Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986
Fasteigiiamatið
hækkar um 23%
Fasteignamat allra eigna á landinu 310 milljarðar
MAT fasteigna fyrir allar teg-
undir eigna um allt land hækkaði
um 23% fyrsta desember síðast-
liðinn og er hækkun matsins
mjög svipuð hækkun bygging-
arvisitölu og lánskjaravísitölu
frá október 1985 til sama tíma á
þessu ári. Þetta þýðir að fast-
eignamat 65 fermetra tveggja
herbergja íbúðar í blokk í Breið-
holti er nú 1.887.000 krónur, og
226 fermetra stórt einlyft ein-
býlishús í Fossvogi er metið á
7.982.000 krónur.
Á fréttamannafundi sem Fast-
eignamat ríkisins hélt kom fram
að samanlagt fasteignamat allra
eigna á landinu er 310 miljarðar
króna samkvæmt nýju fasteigna-
skránni sem kom út 1. desember.
Þannig koma í hlut hvers manns-
bams tæplega 1,3 miljónir króna.
Endurstofnverð, eða sú upphæð
sem ætla má að kosti að reisa öll
þessi mannvirki er 416 miljarðar
króna.
Á landinu eru tæplega 86 þúsund
íbúðir og eru samkvæmt því tæp-
lega 2,8 Islendingar til jafnaðar um
hveija íbúð. Samanlagt rúmmál
mannvirkja er nú 72,4 miljónir rúm-
metra og á síðasta ári bættust 2,056
miljónir rúmmetra við. Það er það
minnsta sem mælst hefur síðustu
fímm ár að árinu 1984 undanskildu
en þá var ekki lokið við skráningu
mannvirkja vegna vinnudeilna.
Lauslega áætlað eru nú um 44
fermetrar brúttó af íbúðarhúsnæði
á hvem íbúa og ef bílskúrar eru
teknir með koma um 47 fermetrar
í hlut hvers og eins. Þetta er mikið
miðað við Norðurlöndin, en þar er
Danmörk efst á blaði með 46 fer-
metra á íbúa, en Finnland lægst
með 28 fermetra á íbúa.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT ó hádegi í gaer: Um 600 kílómetra suðvestur af landinu
er 955 millibara víðáttumikil lægö, sem þokast norður, en 1015
millibara hæð yfir norðaustur-Grænlandi. Veður mun fara hægt
kólnandi.
SPÁ: f dag verður sunnanátt á landinu, allhvöss á austanverðu
landinu en mun hægari vestantil. Siydduél verða um sunnan- og
austanvert landið en úrkomulítið annars staðar. Frost verður á
bilinu -1 til -2 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR: Austlæg átt, með slyddu eða rigningu víða um
land, og 1 til 5 stiga hiti.
LAUGARDAGUR: Á laugardag snýst vindur til norðan- eða norö-
austanáttar um vestanvert landið með snjókomu eða slyddu á
Vestfjörðum og vesturhluta norðurlands, og éljum suður til Faxa-
fióa. Um austanvert landið verður suðlæg eða breytileg átt, og
skúrir eða slydduél. Heldur kólnar í veðri, einkum vestanlands.
TÁKN:
ö Heiðskírt
Léttskýjað
Háifskýjað
m Skýjað
J||^ Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
5, ’ Súld
OO Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
r +.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hhi veður
Akureyri S alskýjað
Reykjavík 3 skýjaft
Bergen S léttskýjað
Helsinki 3 súld
Jan Mayen -2 skýjað
Kaupmannah. 7 hilfskýjað
Narssarssuaq -13 alskýjsð
Nuuk -8 snjókoma
Osló S skýjað
Stokkhólmur 7 léttskýjað
Þórehöfn 7 rigning
Algarve 14 léttskýjað
Amsterdam 8 skýjað
Aþena 10 alskýjað
Barcelona 7 skýjað
Beriln 15 rignlng
Chicago -12 helðskírt
Glasgow S skýjað
Feneyjar 9 þokumóða
Frankfurt 6 léttskýjað
Hamborg 8 skýjað
LasPalmas 20 skýjað
London 8 mistur
LosAngeles 9 þokumóða
Lúxemborg 3 þoka
Madrid vantar
Malaga 16 léttskýjað
Mallorca 13 súld
Miami 23 léttskýjað
Montreal —6 snjóél
Nice 13 rignlng
NewYork 9 þokumóða
Paris 6 þokumóða
Róm 13 þokumóða
Vín -2 þokumóða
VUashington 13 rignlng
Winnipeg -22 skýjað
Starfsmenn ÁTVR breyta verðmerkingum. Morgunbiaðið/Ámi Sæberg
Áfengi og tóbak
hækkar
VERÐ á áfengi og tóbaki hækkar
í dag. Breytingar þessar eru að
hluta til vegna skattheimtu til
ríkisins samkvæmt fjárlögum.
