Morgunblaðið - 11.12.1986, Síða 73
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986
73
Kartöflubændur á Suðurlandi:
Deilur vegna ósamræmis
í innheimtu geymslugjalds
NOKKRAR deilur eru i röðum
kartöflubænda á Suðurlandi
vegna innheimtu á geymslugjaldi
af seldum kartöflum. Landssam-
band kartöflubænda samþykkti
að innheimta geymslugjald með
líkum hætti og gert var á siðasta
ári en einstakir bændur hafa
gefið gjaldið eftir með samkomu-
lagi við dreifingarfyrirtækin.
Páll Guðbrandsson í Hávarðar-
koti í Þykkvabæ, formaður Lands-
samtaka kartöflubænda, sagði að á
fulltrúaráðsfundi í samtökunum í
bytjun nóvember hefði verið sam-
þykkt að leggja geymslugjald á
kartöflur og hafa það með svipuðu
sniði og á síðasta ári. Gjaldið ætti
að renna til bænda til að standa
undir geymslukostnaði, svo sem
rekstri afurðalána og kælivéla.
Þetta hefði verið samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum og
stjórn samtakanna síðan tilkynnt
þetta til allra dreifingarfyrirtækj-
anna. Síðan hefðu framleiðendur
hjá einstökum dreifíngarfyrirtækj-
um komið sér saman um að gefa
geymslugjaldið eftir. Dreifingarfyr-
irtæki í eigu framleiðenda, Ágæti,
hefði eitt fyrirtækja innheimt
geymslugjaldið og þar með verið
með hærra verð á kartöflum en
samkeppnisaðilamir og misst af
sölu. Framleiðendur sem þar leggja
inn væru að vonum sárir út í félaga
sína. Sagði Páll að eitthvað yrði að
gera í þessu og sagðist vera að
athuga málið.
Geymslugjaldið var ákveðið 90
aurar á mánuði á hvert kíló af kart-
öflum og hefði staðið til að inn-
heimta nú gjaldið fyrir fyrstu tvo
mánuðina, nóvember og desember,
samtals 1,80 krónur.
Um sfðustu helgi var haldinn
félagsfundur hjá Félagi kartöflu-
bænda á Suðurlandi. Þar sauð upp
úr út af geymslugjaldsmálinu og
formaður félagsins, Guðni Guð-
laugsson á Borg í Þykkvabæ, gekk
af fundi.
Verð á kartöflum til framleiðenda
er ákveðið af sexmannanefnd en
álagning í heildsölu og smásölu er
ftjáls. Páll Guðbrandsson sagði að
þetta fyrirkomulag gengi ekki eins
og málum væri háttað í dag. Hann
sagði að skynsamlegast væri að
gefa allt verðið ftjálst úr því sem
komið væri.
Litprentuð bók um
Andrés önd og félaga
BÓKAÚTGÁFAN Setberg hefur
gefið út „Við Andrés" sem er
stór litprentuð bók um Andrés
Önd og félaga.
Það þarf tæpast að kynna Andr-
és og félaga fyrir íslenskum lesend-
um svo þekktir eru þeir hér sem
annars staðar. Þessi bók skiptist í
nokkra kafla: Úr dagbók Andr-
esínu, Tómstundastörf Andrésar,
Drottning undirdjúpanna, Raunir
Andresínu, Andrés og ljóðlistin,
Kaldir kúrekar. Hörður Haraldsson
þýddi og hafði umsjón með íslensku
útgáfunni.
Bókin er 136 blaðsíður og í mjög
storu broti. (FrMtatilkynninjj.)
'istan
Laugavegi 99, sími16646.
LAURA
ASHLEY
ATHYGLISVERÐ BOK
UM DULRÆN MÁLEFNI
Eina bókin um dulrœn efni
nú jyrir jól.
DRAUMAR
OG ÆÐRI
HANDLEIÐSLA
Ingvar Agnarsson skráir í þessa bók af hógværð
og vandvirkni frásagnir Aðalheiðar Tómasdóttur,
eiginkonu sinnar.
Helgi Vigfússon skrifar formála.
Aðatheíður Tómasdóttir
DRACIMAR
OG ÆÐRI HANDLEIÐSLA
Sktaseft al Ingvari Agnafssyrt
UPPLAG Á ÞROTUM
Dyngja bókaútgáfa, Borgartúni 23 105 Reykjavík, s 91-36638, 91-28177 og 91-30913.
Dömupeysur og barnapeysur í úrvali
Verzlunin er opin
daglega frá 9—6
— líka laugardaga.
> 11 PRJÓNASTOFAN
Uðuntu
Skerjabraut 1 v/Nesveg,
Seltjarnarnesi. Sími 611680.