Morgunblaðið - 02.11.1986, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986
61
AUHNGIS
TlBINDI
UMRÆÐUR
23. 21. 72. og 21 oM.
Alþingistíðindi
Alþingistíðindi koma út vikulega um þingtímann.
Þau skiptast í tvær deildir.
Þingskjöl (A-deild)
Umræður (B-deild)
Alþingistíðindi eru send í áskrift þeim sem þess
óska og eru enn fremur seld í lausasölu á skrif-
stofu Alþingis, afgreiðslu í Skólabrú 2.
Verð hvers árgangs er 1200 kr., en hvert hefti
kostar 50 kr.
Skrifstofa Alþingls.
Mohammed al-Khoury, sem hann
sagði vera yfirmann lejmiþjónustu
hersins. í febrúar ákváðu Sýrlend-
ingamir að ráðast á flugvél Ei Al.
Hindawi fékk vegabréf ríkisstarfs-
manns og ferðaðist um sem bókari
í utanríkisráðuneyti Sýrlands. í
mars var hann í þjálfun í Sýrlandi
og fór þaðan til Vestur-Berlínar og
hvatti bróður sinn til að sprengja
menningarmiðstöðina. Að sögn
bróður hans fengu þeir sprengjum-
ar í sendiráði Sýrlendinga í Austur-
Berlín.
17. apríl átti að sprengja þotu
E1A1 í loft upp. Þegar Hindawi kom
í sendiráð Sýrlands, fékk hann
sendiherranum bréf. Hann hringdi
umsvifalaust til Damaskus. En það
gaf brezku leynilögregluhni sönn-
unargagn, sem ekki er hægt að
efast um. Brezka leynilögreglan,
MI5, hefur haft sýrlenska sendiráð-
ið undir stöðugu eftirliti í tvö ár
og hlerað síma og samtöl og fjar-
skipti. Það er meira að segja ekki
hægt að skrifa á rafmagnsritvélar,
án þess að fylgst sé með því, því
að hver stafur gefur frá sér sér-
stakt hljóð, sem hægt er að greina.
Þetta símtal sendiherrans hefur
brezka leyniþjónustan sem ótvírætt
sönnunargagn um hlutdeild sendi-
ráðsins. Sú staðhæfíng Sýrlend-
inga, að þeir hafí tekið Hindawi sem
góðan og gildan blaðamann, er
„hreint út sagt ótrúlegt", eins og
Geoffrey Howe, utanríkisráðherra
Breta, orðaði það í yfírlýsingu sinni
í neðri málstofu brezka þingsins.
í neðri málstofunni vom bæði
stjóm og stjómarandstaða sammála
um aðgerðimar gegn Sýrlending-
um. Donald Anderson, talsmaður
Verkamannaflokksins í utanríkis-
málum, sagði að flokkur sinn
fagnaði dómnum yfír „þessu ill-
menni" og deildi þeirri skoðun með
stóminni, að hegðun sendiráðs-
starfsmanna Sýrlands væri óþol-
andi. Hann taldi að skýr skilaboð
ættu að koma frá neðri málstofunni
um að hryðjuverkum, hvaðan sem
þau kæmu, yrði mætt með hörku.
Alan Beith, þingmaður Fijálslynda
flokksins, sagði að blóðslóðin eftir
hryðjuverkamenn þjálfaða í Sýr-
landi endaði við dyr sendiráðs
Sýrlendinga í Lundúnum.
Það þarf engum að koma á
óvart, að Sýrlendingar neiti því að
vera viðriðnir hryðjuverk. En það
er líka rétt að almenningur taki
eftir því, að fyrstu viðbrögð sýr-
lensku stjómarinnar em hótanir.
Það er að vonum, að undirmenn
hryðjuverkahöfðingjans Assads
kunni ekki að svara fyrir sig með
öðmm hætti.
