Morgunblaðið - 02.11.1986, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986
Baðströnd Þorlákshafnarbúa orðin hrein á ný:
Grindhvalirnir
brögðuðust vel
Þoriákshöfn.
LOKIÐ er við að fjarlægja alla
grindhvalina sem syntn á land í
Skötubót við Þorlákshöfn á dög-
unum. Fóðurstöðvar víða um
land nýttu sér þennan hvalreka
Háskólakennsla á
Akureyri:
Kennsla í
hjúkrunar-
fræði hefst
næsta haust
SVERRIR Hermannsson mennta-
málaráðherra hefur skipað
nefnd til þess að undirbúa
kennslu i hjúkrunarfræðum á
Akureyri, sem hann hefur ákveð-
ið að hefjist að ári. Formaður
nefndarinnar er Jóhann Sigur-
jónsson skólameistari.
„Það verður hafín kennsla í hjúk-
runarfræði annað haust,“ sagði
Sverrir Hermannsson í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hann sagði
jafnframt að í Verkmenntaskólan-
um á Akureyri myndi næsta haust
hefjast kennsla í iðnrekstrarfræð-
um á háskólastigi. „Ég hef í hyggju
að athuga að ráða rektor að Há-
skóla Akureyrar fljótlega," sagði
menntamálaráðherra og kvaðst
vera með ákveðinn mann í huga.
Sverrir var spurður hversu miklir
fjármunir væru áætlaðir til háskóla:
kennslu á Akureyri á næsta ári: „í
fjárlögum fyrir næsta ár er gert ráð
fyrir 1250 þúsund krónum til
þessa,“ sagði Sverrir, „en það er
nú ekki búið að ganga frá fjárlögum
ennþá, og við erum bara að setja
okkur í stellingar í undirbúningn-
um. Við tökum lítil skref og förum
variega í sakimar. Það hefur mest
að segja að undirbúningurinn sé
vandaður."
vel, til dæmis voru 120 tonn flutt
norður i land, auk þess sem mik-
ið fór til Fóðurstöðvar Suður-
lands á Selfossi.
Fjöldi einstaklinga fékk sér einn-
ig bita í matinn. Að sögn þeirra sem
bragðað hafa er þetta hinn ljúffeng-
asti matur. Einungis 20—30 hvalir
voru ekki nýttir og var þeim öllum
ekið vestur á Berg þar sem þeim
var fleygt í sjóinn í mikla strauma
sem fjarlægja hræin fljótlega.
—JHS.
Baðströnd Þorlákshafnarbúa orðin hrein á ný eftir óvænta „mengun'
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
á dögunum.
Seðlabanki leggur líklega til sameiningn Útvegsbanka, Verzlunarbanka og Iðnaðarbanka:
Einkabankarnir segjast þurfa
að vita hver söluvaran er
STJÓRN Seðlabankans hefur að
undanförnu unnið að tillögum
um sameiningu banka, sam-
kvæmt beiðni viðskiptaráðherra,
og er starf stjórnarinnar nú á
lokastigi. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins mun nefndin
leggja til við viðskiptaráðherra
að stofnaður verði nýr hlutafé-
lagabanki, með sameiningu
Útvegsbankans, Iðnaðarbank-
ans, Verzlunarbankans og þátt-
töku fleiri aðila.
Dr. Jóhannes Nordal seðlabanka-
stjóri staðfesti í samtali við
Morgunblaðið, að innan skamms,
myndi stjómin skila viðskiptaráð-
herra tillögum sínum um samein-
ingu banka, en Jóhannes vildi ekki
greina frá hveijar tillögur banka-
stjómar Seðlabankans yrðu.
Davíð Seheving Thorsteinsson
formaður bankaráðs Iðnaðarbank-
ans var spurður hvemig honum
litist á ofangreinda sameiningar-
hugmynd: „Ég hef ekki heyrt þessa
hugmynd formlega framsettá,"
sagði Davíð, „en aðalmálið er það,
að ég verð að gæta þess að hluthaf-
ar Iðnaðarbankans og starfsfólk,
sé betur sett á eftir, heldur en áð-
ur, ef af sameiningu á að verða.
Ef að slíkri sameiningu yrði staðið
þannig, að ég áliti að eigendur og
starfsfólk væri betur sett á eftir,
þá myndi ég standa að slíkri sam-
einingu og mæla með henni. Ef
einhveijar tillögur verða hins vegar
uppi, sem gera það að verkum, að
svo verður ekki, þá mun ég ekki
standa að slíkri sameiningu og ekki
beygja mig fyrir neinu."
Ami Gestsson formaður banka-
ráðs Verzlunarbankans var einnig
spurður sömu spumingar og Davíð:
„Við verðum auðvitað í þessu til-
viki, eins og alltaf, þegar við erum
að kaupa einhvem hlut, að vita
hvað við emm að kaupa. Mér sýn-
ist nú staða Útvegsbankans ekki
vera slík, að það sé afskaplega eftir-
sóknarvert að kaupa hann,“ sagði
Ámi, en bætti við: „Það er yfírlýst
stefna okkar í bankaráði Verzlunar-
bankans, að við viljum án nokkurra
skuldbindinga gjaman taka þátt í
viðræðum um þessi mál, þannig að
það geti skýrst hvort okkur fínnist
vera vit í slíkri sameiningu eða
ekki."
