Morgunblaðið - 11.12.1986, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986
27
Núverandi stjóm Lðgmannafélags íslands, talið frá vinstri: Gestur Jónsson, Hákon Árnason, Sveinn Snorrason, formaður, Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson, Björgvin Þorsteinsson og Hafþór I. Jónsson, framkvæmdastjóri félagsins.
leyti tjón, sem slqolstæðingur lög-
manns hefur orðið fyrir vegna
fjárþrots lögmanns, og hefur stjóm
félagsins á hendi stjóm og vörslu
á eignum sjóðsins. Báðir þessir
síðastnefndu sjóðir hafa tekjur sínar
af þeim gjöldum er lögmenn greiða
til félagsins samkvæmt nánari
ákvæðum í samþykktum félagsins.
Þijátíu ár eru síðan Lögmannafé-
lag íslands hóf þátttöku í samtökum
norrænna lögmanna og hefur félag-
ið oftsinnis staðið að þvi ásamt
fleiri samtökum íslenskra lögfræð-
inga að tekið hefur verið á móti
flölda erlendra lögfræðinga á nor-
ræn lögfræðingamót í Reykjavík
auk þess sem félagsmenn hafa sótt
slík mót á Norðurlöndum. Hafa
þessi samskipti verið með miklum
ágætum og margt gott af þessu
samstarfi leitt svo sem úrbætur í
réttarfarsmálum, en eins og kunn-
ugt er þá er löggjöf á Norðurlönd-
unum mjög svipuð á mörgum
sviðum réttarins.
Breytingar á þjóðfélagsháttum
hafa haft áhrif á störf Lögmannafé-
lagsins sem og annarra félaga.
Fyrstu hálfa öldina voru starfandi
lögmenn ekki svo ýlq'a margir og
völdust einkum eldri lögmenn til
setu í stjóm félagsins. Mikil fjölgun
lögmanna á undanfömum ámm
hefur orðið þess valdandi að yngri
menn hafa látið meira til sín taka
innan félagsins og er það eðlilegt
þar sem segja má að þeir verða á
starfsháttum lögmanna. Nefna má
að tölvubyltingin svonefnda er nú
að halda innreið sína á lögmanns-
stofur og leiddi samstarf lögmanna
til þess að samið var tölvuforrit til
notkunar við innheimtustörf o.fl.
Er þessi hugbúnaður nú notaður á
allmörgum lögmannsstofum. Mikl-
ar breytingar em framundan í
þessum efnum og gefst lögmönnum
nú kostur á að tengja tölvur sínar
við gagnabanka svo sem fast-
eigpia-, bifreiða- og manntalsskrár
auk lagasafns. Aðgangur að laga-
safni um tölvu hefur vakið áhuga
lögmanna, dómara og annarra lög-
fræðinga á því að tengja dómasöfn
við lagasafnið og er ekki að efa að
þessu verði hrint í framkvæmd inn-
an tíðar. Notkun tölva á lögmanns-
stofum hefur ekki einungis
auðveldað lögmönnum yfirsýn og
eftirlit með starfsemi skrifstofanna
heldur er hún til mikilia bóta fyrir
viðskiptamenn, sem geta nú á skjót-
an hátt fengið yfirlit yfir stöðu
mála.
Um langt árabil hafði sú regla
verið í gildi að lögmönnum væri
óheimilt að auglýsa starfsemi sína.
Að áliti margra lögmanna var talið
nauðsynlegt með tilliti til sam-
keppni við aðrar stéttir að afnema
þetta bann. Miklar umræður urðu
um þetta mál á aðalfundi síðasta
árs en niðurstaða fundarins var sú
að siðareglum lögmanna var breytt
á þann veg að lögmaður má nú
auglýsa og kynna þjónustu sína svo
sem samrýmist góðum lögmanns-
háttum.
Lögmannafélag íslands rekur
skrifstofu í eigin húsnæði í Álfta-
mýri 9 í Reylqavík og hefur Hafþór
Ingi Jónsson hdl. verið fram-
kvæmdastjóri félagsins sl. 5 ár.
Lögmannafélag Islands og Dóm-
arafélag íslands hafa á undanföm-
um árum barist fyrir því að
Hæstiréttur íslands fái dómhús við
hæfí ogí janúar sl. samþykkti stjóm
Lögmannafélagsins svofellda álykt-
un um húsnæðismál Hæstaréttar:
„Stjóm Lögmannafélags íslands
tekur undir ábendingar Dómara-
félags Islands um að Safnahúsið
við Hverfísgötu verði gert að dóm-
húsi Hæstaréttar þegar núverandi
starfsemi flyst úr húsinu, en hús-
næðisaðstaða Hæstaréttar nú er
með öllu óviðunandi. Telur stjóm-
in að hér gefist tækifæri til að
bæta úr brýnni húsnæðisþörf
Hæstaréttar. Sómir húsið sér vel
sem aðsetur æðsta dómstóls þjóð-
arinnar, jafnframt því sem líklegt
er að ekki þurfí að gera á því
miklar breytingar vegna starfsemi
réttarins."
Er það svo lögmanna að ráða-
menn sjái til þess að Hæstiréttur
íslands fái á þennan hátt húsnæði
sem hæfír æðsta dómstól þjóðarinn-
ar.
Höfundur er hæstaréttarlögmað-
ur.
Það er ekki
alltaf hægt að
hlaupa
úr vinnunni til
þess að greiða
reikningana
Enda ástæðulaust þegar hægt er að fara í Hraðbankann hvenær sem er sólarhringsins.
Afgreiðslustaöir Hraðbankans eru á eftirtöldum stöðum:
• Borgarspltalanum • Landsbankanum Breiðholti • Landsbankanum Akureyri • Landspítalanum
• Búnaðarbankanum, aðalbanka • Búnaðarbankanum við Hlemm • Búnaðarbankanum Garðabæ
• Sparisjóði Vélstjóra • Samvinnubankanum Háaleitisbraut • Útvegsbankanum Hafnarfirði
• Sparisjóði Keflavíkur • Sparisjóði Reykjavikur og nágrennis • Landsbankanum, aðalbanka.
og gerðu upp reikningana
AUKhf. X2.12/ SlA