Morgunblaðið - 11.12.1986, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR ll'. DESEMBER 1986
I*
Frá æfingn Sinfóníuhljómsveitar íslands og Pólýfónkórsins á Messiasi.
Sinfóníuhljómsveit Islands
og Pólýfónkórinn flytja
„Messías“ í Hallgrímskirkju
Sinfóníuhljómsveit íslands
og Pólýfónkórinn undir
stjóm Ingólfs Guðbrands-
sonar flytja Messías eftir
Georg Friedrich Hándel í Hallgrí-
mskirkju í kvöld, fimmtudaginn
11. desember. Einsöngvarar
verða: Maureen Brathwaite,
Sigríður Ella Magnúsdóttir, Ian
Partridge og Peter Coleman-
Wright. Tónleikamir em hinir
sjöundu á fyrra misseri þessa
starfsárs Sinfóníuhljómsveitar-
innar.
Ingólfur Guðbrandsson
stundaði tónlistamám samhliða
kennaranámi og síðan háskóla-
nám í tungumálum. Framhalds-
nám stundaði hann við Guildhall-
tónlistarskólann í Lundúnum og
Tónlistarháskólann í Köln, en auk
þess fór hann í margar náms-
ferðir og dvaldist um skeið við
Söngskólann í Augsburg, og einn-
ig í Mflanó og Róm. Hann var
fyrsti námsstjóri í tónlist á Is-
landi, en sagði því starfi lausu
1963 og hefur síðan verið braut-
ryðjandi á sviði ferðamála.
Ingólfur stofnaði Pólýfónkórinn
árið 1957 og hefur stjómað hon-
um síðan við mikinn orðstír, bæði
heima og erlendis. Síðast stjóm-
aði hann Sinfóníuhljómsveit
íslands þegar Messa í h-moll eftir
Joh. Seb. Bach var flutt í sam-
vinnu við Pólýfónkórinn í mars
1985.
Maureen Brathwaite hlaut
tónlistarmenntun í Barbados og í
Lundúnum, síðast við Guildhall-
tónlistar- og leiklistarskólann, þar
sem hún söng ýmis óperuhlutverk.
Síðustu tvö árin hefur hún verið
mjög eftirsótt og önnum kafin
söngkona og hefur m.a. starfað
við Glyndeboume-óperuna.
Sigríður Ella Magnúsdóttir
hóf snemma fjölþætt nám í Tón-
listarskólanum í Reykjavík og
stundaði síðan framhaldsnám um
árabil í Vínarborg. Hún hefur
unnið til verðlauna í alþjóðlegum
söngkeppnum og nú í haust fór
hún í tónleikaferð með Konung-
legu ópemnni í Covent Garden í
Kóreu og Japan. Sigríður Ella er
búsett í Englandi, en er jafnan
kærkominn gestur þegar hún læt-
ur til sín heyra hér heima.
Ian Partridge hefur um skeið
verið talinn einn hinn ágætasti
ljóðrænna tenórsöngvara á Bret-
landi og hefur komið fram á mjög
mörgum alþjóðlegum tónlistar-
hátíðum þar og víðar, svo og á
öðmm tónleikum í fjölmörgum
stórborgum austan hafs og vest-
an. Hann hefur einnig sungið inn
á margar hljómplötur.
Peter Coleman-Wright er
fæddur og uppalinn í Ástralíu og
hlaut menntun sína þar í landi.
Hann fluttist til Lundúna 1980
og hefur síðan sungið með ýmsum
óperuflokkum, m.a. hlutverk
nautabanans í „Carmen" og dr.
Falke í „Leðurblökunni". Með
Glyndeboume-ópemnni hefur
hann m.a. komið fram í „Cosi fan
tutti“ eftir Mozart og „Albert
Herring“ eftir Britten.
Hljómburðurinn í Hallgríms-
kirkju hefur nú verið lagfærður
með ýmsu móti. Til dæmis hafa
kór og hljómsveit verið flutt innar
í kór kirkjunnar og er það til hins
betra.
Georg Friedrich Hándel
fæddist í Halle árið 1685, sama
ár og Joh. Seb. Bach og á svipuð-
um slóðum í Þýskalandi. Þeir tveir
bera höfuð og herðar yfír aðra
tónsmiði á fyrra helmingi 18. ald-
ar og náði barokk-stfllinn í tónlist
fullkomnun í verkum þeirra.
Hándel hóf tónlistarferil sinn sem
fiðlu- og semballeikari (og stjóm-
andi) við ópemna í Hamborg. Á
ámnum 1707—10 var hann á ít-
alíu, þar sem hann tileinkaði sér
þann tónlistarstfl sem þá var í
tísku og vakti athygli sem hljóð-
færaleikari og tónskáld. Árið
1712 settist hann svo að í Lundún-
um og vann sér brátt álit með
ópemm, kirkjulegum tónverkum
og hljómsveitarverkum.
Þegar Hándel var 56 ára að
aldri, árið 1741, tók hann upp
nýja lífsstefnu og sneri sér þá
eingöngu að því að semja óratorí-
ur. Á því ári samdi hann meistara-
verkið „Messías", sem er frægast
af öllum tónverkum hans.
„Messías" var saminn á tíma-
bil-
inu frá 22. ágúst til 14. september
1741, eða á rúmlega þremur vik-
um, sem er ótrúlega skammur
tími þótt tillit sé tekið til þess að
sum atriði verksins studdust við
eldri tónsmiðar tónskáldsins.
Textinn er úr heilagri ritningu,
valinn af Charles nokkmm Jenn-
ens. Verkið var flutt í fyrsta skipti
í Dyflinni þann 13. apríl 1742 á
vegum tónlistarfélags þar í borg.
Var því tekið með fáheyrðum
fognuði og hefur hrifning áhey-
renda fylgt „Messíasi" síðan.