Morgunblaðið - 22.02.1987, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1987
Minning:
Þorlfríður Þorláks-
dóttir, Héðinshöfða
Pædd 9. júní 1919
Dám 13. janúar 1987
Glöð með glöðum varstu,
göfg og trygg á braut
þreyttra byrði barstu,
blíð í hverri þraut.
Oft var örð ugt sporið,
aldrei dimmt í sál,
sama varma vorið,
viðkvæm lund og mál.
Böm og frændur falla
fram í þakkargjörð
fyrir ástúð alla —
árin þín á jörð;
fyrir andans auðinn,
arf, sem vísar leið,
þegar dapur dauðinn
dagsins endar skeið.
Magnús Markússon
Elsku amma okkar, hún Fríða,
eins og hún var alltaf kölluð, hefur
nú verið til moldar borin frá Hóla-
neskirkju á Skagaströnd og verið
jarðsett við hlið ástkærs eiginmanns
síns og afa okkar, Gríms N. Magn-
ússonar, í kirkjugarðinum þar. Það
var eins og allt hefði farið úr sam-
bandi innra með manni þegar mér
var sagt að amma væri dáin, það
var svo ótrúlegt að maður bara
horfði út í bláinn og vissi ekki hvað
átti að segja, amma sem var ailtaf
svo hress og kát og átti svo margt
eftir ógert. Hún átti að fá nýja íbúð
nú strax eftir áramótin og var
margt búið að ræða um væntanleg-
an flutning.
Það er því erfitt að setjast niður
og skrifa minningargrein um
ömmu, konu sem var full af
lífskrafti og horfði svo björtum aug-
um á komandi ár. Engan hafði órað
fyrir því að amma, sem var aðeins
67 ára, yrði kölluð svo snemma yfir
í hinn heiminn. Hún hafði talað um
það sjálf að hún ætlaði að halda
Hefurþig aldrei langað tilað reyna eitthvað nýtt, kynnastöðrum heimsálfum og öðruvísi fólki?
Umpáskana liggurleiðin til Thailands, 2ja vikna lúxusferð um Kaupmannahöfn með SAS.
Bangkok-Pattaya
Lúxushótel
Flogið verðurtil Kaupmannahafnar, þar
stigið upp í þægilega breiðþotu SAS og
ekki lent fyrr en í Bangkok. Það verðurgist
í fjórar nætur á Hotel Montien, fjögurra
stjörnu lúxushóteli í hjarta borgarinnar.
Boðið verður upp á nokkrar hálfs dags
skoðunarferðir til markverðustu staða
Bangkok: Heimsókn á fljótandi markað
innfæddra, krókódílabúgarð, í
Thai-kvöldverð, konungshöllina oghinn
fræga rósagarð þar sem sýndar eru
íþróttir, dansar og söngvar hinnar ríku
menningar Thailendinga.
Síðan liggur leiðin til til Pattaya
strandarinnar og dvalið í 10 nætur á hinu
glæsilega Royal Cliff lúxushótell (5
stjömul). Enn erboðið upp á
skoðunarferðir, enda afnógu að taka.
Hægt er að fylgjast með fílum við vinnu í
trjáiðnaði, heimsækja Nong Nooch þorpið
og sjá bardagaíþróttirog dýragarð eða
sigla út til kóraleyju, skoða sjávarbotninn
og bragða grillaðan fisk eins og
Thailendingarelda hann einir.
S4S
Laugavegi3, 101 fíeykjavík. Símar: 21199 og 22299
íslenskur fararstjóri mun verða þér til
trausts og halds. Svavar Lárusson er
öllum hnútum kunnugur, veitirþérgóð ráð
og bendir áþað sem skoðunar er vert.
í Thailandi er nú árið2530
Auk tímatalsins, sem miðað er við
Búdda, ermargt í Thailandi gjörólíktþví
sem við eigum að venjast, matargerð,
siðirog lífshættirfólksins. Veðurer
ákjósanlegt á þessum tíma, hitastigið
25-35gráður og hægir Monsúnvindar úr
norð-austri. Verðlag ermeð ólíkindum
lágt og Thailendingar viðræðugóðir
kauþmenn, þannig að hægt er að gera
reyfarakaup á handverki í skartgripa-, list-
og fataiðnaði. Þú getur meira að segja
prúttað um leigubílinn!
Nú er tækifærið til að láta drauminn
rætast: Að heimsækja Asíu. I þessari
lúxusferð hjálpast allt til við að gera þér
hana ógleymanlega - þú lofarþér
örugglega að fara einhverntímann aftur.
Verðið er tælandi,
aðeins kr.
57.600,-
Miðað er við flug og gistingu í 2ja manna
herbergi. Innifalið í verði er íslensk
fararstjórn, akstur til og frá flugvöllum
erlendis og frá Bangkok til Pattaya og
baka.
Brottför: Fimmtudaginn 9. apríl.
Heimkoma: Laugardaginn 25. apríl.
