Morgunblaðið - 02.11.1986, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986
59
Nýr og betri maður.
Nýleg mynd af Jerry
Lee Lewis.
Jack Clement hafði orðið hrifinn
af hæfileikum Jerry Lee, þótt hann
teldi að tónlistin væri ekki auðseld.
Hann hafði spilað fyrstu upptökuna
fyrir Sam Phillips og Sam taldi sig
geta „notað strákinn". í þetta sinn
gengu hlutimir betur fyrir sig og
eftir að Sam hafði hlustað á útgáfu
Jerry Lee á laginu „Crazy Arms“
sagði hann án þess að hugsa sig
um: „Þetta get ég selt“.
Platan var hljóðrituð og gefin út
á mettíma og þótt hún kæmist ekki
á vinsældarlista seldist hún vel í
Suðurríkjunum og Jerry Lee fékk
góða dóma. Hann komst á samning
hjá Sun og var meðal annars feng-
inn til að spila undir hjá Carl
Perkins, sem skömmu áður hafði
slegið í gegn með laginu „Blue
Suede Shoes". Hann var einnig
undirleikari hjá nokkrum öðrum
upprennándi „Sun-stjömum“ og
undi hag sínum allvel. En að því
kom þó að hann barði í borðið og
sagði Sam að héðan í frá myndi
hann ekki spila undir hjá neinum
öðmm en Jerry Lee Lewis.
gæti komið sér vel við búskapinn
heima. Þeir feðgar ræddu síðan um
hvað þeir ættu að segja við Sam
Phillips og hvaða lög Jerry Lee
ætti að spila fyrir hann. Þegar þeir
komu í hljóðverið morguninn eftir
var þeim sagt að Sam Phillips væri
ekki í borginni. Jerry Lee kvaðst
þá myndu setjast á tröppumar og
bíða þar til Sam kæmi aftur. Hljóð-
upptökumaðurinn, Jack Clement,
bauð honum þá að taka upp lögin
og spila þau síðar fyrir herra
Philipps.
„Ég man vel þegar Jerry Lee kom
þama með pabba sínum“, sagði
Jack síðar. „Dæmigerðir sveita-
menn, en við vomm orðnir vanir
því að taka á móti alls konar fólki
eftir að Elvis sló í gegn. Ég fann
strax að Jerry Lee var opinskár og
frakkur og það var kostur í þessum
bransa. Hann spilaði og söng nokk-
ur „kántrý-lög“, en það var ekki
sú tónlist sem þá var líklegust til
að slá í gegn. Ég sagði honum að
fara heim, semja nokkur rokklög
og þá yrði ef til vill eitthvað hægt
að gera fyrir hann.“
TILKALL TIL
KRÚNUNNAR
í apríl 1957 gaf Sun-útgáfan út
„Whole lotta shakin’ goin’ on“ með
Jerry Lee Lewis og viku síðar fór
hann í hljómleikaferð til Kanada
ásamt Johnny Cash, Carl Perkins
og Wanda Jackson. Þegar hann
koma aftur varð hann var við að
lagið heyrðist oft í útvarpi víða um
Suðurríkin og nafn hans var að
verða þekkt. I júní var lagið komið
á vinsældarlista í öllum þremur teg-
undum dægurtónlistarinnar,
„popp-listann“, „kántrý-listann" og
„rythm and blues- listann." Hann
kom fram í sjónvarpsþætti Steve
Allen og viðtökumar vom svo yfir-
Kveöja til Breta. Jerry
Lee ásamt systur sinni
Frankie Jean (til
vinstri) og
eiginkonunni Myru
Gale við brottförina frá
London, eftir
misheppnaöa
hljómleikaferö um
Bretland. ^
Nýgift og hamingjusöm, Jerry
Lee og Myra Gale.
sér grein fyrir því þá, að með þessu
lagi hafði Jerry Lee markað framtíð
sína. Um leið hafði hann dottið ofan
I sitt eigið „dmllusvað", sem var
að vísu harla ólíkt því sem forfeður
hans höfðu svamlað í. Jerry Lee
hafði vissulega fundið lag, sem átti
eftir að skjóta honum upp á stjömu-
himininn, en hann hafði einnig
ftindið meðal sem gaf honum auk-
inn þrótt til að halda sér þar. Það
var í formi 15 milligramma
Benzedrinepilla, sem er vömheitið
á amfetamíni.
