Morgunblaðið - 11.12.1986, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 11.12.1986, Qupperneq 43
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986 43 illfxgmtfrlftfrftí Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Augiýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. j lausasölu 50 kr. eintakið. Nýtt fólk til ábyrgðarstarfa Stjórnmálaforingjarnir fara nú að skipa liði sínu í kosninga- fylkingar. Skoðanakannanir að undanförnu sýna, hvernig landið liggur í þann mund, sem gengið er frá framboðslistum. Af þeim er ljóst, að Sjálfstæðisflokkurinn þarf að hafa sig allan við til að halda stöðu sinni og hindra að atkvæða- veiðar Alþýðuflokksins skili sér í kössunum á kjördag. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sat fyrir svör- um í beinni útsendingu á Stöð 2 á þriðjudagskvöld. Af þeim þætti má ráða, að staða Alberts Guðmunds- sonar og Hafskipsmálið svonefnda séu snöggir blettir á Sjálfstæðis- flokknum. Flokksformaðurinn hélt vel á mönnum sínum, þegar taflið við fréttamennina tvo snerist um Albert og Hafskipsmálið. Raunar snertu flestar spumingamar þessi atriði og þau er varða stöðu Þor- steins sem flokksformanns. Þegar kom að því að ræða stjóm- málaástandið almennt og vígstöðu Sjálfstæðisflokksins eftir tæplega fjögurra ára setu í ríkisstjóm með Framsóknarflokknum, var greini- lega auðvelt fyrir Þorstein Pálsson að færa fyrir því gild rök, að í megindráttum gæti flokkurinn og stjómin vel við unað. Vissulega er það mikilvægur árangur, að tvisvar sinnum á sama árinu skuli nást kjarasamningar, sem falla að helsta stefnuatriði ríkisstjómarinnar í efnahagsmálum, að halda genginu föstu og draga úr skuldasöfnun í útlöndum. Ummæli Þorsteins Pálssonar um það, hvemig hann ætlar að standa að vali sjálfstæðismanna í ríkis- stjóm að kosningum ioknum eru hið fréttnæmasta, sem fram kom í þessum sjónvarpsþætti. í fyrsta lagi sagðist Þorsteinn ætla að velja menn af nýrri kynslóð í Sjálfstæðis- flokknum í ráðherraembætti. í öðru lagi ætlar hann að hafa þann hátt- inn á, að gera sjálfur tillögu um ráðherraefni til þingflokks sjálf- stæðismanna. Um kynslóðaskipti í ráðherra- sætum eigi Sjálfstæðisflokkurinn aðild að ríkisstjóm eftir kosningar er það að segja, að engum ætti að koma á óvart, að Þorsteinn Pálsson vilji slíka breytingu. Þegar hann var kjörinn formaður Sjálfstæðisflokks- ins, urðu kynslóðaskipti í forystu flokksins. Mörgum finnst sem fram- boðslistamir eða tillögumar um þá eins og þær eru núna beri þess ekki merki. Enginn vafí er á því, að innan Sjálfstæðisflokksins finnst fleirum en formanninum tímabært að breyta til á þann veg, sem hann hefur boðað. Hjá Sjálfstæðisflokknum hefur hvort tveggja verið tíðkað, að for- maður flokksins leggi ákveðna tillögu um ráðherraefni fyrir þing- flokk eða hann leiti eftir uppá- stungum um menn hjá þingflokkn- um. Undanfarin ár hefur síðari aðferðinni verið beitt. Þorsteinn Pálsson gæti ekki boðað kynslóða- skipti í ráðherrastólum sjálfstæðis- manna jafn afdráttarlaust og hann hefur gert, ef hann ætlaði ekki sjálf- ur að hafa forystu um það. Gefur stefna hans í því efni strax til kynna þær breytingar, sem ákvörðun hans um formlega hlið á vali ráðherra hefur í för með sér. Hugmynd formanns Sjálfstæðis- flokksins um kynslóðaskipti á vafalaust eftir að vekja miklar umræður og