Morgunblaðið - 02.11.1986, Síða 9

Morgunblaðið - 02.11.1986, Síða 9
HUGVEKJA MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986 9 Allra heil- agra messa eftir ÓSKAR JÓNSSON IDagurinn í dag er helgaÖur minn- ingu píslarvottanna sem létu lífsitt fyrir trúna á Jesúm. Texti:Matt. 5,1—12. Þegar hann sá mannfjöldann, gekk hann upp á fjallið. Þar sett- ist hann, og lærisveinar hans komu til hans. Þá lauk hann upp munni sínum, kenndi þeim og sagði: „Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki. Sælir eru sorgbitnir, því að þeir munu huggaðir verða. Sælir eru hógværir, því að þeir munu jörðina erfa. Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu saddir verða. Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða. Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá. Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs böm kallaðir verða. Sælir eru þeir, sem ofsóttir eru fyrir réttlætis sakir, því að þeirra er himnaríki. Sælir emð þér, þá er menn smána yður, og ofsækja og Ijúga á yður öllu illu mín vegna. Verið glaðir og fagnið, því að laun yðar em mikil á himnum. Þannig of- sóttu þeir spámennina, sem vora á undan yður.“ Dagurinn í dag er helgaður minningu píslarvottanna, sem létu líf sitt fyrir trúna á Jesúm. Davíðssálmar byija á orðunum: „Sælir em ... í upphafí fjallræð- unnar segir Jesús níu sinnum við lærisveinana og þá sem á hlýddu: „Sælir em ...“ Það átti sjálfsagt við marga það sem Jesús telur upp: „Fátækir í anda." Þeir vom ekkert í sjálfum sér og hjálparvana gagnvart Guði. Sorgina þekktu þeir, en hún leiðir oft til Krists. Himnaríkissælu og huggun var þeim heitið. „Sælir em hógværir." Hinir hógværa olnboga sig ekki áfram til þess að ná til sín sem mestu af þessa heims gæðum. Guðs blessun fylg- ir þeim í öllu sem þeir taka sér fyrir hendur. Þeir lifa í friði og samlyndi heima og að heiman. Mikil blessun fylgir þeim. „Sælir em miskunnsamir.“ Sá sem ekki fyrirgefur öðmm, öðlast ekki fyr- irgefningu sjálfur og sá sem ekki gefur og hjálpar þeim sem em í neyð, fer á mis við blessunina sem því fylgir að vera miskunnsamur. Jesús segir: „Með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða.“ Sælir em hjartahreinir." Hrein- leiki hjartans er takmark að sækja að. Það er Jesús sem vinnur verk- ið. Hreinsar hjartað og rekur á flótta allt sem illt er og óhreint. Davíð konungur bað bæn, eftir að hann hafði fallið í synd og samviskan ákærði hann: „Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð... Afmá allar sjmdir mínar... Veit mér aftur fögnuð þlns hjálpræð- is.“ Sálm. 51. Við ættum öll að sameinast í bæninni: Drottinn, hreinsaðu hjarta mitt svo ég fái séð þig. Ó, skapa í mér hjarta hreint, sem hatar synd og pijál, þar Helgur Andi ljóst og leynt mér lýsir innst í sál. Ó, gef mér hjarta hreint og nýtt, svo hreint sem loftsins mjöll. Þar kærleikssól þín brosir blitt, sem börn þín vermir öll! C. Westley. Jesús lýkur lofsorði á læri- sveina sína, vegna þess að þá hungrar og þyrstir ef réttlætinu. Auðlegð þeirra er fólgin í Guði og voninni um það, sem þeim er fyrirbúið. Það er vegna þess, að þeir hafa meðtekið kærleika Guðs í Jesú Kristi, að þeim er líkt við rósir og fögur blóm, og þeir bera varanlegan ávöxt. Kærleiki Guðs I Kristi er sól lífsins, sem gyllir og lýsir jafnvel þrengingar þeirra, með himneskum ljóma, sem aldrei dvín. Það er sagt um Stefán, sem talinn er fyrsti píslarvotturinn. Allir sem viðstaddir vom störðu á hann og sáu, að ásjóna hans var sem engilsásjóna. Hann gat beðið fyrir þeim sem grýttu hann til bana: „Drottinn lát þá ekki gjalda þessarar syndar.“ Post. 7,59. Hvemig gátu lærisveinar Jesú verið glaðir og fagnandi þegar þeir vom smánaðir, ofsóttir og borið á þá lognar sakir vegna Jesú? Kærleikurinn til Jesú gaf þeim styrk. Hjá honum höfðu þeir fengið syndafyrirgefningu og lífshamingju. Jesús var með þeim eins og hann hafði gefíð fyrirheit um, jafnvel á dauðastundinni var hann nálægur og þeir vom vissir um að himnaríkis sæla biði þeirra. Þegar ég leystur verð þrautunum frá, þegar ég sólfagra landinu á, lifí og verð mínum Lausnara hjá, það verður dásamleg dýrð handa mér. Kón Dásöm það er, dýrð handa mér, dýið handa mér, dýrð handa mér, er ég skal fá Jesú auglit að sjá. Það verður dýrð, verður dýrð handa mér. Og þegar Hann, er mig elskar svo heitt, indælan stað mér hjá sér hefír veitt, svo að Hans ásjónu ég augum fæ leitt, það verður dásamleg dýrð handa mér. Astvini sé ég, sem unni ég hér. Árstraumar fagnaðar berast að mér. Blessaði Frelsari, brosið frá þér, það verður dásamleg dýrð handa mér. C.H. Gabriel. FJARFESTINGARFEIAGIÐ VER1 DB !R !E F A M AR !KI IÐI Jl R 1 N N Genaið í dap 2. nóvember 1986 L — Markaðsfréttir Veðskuldabréf - verðtryggð Veðskuldabréf - óverðtr. Lánst. 2afb. áári 1 ár 2 ár 3ár 4ár 5ár 6ár 7 ár 8ár 9ár 10 ár Nafn- vextir HLV 4% 4% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% Sölugengi m.v. mism. ávöxtunar- kröfu 12% 95 91 90 88 85 83 81 79 78 76 14% 93 90 87 84 82 79 77 75 73 71 16% 92 88 85 82 78 76 73 71 68 66 Lánst. 1 afb. áári 1 ár 2 ár 3ár 4 ár 5ár Sölugengi m/v. mism. nafnvexti 20% 89 81 74 67 62 HLV 84 72 63 56 50 15% 85 76 68 61 56 KJARABRÉF Gengi pr. 31/10 1986 = 1,747 Nafnverð 5.000 50.000 Söluverð 8.735 87.350 ■ Jipr\ Kl\/ III Dæmi um verötryggöar, ársfjóröungslegar IVIfTTJ IMTJU arögreiðsluraftekjubréfi miðaðviðmismun- TEKJUBRÉFUNUMandi raunávöxtun ERTU Á FÖSTUM LAUNUM HJÁ SJÁLFUM ÞÉR TEKJUBRÉF Gengi pr. 31/10 1986 = 1,055 Nafnverð 100.000 500.000 105.500 527.500 Fjárfesting f krónum 5% 10% 15% 100.000 1.250 2.500 3.750 500.000 6.250 12.500 18.750 1.000.000 12.500 25.000 37.500 5.000.000 62.500 125.000 187.500 f jármál þín - sérgrein okkar RáfTésfiTrv^elán Islpnd't h* 'Hofnóréffppfí 7 ópv mfYpRAfiR ro'11 noc/'n

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.