Álafoss og kanínubændur kaupa nærfataverksmiðju:
Kínverjar bjóða angórahár
KANÍNUBÆNDUR hafa sam-
þykkt að taka þátt i kaupum á
verksmiðju til að vinna úr ang-
órahári, í samvinnu við Álafoss
hf. og fleiri aðila. Á næstunni
verður stofnað hlutafélag sem
kaupir verksmiðjuna Tuefelt í
Þýskalandi. Hluta af hráefni
verksmiðjunnar þarf að flytja
inn, og hefur íslenska viðskipta-
nefndin, sem að undanförnu
hefur verið á ferð í Kína i tengsl-
um við opinbera heimsókn
Steingríms Hermannssonar for-
sætisráðherra þangað, fengið
hagstæð verðtílboð.
Málverk eftir Þorstein
I. Hjaltalín er fundið
Listf ræðingnrinn Frank
Ponzi hefur fundið merki-
lega mynd í Danmörku eftir
íslenska 19. aldar myndlist-
armanninn Þorstein Illuga-
son Hjaltalín. Ekki var áður
vitað um neitt varðveitt
verk eftir Þorstein. Það
voru einungis til nokkrar
ljósmyndir af verkum sem
glötuðust í seinni heimstyij-
öld. Þetta kemur fram í
bókinni ísland á 19. öld,
Leiðangrar og listamenn,
eftir Frank Ponzi, sem kem-
ur bráðlega út hjá Almenna
bókafélaginu.
Þorsteinn I. Hjaltalín fæddist
árið 1770 í Vatnsfírði við ísa-
Qarðardjúp, sonur séra Illuga
Jónssonar. Ulugi dó er Þorsteinn
var ungur að árum og fór hann
utan til Þýskalands 19 ára gam-
all til þess að læra málaralist hjá
málaranum Friedrich Pasche
Weitsch og settist að í Braunsch-
weig.
í bókinni íslenskir listamenn
er ijallað um Þorstein I. Hjalta-
lín. Þar vitnar Matthías Þórðar-
, f*-
■ .jmRie SE 1
1 imr ’.jíáu.... TÉhÞ ~ m
Hin nýfundna mynd Þorsteins.
son til ummæla Finns prófessors
Magnússonar í fyrstu deild af
íslenskum sagnablöðum, sem
Bókmenntafélagið gaf út vorið
1817. Þar segir Finnur frá
íslenskum listamönnum er gert
hafí ísland nafnfrægt í útlöndum.
„Þannig er, prófessor Bertel Þor-
valdsson í Rómaborg, sonur
íslensks steinhöggvara, nú á dög-
Sjálfsmynd eftir Þorsteinn Hl-
ugason Hjaltalín. Eftir eir-
stungu í Meusel’s Archiv,
Dresden
um af mörgum álitinn hinn mesti
bílætasmiður í öllum heimi, og
málarinn Þoreteinn Hjaltalín,
bamfæddur á íslandi, en búfast-
ur í Brúnsvík í konungsríkinu
Hannover, er einn á meðal hinna
nafnkunnustu þýzku lista-
manna."
í viðbót við þetta verk Þor-
steins munu birtast í bók Frank
Ponzi Qöldi mynda af íslandi á
19. öld, sem ekki var kunnugt
um áður. Einnig hefur höfundur
fundið forvitnilega texta, frá
konunglegum heimsóknum til
íslands, sem aldrei hafa birst
áður.
Að sögn Guðjóns Hjartarsonar
framkvæmdastjóra hjá Alafossi hf.
er áætlaður stofnkostnaður við
verksmiðjuna um 46 milljónir kr.
og er gert ráð fyrir að stofnendur
leggi fram 25 milljónir kr. í hlut-
afé. Tuefelt er spunaverksmiðja, og
lítil pijóna- og saumastofa. Hún er
keypt með markaði fyrir undirfatn-
að úr angórahári, en þar er hægt
að framleiða Qölmargar aðrar teg-
undir af fínu bandi, sem ekki hefur
áður verið aðstaða til að framleiða
hér á landi. Taldi Guðjón að kaupin
á verkmiðjunni gæti orðið töluverð
lyftistöng fyrir prjónaiðnaðinn í
landinu vegna þeirra möguleika
sem hún gæfi. Guðjón sagði að
gert væri ráð fyrir að framleiða úr
10 tonnum af angórahári í verk-
smiðjunni á ári, auk 70—80 tonna
af öðrum spunaefnum. Hér á landi
eru framleidd um 4 tonn af angóra-
hári á ári og verður því að flytja
inn um 6 tonn, til að byrja með að
minnsta kosti. Guðjón sagði að for-
stjóri Álafoss, sem er í viðskipta-
sendinefnd íslands í Kína, hefði
fengið hagstæð verðtilboð og væri
ekki ólíklegt að angórahár til verk-
smiðjunnar yrði keypt þaðan.
Verksmiðjan kemur um áramótin
og verður sett upp í húsakynnum
Álafoss í Mosfellssveit. Álafoss hf
leggur fram 8 milljónir í hlutafé'
framleiðendur 10 milljónir og
Byggðastofnun 4 milljónir kr. Einn-
ig er hugsanlegt að Þróunarfélag
Islands leggi fram 3 milljónir kr í
hlutafé. Fulltrúafundur Landssam-
bands kanínubænda samþykkti að
leggja fram 5 milljónir kr. sem hlut-
afé í hina nýju verksmiðju, en
sambandið hefur vilyrði frá Fram-
leiðnisjóði landbúnaðarins um að
sjóðurinn fjármagni þessi hluta-
bréfakaup. Sambandið hefur einnig
samþykkt að beita sér fyrir hluta-
fjársöfnun meðal kanínubænda
fyrir 3 milljónum kr. til viðbótar.
Kanínumiðstöðin hf. í Njarðvík
leggur fram 2 milljónir kr. til við-
bótar.