Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 54

Morgunblaðið - 11.12.1986, Page 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986 Endurprentun a Emil og NÝ endurprentun er komin út af bókinni Emil og Skundi hjá bókaforlaginu Vöku-Helgaf elli. Þetta er fyrsta verðlaunabók nýstofnaðs Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka og hlaut höfundur hennar, Guðmundur Ólafsson, verðlaunin síðastliðið vor. Þetta er hans fyrsta bók. í forlagskynningu segir m.a. að bókin fjalli um ungan Reykjavíkur- dreng sem heitir Emil og hundinn hans Skunda. Þá segir um álit dóm- -m. nefndan „Sagan er vel samin og skemmtileg. Persónusköpun er góð, söguhetjan trúverðug og bregst við vandamálum á rökréttan hátt. Söguþráður er spennandi og um- hverfí allt rótfast í íslenskum Skundi veruleika." Verðlaunasjóður íslenskra bama- bóka var stofnaður árið 1985 af bókaútgáfunni Vöku-Helgafelli og fjölskyldu rithöfundarins góðkunna Armanns Kr. Einarssonar. Guð- mundur Ólafsson hlaut fyrstu verðlaun sjóðsins en nú stendur yfír önnur samkeppni sjóðsins og er frestur til áramóta að skila inn handritum. Megintilgangurinn er að stuðla að auknu framboði úrvals lesefnis handa æsku landsins. Fyrsta verðlaunabókin er gefín út í kiljuformi til þess að hægt sé að halda útsöluverði niðri og er ætlunin að svo verði um næstu verð- launabækur, segir í frétt Vöku- Helgafells. Bókin Emil og Skundi er að öllu leyti unnin hjá Prentstofu Guð- mundar Benediktssonar í Kópavogi. Ung'lmgasaga eftir Rúnar Armann Arthursson ÚT ER komin hjá bókaforlaginu Svart á hvitu unglingasagan Al- gjörir byrjendur eftir Rúnar Armann Arthursson og er það fyrsta skáldsaga hans. í fréttatilkynningu frá útgefanda segir m.a.: „Þetta er samtímasaga sem gerist í Reykjavík og segir frá unglingsstráknum Grímsa, kunn- ingjum hans, flölskyldu, vinnu- og skólafélögum. Enda þótt Grímsi sé ekki aldinn að árum, hefur margt á daga hans drifíð og veturinn sem sagan gerist er allt á fleygiferð í lífí hans. Heima hjá honum steðja að erfíðleikar sem hann reynir að takast á við með dyggri aðstoð Palla vinar síns; í skólanum draga smávægilegar glettur þeirra félaga dijúgan dilk á eftir sér og ofan á allt annað kynnist Grímsi nú ást- inni þegar stutt ökuferð um Reykjavík endar með balli og næt- Rúnar Armann Arthursson. urdvöl í Mosfellssveit. Algjörir byijendur er nærfærin saga um umbrot í lífí unglings- drengs." Fyrsti aðalfundur Ágætis og SÍM: Gengið form- lega frá stofn- unsamtakanna Hafin útgáfa á Ágætisfréttum FYRSTI aðalfundur Sölusamtaka íslenskra matjurtaframleiðenda (SIM), sem reka matjurtadreifinguna Ágæti, var haldinn fyrir skömmu. Á fundinum var formlega gengið frá samþykktum fyrir samtökin og kosin niu manna aðalstjórn og jafn margir varamenn. Áður starfaði bráðabirgðastjórn. Gestur Einarsson framkvæmda- stjóri Ágætis sagði að fundurinn hefði verið jákvæður og fram hefði komið ákveðinn vilja bænda til að standa saman að hagsmunamálum sínum, en hópurinn hefði tvístrast nokkuð eftir að öll dreifíng var gefin frjáls. Frelsið hefði aftur á móti orðið til góðs á margan hátt. Á árinu keypti SÍM húseignina að Síðumúla 34 af ríkinu og lauk þar með löngu deilumáli um hver væri réttmætur eigandi að þessum eignum. Meðal nýmæla í starfsem- inni að undanfomu má nefna útgáfu fréttabréfs, sem nefnt er .Ágætisfréttir, og er það helgað matjurtaframleiðslu og þáttum sem henni tengjast. í fyrsta fréttabréfínu er greint frá vöruþróun hjá Ágæti og ýmsum nýjungum sem fyrirtækið hefur sett á markað, meðal annars há- degisréttum, kartöflumús, þurrk- uðu grænmeti og fleiru. Viðtal er við Ólaf Stefán Sveinsson Qármála- stjóra um verðlagsmál og nokkrir starfsmenn kynntir. Viðtal er við Pálma Karlsson í Svepparæktinni í Reykjavík og fleiri framleiðendur. Þá er viðtal við Sigurgeir Ólafsson plöntusjúkdómafræðing hjá RALA og sagðar fréttir af starfsemi Agætis meðal annars um húsakaup og þátttöku í hlutafélaginu Kjör- landi í Eyjafírði. Á aðalfimdinum voru eftirtaldir bændur kosnir í aðalstjóm SÍM: Aðalsteinn Hallgrímsson í Björk í Eyjafírði, Páll Guðbrandsson í Há- Stöðug vöruþróun í gangi Forsiða fyrsta fréttabréfs Agæt- is. varðarkoti í Þykkvabæ, Tryggvi Skjaldarson í Norður-Nýjabæ í Þykkvabæ, Hrafnkell Karlsson á Hrauni í Ölfusi, Jóhannes Helgason í Hvammi í Hrunamannahreppi, Magnús Sigurðsson í Birtingaholti í Hrunamannahreppi, Þórhallur Bjamason á Laugalandi í Borgar- fírði, Kristján Gestsson í Forsæti í Villingaholtshreppi og Skarphéðinn Larsen á Lindarbakka í Homafirði. Stjómin kaus sér framkvæmda- stjóm sem skipti þannig með sér verkum: Magnús Sigurðsson for- maður, Páll Guðbrandsson vara- formaður og Jóhannes Helgason ritari. Já, Skátabúðin byrjar skíðavertíðina á glæsilegan hátt. Mikill afslátturá glerfínum skíðavörum. Skíði, bindingar, skór og buxur. Allt toppvörur á toppverði. Ekki missa af þessu stórkostlega tækifæri. Ai SKATAEÚÐIN Snorrabraut 60 sími 12045 BORNIN VEUA ploymobll Iðnaðarhúsinu Hallveigarstíg 1 Sími 26010

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.