Morgunblaðið - 11.12.1986, Síða 51

Morgunblaðið - 11.12.1986, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986 51 Ferðamálaráð í fjárþröng: Starfsemi ráðsins stöðvast í apríl - fáist ekki lögbundið fjárframlag úr ríkissjóði FERÐAMÁLARÁÐ hefur sent öllum þingönnum áskorun um að beita sér fyrir því að við af- greiðslu fjárlaga verði staðið við lögbundið fjárframlag til Ferða- málaráðs því annars sé fyrirsjá- anlegt að starfsemi ráðsins stöðvist í apríl á næsta ári. Ferðamálaráði var með lögum árið 1976 markaður tekjustofn sem nam 10% af söluverðmæti Fríhafn- arinnar á Keflavíkurflugvelli og um leið var verð á áfengi og tóbaki í Fríhöfninni hækkað um 10% svo ríkissjóður þyrfti ekki að bera skarðan hlut frá borði. „Þessar lögbundnu tekjur hafa síðan aldrei skilað sér nema að hluta til,“ sagði Birgir Þorgilsson ferða- málastjóri í samtali við Morgun- blaðið. „Á næsta ári er velta Fríhafnarinnar samkvæmt fjárlög- um áætluð 500 miljónir og þá ætti okkar hlutur að vera 50 miljónir en Ferðamálaráði eru ætlaðar 15 miljónir á fjárlögum 1987 sem er sama upphæð og á þessu ári,“ sagði Birgir. Birgir sagði að Ferðamálaráð hefði stofnað til skuldbindinga fram í tímann, svo sem þáttöku í sex ferðasýningum sem allar fara fram fyrri hluta ársins, og einnig hefði verið gefinn út nýr litprentaður upplýsingabæklingur um ísland á ijórum tungumálum til að fylgja eftir þeirri landkynningu sem leið- togaftindurinn var. Miðað við óbreytt framlag ríkissjóðs til Ferða- málaráðs væri fyrirsjánlegt að rekstrarfé þryti í apríl eða maí mið- að við að staðið sé við ýmsar skuldbindingar út árið, m.a. vegna skrifstofuhalds. „Þetta er dapurlegt, ekki síst í ljósi þeirrar miklu athygli sem ís- land hefur fengið vegna leiðtoga- fundarins, ef menn vilja á annað borð fá hingað ferðamenn," sagði Birgir Þorgilsson. Mattías Bjamason samgöngu- ráðherra sagðist í samtali við Morgunblaðið telja að allt of langt væri gengið í niðurskurði fjár til Ferðamálaráðs, en hann gæti ekki ábyrgst að ráðið fengi leiðréttingu mála sinna: „Þó ég sitji í ríkisstjórn og sjái um ákveðinn málaflokk á ég undir högg að sækja og það fær enginn einn maður, einn ráðherra eða ein stofnun allt sem beðið er um. Skórinn kreppir víða að og auðvitað verður maður oft að sam- þykkja ýmislegt sem maður er ekki ánægður með,“ sagði Mattías Bjamason. Ráðstefna um „línulega bestun“ Aðgerðarannsóknafélag ís- lands heldur ráðstefnu um notkun „línulegrar bestunar" fimmtudaginn 11. desember í stofu 157 í VR-2, Hjarðarhaga 4. Dagskrá hefst kl. 16.15 með því að Þorkell Helgason heldur hrað- námskeið í „línulegri bestun“ og eftir kaffihlé verður fjallað um hvernig nýta megi þessa gerð líkana í íslensku atvinnulífi. Einnig verður skoðaður ýmis hugbúnaður til að leysa „línuleg bestunan" vandamál. í fréttatilkynningu segir að dag- skrá þessi sé m.a. sniðin fyrir fólk í fyrirtækjum sem vilji fá skjóta innsýn í hvort og þá hvemig nýta megi aðgerðagreiningu sem hjálp við ákvarðanatöku og stjómun. C5EFIÐ VAMDAÐA OQ V/ARANLEQA JÓLAQJÖF 5UPER DUnn 10 fylling vatnsvarinn dunn þyngd 1250 10 1400 verð 4590 10 5700 KAUPFELOGIM I LAMDIMU MEW 5PORT —15° fylling: liOLLOW-FIBER þyngd: 1950 g verð: 3600,— REUKA -20° fylling: 5UPERLOFT þyngd: 2400 g verð: 4425,— UÓSMYNDIR: STÚI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.