Höfundur dvelst nú íSkotlandi
ogskrifar þaðan meðal annaífum
erlend málefni.
hum, Jerry Lee Lewis yngri, var
nú farinn að ferðast um með föður
sínum. Hann var þá aðeins fímmtán
ára gamall en þegar orðin forfallinn
dópisti. Jery Lee gaf sjmi sínum
jeppa þegar drengurinn varð átján
ára, en í fyrstu ökuferðinni ók hann
út af og lést.
SKÍTHÆLAR
Jerry Lee varð nú æ erfíðari í
umgengni fyrir sakir drykkjuskapar
og óreglu og lenti hvað eftir ahnað
í útistöðum við yfírvöld. Stjama
hans sem „kántrý-söngvari" fölnaði
og brátt var svo komið að hann var
ófær um að koma fram. Eitt sinn
var hann handtekinn fyrir framan
hliðið á Graceland, heimili Elvis
Presley, þar sem hann sveiflaði
skotvopnum í kringum sig viti sínu
fjær.
Nokkmm dögum eftir lát Elvis,
í ágúst 1977, birtist viðtal við Jerry
Lee í tónlistartímaríti. Viðtalið var
tekið á hótelherbergi og Jerry Lee
var dmkkinn að vanda. Hann var
spurður um viðbrögð við dauða El-
vis. „Ég varð glaður", sagði Jerry
Lee. „Þá er hann ekki fyrir mér
lengur. Ég meina Elvis hér og El-
vis þar. Allir em að tala um Elvis,
en hvem andskotann gerði hann svo
sem merkilegt annað en að dæla í
sig dópi. Ég viðurkenni að ég er
skíthæll, ég meina virkilegur
skíthæll. En ég er heiðarlegur
skíthæll sem þykist ekki vera betri
en ég er. Elvis var líka skfthæll en
hann rejmdi að fela það. Hann var
dópisti, ég er alkóhólisti". Jerry Lee
var þá spurður hvort hann vildi láta
skila einhveiju til aðdáenda sinnæ
„Já, þeir geta farið í rassgat".
Nokkm síðar var Jerry Lee flutt-
ur á spítala nær dauða en lífí eftir
„meðferð" hjá lækninum Dr. Ge-
orge Nichopoulos, sem gárungamir
kölluðu „Dr. Feelgood", en hann
hafði einmitt skrifað upp á lyfseðla
fyrir Elvis Presley. Læknirinn var
nú dreginn fyrir rétt þar sem hann
staðhæfði að Jerry Lee væri dópisti
og hefði oft verið lagður inn sem
slíkur. „Hann tók átta til tíu am-
fetamíntöflur í hvert skipti Sem
hann kom fram. Ég var að rejma
að stemma stigu við þessari lyfja-
notkun og venja hann af pillunum",
sagði Dr. Feelgood.
UPPREISN ÆRU
Árið 1980 hirtu bandarísk skatt-
jrfirvöld allar eigur Jerry Lee Lewis
upp í skuld. Sjálfur fór hann í með-
ferð og hefur nú aftur náð sér á
strik og nú lýkur hann öllum sfnum
hljómleikaferðum. Hann hefur ný-
Iega verið tekinn í „Hall of Fame“,
sem er mesti heiður sem banda-
rískur skemmtikraftur getur hlotið.
Hingað til lands kemur hann svo
að segja beint úr hljómleikaferð um
Bandaríkin með góðkunningja okk-
ar, Fats Domino. Að sögn Björgvins
Halldórssonar, sem annast milli-
göngu með komu Jerry Lee hingað,
voru það jákvæð ummæli Domino
um land og þjóð sem urðu til þess
að Jerry Lee ákvað að slá til.
Textí: Sveinn Guðjónsson.
TÍU ÁR Á ÍSLANDI
Verulegur afmælisafsláttur á vörum frá Rosenthal!
Um leið og við þökkum viðskiptavinum okkar ánægjuleg viðskipti bjóðum
við 20% staðgreiðsluafslátt vikuna 3.-8. nóvember
af öllum vörum verzlunarinnar.
studiohúsiö
á horni Laugavegs og Snorrabrautar Sími 18400
TlMABÆR