Menn tóku fljótlega eftir því að
það var píanistinn í bandinu sem
var orðinn aðalnúmerið, ekki aðeins
sem músíkant og söngvari heldur
vakti óvenjuleg sviðsframkoma
hans óskipta athygli. Hann átti það
í hita leiksins að standa skyndi-
lega upp, sparka stólnum aftur fyrir
Hallar undan fœti.
Jerry Lee í Los
Angeles 1977.
Upprennandi rokkstjarna í
hljóöverinu hjá Sun.
mSm mm
ms&K. v
S1g og fara hamfömm á hljóðfær-
>nu, gjaman með lappimar uppi á
hljómborðinu.
Frændur hans hvöttu hann til að
fera til Memphis og syngja inn á
Plötu eins og Elvis. Kvöld eitt kom
hann til hljómsveitarstjórans og
tjáði honum að þetta væri sitt
Sl’ðasta kvöld með hljómsveitinni.
"Hvað nú“, sagði Johnny. „Á nú
aftur að fara að prédika"? - „Nei“,
sagði Jerry Lee. „Ég ætla til Memp-
his og gera plötu og ef ég meika
það ekki slæ ég aldrei framar nótu
svo lengi sem ég lifí.“
TIL FRÆGÐAR OG FRAMA
Morguninn eftir tóku þeir Jeny
Lee og Elmo gamli eggjapeninga
heimilisins og 20 dollara, sem Jerry
Lee hafði unnið sér inn í klúbbnum
þá vikuna og héldu norður þjóðveg
númer 65, til Memphis.
Þeir fengu sér hótelherbergi
skammt frá Sun-hljóðverinu og
Jerry Lee minnist þess, að Elmo
gamla þótt mikið til þess koma að
það var rennandi vatn í krana á
herberginu og hafði á orði að slíkt
Jerry Lee fór heim og settist við
tónsmíðar. Þegar hann taldi sig
vera tilbúinn brast hann lcjark til
að fara aftur til Memphis. Frændi
hans einn, sem búsettur var í
Memphis, JW Brown, kom þá í
heimsókn í þeim tilgangi að fá Jerry
Lee með sér í hljómsveit. Brown,
sem síðar átti eftir að verða tengda-
faðir Jerry Lee, fékk hann til að
koma með sér til Memphis og
kynnti hann fyrir konu sinni og
tólf ára dóttur, Myru Gale.
þyrmandi að farið var að líkja
honum við sjálfan rokkkónginn El-
vis Presley, enda fór nú Jerry Lee
að gcra tilkall til krúnunnar.
Næsta plata hans „Great Balls
of Fire“ gerði enn betur og varð
söluhæsta hljómplata í sögu Sun-
útgáfunnar. Jerry Lee Lewis var
kominn í hóp skærustu stjama
rokktónlistarinnar og ljóst að lífið
yrði aldrei aftur hið sama fyrir
sveitastrákinn frá Ferriday. Um
þetta leyti hringdi hann heim í
pabba og sagði honum að núllin á
ávísuninni sinni væru næstum eins
mörg og F-in sem hann fékk á
bamaskólaprófinu.
Nöfn Jerry Lee Lewis og Fats
Domino vom skráð með stærstu
letri í rokkkvikmyndinni „Jam-
boree“, þar sem fram komu margar
þekktustu rokkstjömur þess tíma.
Jerry Lee fór heim í sigurför til
Ferriday þar sem hann ók um gö-
tumar í opnum bil með borgarstjór-
anum. En þótt allt væri slétt og
felt á yfirborðinu var ýmislegt að
gerjast undir niðri í einkalífinu.
