Morgunblaðið - 02.11.1986, Page 62

Morgunblaðið - 02.11.1986, Page 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986 4 Sjávarútvegur: Velsældin er sótt í sjó Hér segir af þremur þingmálum Sjávarútvegur er burðarásinn í útflutnings- og gjaldeyrisaf- landi starfsemi þjóðarbúsins. Leggur á borð með sér milli 70% og 80% útflutnings- og gjaldeyr- istekna okkar. Skipan og málatil- búnaður Alþingis ber mikilvægi sjávarútvegs ekki ríkulegt vitni. Þar eru þó þingenn, í flestum þingflokkum, sem með góðum vilja er hægt að telja málsvara atvinnugreinarinnar. í þingbréfi í dag eru lítillega skoðuð þijú mál, fram komin i upphafi þings, sem tengjast sjávarútvegi. Málaskrá ríkisstjórnar Fylgiskjal, sem fylgdi stefnu- ræðu Steingríms Hermannssonar, forsætisráðherra, tíundar tillögur < til þingsályktunar og frumvörp til laga, er einstakir ráðherrar hyggj- ast leggja fram á 109. löggjafar- þinginu [stjómarmál]. Fylgiskjalið greinir frá fímm væntanlegum frumvörpum sjávar- útvegsráðherra: * 1) Frumvarp til laga um Stofnfjársjóð fískiskipa. * 2) Frumvarp til breytingu á lögum um Ríkismat sjávarafurða. * 3) Frumvarp til laga um upp- boðsmarkað á ferskum físki. * 4) Frumvarp til laga um sel- veiðar við ísland. * 5) Frumvarp til laga um sjó- mannadag. Ekki er hægt að fjalla fyrirfram um frumvörp þessi. Sum þeirra kunna þó að vera nokkuð forvitni- leg, ekki sízt frumvarpið um uppboðsmarkað. Umfjöllun hlýtur að bíða þess að efnisatriði liggi fyr- ir. Botnlægar tegundir Hjörleifur Guttormsson (Abl.- Al.) og fleiri þingmenn endurflytja tillögu til þingsályktunar um rann- sóknir á botnlægum tegundum á grunnsævi. Tillagan felur ríkis- stjóminni, verði hún samþykkt, að „beita sér fyrir að fram fari skipu- legar rannsóknir á botnlægum tegundum á grunnslóð og kortlagn- ingu slíkra miða til að auðvelda veiðar, ekki sízt innfjarða. Gerð verði áætlun um þetta verkefni með Meginundirstaða lífskjara Velsæld íslendinga, sem hvar- vetna blasir við á landi, er að stærstum hluta sótt í sjó, sjávar- fang. Sjávarpláss á strandlengjunni umhverfís landið allt vinna gjald- eyri í þjóðarbúið, oft nótt með degi í aflahrotum. Á árabilinu 1980-1983 vóru sjáv- arvörur 70% upp í 79% af fob-verði íslenzks útflutnings. Sjálfsagt má sitt hvað betur fara í rekstri sjávarútvegsins, á heildina litið. En sjávarútvegurinn er engu að síður meginundirstaða lífskjara og velsældar í landinu. Myndin sýnir veiðskip, sem siglir í kjölfar annars, á leið í þá auðlind sjávar, sem gerir ísland byggilegt. það í huga að ljúka slíkum yfírlits- rannsóknum á næstu fímm árum og til þess veitt sérstakt fjármagn úr ríkissjóði, í fyrsta sinn á fjárlög- um 1987“. Veiðar og vinnsla á hörpudiski og rækju hafa reynzt mörgum sjáv- arplássum og þjóðarbúinu drjúg búbót. Að mati Hafrannsóknar- stofnunar eru stofnar þessara sjávardýra nær fullnýttir. Rannsóknir innfjarða og á grunn- sævi eru hinsvegar æskilegur undanfari þess, að skipuleg nýting heQist á fleiri botnlægum tegund- um. Framkomin tillaga er því athygli verð. Tilraunaveiðar á nokkrum teg- undum eru raunar hafnar, m.a. með stuðningi Hafrannsóknarstofnunar, sem lánað hefur áhugaaðilum rann- sóknartæki. Flutningsmenn vilja hinsvegar knýja á um markvissari rannsóknir - eða fylgja þeim fram með viljayfírlýsingu Alþingis. Þeir staðhæfa að botnlægar tegundir á grunnsævi við landið séu „ónumið land“. Hér hljóta ýmsir aðilar að koma við sögu, m.a. Hafrannsóknarstofn- un, Líffræðistofnun Háskólans og Rannsóknarstofnun fískiðnaðarins. Síðast en ekki sízt þarf til að koma frumkvæði fyrirtækja og einstakl- inga víðsvegar um landið. Slíkt % Kynningarfundur AA-deildanna í Háskólabíói í dag sunnudag 2. nóvember kl. 14. AA-deildirnar á Reykjavíkursvæðinu efna til opins kynningarfundar í Háskölabíói, sunnudaginn 2. nóvember kl. 14.00. Til þessa fundar er öllum boðið sem áhuga hafa á að kynna sér starfsemi AA-samtak- anna. AA-samtökin eru fastlega þeirrar skoðunar að margir eigi brýnt erindi við samtökin; fólk sem verður að koma úr felum og tak- ast á við áfengissýkina á hreinskilinn og opinskáan hátt. Fundurinn á sunnudag er framlag AA- samtakanna til frekari upplýsingamiðlunar um baráttuna gegn áfengisvandanum og er skorað á alla þá sem erindi eiga við samtök- in eða þau eiga erindi við að koma á fundinn. Slíkt skaðar engan en getur mörg- um hjálpað. ÚTVARP / SJÓNVARP Ríkisútvarpið: Skáldið Benedikt Gröndal í viðtali ■1 A dagskrá Skúlagötuút- 30 varpsins í dag verður samtalsþáttur við góð- skáldið Benedikt Gröndal. Að vísu er hann ekki staddur í eigin persónu í útvarpssal, en Gils Guðmundsson sá um að taka þessa dagskrá sam- an. Sem fyrr segir er þátturinn í samtalsformi og er látinn gerast um aldamótin. Þá er komin út stór ljóðabók eftir hann, en hann hefur verið einn fremsti og dáðasti rithöf- undur þjóðarinnar í hlfa öld. Af þessu tilefni ákveður fréttamaður- inn að heimsækja Gröndal og eiga við hann viðtal um skáldskap, trú og lífsviðhorf. Fréttamaðurinn fær heimilisvin Benedikts, skáldið Þorstein Erlings- son, til þess að ganga sér vestur Vesturgötu að heimili Gröndals og lýsa í leiðinni högum hans og hátt- um, skapgerð og lundarlagi. Þegar inn kemur og viðtalið hefst lætur Gröndal brátt gamminn geisa og segir skoðun sína á mönnum og málefnum umbúðalaust og án allrar tæpitungu. Það sem hér er lagt Þorsteini Erlingssyni í munn er mestallt úr Benedikt Gröndal Sveinbjarnar- son. grein í afmælisriti, sem helgað var Benedikti áttræðum. Efniviðurinn í spjallið við Gröndal er allt sótt í rit hans, einkum ritgerðir í tímaritum, blaðagreinar og bréf. 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.