Morgunblaðið - 31.01.1987, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
25.tbl. 75. árg.
LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Greiðslur til skæruliða í Nicaragua:
Áttu Israelar
hugmyndina?
Washington. AP, Reuter.
EMBÆTTISMENN og kaup-
sýslumenn, sem lögðu á ráðin
um. að gxeiðslumar fyrir vopnin
til írans færu til skæruliða i Nic-
aragua, töldu sér trú um, að þeir
hefðu fundið til þess löglega leið.
Kemur þetta fram f skýrslu frá
leyniþjónustunefnd öldunga-
deildarinnar en þar segir einnig,
að ekkert bendi enn til, að Reag-
an forseti hafi vitað um þessar
fjárgreiðslur og að hlutur lsraela
í málinu sé meiri en áður var
talið.
1 skýrslunni segir, að hugmyndin
um að láta andvirði vopnanna, sem
írönum voru seld, renna til skæru-
liða í Nicaragua hafi fyrst komið
upp á fundi Olivers North, fyrrum
starfsmanns öryggisráðsins, og
Amiram Nir, ráðgjafa Shimonar
Peres, þáverandi forsætisráðherra
í ísrael. Skýrði North Edwin Meese,
dómsmálaráðherra, svo frá, að Nir
hefði lagt hana til. Kemur fram,
að á þessum tíma hafí ísraelar
líklega haft undir höndum greiðslur
fyrir vopn, sem seld voru Irönum í
nóvember 1985.
Richard Secord, fyrrum hers-
höfðingi í flughemum, og viðskipta-
félagi hans, Albert Hakim, sáu um
flárgreiðslumar til skæruliða auk
Norths en lögfræðingur þeirra taldi
þeim trú um, að þeir væru ekki að
bijót nein lög að því er fram kemur
í skýrslunni. Þá segir þar einnig,
að enn bendi ekkert til, að Reagan
forseti hafí vitað um þessa hlið á
vopnasölunni til írana.
Sjá „Áttu ísraelar megin-
þátt...“ á bls. 24.
Lögregluselur
Selurinn Stanley færir kafara
skrúflykil í köfunarstöð lög-
reglunnar í New York. í
stöðinni er verið að þjálfa
seli svo þeir geti aðstoðað lög-
regluna við ýms störf neðan-
sjávar, s.s. leitarstörf.
Terry Waite
ígíslingu?
Beirut. Reuter.
TERRY Waite, sendimaður
ensku biskupakirkjunnar, sem
ekkert hefur frést af í tvær vik-
ur, er i haldi mannræningja í
Líbanon. Eru þessar fréttir hafð-
ar eftir háttsettum manni í einni
hreyfingu múhameðstrúar-
maiuia í landinu.
„Ég hef áreiðanlegar upplýsingar
um, að Waite muni ekki snúa aft-
ur. Hann er nú kominn í hóp
annarra gísla í landinu," sagði mað-
urinn, sem ekki vildi láta nafns síns
getið. „Hann var gripinn strax og
hann skildi drúsísku lífverðina eftir.
Eftir því biðu mannræningjamir.“
Salah Khalaf, háttsettur maður
í PLO, sagði í gær, að fyrir tveimur
mánuðum hefðu tvær milljónir doll-
ara verið greiddar í lausnargjald
fyrir Bandaríkjamanninn David
Jacobsen. Hefði Terry Waite afhent
féð, sem komið hefði frá banda-
rískum fyrirtækjum.
Hryðjuverká Spáni
AP.
Tveir menn létust og 36 slösuðust í mikilli bUsprengingu, sem varð í gærmorgun í borginni Zaragoza
á Spáni. Var sprengjan sprengd með fjarstýribúnaði þegar strætisvagn frá hernum átti leið hjá og
var hún svo öflug, að 13 aðrar bifreiðar ónýttust og miklar skemmdir urðu á nálægum húsum.
Þeir, sem létust, voru foringi í hernum og óbreyttur borgari, ökumaður strætisvagnsins. Bask-
neskir hryðjuverkamenn eru grunaðir um verknaðinn.
Bandaríkin:
Er gengisfallið far-
ið að bera árangur?
Viðskiptahallinn verulega minni í desember
Washington, London. AP, Reuter.
HALLINN á viðskiptum Banda-
rikjamanna við útlönd var 169,8
Bandaríkin:
Verður alnæmisfaraldurinn
verri en plágur fyrri alda?
Washington, AP.
