Morgunblaðið - 02.11.1986, Page 39

Morgunblaðið - 02.11.1986, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986 39 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Hin einfalda sjálfsímynd í dag ætla ég að fjalla um fyrirbrigði sem við köllum sjálfsímynd. Með sjálfsímynd er átt við þær hugmyndir sem við höfum um sjálf okkur, það hver við erum, hvaða hæfileika og veikleika við höfum o.s.frv. Ástæðan fyrir því er sú að undirrituðum finnst sem margir hafí of ein- falda og óljósa sjálfsímynd. Afleiðingar Afleiðingar of einfaldra hug- mynda um sjálf okkur geta verið margvíslegar. I fyrsta lagi getur það leitt til þess að við horfum framhjá mikil- vægum eiginleikum, hæfi- leikum og veikleikum. Utfrá því getum við síðan átt erfítt með að meta sjálf okkur. Við verðum ómeðvituð um margt í eigin fari og gerum ekki viðeigandi ráðstafanir, fínn- um t.d. hæfíleikum okkar ekki jákvæðan farveg. Það getur síðan leitt til leiða, óhamingju og jafnvel sjúk- dóma. Þröng viðhorf Og það sem ekki er síður slæmt: Ef við gerum ekki ráð fyrir fjölbreytileika, getum við ekki notfært okkur fög sem bjóða upp á sjálfsþekk- ingu, s.s. stjömuspeki. Þannig hindra þröng viðhorf þroska og geta komið í veg fyrir þekkingu, jafnvel þó við viljum öðlast þekkingu. Bjartsýnismaður Einn ágætur maður sagði eitt sinn við undirritaðan að hann hefði alltaf litið á sig sem bjartsýnismann. Það er góðra gjalda vert, enda mað- urinn að öllu jöfnu hress og gott að vera bjartsýnn. Hins vegar hafði hann átt við ákveðið vandamál að stríða, áfengissýki, sem varla var hægt að flokka undir bjart- sýni. Þegar við ræddum um það hvað hefði rekið hann út í drykkju yppti hann öxlum. Hann vissi það ekki. Stjórnleysi Undirritaður telur ógæfu fyrmefnds aðila a.m.k. að hluta til fólgna í of einfaldri sjálfsímynd og þar af leiðandi meðvitundarleysi um mikil- vægar þarfír. Hann vildi ekki drekka, en hann réð ekki við sig. Mikilvæg kenning í stjömuspeki segir: Ef ákveð- in orka er ómeðvituð og ónotuð leitar hún útrásar eft- ir öðrum leiðum. Vegna þess að hún er ómeðvituð missir viðkomandi stjórnartaum- ana. Bjartsýnismaðurinn, vinur minn, gat læknað sjálf- an sig með því að opna augu sín, viðurkenna viðkomandi orku og beina henni inn á jákvæðar brautir. Opin augu FVamangreint er ekkert eins- dæmi. Við hengjum okkur gjaman á einn geðugan þátt persónuleika okkar og horf- um framhjá öðrum. Slíku viðhorfi þarf að breyta. Mað- ur sem hefur Sól í Vatnsbera og Tungl í Hrút þarf að gera sér grein fyrir því að hann er stundum yfírvegaður og víðsýnn, en á öðrum stundum getur hann átt til að vera fljótfær, tillitslaus, eigin- gjarn og þröngsýnn. Það sama gildir um okkur, þó áherslumar séu kannski aðr- ar. Þetta ættum við að viðurkenna. Ef við viljum sjálfsþekkingu þurfum við að horfast í augu við fjölbreyti- leikann í sjálfum okkur, opna augu okkar fyrir þeim mót- sögnum sem eru fyrir hendi og takast á við þær. Slík opnun er fyrsta skref sjálfs- þekkingar og aukins þroska. X-9 Micronssia.. nteira en lúoo tyjar, sumar cHkert osinaí in íkcr upp úr Sjónam. 