Morgunblaðið - 02.11.1986, Qupperneq 68
Báts leitað
með tvennt
innanborðs
SLYSAVARNARFÉLAG íslands
' hélt uppi spumum um þriggja
tonna bát með tvennt innanborðs
i gær. Ekkert hafði fréttst til
bátsins frá þvi á fimmtudag, er
hann hélt frá Mýrum út í Hvals-
eyjar til að grennslast fyrir um
sei. Þyrla Landhelgisgæslunnar
hélt upp á Mýrar um hádegis-
bilið til þess að svipast um eftir
bátnum. Báturinn var ekki í
Hvalseyjum og vom þá björgun-
arsveitir á svæðinu kallaðar út
til leitar, um það bil er Morgun-
blaðið fór í prentun um miðjan
dag f gær.
Báturinn hefur ekkert látið vita
af sér ftá því hann hélt út í Hvals-
t, eyjar á fimmtudag og ekki svarað
þegar hann hefur verið kallaður
upp. Slysavamarfélagið hóf eftir-
grennslanir í gærmorgun, en eins
og fýrr sagði höfðu þær ekki borið
árangur um miðjan dag.
Shell og Esso:
Kraftbensín-
~ ið lækkað um
eina krónu
OLÍUFÉLAGIÐ Skefjungur hf.
(Shell) og Olfufélagið hf. (Esso)
lækkuðu verð á kraftbensfni
(superbensíni) um eina krónu í
gærmorgun. Útsöluverðið iækk-
aði úr 28,50 kr. í 27,50 krónur
lítrinn. Verð á bensíni af venju-
Iegum styrkleika er áfram 25
krónur.
Að sögn Áma Ólafs Lámssonar
viðskiptafræðings hjá Skeljungi eru
hagkvæm innkaup ástæða lækkun-
arinnar. Eru nú ráðandi í verðinu
**farmar sem keyptir voru á lægra
verði en þeir sem nýlega var lokið
við að selja. Skeljungur og Olíufé-
lagið standa saman að innkaupum
á kraftbensíni, og mun það vera
skýringin á því að félögin lækkuðu
verðið á sama tíma. Oiíuverslun
íslands hf. (Olís) er með sér inn-
flutning og lækkaði það féiag ekki
verðið í gærmorgun.
Félag eldri borgara:
Félaga-
tala þre-
faldast
FÉLAG eldri borgara f
Reykjavík og nágrenni hefur
nær þrefaldað félagatölu sína á
hálfum mánuði. Fyrir voru f fé-
iaginu um 900 manns, en nú er
félagatalan orðin hálft þriðja
þúsund.
Þessi fjölgun kemur í kjölfar þess
að fréttabréf félagsins var sent út
tii allra, sem orðnir eru 60 ára og
eldri, en þeir hafa rétt til inngöngu
í félagið. Samtals em um 23 þús-
» und manns á félagssvæðinu.
SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Úthlutunarnefnd listamannalauna:
Morgunblaðið/RAX.
Pylsubrauð ígogginn
Allir þekkja söguna um Ijóta andarungann, sem varð að fögr-
um svani, þegar hann óx. Nýjustu rannsóknir leiða að því
likum að Hans Christian Andersen hafi verið konungsson og
fara menn þá ef til vill að leggja nýja merkingu í sögu ævin-
týraskáldsins fræga. En á köldum vetrardögum þykir
öndunum og svönunum á Tjörninni í Reykjavík gott að fá
brauð frá góðhjörtuðum borgarbúum. Hér er pyslubrauð í
gogginn.
Lagt til að neðri flokk-
ur verði lagður niður
ÚTHLUTUNARNEFND lista-
mannalauna hefur einróma lagt
til við Alþingi að neðri flokkur
listamannalauna verði lagður
niður. Telur nefndin ekki vera
forsendur fyrir úthlutun lista-
mannalauna, eins og lög mæla
fyrir um, miðað við óbreytta fjár-
veitingu. Síðastliðið ár var 95
mönnum í efra flokki úthlutað
40 þúsund krónum hveijum og
15 mönnum í neðra flokki úthlut-
að 20 þúsund krónum hveijum.
