Morgunblaðið - 11.12.1986, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
280. tbl. 72. árg. _______________________________FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mannréttindadagur SÞ í Sovétríkjunum;
Sakharov sagð-
ur glæpamaður
Fimm andófsmenn handteknir
Moskvu, AP, Beuter.
HÁTTSETTUR sovéskur embætt-
ismaður sagði i gær að andófs-
maðurinn þekkti Andrei Sakharov
væri „glæpamaður" og því væri á
allan hátt réttlætanlegt að útiloka
hann frá mannlegu samfélagi.
Óeinkennisklæddir lögreglumenn
handtóku fjóra Sovétborgara i
Moskvu í gær. Fólkið hafði kornið
saman til að mótmæla mannrétt-
indabrotum stjórnvalda þar eystra
í tilefni mannréttindadags Sam-
einuðu þjóðanna.
Vladimir Pimenov, sem undanfar-
in þijú ár hefur barist fyrir því að
fá leyfí stjómvalda til að flytjast til
Metupp-
hæð fyrir
Rembrandt
London, AP.
MÁLVERK eftir hollenska
máiarann Rembrandt var
slegið óþekktum kaupanda í
London í gær fyrir 7,26 millj-
ónir punda (um 400 millj. isl.).
Verkið nefnist „Stúlka íklædd
gylltri kápu“ og er þetta í fyrsta
skipti í 21 ár sem þekkt verk
eftir Rembrandt er boðið upp.
Árið 1965 greiddi bandarískur
auðkýfmgur 798.000 pund fyrir
verk eftir Rembrandt. %
konu sinnar og dóttur í Danmörku,
var handbekinn ásamt listamannin-
um Alexander Zhadnov. Eftir §ög-
urra klukkustunda jrfirheyrslur var
þeim sleppt. Eiginkona Zhadnovs var
einnig handtekin og herma fréttir
að hún sé enn í haldi.
Tveir aðrir andófsmenn voru hand-
teknir og misþyrmdu lögreglumenn
öðrum þeirra áður en mennimir
fengu að fara frjálsir ferða sinna.
Embættismaður í sovéska dóms-
málaráðuneytinu sagði í gær á
fréttamannafundi sem haldinn var í
tilefni mannréttindadags Sameinuðu
þjóðanna, að nóbelsverðlaunahafínn
Andrei Sakharov, sem dveist í útlegð
í borginni Gorkí, væri „glæpamað-
ur“. Itrekaði hann einnig fyrri yfir-
lýsingar sovéskra ráðamanna að það
væri með öllu löglegt að útiloka Sak-
harov frá samfélagi við aðra menn
þó svo að aldrei hefði verið dæmt í
máli hans.
AP/Símamynd
Friðarverðlaun Nóbels afhentíOsló
BANDARÍSKI gyðingurinn Elia Wiesel,
sem er fyrir miðri myndinni, tók í gær
við friðarverðlaunum Nóbels úr hendi
Egils Aarvik, formanns úthlutunarnefnd-
arinnar. Wiesel, sem upplifði hörmungar
helfarar nasista gegn gyðingum á árum
síðari heimsstyrjaldarinnar, sagði við það
tækifæri að nákvæmlega 45 ár væru liðin
frá því hann sá foreldra sína og afa í
síðasta skipti í útrýmingarbúðunum í
Buchenwald. Lengst til vinstri á myndinni
er Elisha, sonur verðlaunahafans.
0
Vopnaviðskipti Bandaríkjamanna og Irana:
Vopnakaupin kunna að flýta
fyrir falli sljómar Khomeinis
Yfirmaður CIA yfirheyrður fyrir luktum dyrum
Alnæmi:
Bóluefni
reynt á
mönnumá
næsta ári
Genf, Reuter.
BÓLUEFNI til að stöðva út-
breiðslu alnæmis verður reynt
fyrsta sinni á næsta ári, að því er
haft var eftir Jonatlian Mann, sér-
fræðingi ' heilbrigðisstofnunar
Sameinuðu þjóðanna, í gær. Hann
kvaðst þó ekki viss um hveijar
líkur væru á að stöðva mætti veir-
una.
Mann sagði á blaðamannafundi í
Genf að tilraunir á ýmsum bóluefnum
hefðu verið gerðar á dýrum fyrr á
þessu ári og yfirmenn heilbrigðis-
stofnunarinnar teldu að unnt yrði að
hefja bólusetningar eftir fjóra til tólf
mánuði.
„Víst er að tilraunir með bóluefni
á mönnum eiga eftir að velqa miklar
pólitískar, siðferðilegar og félags-
fræðilegar deilur," sagði Mann. „Þvi
er nauðsynlegt að leysa slík mál sem
fyrst til þess að almenningur fái
bóluefni í hendur.“
LÍHsabon, Washington, AP, Reuter.