'A einni þeirra or a& • firina dularfuiia orKu.Sem JTö£>Ml>/*/£/WW.. Th/J oy /e/ía- aS eyýu'-þsssari -/WÓ ////um Són - /fom/oás/.. © im Klng Fcaturcs Syrtdicclc. Inc. WorId rlghls rcscrvcd. V -V» GRETTIR HEITIK. „ SlCUItÐGeAFAM^ PAklSPÍRI VEe<AAðANN5 INS." ? 7 og E'ns oe tiO \ÆlST HEF V 6S OFN/EMI i ^FyRiKVINNU O TOMMI OG JENNI UOSKA HVE LFNGI E-R7U 8UIN AP V6KA CÍIFT, Af> HANN HAFPI ENGA KOSTL BARA 6ALLA,"' FERDINAND SMAFOLK l'M 50RRV l*M LATE UJITW YOUR 5UPPER..I PIPNT REALIZE WHAT TIME IT U)AS... © 1906 Unlted Feature Syndlcale.lnc. g- 5 I CANT BELIEVE l'M 5TANPING HERE LETTING MY5ELF BE BAWLEP OUT 0Y A 5T0MACH.. fWftj BirfKdx). AM Hver fjárinn! Er hún orð- ín sexi Fyrirgefðu hvað ég kem seint með matinn___ég áttaði mig ekki á því hvað var orðið framorð- ið... Ég vU ekki trúa því að ég standi hér og hlusti á maga skamma mig ... Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Becker-feðgamir eru þekktir spilarar í Bandarílqunum. „Seni- orinn", B.J. Becker, spilaði á sínum yngri árum margsinnis í landsliði Bandaríkjanna og vann til heimsmeistara- og ólympíu- titla í íþróttinni. „Júníoramir" eru tveir, Michael og Steve. Michael þekkja sumir Islending- ar frá Bridshátíð fyrir nokkrum árum, en Steve er minna þekkt- ur. Hann er þó enginn viðvan- ingur í spilinu, eins og sjá má af handbragði hans í eftirfarandi fjómm spöðum: Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♦ DG6 ¥8743 ♦ ÁK852 ♦ 7 Vestur Austur ♦ 9854 ♦ 72 ¥ D102 llllll ¥965 ♦ D109 ♦ 4 ♦ D85 Suður ♦ ÁK103 ¥ÁKG ♦ G763 ♦ 104 ♦ ÁKG9632 Vestur Norður Austur Suður — — — 1 grand Pass 2 lauf 3 lauf 3 spaðar Pass Pass 4 spaðar Pass Pass Vestur kom út með lítið lauf, sem austur tók á kóng og skipti yfír í einspilið í tígli. Steve drap það í blindum með ás og fann nú bestu leiðina til að tryggja vinning I 4—2-leg- unni { spaða, spilaði litlum tfgli úr borðinu! Vestur fékk á drottninguna og gaf makker sínum stungu. <- En fleiri urðu slagir vamarinnar ekki. Austur reyndi hjarta, en Steve drap & ásinn, trompaði lauf, tók trompin og lagði upp. Hjartagosann gat hann losað sig við ofan f fimmta tigulinn. Umsjón Margeir Pétursson Á Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur 1986, sem lauk í vikunni, kom þessi staða upp í skák þeirra Jóns Garðars Við- arssonar, sem hafði hvitt og átti leik, og Sigurðar Daða Sigfússonar. Hvítur hefur þegar fómað manni, en lék þrátt fyrir það: 21. Hd6! - Bxd6, 22. cxd6 - Db6, 23. Df7+ - Kd8, 24. Rc5! (Svartur er nú orðinn óveij- andi mát) 4. — Re5, 25. Df8+ og svartur gafst upp. Sigurveg- ari á haustmótinu varð Björgvin Jónsson, sem hlaut 8 v. af 11 í A-flokki. Næstur varð Hannes Hlífar Stefánsson með V/t v. og síðan komu þeir Jón Garðar Við- arsson, Tómas Bjömsson og Jóhannes Ágústsson með 6V2 v. Þar sem Björgvin er ekki í Tafl- félagi Reykjavíkur varð Hannes Hlífar skákmeistari T.R. 1986.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.