vangaveltur innan flokksins og utan. Ef til vill væri eðlilegra að orða þetta á þann veg, að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi á nýju fólki að halda í ábyrgðarstöður á borð við ráðherraembætti. Aldur- inn skiptir ekki öllu máli í þessum efnum. Sjálfur forðaðist Þorsteinn Pálsson réttilega að nefna nokkur nöfn í sjónvarpsþættinum. Fátt er óráðlegra en það á þessari stundu. Á hinn bóginn mun athyglin nú beinast meira en áður að þeim fram- bjóðendum flokksins, sem eru af hinni nýju kynslóð. í stuttu máli má segja, að almennt hafi heldur lítið farið fyrir þeim í stjómmálaum- ræðunum upp á síðkastið. Það eru til að mynda fleiri í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík en Albert Guðmundsson, sem fékk flest atkvæði í prófkjörinu á dögun- um. Með hreinskilni sinni í sjónvarps- þætti Stöðvar 2 hefur Þorsteinn Pálsson skipað fylkingum frambjóð- enda Sjálfstæðisflokksins með nýjum hætti. Hann sýndi, að and- byrinn í skoðanakönnunum hefur síður en svo dregið kjarkinn úr formanninum. Ekki talið fram Vegna umræðnanna um að stað- greiðsla skatta kunni að verða tekin upp 1. janúar 1988 hefur verið sagt, að það ár yrði „skatt- laust" ár. Þetta orðalag kynni að vekja þær hugmyndir hjá einhveij- um, að þeir þurfí ekki að greiða tekkjuskatt eða útsvar á næsta ári. Þar er um misskilning að ræða. Á árinu 1987 greiðum við skatta af tekjum ársins 1986. Verði stað- greiðslan tekin upp 1. janúar 1988 þurfum við hins vegar ekki að telja fram til skatts tekjur okkar á árinu 1987; þess vegna sjá ýmsir sér leik á borði að afla þá meiri tekna en þeir hefðu ella gert. Stjómendur atvinnufyrirtækja segjast eiga von á að framleiðsla þeirra aukist veru- lega. Segir þetta okkur ekki allt, sem við þurfum að vita um það, að óhófleg skattheimta er dragbítur í efnhags- og atvinnustarfsemi. Fjölmiðlakönnun Félagsvísindastofnunar: Tvöfalt fleiri horfa á fréttir í ríkis- sjónvarpi en Stöð 2 í KÖNNUN Félagsvísindastofnunar um hlustun á dagskrárliði út- varps og notkun sjónvarps kemur fram að rúmlega tvöfalt fleiri horfa á fréttir ríkissjónvarpsins en Stöðvar 2. Þá er miðað við þá áhorfendur sem ná báðum stöðvunum. Fleiri hlusta á Bylgjuna en rás 1 og rás 2 samanlagt að fréttum á rás 1 undanskildum. Notkun sjónvarps var mæld frá þar sem allar þijár útvarpsstöðv- og með mánudeginum 1. desember til laugardagsins 6. desember. Spurt var um hvern dagskrárlið, en ekki var spurt um læstu dag- skrána á Stöð 2. Fyrsta daginn, 1. desember, horfðu 61% allra þeirra sem spurðir voru á fréttir ríkissjón- varpsins, en 12% horfðu á fréttir Stöðvar 2. Ef aðeins eru teknir þeir sem ná báðum stöðvum horfðu 55% á ríkissjónvarpsfréttir, en 18% á fréttir Stöðvar 2. Þess ber að geta að 1. desember var fréttatími ríkissjónvarpsins færður aftur til kl. 20 og Stöð 2 færði sig til kl. 19.30, en þessar breytingar voru umdeildar. Á báðum sjónvarps- stöðvum eru fréttir vinsælasta efnið. Fréttir eru einnig vinsælasta efn- ið hjá ríkisútvarpinu. Á því svæði amar nást, rás 1, rás 2 og Bylgjan, eru allt frá 35-43% hlustenda sem hlusta á fréttir ríkisútvarpsins. Bylgjan eða rás 2 ná aldrei jafn miklum fjölda hlustenda að einum og sama dagskrárliðnum þessa tvo daga sem könnunin náði til, föstu- daginn 5. desember og laugardag- inn 6. desember. Það er þó áberandi að um miðjan daginn em