VOPNASALA Bandaríkjastjórn-
ar til Iran kann að skaða stjórn
Ayatollah Khomeini meira en
stjórn Ronalds Reagan Banda-
ríkjaforseta, að sögn talsmanns
^ Mujahedin-hreyf ingarinnar i
íran, en svo nefnist öflugasta
hreyfing andstæðinga trúarleið-
togans. Stuðningsmenn Kho-
meinis í íran eru sagðir miður
sín vegna frétta af vopnavið-
skiptum við Bandarikjamenn og
ólga fer vaxandi í landinu.
Afchid Alavi, talsmaður Muja-
hedin-hreyfingarinnar , sem nú
dvelst í Portúgal, sagði í gær að
vopnaviðskiptin myndu vafalaust
verða til þess að flýta fyrir falli
stjómar Khomeini. Homsteinn ut-
anríkisstefnu stjómar hans hefði
jafnan verið hatur á Bandaríkja-
mönnum og því hefði það orðið
fylgismönnum erkiklerksins mikið
áfall þegar fréttir tóku að berast
af hinum leynilegu viðskiptum
stjómarinnar við höfuðóvininn.
Alavi sagði að 300-400 manns
hefðu verið handteknir í íran í
síðustu viku. Kvað hann ólgu í
landinu fara vaxandi með degi
hveijum og að klofningur væri kom-
inn upp í stjóminni. Almenningur
væri einnig orðinn langþreyttur á
skorti á nauðsynjavömm og stríðið
við íraka væri að sliga efnahag
landsins.
Talsmaðurinn lýsti því einnig yfír
að rök Bandaríkjastjómar fyrir
bættum samskiptum við „hófsöm
öfl“ i íran væm fráleit því þar
væri enga hófsama menn að finna.
William Casey, yfírmaður Banda-
rísku leyniþjónustunnar (CIA)
svaraði í gær spurningum utanríkis-
málanefndar Bandaríkjaþings
vegna vopnasölumálsins. Yfir-
heyrslumar fóm fram fyrir luktum
dymm en nokkrir málsmetandi
þingmenn demókrata höfðu lýst því
yfir að almenningur ætti rétt á að
fylgjast með Casey flytja mál sitt.
Að sögn eins nefndarmannanna
kvaðst Casey ekki hafa vitað að
greiðslur írana fyrir vopnin hefðu
mnnið til Contra-skæmliða í Nic-
aragua. Casey sagði Edwin Meese
dómsmálaráðherra hafa tjáð sér
fyrir tveimur vikum að skæmliðar
hefðu verið studdir með þessum
hætti og hefði hann þá fyrst heyrt
um greiðslumar.
Áfengisneysla frændþjóðanna:
Dauðsf öll af völdum skorpu-
lifrar algengust meðal Dana
Skyndilegur eitrunardauði vegna ölvunar algengari með Finnum
DANIR drekka að meðaltali
tvisvar sinnum meira áfengi en
Svíar og Norðmenn. Finnar eru
eina Norðurlandaþjóðin, sem
ekki hefur aukið áfengisdrykkju
sina umtalsvert á síðustu fimm
árum.
Þetta kom fram í nýlegri könnun
sænskra félagsmálayfirvalda á
áfengisneyslu í Sviþjóð, Noregi,
Danmörku og Finnlandi.
„Það er mjög misjafnt meðal
Norðurlandaþjóðanna, hvað menn
drekka og hversu mikið,‘,‘ segir
Thomas Kolk, sem var í fram-
kvæmdanefnd könnunarinnar, í
viðtali við danska blaðið Jyllands
Posten. „Þannig drekka Danir tvö-
falt meira af áfengi en Sviar, eða
um 12 lítra á íbúa á ári á móti 6,
en það byggist á mun meiri öl- og
léttvínsdrykkju Dana,“ segir hann.
„Þetta hefur svo þær afleiðingar
í för með sér, að Danir eru langfjöl-
mennastir meðal fómarlamba
skorpulifrardauða," segir Kolk.
Frá 1980-85 minnkaði áfengis-
neyslan litiliega í Noregi og Finn-
landi, en jókst í Danmörku og
Sviþjóð.
Að því er Dani varðar er það
hin daglega áfengisneysla, sem
veldur mikilli tíðni skorpulifrar-
dauða. Með Finnum er skyndilegur
eitrunardauði af völdum heiftar-
iegrar ölvunar hins vegar algeng-
ari, og eru Svíar nær finnska
drykkjumynstrinu að þessu leyti
en hinu danska. í Danmörku verða
enn fremur flest umferðarslys, sem
rekja má til áfengisneyslu, að sögn
Kolks.