Hægt erað framlengja dvöl bæði í
Thailandi og Kaupmannahöfn án
aukakostnaðar í flugi.
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Símar 91 -27077 & 91 -28899
Hótel Sögu viö Hagatorg • 91 -622277. Akureyri: Skipagötu 14 ■ 96-27200
Láttu drauminn um lúxusferðina rætast
upp á áttatíu ára afmælisdaginn.
En nú sannast best máltækið sem
segir að enginn veit sína ævi fyrr
en öll er, og við sem eftir lifum
verðum að vera sterk og hugsa, nú
er hún komin til afa, sem hún sakn-
aði svo mjög, og sonar síns sem
fórst svo ungur, aðeins 19 ára, með
Fagranesi fyrir nokkrum árum.
Amma fæddist á Akranesi
níunda dag júnímánaðar árið 1919
og var eina bam hjónanna Þorláks
Kristjánssonar og Guðrúnar Þórar-
insdóttur.
A Akranesi kynntist hún afa
okkar og gengu þau í hjónaband
30. september 1933. Eignuðust þau
12 böm sem öll eru á lífi utan eitt
sem fórst ungt eins og áður sagði.
Amma átti ekki aðeins þessi tólf
böm því að áður hafði hún átt tvö
með fyrri sambýlismanni sínum,
eignaðist hún því 14 böm og kann
eflaust mörgum að þykja það skrítið
að amma sem var einbimi skyldi
eignast svo mörg böm. Aldrei
kvartaði amma undan neinu þó að
henni hafí eflaust skort margt með
öll þessi böm sem þurfti að fæða
og klæða, þau hjálpuðu henni líka
mikið og gerðu henni því sporin
léttari enda sáust aldrei merki um
uppgjöf hjá henni, það var alveg
sama hvenær við hittum hana, hún
var alltaf jafn hress og kát og tók
vel á móti öllum sem að garði bar.
Mörg eru orðin bamabömin og
barnabamabömin. Já, amma var
rík, hún átti yndislegan eiginmann
þar sem afi okkar var og allir litu
upp til og 14 heilbrigð böm og fullt
af ömmubörnum sem öll dáðu hana.
Amma varð langamma fyrir 11
árum, þá aðeins 56 ára, og þykir
það ekki hár aldur á ömmu, hvað
þá langömmu. Ég, sem skrifa þessa
grein fyrir mína hönd, systkina
minna og maka okkar, var svo
heppinn að fá að njóta samvistar
við hana mikinn hluta af uppvaxtar-
árum mínum. Þau fluttust að
Arbakka við Skagaströnd árið 1966
en stuttu síðar að Sólvangi þar
skammt frá þar sem ég var hjá
ömmu og afa sumarlangt, kom
snemma á vorin og fór ekki fyrr
en seint á haustin. Margar ógleym-
anlegar stundir á ég frá þessum
árum, sem skjóta upp kollinum nú
og eru manni svo ósegjanlega kær-
ar, en ég ætla ekki að rekja þær
hér en geymi þær nú vel í huga
mínum.
Amma var alveg sérstakur per-
sónuleiki, var sannur vinur vina
sinna og átti gott með að aðlagast
öllum aldurshópum, gat alltaf gert
að gamni sínu og hafði unun af að
umgangast okkur yngra fólkið,
enda var hún alltaf svo ung í anda
og ætlaði sér ekkert að verða göm-
ul. Ég gæti sagt frá einu atviki í
sambandi við það svona að gamni
og átti það sér stað í sumar sem
leið. Ég var staddur með henni í
búð og er hún að skoða kjóla og
leist ansi vel á einn og ég sagði við
hana að hún skyldi bara máta, sem
hún svo gerði og spurði mig svo
hvemig mér fyndist hann, og ég
svaraði að mér fyndist, hann vera
meira fyrir yngri konur, hún varð
þá hálfmóðguð og sagðist ekki vera
einhver kerling. Ég brosti þá bara
við henni og sagði: „Ó, ámma, þú
ert alveg einstök."
Við ástvinir hennar megum vera
þakklátir fyrir það að hafa ekki
þurft að horfa uppá ömmu sem
gamla konu á spítala mikið veika
eða eitthvað í þá áttina. Nei, það
passaði ekki við hana.
Við hefðum gjaman kosið að
hafa hana lengur hjá okkur, en afí
hefur viljað fá hana til sín og við
skulum því hugsa með okkur að
nú séu þau sæl saman á ný.
Um leið og við þökkum henni
fyrir allar þær góðu stundir sem
við áttum með henni, biðjum við
algóðan guð að varðveita þau og
geyma og gefa okkur ástvinum
hennar, sem minnumst þeirra með
söknuði í bijóstum, styrk í okkar
mikla missi.
Þar mætast okkar augu,
þótt ei oftar sjúmst hér.
0, guð minn ávallt gæti þín,
ég gleymi aldrei þér.
Söderberg. Þýð. Þór Guðmundsson
Sigþór Hólm Þórarinsson