fleiri sem hlusta á Bylgjuna en á hinar tvær stöðvamar samanlagt. Rás 2 hefur mest 6% hlustenda, en Bylgjan fer hæst í 26%. Þá er miðað við það svæði þar sem báðar stöðvar nást. Könnun þessi var gerð fyrir Ríkisútvarpið, Samband íslenskra auglýsingastofa, íslenska sjón- varpsfélagið og íslenska útvarps- félagið. Frá fundinum í Gamla bíói Ályktun fundar heilbrigðisstétta: Sala spítalans aðf ör að heilbrigðiskerfinu Þrjú íslensk listaverk seldust á um 800 þús. kr. Kaupmannahöfn ÞRJÚ íslensk málverk voru á uppboði hjá Bruun Rasmussen í Kaup- mannahöfn á þriðjudag. Þar er nú haldið mikið uppboð á málverkum, grafíkteikningum, bókum og húsgögnum og stendur það í fjóra daga. Ekki eru þar fleiri íslenskir munir en þessi þijú málverk. Mynd Kristínar Jónsdóttur af Goðafossi með eiginhandaráritun listakonunnar var metin á 8-12 þúsund danskar krónur í sýningar- skrá, en var slegin kaupanda á 11 þúsund danskar krónur, eða tæpar 60 þúsund íslenskar. Myndin er 40x52 cm. að stærð. Litmynd af Þingvallamálverki Kjarvals, Ar- mannsfell, sem er sterkfjólublátt í forgrunni, prýðir sýningarskrá upp- boðshaldarans að þessu sinni. Listaverkið sem er 56x145 cm. var selt á 80 þúsund danskar krónur eða um 430 þúsund íslenskar krón- ur, en var metið á 80-90 þúsund danskar. Þá er að geta uppstillingar eftir Jón Stefánsson, sem sýnir epli og könnu á borði. Einnig er litmynd af því verki í skránni. Matsverð var 50-70 þúsund danskar krónur, en listaverkið var slegið á 55 þúsund á þriðjudag, sem eru tæpar 300 þúsund íslenskar krónur. G.L.Ásg. LÆKNAR, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og fleiri héldu í gær- dag fund til að mótmæla sölu Borgarspítalans. Fundurinn var haldinn í húsakynnum íslensku óperunnar í Ingólfsstræti, og mættu þingmennirnir Guðrún Helgadóttir og Stefán Benedikts- son m.a. á fundinn. Boðað var til fundarins með þriggja tíma fyrirvara, þar sem frést hafði að ákvörðun um sölu spítalans yrði hugsanlega tekin í gærkvöldi. Guðrún Helgadóttir, Stefán Benediktsson og Magni Jónsson formaður Læknafélags Reykjavíkur voru á mælendaskrá, og lýstu öll yfír andstöðu sinni við sölu spítalans, og hvemig hug- myndir um söluna hefðu verið fram settar. Guðrún Helgadóttir sagði m.a. að Borgarspítalinn væri ekki verr rekinn en aðrir spítalar sem eru á daggjöldum, og sagði að því þyrfti að fínna ástæður fyrir söl- unni annars staðar en í bókhaldinu. Stefán Benediktsson sagðist halda að ástæður fyrir sölu spítalans væru þær að meirihluti borgar- stjómar teldi sig ekki ráða nægilega miklu um gang mála þar, fagleg sjónarmið réðu of miklu þar sem starfsfólk ætti sæti í stjóm spítal- ans, og því vildi borgarstjóri losa sig við spítalann. Að loknum fram- söguerindum tóku nokkrir starfs- menn til máls og mótmæltu sölu spítalans. Á fundinum komu fram hugmyndir um að hefja undir- skriftasöfnun gegn sölu spítalans, en ákvörðun var þó ekki tekin þar að Jútandi. í lok fundarins var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða: „Al- mennur borgarafundur haldinn í íslensku ópemnni 10. desember 1986 ályktar eftirfarandi: Fundur- inn mótmælir harðlega þeirri aðför að íslensku heilbrigðisþjónustunni sem felst í tilraunum til þess að selja Borgarspítalann og steypa honum saman við Ríkisspítalana og mynda þannig eitt stórt miðstýrt heilbrigðisbákn sem ekki mun ná því markmiði að auka hagræðingu í rekstri né bæta þjónustu við sjúkl- inga. Fundurinn skorar á heilbrigð- isyfirvöld að tryggja sjálfstæði Borgarspítalans í framtíðinni, til að tryggja borgarbúum og landsmönn- um öðrum áframhaldandi góða heilbrigðisþjónustu, sem fyrr.