Morgunblaðið - 11.12.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986
45
Morgunblaðið/Einar Falur
Við opnun sýningar Slysavarnarfélagsins og Umferðarráðs
sýndi tískusýningarfólk fatnað með endurskinsmerkjum
Sýningá endurskinsmerkjum
SLYSAVARNARFÉLAG íslands
og Umferðarráð hafa opnað sýn-
ingu á endurskinsmerkjum _ og
endurskinsefnum, í húsi SVFÍ að
Grandagarði 14. Þar eru kynntir
ýmsir möguleikar á notkun
þessara efna til þess að auka
öryggi vegfarenda, sjómanna og
annarra sem eru á ferli í myrkri.
Þegar sýningin var kynnt frétta-
mönnum fór fram tískusýning á
hlífðarfatnaði með endurskins-
merkjum frá íslenskum framleið-
endum. Létu aðstandendur í Ijósi
þá von að innan tíðar yrðu endur-
skinsmerki talin sjálfsagður hluti
allra skjólflika og fatnaðar til
útiveru.
Að sögn Hannesar Hafstein,
framkvæmdastjóra Slysavamafé-
lagsins, eiga þeir sem slasast á
þessum árstíma það oft sameiginlegt
að hafa látið undir höfuð leggjast
að nota endurskinsmerki. „Við get-
um ekki vænst þess að í hvert sinn
sem slys verður lendi aðrir í því -
næst gæti það orðið þú eða þínir.
Endurskinsmerkin hafa oft verið
nefnd „ódýr líftrygging" og nokkuð
er til í því,“ sagði Hannes.
A sýningunni gefur að líta ýmsa
möguleika til notkunar endurskins-
efna. Má þar nefna hefðbundin
endurskinsmerki á fólk og ýmsar
gerðir flíka sem íslenskir fatafram-
leiðendur prýða endurskinsmerkjum.
Einnig eru sýnd endurskinsbelti fyr-
ir „skokkara" sem þeir geta brugðið
um sig miðja og endurskinsmerki
fyrir hesta.
Sýningin verður opin almenningi
frá því á morgun og þar til á þriðju-
dag, kl. 13.00-18.00. Skólastjórum
og kennumm er bent á að koma
með nemendur sína á sýninguna.
Séu hópamir stórir er talið ráðlegt
að panta tíma hjá SVFÍ í síma
27000. Aðgangur að sýningunni er
ókeypis.
Laugaveginum lokað og fólk
hvatt til að nota strætisvagna
JÓLAUMFERÐIN verður æ
þyngri eftir því sem nær dregur
hátíðinni og fólk á sífellt erfiðara
með að finna stæði fyrir bílana.
Nú hefur Umferðarnefnd
Reykjavíkur og lögreglan ákveðið
hvar heimilt verður að leggja og
hvar má aka.
Laugaveginum verður lokað fyrir
annarri umferð en strætisvagna
laugardaginn 20. desember kl. 13-22
og á Þorláksmessu kl. 13-23, þó
með þeirri undantekningu að vöru-
dreifing er heimil á tímabilinu kl.
19-20. Leigubifreiðar, sem eiga er-
indi að húsum við Laugaveg njóta
Fundur um
hreyfingu
og offitu
NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG
Reykjavíkur heldur fræðslufund
um ný viðhorf í heilbrigðismálum
á Hótel Esju fimmtudaginn 11.
desember kl. 20.30.
Valdimar Önrólfsson, fimleika-
stjóri Háskóla íslands og Sigurður
Þ. Guðmundsson, læknir á Land-
spítalanum, flytja fræðsluerindi um
hreyfingu og líkamsrækt annars
vegar og offitu og afleiðingar henn-
ar hins vegar.
einnig undanþágu, hafí þær uppi
merki leigubifreiða og einnig fá bif-
reiðar með merki fatlaðra undan-
þágu. Gjaldskylda í stöðumæla þessa
daga verður á meðan verslanir eru
opnar. Einnig verður gjaldskylda
laugardaginn 13. desemberki. 9-18.
Bifreiðastæði í Tollhúsinu við
Tryggvagötu og Kolaportinu verða
opin á sama tíma.
Frá og með næsta laugardegi, 13.
desember, og allt fram á aðfangadag
verður almenningi heimilt að leggja
bifreiðum á lóð Eimskips við Kal-
kofnsveg (ekið inn frá Kalkofnsvegi)
og á lóð Laugavegs 148, þar sem
áður var Timburvöruverslun Árna
Jónssonar (ekið inn frá Brautar-
holti). Við Kalkofnsveginn verða um
150-200 bílastæði og við Laugaveg
148 verða um 130 stæði. Síðast
nefndu stæðin eru nálægt skiptistöð
SVR á Hlemmi. Auk þessara stæða
má benda á bifreiðastæði milli
Vatnsstígs og Frakkastígs á lóð
Eimskips, sem Reykjavíkurborg hef-
ur á leigu.
Það er vissulega gott og blessað
að bílastæðum fjölgi, en fólk ætti
þó að notfæra sér þjónustu strætis-
vagnanna í sem mestum mæli.
