Morgunblaðið - 02.11.1986, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 02.11.1986, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986 67 AFS-klúbbur stofn- aður í Hveragerði Hveragerði. Suðurlandsdeild AFS boðaði nýlega til fundar í veitingahúsinu Tunglinu í Hveragerði. Ölium nemendum gagnfræðaskólans í Hvera- gerði ásamt foreldrum var sérstaklega boðið á fundinn en hann var öllum opinn. Á fundinum var stofnaður AFS-klúbbur fyrir Hvera- gerði og einnig mun vera hafinn undirbúningur að stofnun klúbbs á Selfossi. Aðalhvatamaður að stofnun klúbbanna er Hlöðver Magnússon, framkvæmdastjóri landsmálablaðs- ins Þjóðólfs á Selfossi, og hefur hann haft allan veg og vanda af þessu framtaki. Ég hitti Hlöðver að máli og bað hann að segja frá þessu mikla áhugamáli sínu. Ég spurði fyrst: Hlöðver, hvað er AFS á íslandi? AFS er skiptinemasamband og skammstöfunin AFS stendur fyrir orðin alþjóðleg fræðsla og sam- skipti. Alþjóðasamtökin starfa nú í um 70 löndum víðs vegar um heiminn, í Evrópu, Norður- og _ Suður- Ameríku, Afríku, Asíu og Ástralíu. Á vegum AFS ferðast 7—8000 nemar á milli landa á hverju ári. „Hvenær hefst svo starfið á ís- landi?“ Það er fyrir milligöngu íslensk- ameríska félagsins að skiptinema- samtökin byijuðu hér á íslandi. Pyrstu árin var AFS undir stjóm þess félags og fyrsti hópurinn fór utan árið 1957 og voru það 8 manns. Nú hafa 680 ungmenni far- ið utan á vegum AFS og í ár fara 110. Hingað hafa komið um 375 ungmenni til lengri eða skemmri dvalar. „Hefur þú starfað lengi að þess- um málum?“ Ég kynntist skiptinemastarfinu árið 1979 þegar dóttir mín fór sem skiptinemi til Bandaríkjanna. Fór ég þá strax að starfa fyrir samtök- in og hef tekið á móti tveim skipti- nemum á heimili mitt og var það mjög ánægjulegt. Árið 1981 fórum við hjónin ásamt dóttur okkar og tengdasyni til Bandaríkjanna og heimsóttum ijölskylduna sem hún dvaldi hjá, einnig skólann hennar og fleiri aðila sem hún hafði kynnst. Einnig heimsóttum við skiptinema sem dvalið hafði hjá okkur á ís- landi. Stóð ferðin í mánuð og var mjög fróðleg og ánægjuleg. Þegar heim kom tók ég til við undirbúning að stofnun klúbba við gagnfræðaskólana í Hveragerði og Selfossi. „Hvert er svo markmið þessara klúbba?" I Markmiðið er að auka þekkingu íslenskra ungmenna á málefn- um AFS sem skiptinemasam- taka. a. Fræðsluspjall um starfsemi AFS-deilda á svæðinu og sam- tökunum í heild. b. Aukin kynning íslenskra ung- menna innbyrðis í AFS-klúbb- um. c. Heimsóknir frá erlendum skipti- nemum sem dvelja á íslandi og íslenskum skiptinemum sem dvalið hafa erlendis. d. Fjáröflun til styrktar AFS- nemum, sem dvelja við skóla á svæðinu. II Auka kynningu á milli bekkjar- deilda í skólum á svæði AFS- deildar. a. Koma á heimsóknum á milli skóla á svæði deildarinnar og síðar út á land. b. Nemendur sem þannig ferðast munu segja frá kennslu- og tóm- stundastarfi í sínum skóla og kynna sína heimabyggð. e. Halda sameiginleg skemmti- kvöld (með þátttöku nokkurra AFS-klúbba) og bjóða foreldrum og systkinum. III Gefa klúbbfélögum kost á að hafa samband við AFS-klúbba erlendis. a. Klúbbarnir sendi upplýsingar frá sínum klúbbi til erlendra klúbba ásamt myndum úr sinni heima- byggð og fá samskonar upplýs- ingar erlendis frá. b. Hafa skal samband við klúbb í skóla þar sem íslenskur nemi hefur dvalið, helst úr heimahér- Hlöðver Magnússon aði. Þannig gætu myndast sterk tengsl á milli skóla, héraða og landa. „Hvenær var Suðurlandsdeildin stofnuð?" Hún var stofnuð fyrir 3 árum og nær yfir Ames- og Rangárvalla- sýslu. Til gamans má geta þess að nú er tónskáld úr Ámessýslu, Loft- ur S. Loftsson, Breiðanesi í Gnúpveijahreppi, að semja lag sem helgað verður samtökunum vegna 30 ára afmælis á næsta ári og texta gerir Friðrik Guðni Þorleifsson, Káratanga í Rangárvallasýslu. Verður söngurinn frumfluttur í vor af unglingakór tónlistarskóla Rangæinga. Kórstjóri er Sigríður Sigurðardóttir. Að lokum sagði Hlöðver frá því að nýstofnaða klúbbnum í Hvera- gerði hefðu verið afhent 600 jóla- kort að gjöf, sem klúbburinn getur selt sér til tekna. Á kortinu er mynd, sem Hlöðver tók í Raufar- hólshelli fyrir 18 ámm, mjögfalleg. Sigrún SKOSKAR ULLARPEYSUR Eins og harimenn vilja hafa þær — hlýjar, mjúkar og sterkar Gl&nhusku wm 4 of Scotland # l'uænL’wwKÍ BUTE, með leðurbót á öxlum og olnbogum . . . kr. 2.085.- TROON, hneppt með vösum kr. 2.885.- LANARK, með leðurframstykki, GIRVAN, hneppt með leður- rennilás og vösum kr. 3.785.- framstykki og vösum kr. 3.685,- RAMMAGERÐIN HAFNARSTRÆTI 19 Póstsendum um allt land. DUNOON, heil með leðurbót á öxlum og olnboga kr. 1.985.- NÝJUNG M E Ð JÝJUNGAF Á ÍSLAND I fyrirbömog unglinga heijast í naastu úi Dansnýjung og tískusýningasamtökin Nýjung er eini dans- og tískusýningaskólinn sem sérhæfir sig í kenna börnum og unglingum. Önnumst einnig uppsetningu á stórum sem smáum tískusýningum fyrir fyrirtæki og útvegum fólk fyrir auglýsingamyndir. Topp-fólk og góðar sýningar. Stig 1 Byrjendur, sett upp sýning, tekið próf. Stig II Snyrtisérfræðingur og hðrgreiðslumeistari. Stig III Lokastig, tískuljósmyndari vinnur með módelun- um. Kennari Kolbrún Aðalsteinsdóttir. Flokka- skipting 4—6 ára 7-9 ára 10-12 ára 13—14 ára 15—20 ára INNRITUN I m I NÆSTU VIKU SÍMA 46219 ÍÉI 621088
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.