“ SALA BORG ARSPIT AL AN S: Læknafélag íslands og Læknafélag Reykjavíkur: Mótmæla sölu Borgarspítalans STJÓRN Læknafélags íslands og hafa sent frá sér ályktanir þar stjórn Læknafélags Reykjavíkur sem hugmyndum um sölu Borg- arspítalans er harðlega mótmælt. Um hvað snýst deilan? í UMRÆÐUNUM um sölu Borgarspítalans hafa komið fram mörg ólík sjónarmið. Hér á eftir er reynt að gera grein fyr- ir hinum helstu, sem fram hafa kornið opinberlega. Upphaf málsins er sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar, að setja Borgarspít- alann (og mörg önnur sjúkrahús sveitarfélaga) á föst fjárlög frá og með næstu áramótum. Þetta þýðir, að sjúkrahúsin fá ákveðna upphæð til rekstursins á ári hveiju og dugi hún ekki verður að sækja um aukafjárveitingu. Núverandi dag- gjaldakerfi felur í sér, að greiðslur eru miðaðar við fjölda legudaga sjúklinga samkvæmt upplýsingum viðkomandi sjúkrahúsa. Það kerfi þykir ekki stuðla að nægilegri hag- kvæmni og ráðdeild í rekstri. HEILBRIGÐISRAÐHERRA ■ Til að bæta rekstur sjúkrahúsa sveitarfé- laganna er skynsamlegt, að ríkið úthluti þeim ákveðna upphæð á ári hveiju og hætti að greiða rekstrarfé eftir fjölda legudaga sjúklinga. Eftir sem áður geta sveitarfélög séð um reksturinn. ■ í Reykjavík eru aðstæður allt aðrar en úti á iandi og frá hagkvæmnis- og stjórnun- arsjónrmiði kann að vera rétt að allir spítalar höfuðborgarinnar séu í eigu ríkis- ins. Á það er að líta, að Borgarspítalinn er í reynd - öndvert við aðra spítala sveitarfé- laga - landsspítali. Sjúklingar hvaðanæva að landinu sækja þangað og þar er slysa- deild fyrir alla landsmenn. ■ Stefnt er að breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga á sviði heilbrigðismála í framtíðinni. Ríkið sjái um umönnun sjúkra, en sveitarfélög um heilsuvernd (forvarnir). Kaupin á Borgarspítalanum eru í samræmi við þessa stefnu. BORGARSTJÓRI ■ Reynslan sýnir, að upphæð á föstum fjár- lögum dugir ekki og nauðsynlegt verður að sækja um aukafjárveitingar, sem vænt- anlega geta numið tugum eða hundruðum milljóna. Meðan Reykjavíkurborg rekur spítalann verður hún að útvega þetta fjár- magn þar til aukafjárveiting kemur. Það hefur í för með sér útgjöld, sem erfitt get- ur verið að standa undir, og þótt um endurgreiðslur verði að ræða frá ríkinu, er hér um að ræða umtalsverðan kostnaðar- auka, sem getur valdið miklum rekstrarerf- iðleikum á öðrum sviðum. ■ Rekstur Borgarsjúkrahússins er naum- ast í höndum borgaryfirvalda, þar sem í fimm manna stjórn spítalans sitja tveir full- trúar starfsmanna, einn fulltrúi minnihlut- ans í borgarstjórn og tveir fulltrúar meirihlutans. Starfsmenn og stjórnarand- staðan í Reykjavík geta þvi átt lokaorðið um rekstur spítalans, en ekki fulltrúar meirihluta kjósenda í borginni. ■ Borgarspítalinn er nú þegar svo háður ríkinu um fjármagn og stöður að stjórn borgarinnar á þessum mikilvægu þáttum er í reynd nafnið tómt. Eðlilegt er, að sami aðili beri ábyrgð á rekstri spítalans og stendur undir kostnaði af rekstri hans. GAGIMRYNENDUR ■ Við undirbúning málsins hefur ekki