ALNÆMIÐ getur orðið að svo
alvarlegri farsótt, að plágur
fyrri alda, svo sem svarta-
dauði, kúabóla og taugaveiki,
komist þar í engan samjöfnuð
við. Kom þetta fram i ræðu,
sem Otis R. Bowen, heilbrigðis-
málaráðherra Bandarikjanna,
flutti á fimmtudag hjá banda-
riska blaðamannafélaginu.
„Ef okkur tekst ekki að smíða
þau vopn, sem duga gegn þessum
vágesti, má búast við, að innan
áratugar hafí hann lagt að velli
tugi milljóna manna,“ sagði Bow-
en og bætti því við, að plágumar
á fyrri öldum gætu bliknað í sam-
anburði við alnæmið. Bowen
kvaðst þó vongóður um, að bólu-
efni ætti eftir að fínnast gegn
sjúkdóminum, en einnig vera jafn
viss um, að það myndi ekki ger-
ast nógu tímanlega til að afstýra
farsótt, sem yrði alvarlegri en
fólk gæti enn skilið.
Bowen benti á, að ekki væri til
nein lækning við sjúkdóminum,
sem vitað væri um, og að 50 -
100 millj. manna um allan heim
kynnu að smitast á næstu tveimur
áratugum. í Bandaríkjunum ein-
um saman væri búist við, að
270.000 manns að minnsta kosti
ættu eftir að veikjast á næstu
fímm árum.
í máli Bowens kom fram, að
ekki væri vitað hve lengi alnæmis-
veiran gæti búið í blóði manna
án þess að einkenna yrði vart.
Þó hefði komið fram við rann-
sóknir, að þessi tími gæti verið
allt að 10 ár. „Við skulum því
hafa það í huga, að þegar fólk
hefur kynmök, er það ekki aðeins
að hafa mök við félaga sinn þá
stundina, heldur kannski alla
rekkjunauta hans í 10 ár,“ sagði
Bowen.
milljarðar dollara á síðasta ári
og hefur aldrei verið svo mikill,
rúmum 20 milþ’örðum dollara
meiri en 1985. í desember minnk-
aði hann hins vegar verulega, var
10,5 milljarðar dollara á móti
15,4 í nóvember. Hefur það kynt
undir vonum manna um að geng-
isfall dollarans sé loksins farið
að bera tilætlaðan árangur.
Gengi dollarans hækkaði all-
nokkuð í gær vegna fréttanna um
minni viðskiptahalla í desember og
einnig vegna þess, að vestur-þýski
seðlabankinn gerði í gær ráðstafnir
til að almennir vextir lækkuðu úr
3,6% í 3%. Um miðjan dag í gær
fengust 1,83 mörk fyrir dollarann
en 1,78 á fimmtudag.
Viðskiptahallinn f nóvember
hafði fyrst verið áætlaður 19,2
milljarðar dollara en nú er ljóst, að
hann var 15,4 millj. og 10,5 í des-
ember. Ef hallinn heldur áfram að
minnka á þessu ári mun það verða
mikill búhnykkur fyrir Reagan-
stjómina og styrkja stöðu hennar
gagnvart þeim þingmönnum demó-
krata, sem vilja grípa til sérstakra
vemdaraðgerða.
Talið er líklegt, að brátt verði
haldinn skyndifundur fulltrúa fímm
helstu iðnríkjanna, Bandarfkjanna,
Bretlands, Vestur-Þýskalands,
Frakklands og Japans, og að þar
muni Bandaríkjastjóm krefjast þess
enn sem fyrr, að Vestur-Þjóðveijar
og Japanir hafí forystu um efna-
hagslega viðreisn í heiminum með
því að draga úr þeim mun, sem er
á hagnaði þeirra af utanríkisvið-
skiptunum og viðskiptahallanum í
Bandaríkjunum. 1986 var afgangur
Vestur-Þjóðveija af utanríkisvið-
skiptunum 62,9 milljarðar dollara
og Japana 92,7 milljarðar. Hvorug
þjóðin hefur viljað ljá máls á þessum
kröfum Bandaríkjamanna og þess
vegna hafa þeir látið dollarann falla
með þeim afleiðingum, að hálfgert
neyðarástand hefur ríkt á gjaldeyr-
ismörkuðum að undanfömu. Þess
má geta, að 1986 voru viðskipti
Bandaríkjamanna og Japana óhag-
stæð þeim fyrmefndu um 58,6
milljarða dollara.