Sérstaklega eru starfsmenn verslana
og annarra fyrirtækja í miðborginni
beðnir um að hafa þetta í huga. Ef
þeir koma á einkabifreiðum til vinnu
er þeim bent á að leggja fjær vinnu-
stað en venjulega fram að jólum.
Lögreglan hefur í nógu að snúast
þegar umferðin er jafn mikil og allt-
af er fyrir jólin. Lögreglumenn munu
greiða fyi-ir umferð og aðstoða fólk
eftir megni. Þá hefur lögreglan
kranabifreiðar í sinni þjónustu og
mun fjarlægja þær bifreiðar sem er
illa lagt, skapa hættu og hindra eðli-
lega umferð bæði fyrir akandi og
gangandi vegfarendur. Ökutækin
verða fjarlægð á kostnað ökumanna. t
GENGIS-
SKRANING
Nr. 234 - 10. desember 1986
Kr. Kr. Toll-
Ein.Ki. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 40,800 40,920 40,520
St.pund 58,181 58,352 58,173
Kan.dollari 29,618 29,705 29,272
Dönskkr. 5,3526 5,3683 5,4225
Norskkr. 5,4108 5,4267 5,3937
Sænskkr. 5,8616 5,8789 5,8891
Fi.mark 8,2516 8,2759 8,2914
Fr. franki 6,1643 6,1824 6,2492
Bclg. franki 0,9713 0,9741 0,9846
Sv.franki 24,1492 24,32202 24,5799
Holl. gyllini 17,8751 17,8277 18,1135
V-þ.mark 20,2080 20,2675 20,4750
Ítlíra 0,02916 0,02925 0,02953
Austurr. sch. 2,8717 2,8802 2,9078
Port.cscudo 0,2725 0,2733 0,2747
Sp.pescti 0,2993 0,3001 0,3028
Jap.ven 0,25077 0,25151 0,25005
Irsktpund 55,041 55,203 55,674
SDR(Sérst) 49,0000 49,1443 48,9733
ECU, Evrópum. 42,0974 42,2213 42,6007
Nýjcu bœkui írá Skuggsjá
Árni Óla
Reykjavík
fyrri tima III
Hér eru tvœr síðustu Reykjavíkur-
bœkur Árna Óla, Sagt írá Reykjavík
og Svipui Reykjavíkui, geínar
saman út í einu bindi. Petta er þriðja
og síðasta bindið aí ritinu Reykjavík
íyrri tíma. í þessum bókum er geysi-
mikill íróðleikur um persónur, sem
mótuðu Reykjavík og settu svip á
bœinn. Nútímamaðurinn öðlast
nýjan skilning á höíuðborg landsins
og íorverunum er hana byggðu. Frá-
sögn Árna er skemmtileg og liíandi,
og margar myndir prýða bœkurnar.
Pétur Zophoníasson
Víkingslœkjarœtt III
Þetta er þriðja bindi nýrrar útgáíu at
Víkingslœkjarœtt, niðjatali Guðríðar
Eyjólfsdóttur og Bjarna Halldórssonar
hreppstjóra á Víkingslœk. í þessu
bindi eru niðjar Jóns yngra Bjarna-
sonar. Alls verða bindin íimm í
þessari útgáíu aí hinu mikla œtt-
írœðiriti Péturs Zophoníassonar.
Myndir aí þeim, sem í bókinni eru
neíndir, em íjölmargar eins og í íyrri
bindum ritsins, og mun íleiri heldur
en vom í íyrstu útgáíunni.
OIL
'ÆÆl
VŒ)
MENN
SKUGGSIA
>1 Helga Halldórsdóttir
írá Dagverdará
Öll erum vid menn
Helga Halldórsdóttir segir hér írá fólki,
sem hún kynntist sjálí á Snœíellsnesi,
og einnig íólki, sem íoreldrar hennar
og aðrir sögðu henni írá. Þetta em írá-
sagnir aí sérstœðum og eftirminni-
legum persónum, svo sem Magnúsi
putta, Leirulœkjar-Fúsa, Þórði sterka
o.fl. Katli er einnig um Jóhannes
Sveinsson Kjarval listmálara og sagt
er írá skáldunum Bólu-Hjálmari,
Sigurði Breiðíjörð, Jónasi Hallgríms-
syni og Símoni Dalaskáldi. Mikið er aí |
vísum í bókinni, sem margar hafa
hvergi birst áður.
Pétur Eggerz
Ævisaga Davíös
Davíð vinnur á skriístofu snjalls fjár-
málamanns í Washington. Hann er í
sííelldri spennu og í kringum hann er
sííelld spenna. Vinur hans segir við
hann „Davíð þú veist oí mikið. Þú
verður að íara írá Ameríku eins fljótt
og auðið er. Þú ert orðinn eins og
peningaskápur fullur aí upplýsing-
um. Þeir vita að þú segir ekki írá. En
þeir óttast að einhverjum slóttugum
bragðaref takist að leika á þig, opna
peningaskápinn og hagnýta sér
upplýsingamar."
SKUGGSJA - BOKABÚÐ OLIVERS STEINS SF.