Morgunblaðið - 31.01.1987, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1987
17
Bílæti í Breiðholti
eftirJón A.
Gissurarson
Smokkur sem kaupbætir með
aðgöngumiða að árshátíð Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti hefur
vakið almenna athygli og það að
vonum.
Á síðari starfsárum mínum sem
skólastjóri tók hin harðsnúna sveit
sálfræðinga að hasla sér völl hér á
landi. Sálfræðingar þóttust þess
umkomnir að ráða bót á því sem
úrskeiðis fór í skólum. Eitt af því
sem þeim þótti á skorta var fræðsla
um kynlíf manna. Fengu þeir fræði-
grein þessa gerða að skyldunámi í
unglingaskólum, enda hafði and-
legur faðir þeirra, Freud, talið
kynhvöt undirrót allra athafna að
bamsaldri loknum. Sjálfur reyndist
hann umdeiidur lífs og liðinn. Ágúst
H. Bjamason prófessor var síst tal-
inn gefa lægri einkunn gæfíst
nemendum kostur þess að hreyta
ónotum í Freud.
Sjálfur var ég andvígur þessum
bægslagangi sálfræðinga og af-
skiptum þeirra af skólum. Ég taldi
góða kennara líklegasta að leysa
vandkvæði nemenda gæfust þeim
viðhlítandi aðstæður að sinna þeim.
Kynlíf leit ég á sem einkamál karls
og konu sem kæmi engum öðmm
við.
En eyðni hefur gjörbreytt málum.
Það sem áður mátti teljast einka-
mál manna getur nú talist ógn við
alla.
Læknar með landlækni í broddi
fylkingar hafa skorið upp herör
gegn eyðni. Þeir ganga nú í skóla
og fræða ungmenni um vágest
þennan og hvemig við skuli bregð-
ast. Nemendur skuli forðast fjöl-
lyndi í ástum, þeir eru varaðir við
of nánum kynnum af hommum og
dópistum og skulu brúka veijur.
Þá kom smokkur á dagskrá. Hann
telja læknar einu raunhæfu vömina
gegn smitun.
Snúum okkur aftur að aðgangs-
kortinu í Breiðholti. í hvaða tilgangi
létu forystumenn nemenda þennan
kaupbæti fylgja? Voru hér að verki
Jón Á. Gissurarson
„En eyðni hefur gjör-
breytt málum. Það sem
áður mátti teljast
einkamál manna getur
nú talist ógn við alla.“
galsafengnir strákar með sprell eitt
að markmiði? Þannig virðist skóla-
meistari bregðast við og hefur beitt
„sökudólga“ harðýðgi. Sjálfsagt
hefur hann óttast álitshnekki skóla
síns, enda hefur þetta orðið Flosa
Ólafssyni efni skopþáttar í helgar-
blaði Þjóðviljans.
Ég held hins vegar að hér hafí
verið að verki ungir menn með
ábyrgðartilfinningu, þótt aðferð
þeirra kunni að orka tvímælis.
Styrktist ég í þeirri trú er ég las
skilmerkilega grein eftir einn úr
þeirra hópi. Þeir vom að vekja at-
hygli á eina úrræði landlæknis og
tókst það.
Hvað sem öðm líður má uppá-
koma sem þessi ekki snúa umræðu
um mál þetta í gamanmál. Til þess
er of mikið í húfí.
PÓSt- Og
símaminja-
Höfuadur er fyrrverandi akóla-
stjóri Gagnfræðaskóla Austurbæj-
ar.
verður
, Við efnum til stórkostlegrar
BOKAVEISLB
fró og með 31. janúar - 14. febrúar í verslun
okkar að Síðumúla 11. Opið fró 9-18,
nema 10-16 ó laugardögum.
BOKAUTGAFATH ÖRN 8f ÖRLYGUR
Síðumúla 11, sími 84866
Lítið útlitsgallaðar bækur
uerða einnig á boðstólum. Sumar þeirra
eru nánast nýjar en seldar með ótrúlegum
afslætti uegna smávægilegra útlitsgalla.
hnkaveislu ársins
ssið ekki
zr^TTT^msætur bitinn.
I veislunni verða bomar á borð
ÚRVALSBÆKUR Á ÓTRÚLEGA LÁGU VERÐl.
Það uerður enginn fyrir uonbrigðum, huorki
með uerð né uörugæði.
safniðí
Hafnarfirði
PÓST— og símamálastofnunin
hefur opnað Póst— og síma-
minjasafn í gömlu símstöðinni
að Austurgötu 11 í Hafnarfirði.
Var safnið opnað 27. janúar
síðastliðinn og verður fyrst um
sinn opið á sunnudögum og
þriðjudögum milli klukkan 15 og
18.
Á safninu getur að líta safn fjöl-
breytilegra muna og tækja sem
tengjast póst— og símaþjónustu á
íslandi. Meðal hinna mörgu sem
lögðu grunnin að safninu var Ey-
jólfur Þórðarson, efnisvörður
bæjarsímans í Reykjavík, sem um
árabil safnaði ýmsum tækjum í
kjallara Landssímahússins. Gunnar
Bjamason, leiktjaldamálari, annað-
ist uppsetningu Póst— og síma-
minjasafnsins, en safnvörður er
Magnús Eyjólfsson.
Nóg pláss — meira að
segja fyrir mig!
Létturog lipur
í bænum!
Eyðir næstum
engu!
Þægilegur í snattið,
hægt að leggja
„ hvarsemer! .
Iburðarmikill, vandaður
. og fallegur I j
BILABORG HF.
SmiðshQfða 23sími 6812 99
Skutlan frá Lancia kostar nú frá aðeins 266 þúsund krónum
1 07