Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986
35
Jólakort
þriðja árs^
nema MHÍ
ÞRIÐJA árs nemar í Myndlista-
og handíðaskóli íslands hefur
gefið út jólakort.
Agóði af sölu jólakortanna renn-
ur í ferðasjóð þriðja árs nema MHÍ.
Fastráðning-
in hentar ekki
á svona stöðum
Segir Þorsteinn Sveins-
son kaupfélagsstjóri
um atvinnuvanda-
máJ Borgarfjarðar eystra
„VEGNA lélegrar hafnaraðstöðu
eru aðeins gerðir út smábátar frá
Borgarfirði sem ekki geta sótt
nema takmarkað yfir veturinn.
Við tókum það ráð að salta fisk-
inn sem berst að og ráða sem
fæst fólk,“ sagði Þorsteinn
Sveinsson kaupfélagsstjóri hjá
Kaupfélagi Héraðsbúa á Egils-
stöðum er hann var spurður
hvort hann væri sammála þeirri
skoðun sem fram kom í nýlegum
viðtölum við íbúa á Borgarfirði
eystra að fastráðningarsamning-
ar fiskvinnslufólks hefðu orðið
til að minnka vinnuna í frysti-
húsi KH á staðnum.
Þorsteinn sagði að ef þessir fast-
ráðningarsamningar hefðu ekki
komið til framkvæmda á Borgarfirði,
eins og forráðamenn fyrirtækisins
hefðu reyndar viljað, hefði fólkið ver-
ið kallað út til að vinna við frystingu
þess fisks sem komið hefur á land í
haust. En fyrirtækið gæti ekki kallað
fólkið til vinnu fyrir einn og einn dag
þegar hráefnisöflunin væri svona
stopul og átt á hættu að þurfa að
greiða fólkinu laun í mánuð án þess
að hafa vinnu fyrir það. „Það þarf
að laga þetta fyrirkomulag. Fastráðn-
ingin hentar ekki á svona stöðum.
Þar sem eru 10 starfsmenn eða færri
er veitt undanþága frá þessu ákvæði
og ég held að menn hljóti að hækka
mörkin þannig að þetta nái til staða
eins og Borgarfjarðar, “ sagði Þor-
steinn.
Kaupfélag Héraðsbúa lagði niður
slátrun í Borgarfirði í haust, en þar
hefur verið slátrað frá því að byijað
var að slátra fé í sláturhúsum hér á
landi og kom fram viss óánægja
heimamanna með það. Þorsteinn
sagði að fólkið hefði fengið laun í
frystihúsinu alla sláturtíðina og ekki
misst neitt. Hann sagði að kaupfélag-
ið hefði slátrað á fjórum stöðum en
þar sem fé á svæðinu hefði fækkað
mikið frá árinu 1979, eða úr 81 þús-
und í 55 þúsund, og aðeins væri eftir
um 4.000 fjár í Borgarfirði, hefði
verið áveðið að slátra aðeins í þremur
húsum nú. Þetta væri meðal annars
gert til að verða við kröfum um hag-
. ræðingu í vinnslu sem komið hefðu
fram á undanförnum árum.
Þorsteinn sagði að tap væri búið
að vera á frystihúsi KH í Borgarfirði
eystra um árabil og tap væri á versl-
uninni þar líka. Hann sagði að það
væri spurning hvað hægt væri að
halda lengi áfram á þessari braut og
að því gæti komið að selja þyrfti þjón-
ustuna dýrara eða draga úr henni.
VJterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Guðni Kjartansson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu:
„Kmðurínn
kemurekki
af sjálfii séi:
Mundu ettinnj(')lkimir*
Menn veröa ekki afreksmenn í íþróttum núorðiö án alhliða undirbúnings.
GuÖni Kjartansson, leikmaður og þjálfari í knattspyrnu leggur ríka áherslu á, aö
einn liðurinn í undirbúningi knattspymumanna, sem annarra íþróttamanna, sé
að borða rétta fæðu, til þess að líkaminn fái þann kraft og snerpu sem
nauðsynleg er.
Mjólkin er ómissandi uppistaða í daglegri fæðu þeirra, sem
hugsa um uppbyggingu líkamans. Fáar fæðutegundir eru eins ríkar af
bætiefnum og mjólk.
Nær vonlaust er t.d. fyrir okkur aö tryggja líkamanum nægilegt kalk án
mjólkurmatar og kalk veröur líkaminn aö fá til vaxtar og viöhalds beina og
tanna. Auk kalksins sér mjólkin líkamanum fyrir mikilvægum próteinum,
B-vítamínum, A-vítamíni, kalíum, magníum, zinki o.fl. bætiefnum sem eru
nauðsynleg fyrir heilbrigði okkar.
Þess vegna er mikilvægt að mjólk og mjólkurvörur séu hluti af
hverri máltíð.
Pétur Pétursson, landsliösmaður í
knattspyrnu drekkur mikla mjólk og
leysir þar meö stóran hluta af
bætiefnaþörfinni enda krefst íþrótt
hans mikillar snerpu, þreks og sterkra
tauga.
MJOLKURDAGSNEFND
Mjólk fyrir alla
eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson
Börn og unglingar ættu aö nota allan
mjólkurmat eftir því sem smekkur þeirra
býöur.
Fullorðnir ættu á hinn bóginn aö halda sig við
fituminni mjólkurmat, raunarvið magra fæöu
yfirleitt. 2 mjólkurglös á dag eru hæfilegur
lágmarksskammtur ævilangt. Mundu aö
hugtakiö mjólk nær yfir léttmjólk,
undanrennu og nýmjólk.
* (Með mjólk er átt við nýmjólk, léttmjólk og undanrennu).