ver- ið haft samráð við starfsfólk Borgarspítal- ans. ■ Miðstýring heilbrigðiskerfisins er slæm og mun ekki leiða til hagkvæmni eða skyn- samlegstu ákvarðana, hvað almennan rekstur og skipulag þjónustu varðar. ■ Uppbygging og þróun á Borgarspítalan- um undanfarin ár gæti stöðvast. ■ Það er ekki rétt - og ekki í samræmi við yfirlýsta stefnu Sjálfstæðisflokksins - að auka umsvif ríkisins, heldur dreifa valdi og ábyrgð. Yfirtaka ríkisins brýtur gegn stefnu flokksins. ■ Óvissa ríkir um, hvort allir starfsmenn Borgarspítalans halda núverandi störfum sínum og áhrifum, hvað varðar rekstur, vinnulag og meðferð sjúklinga. ■ Óvissa ríkir um, hvernig verkaskipting •verður milli spítalanna í Reykjavík eftir söluna. ■ Ef salan er óhjákvæmileg er rétt að Borgarspítalinn verði rekinn sem sjálfstæð stofnun eða sem sjálfseignarstofnun. ■ Ef salan er óíijákvæmileg er rétt að starfsmenn fái að kaupa Borgarspítalann. í ályktun stjórnar Læknafélags Islands segir m.a: „Á liðnum árum hafa sjúkrahús landsins barist í bökkum fjárhagslega og búið við umtalsverðan rekstrarvanda. Aug- ljóst er, að fjárlagafrumvarpið, ef samþykkt verður, eykur þann vanda á næsta ári og leiðir óhjákvæmilega til niðurskurðar á starfsemi sjúkra- húsanna og þá væntanlega einnig til lakari þjónustu. Mótleikur ríkis- valdsins, fólginn í aukinni miðstýr- ingu sjúkrahúsanna, er blekking, sem breytir engu. Stjórn Læknafé- lags íslands átelur einnig þann leikaraskap að gera Borgarspítal- ann að söluvöru, svo og það sjónar- spil að láta að því liggja, að sú lausn ein leysi aðsteðjandi rekstrarvanda. Stjóm Læknafélags íslands er þess fullviss, að landsmenn óska ekki eftir niðurskurði í heilbrigðisþjón- ustunni og er þar með talin þjónusta sjúkrahúsanna." í ályktun stjómar Læknafélags Reykjavíkur er lýst yfir andstöðu við fyrirhugaða sölu á Borgarspítal- anum og mótmælt að meiriháttar stefnumarkandi ráðstafanir séu gerðar án þess að leitað sé álits lækna og annarra starfsmanna spítalans. í ályktuninni segir enn- fremur að ekki hafi verið sýnt fram á að þessi ráðstöfun leiði til aukinn- ar þjónustu við borgarbúa og aðra landsmenn eða leiði til spamaðar í rekstri spítalans. Þar að auki sé sala spítalans skref í átt til aukinn- ar miðstýringar, á sama tíma og aðrar þjóðir em að stefna að vald- dreifingu í spítalarekstri. Að auki sé hætt við að sameining Borg- arspítala og Landspítala dragi úr faglegu aðhaldi og heilbrigðum metnaði milli stofnananna. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir TORFA H. TUUNIUS Chirac neyðist til að láta undan stúdentum Ástandið í Frakklandi gerbreyttist á laugardag, eftir að fréttist að um nóttina hefði tuttugu og tveggja ára gamall franskur náms- maður látist, eftir að hafa verið barinn til óbóta af óeirðalögTegl- unni. Mitterrand forseti og Chirac forsætisráðherra sátu báðir leiðtogafund Evrópubandalagsins í London þegar þetta gerðist og ákváðu báðir að stytta Lundúnadvöl sína því nú voru stúdenta- mótmæli síðustu vikna búin að öðlast allt aðra vídd. Stúdentar efndu til mótmæla- göngu þennan sama laugardag til að minnast hins látna og mót- mæla lögregluofbeldinu. Um kvöldið, eftir að flestir námsmenn vom famir heim, bmtust út götu- bardagar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir stúdentasamtakanna til að skakka leikinn. Svo virðist sem