Morgunblaðið - 02.11.1986, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986
Blaðburðarfólk
óskast!
Óðinsgata Birkihvammur
Síðumúli Hlíðarvegur 1-29 o.fl.
BREIÐHOLT Hlíðarvegur 30-57
Hléskógar
Prentþjónusta á
Macintosh
Vegna Qölmargra óska hefur Tölvufræðsl-
an ákveðið að veita félagasamtökum og
einstaklingum aðstoð við að gefa út frétta-
bréf og tilkynningar.
Starfsemin fer þannig fram að viðskipta-
vinir koma með texta í handriti eða á
disklingi en Tölvufræðslan sér um próf-
arkalestur og alla útlitshönnun.
Textinn er unninn í ritvinnsluforritinu McWrite
og formaður í hönnunarforritinu Pagemaker og
prentaður á Laserprentara.
Nánari upplýsingar í síma 687590.
li
Tölvufræðslan
Borgartúni 28.
KOMDU I KAFFI OG
KYNNTU ÞÉR
FERÐAMÖGULEIKANA
í tilefni opnunar í nýju og glæsilegu húsnæöi aö Snorrabraut 27-29
bjóöum viö þér og fjölskyldunni aö koma á sunnudaginn milli kl. 13 og 17
og líta á ferðamöguleikana og þiggja léttar veitingar.
NÝR FERÐABÆKLINGUR
í nýja ferðabæklingnum okkar kynnum við meöal annars skíðaferðir til
bestu skíðasvæöa í Evrópu, Kanaríeyjar, Madeira, Tailand, Flórída og
frábærar stórborgarferðir.
Öll ferðaþjónusta á eínum stað.
Veríð velkomín.
^mTerra
Snorrabraut 27-29
Simar: 29740 - 621740
Enn aukast
raunir David
Goldfarb
Ncw York, AP.
SOVÉSKI erfðafræðingurinn
David Goldfarb, sem nýlega fékk
leyfi yfirvalda eystra til að fara
til Bandaríkjanna, þjáist af
lungnakrabbameini og mun
gangast undir skurðaðgerð, að
sögn sonar hans og bandarískra
lœkna.
Goldfarb kom til Bandaríkjanna
þann 16. október og hefur verið í
sjúkrahúsi frá þeim tíma. Hann þjá-
ist af sykursýki og hjartveiki. Á
miðvikudag urðu læknar hans varir
við meinsemd í vinstra lunga hans
og telja þeir unnt að vinna bug á
henni með skurðaðgerð. Að sögn
lækna er aðgerð sem þessi ævinlega
hættuleg heilsu hjartasjújklinga.
Alexander, sonur David Gold-
farb, kvaðst í gær vera undrandi
að meinsemdin í lunga föður síns
skyldi hafa farið framhjá hinum
sovésku læknum hans. „Síðustu
^óra mánuði hefur hann verið í
sjúkrahúsi og það er einkennilegt
að meinið skyldi ekki greinast,"
sagði Alexander Goldfarb.
Terry Waite
í Líbanon
Beirút, AP.
TERRY Waite, sérlegur sendi-
maður Ensku biskupakirkjunn-
ar, er kominn til Beirút og
hyggst hann fá hreyfingn mú-
slima „Heilagt stríð“ til að sleppa
bandarískum gíslum úr haldi.
Waite fór nokkrum sinnum til
Beirút á síðasta ári og átti þá við-
ræður við leiðtoga hreyfingarinnar,
sem heldur þremur Bandaríkja-
mönnum í p'slingu í Beirút. Síðasta
sunnudag sagði Waite að sú ákvörð-
un bresku ríkisstjómarinnar að slíta
stjómmálasambandi við Sýrlend-
inga myndi gera honum erfitt fyrir.
Samtökin „Heilagt stríð" halda
þeim Terry Ánderson, fréttaritara
AP fréttastofunnar í Mið-Austurl-
öndum, David P. Jacobsen, stjóm-
arformanni Bandaríska háskóla-
sjúkrahússins í Beirút og Thomas
Sundeland, deildarstjóra við sama
skóla, í gíslingu.
ÚTVEGUM
ALLAR ÁL-
OG STÁLVÖRUR
VERÐIN OKKAR
HITTAÍMARK!
ÍSVÖR H.R.
Smiðshöfða 6.110 Reykjavík.
P.O.Box 10201. S: 685955.
69-11-00
Auglýsingar 22480
Afgreiðsla 83033
i