Jane hafði alið honum tvo sonu en
hjónabandið var í rúst og þau ák-
váðu að skilja. Hann var þá þegar
farinn að gefa hinni komungu
frænku sinni, Myru Gale, hýrt auga
og hún var ekki síður hrifinn af
þessum fraéga frænda sínum. Þau
giftu sig með leynd í desember
1957. Hún var þá þrettán ára, að
verða fjórtán.
Jerry Lee fannst ekkert
óvenjulegt við samband þeirra og í
Suðurríkjunum var algengt að fólk
gengi ungt í hjónaband, og það
átti líka við í Lewis-fjölskyldunni.
Sjálfur hafði Jerry Lee gengið í
hjónaband fimmtán ára og önnur
af tveimur yngri systrum hans gifti
sig 12 ára. Og um skeið bjó hjá
fjölskyldunni fráskilin þrettán ára
frænka. Eitthvað virðast þó hjóna-
komin hafa verið óörugg í fyrstu
og það var ekki fyrr en viku eftir
vígsluna að þau þorðu að segja for-
eldrum hennar frá þessu. Og
opinberlega var ekki greint frá
hjónabandinu fyrst um sinn.
Jerry Lee hafði í nógu að snúast
og næsta plata hans, með laginu
„Brethless“ fór beint á toppinn.
Hann fór í hljómleikaferð sem
skipulögð var af Allan Freed og
auglýst undir nafninu „The Big
Beat“. Þar kom hann fram með
ýmsum stórstjömum rokksins svo
sem Chuck Berry, Buddy Holly,
Frankie Lemmon, the Chantels og
mörgum öðrum. Jerry Lee hafði nú
vanist því að vera mesta stjaman
á hljómleikum sínum og koma fram
síðast. Svo var einnig um Chuck
Berry. Allan Freed ákvað að Chuck
skyldi enda tónleikana þar sem
hann var eldri f hettunni.
Jerry Lee gerði eins og fyrir hann
var lagt og á opnunartónleikunum
í Brooklyn Paramount í New York
fór á sviðið næstur á undan Chuck.
í lokalaginu „Great Balls of Fire“
dró hann upp kókflösku fulla af
bensíni, hellti yfir píanóið og kveikti
í. Hann hélt áfram að hamra á
píanóið á meðan það brann og salur-
inn bókstaflega trylltist. Þegar
hann gekk af sviðinu og framhjá
Chuck Berry, sem beið eftir að röð-
in kæmi að sér, hreytti Jerry Lee
út úr sér. „Leiktu þetta eftir, surt-
ur“. Svo undarlega vildi til að eftir
þetta urðu þeir Jerry Lee og Chuck
Berry perluvinir. Þetta var nokkuð
sem Chuck kunni að meta.
Jerry Lee undirritaði samning við
MGM kvikmyndafélagið í Hollywo-
od um að koma fram f kvikmyndinni
„High School Confidential" og
semja og syngja titillag myndarinn-
ar. Lagið fór á toppinn áður en
myndin var frumsýnd. Jerry Lee
stóð nú á hátindi frægðar sinnar
og það besta var, að Elvis hafði
verið kallaður í herinn og dæmdur
úr leik næstu tvö árin. Þar með var
Jerry Lee kominn með aðra hönd á
veldissprota rokkkóngsins. Og
framundan lá þýðingarmesta hljóm-
leikaferð hans til þessa, til Bret-
lands.
BAKSLAGIÐ
Allt virtist í lukkunar velstandi
og lagið „Brethless" var komið á
toppinn í Bretlandi. Jeriy Lee ákvað
nú að fara ekki lengur í felur með
hjónaband þeirra Myru Gale. Hann
ætlaði að taka hana með sér til
Englands og segja hveijum sem
væri að hún væri konan sín. Um-
boðsmenn hans og velunnarar
ráðlögðu honum eindregið frá þess-