Morgunblaðið - 02.11.1986, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986
29
GarAar Cortes.
á hverja sókn í Borgarfirði
Hallgrímskirkja:
Eitt sæti
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt frá Byggingamefnd
Hallgrímskirkju eftirfar-
andi frétt um gjöf til
Hallgrímskirkju í
Reykjavík frá prófasts-
dæmi sr. Hallgríms Péturs-
sonar.
„Á vígsluhátíð Hallgrímskirkju
í Reykjavík, 26. þ.m. barst gjöf
skv. meðf. ljósritum.
Til sóknamefndar Hallgríms-
kirkju í Reykjavík.
Á héraðsfundi Borgarfjarðar-
prófastsdæmis 19. október 1986
var að tillögu prófasts einróma
samþykkt, að prófastsdæmið gefi
Hallgrímskirkju í Reykjavík sem
svarar 21 sæti í kirkjuna, eða
eitt sæti frá hverri sókn í próf-
astsdæminu. Samkvæmt því
afhendist kirkjunni hér með á
vígsludegi gjöf að upphæð kr.
52.500,00 frá söfnuðum Borgar-
fjarðarprófastsdæmis.
Gjöf þessi er færð í þakkar-
og góðrar minningarskyni um
mesta trúarskáld þjóðarinnar,
sem var prestur í Borgarfjarðar-
prófastsdæmi og orti þar Passíu-
sálmana, sem hafa verið og munu
verða ljós á leið kynslóðanna, sem
una lífi og dögum í þessu landi.
Með þessari gjöf viljum við tjá
þakkir héraðsins fyrir þá miklu
Guðs gjöf, sem sr. Hallgrímur
var okkur. Jafnframt viljum við
hvetja önnur prófastsdæmi til að
fara að fordæmi okkar.
Minningarkirkju hans í
Reykjavík færum við innilegar
blessunaróskir. Megi hún stöðug
standa og flytja þjóð vorri boð-
skap trúarskáldsins, — meðan
Guðs náð lætur vort láð / lýði
og byggðum halda.
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd,
26. október 1986.
F.h. Borgarfj arðarprófasts-
dæmis,
Jón E. Einarsson, prófastur"
íslenskur stórsöngvari og þegar
Garðar heyrði nafn austurríska
umboðsmannsins sagðist hann hafa
sungið fyrir hann fyrir 5 árum. Sá
breski bar þessi boð til félaga síns
sem kveikti um leið á perunni og
sagðist muna vel eftir Garðari,
„hann hafði ekki tíma til að staldra
við og syngja", sagði sá austurríski.
Umboðsmaður Garðars vill sigla
honum inn á sömu mið og Pava-
rotti, Domingo og fleiri stórsöngv-
arar halda sig á og hann vill stefna
Garðari inn á Vínaróperuna, Schala,
Covent Garden og önnur óperuhús
af þeirri stærðargráðu, alls 6—7
óperuhús, og stfla sérstaklega upp
á Verdi og Puccini, því þótt heimur-
inn sé fullur af tenórum þá séu
fáir af því tagi sem Garðar Cortes
sé.
Nú í nóvember, þegar Garðar
mun væntanlega syngja fyrir Karaj-
an í London, mun hann einnig
syngja fyrir nokkur óperuhús í
Bretlandi og væntanlega einnig á
meginlandi Evrópu. Garðar hefur
nýlega fengið tilboð frá Opera
North í Bretlandi um að syngja í
óperunni Daphne etir R. Strauss í
frumuppfærslu á Bretlandi í mars-
apríl næsta ár, en hann hefur
hafnað tilboðinu vegna þess að á
sama tíma verða sýningar á Aidu
hér heima og þar fyrir utan finnst
Garðari ekki freistandi að syngja
þessa óperu.
Kristján Jóhannsson óperusöngv-
ari ferðaðist á sínum tíma með
Opera North um Bretland.
En hvað segir Garðar sjálfur um
þessa lotu þar sem hann tekur
skrefið út fyrir landhelgina og kveð-
ur upp raust sína í harkalegri
samkeppni heimskúltúrsins. „Eg
held að ég geti sagt að mér hafi
verið tekið seint sem söngvara, ég
var í svo mörgu og eiginlega allt í
öllu, að menn áttu ekki von á neinu,
en það er bæði spennandi og
skemmtilegt að freista aðeins gæf-
unnar í öðrum löndum. Ég hef
fengið hvatningu frá miklum kunn-
áttumönnum um að slást á því sviði
sem menn kalla heimsmarkað, en
það liggur einnig ljóst fyrir að það
er ávallt mikið happdrætti hvemig
menn hitta á í þeim efnum, hvaða
stemmningu menn eru að leita eftir
hveiju sinni, hvaða tónn gildir. í
þeim efnum er ekkert borðliggj-
andi, en það er skemmtilegt sem
íslendingur að fá hvatningu til þess
að leggja rödd sína og reynslu á
vogarskál annarra landa í þessum
efnum.“
Grein: Arni Johnsen
MALLORKA
Jólaferð 21/12—04/01
Vetrardvöl 04/01—15/04
Hvað er betra en að rífa sig úr dægur-
þrasi og njóta dvalar á fjarlægum en
kunnuglegum stað, sofa út á morgnanna,
njóta sólarinnar yfir daginn og fá sér svo
gott að borða á kvöldin?
Hitinn er reglulega þægilegur, þetta upp
í 20 gráður á daginn og svalt á kvöldin
og um nætur. Jólahátíðin fer fram á
íslenska vísu með hangikjöti og tilheyr-
andi. Einnig verður efnt til kirkjuferðar
þannig að allt verði sem hátíðiegast.
Verð aðeins frá 23.280.-*
* miðað við 4 i íbúð.
Og enn á ný býður Atlantik upp á Mall-
orkaferð fyrir fólk á öllum aldri. Þessi ferð
er kjörin fyrir þá, sem vilja fá mikið fyrir
peningana.
Ferðin kostar aðeins frá krónum
28.050.-* a mann (eða rétt um 275
kr. á dag) með flugferðum báðar leiðir,
ferðum til og frá flugvelli og gistingu á
góðu hóteli. Upplagt tækifæri til að njóta
veðurblíðu hásumars eins og það gerist
best á íslandi, hitinn 20—23 gráður og
sjávarhitinn um 15 gráður á þessum
árstíma.
Nú er dýrara að vera heima.
íslenskir fararstjórar á staðnum. Pantið tímanlega. Þessar ferðir seljast upp á skömmum tíma.
mmtK
Feröaskrifstofa, lönaðarhúsinu Hallveigarstíg 1. Símar 28388-28580.
Umboó a IslancJi tyrir
DINERSCLUB
INTERNATIONAL
I
F