alls kyns hópar hafi viljað notfæra sér aðstæðurnar sem hafa skapast und- anfama daga til að ná fram markmiðum sem em alls óskyld markmiðum stúdenta. Hér er um að ræða öfgahóp af vinstri væng sem vill skapa byltingarástand en einnig, og ef til vill í enn meira mæli, hægri öfgahópa sem ráðast á lögregluna til þess að hún neyðist til að ráðast á stúdentana. Eins geta þessir ofbeldismenn hreinlega verið smáglæpamenn sem em að nota tækifærið til að beijast við lögregluna. Öllum ber saman um að yfír- gnæfandi meirihluti af námsmönn- um sé á móti öllu ofbeldi, enda hafa allar göngur þeirra verið frið- samlegar þangað til á fimmtudag- inn 4. desember þegar stærsta mótmælaganga þeirra leystist upp í götubardaga. Þar vom einnig á ferðinni menn sem vildu hleypa upp göngunni en lögreglan brást einnig harkalega við, t.d. með því að skjóta táragassprengjum lárétt yfir höfuð- in á námsmönnum í staðinn fyrir að skjóta þeim í boga. Þessi aðferð er bönnuð með lögum því sprengj- umar geta valdið talsverðu líkam- legu tjóni ef þeim er skotið svona. Hagsmunasamtök lögregluþjóna hafa fordæmt þessa hegðun og vilja láta rannsaka hver hafí gefíð þessa fyrirskipun. Eftir bardagana á fímmtudag vom tveir námsmenn illa slasaðir, en mikill fjöldi af lög- reglumönnum og námsmönnum hafði hlotið minniháttar meiðsli. Sein viðbrögfð Hvemig gat ástandið þróast í þennan farveg? Hvemig var hægt að koma í veg fyrir að það versn- aði enn meir? Þessar spumingar vom efstar á baugi alla helgina. Margir vom famir að ásaka stjóm Jacques Chirac um sein viðbrögð og klaufaskap í meðfömm sínum á stúdentamótmælunum. Nú varð að bregðast rétt við, sérstaklega eftir að miðstjóm námsmannahreyfíng- arinnar gaf frá sér yfirlýsingu þar sem hún bað öll launþegasamtök að taka þátt í almennri vinnustöðv- un á mánudagsmorgun milli klukkan ellefu og tólf en boða alls- heijarverkfall á miðvikudag. Ástandið var farið að líkjast æ meir því sem skapaðist í maímán- uði 1968, þegar stúdentamótmælin breiddust út til allra hópa þjóðfé- lagsins. Sem betur fer fyrir Chirac, vom flest samtökin treg til að fara út í svo miklar aðgerðir. Flest sam- þykktu þau að vera með í vinnu- stöðvuninni á mánudag en aðeins CGT, verkalýðssamtök sem em nátengd Kommúnistaflokknum, sögðust strax ætla að taka þátt í verkfallinu. Edmond Maire, leiðtogi CFDT, verkalýðssamtaka sem em tengd sósíalistum, sagðist vera hik- andi og fór á fund Chiracs til að sannfæra hann um nauðsyn þess að draga hið umdeilda lagafmm- varp til baka til að fyrirbyggja að stjómleysi skapaðist í frönsku þjóðlífi. Hann var víst ekki sá eini því sumir ráðherrar Chirac vom famir að taka í sama streng, m.a. Balladur, næst valdamesti ráðherr- ann og svo talsverður fjöldi af ráðhermm og þingmönnum úr sam- starfsflokkum Chiracs. Franski frankinn var farinn að falla í verði á alþjóðamörkuðum og talsvert hægði á viðskiptum í kauphöllinni. Að bjarga ríkisstjórn Málið var því hætt að snúast um undanlátssemi eða ekki við ung- mennahreyfingu, heldur. um pólitískan frið í landinu og jafnvel stjórnarsamstarfið. Því átti Chirac ekki annan kost en að ganga að kröfum stúdenta. Chirac hlýtur að hafa komist að þessari niðurstöðu strax á laugardag. Áður en hann gat gert hana opinbera varð hann að reyna að fá sína eigin menn til að samþykkja ósigurinn. Stór hluti af kjósendum