evrópu. Skæruliðar kommúnista bjóða vopnahlé fyrir jól Manila, AP. SKÆRULIÐAR á Filippseyjum hafa boðið vopnahlé fyrir næstu jól ef sljómin verður við fimmþættum kröfum þeirra. Kommúnist- arnir vilja m.a. að lagðir verði af einkaherir og nokkrar deildir hers Filippseyja. í tilkynningu Þjóðfylkingar lýð- ræðissinna (NDF), þar sem kommúnistar hafa töglin og hagldimar, sagði að uppreisnar- mennimir væru reiðubúnir til að fallast á 100 daga vopnahlé. Gæti það hafist 10. desember. „Við vonum því að byssumar þegi fyrsta skipti í mörg, mörg ár yfír jól og áramót," sagði í yfírlýsingunni. Ef fallist verður á kröfur skæruliðanna myndi vopnahléð einnig vera í gildi þegar þjóðarat- kvæðagreiðsla fer fram um nýja stjómarskrá og haldið verður upp á að ár er síðan Ferdinand Marc- os hrökklaðist völdum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.