Morgunblaðið - 11.12.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986
23
Ljós og skugg-
ar á langrí leið
Þjóðsaga gefur út endurminningar Pablo
Casals í þýðingu Grímhildar Bragadóttur
BÓKAÚTGÁFAN Þjóðsaga hef-
ur gefið út bókina „Ljós og
skuggar á langri leið — endur-
minningar Pablo Casals". Albert
E. Kahn skrásetti, en Grimhildur
Bragadóttir þýddi á íslenzku.
Helgi Hálf danarson þýddi bundið
mál.
Höfundur bókarinnar, Albert E.
Kahn, var með bókina í smíðum
árum saman. Hann var með Casals
á hljómleikaferðum hans víða um
heim, dvaldi á heimili hans og átti
við hann löng viðtöl. En honum
Pablo Casals
nægði ekki að lýsa selló-snillingn-
um, hljómsveitarstjóranum og
tónskáldinu Pablo Casals með því
einu að rekja æviferil hans, hann
vildi ekki síður lýsa honum sem
manni en listamanni.
í formála sínum að bókinni segir
Kahn m.a.: „Með þessari bók er því
boðin fram mynd af Pablo Casals,
sem dregin er upp eftir endurminn-
ingu hans og frásögn sem ég hef
skráð á nokkrum undanfömum
árum og hef nú ofíð saman í þessa
bók. Verk þetta er að mestu leyti
byggt á orðum hans sjálfs og ég
hef leitast við að sýna lesendum
hann sem mann er sannar með lífí
sínu það sem hann hefur haft að
kjörorði í lífinu: „Listin og hið
mannlega eru óaðskiljanleg.““
í formála sfnum segir þýðandinn,
Grímhildur Bragadóttir, m.a.:
„Flestir þeir sem fagurri tónlist
unna þekkja nafnið Pablo Casals.
Með leik sínum á sellóið náði hann
að heilla milljónir manna um allan
heim. En auk sellóleiksins fékkst
Casals einnig við tónsmíðar og
hljómsveitarstjóm. Enda þótt nú
séu liðin 13 ár frá því hann lést,
er hann enn í dag að veita okkur
af auðlegð sinni. Af hljómplötum
þeim sem hann lék inn á steymir
til okkar göfugur boðskapur í hinni
djúpu tjáningu sem einkennir leik
hans.
En Pablo Casals var ekki aðeins
frábær listamaður. Hann var ákafur
lýðræðissinni og barðist gegn kúg-
un einræðisstjómar Francos á
Spáni og gegn óréttlæti í hvaða
mynd sem það birtist. Hann var
einhver mesti húmanisti þessarar
aldar. í bók þessari, „Ljós go skugg-
ar á langri leið", segir frá lífí Pablo
Casals og baráttu hans fyrir betri
heimi."
Bókin er mikil að vöxtum, eða
332 blaðsíður og með fjölda mynda.
Henni fylgir nafnaskrá og listi yfír
hljómplötur með Pablo Casals. Bók-
in er hönnuð af Hafsteini Guð-
mundssyni og hún var prentuð og
bundin í Odda hf.
Vinnuveitendasamband íslands í samvinnu við
aðildarfélög þess gengst fyrir námsstefnu um
efni og þýðingu nýju kjarasamninganna í Kristal-
sal Hótel Loftleiða, í dag, fimmtudaginn 11.
desember kl. 15.30.
Leiðbeinendur verða þeir Kristján Þorbergsson,
lögfr. VSÍ og dr. Vilhjálmur Egilsson, hagfræðing-
urVSÍ.
Mikilvægt er, að þeir, sem taka ákvarðanir um
laun eða hafa umsjón með launaútreikningum í
fyrirtækjunum, afli sér haldbærra upplýsinga um
þær breytingar, sem kjarasamningarnir hafa í
för með sér. Mistök íframkvæmd geta stefnt
árangrinum ítvísýnu.
Námsstefnan er opin fulltrúum allra fyrirtækja
íVSÍ og aðildarfélögum þess.
Vinnuveitendasamband íslands
Apótekarafélag íslands
Bílgreinasambandið
Félag blikksmiðjueigenda
Félag dráttarbr. og skipasmiðja
Félag gleraugnaversl. á íslandi
Félag húsgagna- og innr.framl.
Félag ísl. iðnrekenda
Fétag fsl. prentiðnaðarins
Félag ísl. stórkaupmanna
Félag mélmiðnaðarfyrirtœkja
Félag vinnuvélaeigenda
Hárgreiðslumeistarafélag íslands
Kaupmannasamtök íslands
Landssamband bakarameistara
Landssamband fsl. rafverktaka
Landssamband ísl. útvegsmarína
Landsssamband veiðarfæragerða
Samband fiskvinnslustöðvanna
Samband málm- og skipasmiðja
Samband veitinga- og gistihúsa
Verktakasamband íslands
BÍLABORG HF.
23sími 6812 99
BllLINN«sdg
FYRIP
Töffog flottur lítill bíll—fæst
meiraaðsegja með
TURBOvél!
Snöggurog lipurí
umferðinni.
Nóg pláss—meira að segja
fyrirmig!
Ótrúlega sparneytinn.
Skutlan kostar nú frá aðeins
259 þúsund krónum.
Skutlan er flutt inn af Bíla-
borg h/f. Það tryggir 1. flokks
þjónustu, sem er rómuð af öll-
sem til þekkja.