Chiracs er fólk sem er illa við uppþot, vill hafa allt í röð og reglu í samfélag- inu og sterka lögreglu. Þessu fólki er illa við að ríkisstjóm láti að kröf- um götunnar. Innanríkisráðherra Chiracs, Charles Pasque, er mál- svari þessa hóps og hefur verið haldið fram af sumum að Pasqua hefði ekkert haft á móti því að það yrðu enn fleiri götubardagar til að hrella kjósendur til að kjósa sig eins og gerðist í júní 1968, þegar hægri fokkamir fengu mesta sigur seinni ára því kjósendur vom enn ekki búnir að jafna sig á upplausnar- ástandinu sem skapaðist í maí. Þannig skýra hinir sömu einkenni- lega hegðun lögreglunnar á laugar- dagskvöldið, þegar hún leyfði óaldarlýðnum að vaða uppi í Latínu- hverfínu án þess að lyfta litla fíngri :til klukkan þijú um nóttina, þegar búið var að bijóta og bramla og fara ránshendi um verslanir hverfís- ins. Samkvæmt þessu hefur lög- reglan viljað snúa almenningsálit- inu gegn stúdentum með því að sýna hve sumir þeirra væm tilbúnir að ganga langt. Lögregluyfírvöld segja, til að réttlæta aðgerðarleysi sitt þessa nótt, að þau hafí ekki getað tekið á þeim sem vom með skemmdarstarfsemi af ótta við að ráðast óvart á saklausa vegfarend- ur. Því var ákveðið að bíða þar til seint um nóttina, þegar allir „sak- lausir vegfarendur" áttu að vera famir að sofa. Enn og ávallt „sambúð“ Hvað svo sem hægt er að vita um áætlanir innanríkisráðherrans, þá ákvað Chirac að láta loksins undan kröfum stúdenta. Með því tekur hann þá áhættu að missa þá kjósendur sem áður var minnst á. Þeir gætu freistast til að fylgja hægri öfgaflokknum Front National, enda var sá flokkur sá eini sem ekki lýsti yfír ánægju með ákvörðun forsætisráðherrans, en fordæmdi hana þvert á móti. „Sambúð" Mitterrands og Chiracs við stjóm landsins hefur áreiðanlega átt sinn þátt í ákvörðun hins síðamefnda. Mitterrand var farinn að gefa æ betur í skyn hvað hann væri mótfallinn því, hvemig aðstæður hefðu þióast. Þó hann megi ekki skipta sér af innanríkis- málum, stjómarskránni samkvæmt, hefði hann getað gripið til ýmissa ráða, svo sem leysa upp þingið og jafnvel efna til nýrra kosninga. Hefði ástandið versnað og Chirac haldið áfram að sýna, að hann réði ekki við það hefði vel getað farið svo, því þá hefðu stjómarflokkamir eflaust misst fylgi. Hins vegar hefði slík ráðagerð getað snúist gegn Mitterrand sjálfum, því að almenn- ingur virðist hafa verið óhress með að leyfa sakleysislegum stúdenta- mótmælum að þróast í stjómar- kreppu. Allir fegnir að þetta er búið Eins og áður kom fram önduðu allir rólega eftir að Chirac tilkynnti ákvörðun sína. Á annan tug þús- unda stúdenta safnaðist saman við Lúxembúrgargarðinn til að minnast í þögn hins látna félaga þeirra. Málsvarar þeirra töluðu um beiskan sigur. Verkalýðssamtökin, nema CGT, hættu við þátttöku í mótmæl- unum á miðvikudag. Stúdentar ætla að halda þeirri göngu til streitu til að knýja á um að full rannsókn fari fram á dauðsfalli Malik Oussek- ine. Stjómin vonast til að ró færist aftur yfir þjóðlífíð, en lofar þvf að hún muni ráðfæra sig við alla aðila áður en hún leggur aftur út í að breyta lögum um háskóla. AP/Símamynd Námsmaður situr á hné styttu af franska vísindamanninum Lou- is Pasteur og fylgist með aðgerðum samstúdenta sinna í porti Sorbonne-háskóla í París.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.