Einnig koma til hækkanir vegna
óhagstæðrar þróunar á gengi í
Evrópu, sérstaklega í Þýskalandi
og Frakklandi. Hækkanir á tób-
aki eru á bilinu 5 til 10% og
áfengi hækkar um allt að 19%.
Eftir hækkunina er verð á Cam-
el, Winston og öðrum algengum
vindlingategundum 100 krónur, en
var áður 93 krónur, Royale hækkar
úr 79 krónum í 86, Tiparillo vindlar
úr 71.75 í 75 krónur og bréfíð af
Scandinavia reyktóbaki úr 153.60
í 170 krónur.
Af algengum rauðvínstegundum
má nefna að St. Emilion hækkar
úr 480 í 560 krónur, St. Christina
í dag
úr 360 í 410 og Piat de Beaujoula-
ise úr 420 í 430 krón ur. Sem
dæmi um verðbreytingu á hvítvíni,
hækkar Liebfraumilch Anheuser
um 10% úr 280 í 310 krónur, Séin-
heimer um 13.3%, úr 300 í 340
krónur, en Torres hækkar ekkert.
Koma þar til hagstæðir fraktsamn-
ingar
Eftir hækkunina kostar flaska
af White Horse Whisky 1.200 krón-
ur, Smimoff Vodka 1040 krónur,
Bacardi Romm 1110 krónur, Is-
lenskt Brennivín 810 krónur og
flaska af Campari 1000 krónur.
I fjárlagafrumvarpinu fyrir 1987
er gert ráð fyrir að ATVR skili um
10% hærri upphæð í ríkiskassann
en verið hefur í ár. Samkvæmt fjár-
lögum fyrir árið 1986 nemur sú
upphæð 2.3 milljörðum króna.
Eldri konum
hætt í hálkunni
„ÞAÐ ER full ástæða til að hvetja
alla til varkárni í hálkunni, en
sérstaklega hvet ég miðaldra og
fullorðnar konur til að nota
mannbrodda, því þeim er hættast
við brotum ef þær detta í hálku.
Algengustu meiðsli í hálkunni
eru úlnliðsbrot," sagði Gunnar
Jónsson, yfirlæknir á slysadeild
Borgarspítalans, en konur um
og yfir sextugt eru tíðustu ge-
stimir á slysadeildinni þegar
hálka er.
Gunnar sagði að í gærmorgun
hefði verið mikil hálka. í höfuð-
borginni og á einum klukkutíma
hefðu fjórir komið á slysadeild með
beinbrot eftir að hafa orðið fóta-
skortur í hálkunni. „Af þessum
Qórum voru þtjár fullorðnar konur
og það hlutfall er lýsandi dæmi um
ástandið í heild. Ástæða þess að
konum er svo hætt við brotum er
sú, að úrkölkun kemur fyrr hjá
þeim en karlmönnum. Onnur dæmi-
gerð kölkunarbrot eru mjaðmar-
brot, þar sem lærleggshálsinn
brotnar og hnútan. Konur brotna
mun oftar þannig en karlar, en það
hlutfall jafnast út þegar fólk er
komið um áttrætt. Þá er úrkölkun
jafn mikil hjá körlum sem konum."
Gunnar sagðist hafa búið lengi í
nágrannalöndunum og þar væri
mun betur búið að gangandi vegfa-
rendum en hér. „Héma eru gang-
stéttir hálar og oftar en ekki er
mtt snjó upp á þær svo svellbunkar
myndast. Einnig er allt of algengt
hér að engar gangstéttir séu og þá
myndast að sjálfsögðu mikil hætta.“
Flugleiðir:
Metár í inn-
anlandsflugi
MET Flugleiða í innanlandsflugi
frá því í fyrra, þegar fluttir voru
rúmlega 244 þúsund farþegar,
hefur nú þegar verið slegið. Er
búist við að 250 þúsundasti far-
þeginn í innanlandsflugi fljúgi
næstkomandi föstudag eða laug-
ardag að því er Sveinn Sæmunds-
son, sölusljóri innanlandsflugs,
sagði í samtali við Morgunblaðið.
Sveinn sagði að aukningin á
þessu ári væri um 6,5% ofan á
mjög mikla aukningu, sem varð í
innanlandsflugi á slðasta ári.
Flugleiðir hafa ákveðið rúmlega
50 aukaferðir innanlands vegna
komandi frídaga um jól og nýár,
en jólaáætlunin hefst 16. desember
og lýkur 4. janúar. Aukaferðir eru
fynrhugaðar til flestra áætlunar-
staða og verða flestar til Akureyrar,
fsafjarðar, Vestmannaeyja og Eg-
ilsstaða. Ekkert flug verður innan-
lands á vegum Flugleiða á jóladag
og nýársdag
Að sögn Sveins Sæmundssonar
verður kappkostað að allir farþegar
félagsins nái til ákvörðunarstaðar
í tæka tíð fyrir hátíðina. Mikilvægt
væri að farþegar bókuðu far tíman-
lega og ennfremur að láta vita í
tíma ef þeir hygðust ekki nota pant-
að far.