Heildarfjárveiting til nefndar-
innar nam 4.107.000.
Nefndin kom saman til fundar á
fimmtudaginn var. í bréfi hennar
til forseta Sameinaðs alþingis, seg-
ir; „Nefndarmenn urðu sammála
um að ekki væru forsendur fyrir
úthlutun listamannalauna miðað við
óbreytta §árveitingu. Sú venja hef-
ur haldist frá upphafi, að þeir
listamenn, sem valdir hafa verið í
efra flokk, haldi þeim sessi. Þar sem
fjárveitingar hafa verið naumar,
hefur nefndin tekið þann kost, að
fækka stöðugt í neðra flokki, þann-
ig að lengra verður ekki gengið,
ef fullnægja á lagaskyldu. Nefndar-
menn telja að ekki standi efni til
annars en láta efra flokk óbreyttan,
meðan ný skipan listamannalauna
hefur ekki verið tekin upp, en neðri
flokkur falli niður. Til þess þarf
lagabreytingu."
Til þess að neðri flokkur verði
lagður niður þarf lagabreytingu,
eins og segir í bréfinu. Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, forseti Sam-
einaðs alþingis, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hann myndi
kynna formönnum þingflokka og
menntamálanefnda efni bréfs Út-
hlutunamefndarinnar.
Bolli Gústavsson, formaður Út-
hlutunamefndarinnar, sagði að
fjárveiting til nefndarinnar hefði
stöðugt dregist saman á undanföm-
um ámm og hefði því verið mætt
með því að fækka í neðra flokki,
en fyrir nokkmm ámm hefðu verið
álíka margir í hvomm flokki, sam-
tals eitthvað á annað hundrað
manns. Nefnd hefði verið skipuð
fyrir fáum ámm til þess að endur-
skoða listamannalaunin, en hún
hefði lokið störfum án þess að kom-
ast að niðurstöðu. Hann sagði að
samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir
næsta ár, væri framlag til Launa-
sjóðs rithöfunda, Starfslauna lista-
manna og til Úthlutunamefndar
listamannalauna f fyrsta skipti
ósundurliðað, samtals 23.340.000.
„Það er ljóst að úthlutun til nefnd-
arinnar eykst ekki og því varð þetta
niðurstaðan. Samtals er þetta ekki
nema 30-40 árslaun menntaskóla-
kennara, sem varið er til þessa og
því óskiljanlegt að það sé almanna-
rómur að hlaðið sé undir lista-
menn,“ sagði Bolli.
í úthlutunamefnd listamanna-
launa eiga sæti, auk Bolla, Magnús
Þórðarson, Jón R. Hjálmarsson,
Halldór Blöndal, Bessí Jóhanns-
dóttir, Gunnar Stefánsson og Soffía
Guðmundsdóttir.
Slippstöðin á Akureyri:
Býður í breytingar á fjór-
um kanadískum togurum
SLIPPSTÖÐIN á Akureyri
hefur gert tilboð í breytingar
á fjórum kanadískum skut-
togurum sem fram eiga að
fara á næsta ári. Slippstöðin
hefur lokið við svipaðar
breytingar á 4 togurum sama
útgerðarf élags og er að vinna
við þann fimmta um þessar
mundir.
Tilboð í breytingamar verða
opnuð um miðjan nóvember.
Gunnar Ragnars, forstjóri
Slippstöðvarinnar, sagðist ekki
vita hvort margir gerðu tilboð,
en vitað væri um mikinn áhuga
hjá kanadískum skipasmíða-
stöðvum að fá þessa vinnu.
Breytingar á kanadísku togur-
unum hafa kostað á bilinu 35
til 40 milljónir á skip. Þeir fjór-
ir togarar sem fyrirhugað er
að breyta á næsta ári eru ekki
eins og togaramir sem Slipp-
stöðin hefur verið að vinna við,
en talið er að kostnaðurinn sé
svipaður.