Morgunblaðið - 10.04.1987, Blaðsíða 60
jffBRUnRBÓT
-AtÖRYGGISASTÆDUM
Nýjungar
í 70 ár
ALHLIÐA PRENTWÓNUSTA
X GuÓjónÓ.hf.
I 91-272 33 I
FOSTUDAGUR 10. APRIL 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Hafskips/Útvegsbankamálið:
Fjórir Hafskipsmenn og
sjö bankastjórar ákærðir
RÍKISSAKSÓKNARI ákærði í
gær þrjá fyrrverandi yfirmenn
Hafskips hf. og fyrrverandi end-
urskoðanda félagsins og sjö
fyrrverandi og núverandi banka-
stjóra Útvegsbanka íslands.
Forráðamenn Hafskips eru sak-
aðir um fjárdrátt, fjársvik,
Bragi Steinarsson
mun sækja málið
- Jónatan Sveinsson honum til aðstoðar
BRAGI Steinarsson vararíkissak-
sóknari og Jónatan Sveinsson
hæstaréttarlögmaður munu
sækja málið gegn fyrrum for-
svarsmönnum Hafskips og
bankastjórum Útvegsbankans,
fyrir hönd embættis rikissak-
sóknara, að sögn Hallvarðs
, Einvarðssonar ríkissaksóknara.
Hallvarður vísar alfarið á bug
gagnrýni um að eitthvað sé óeðli-
legt við tímasetningu ákæra þeirra
sem birtar voru 11 sakbomingum
í Hafskipsmálinu í gær, og segir
að málið hafí einfaldlega verið af-
greitt frá embætti sínu um leið og
athugun var lokið.
Sjá viðtal við ríkissaksóknara
í miðopnu
umboðssvik og skjalafals. Banka-
stjórum Útvegsbankans er öllum
gefin að sök stórfelld vanræksla
og hirðuleysi í störfum í sam-
bandi við viðskipti bankans við
Hafskip hf. árin 1982-1985. Mál-
unum hefur verið vísað til
dómsmeðferðar við Sakadóm
Reykjavíkur.
Björgólfur Guðmundsson, for-
stjóri Hafskips, Ragnar Kjartans-
son, fyrrum forstjóri og síðar
stjómarformaður, og Páll Bragi
Kristjónsson, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Hafskips, em ákærðir
fyrir ranga skýrslugerð og ýmis
auðgunarbrot í starfí. Þá er Helga
Magnússyni, löggiltum endurskoð-
anda fýrirtækisins, gefið að sök
bókhaldsfals og brot í starfi sem
löggiltur endurskoðandi. Verði þeir
fundnir sekir eiga þeir yfír höfði
sér fangelsisdóma.
Bankastjóramir sjö eru Halldór
Guðbjamason, Láms Jónsson og
Ólafur Helgason, núverandi banka-
stjórar bankans, Axel Kristjánsson,
aðstoðarbankastjóri og forstöðu-
maður lögfræðingadeildar Útvegs-
bankans, og fýrmrn bankastjóramir
Ármann Jakobsson, Bjami Guð-
bjömsson og Jónas G. Rafnar. Þeim
er öllum gefið að sök að hafa sýnt
af sér vanrækslu og hirðuleysi í
starfí, með þeim afleiðingum að
Útvegsbankinn hafi tapað 422 millj-
ónum kr. og verði tapið mun meira
þegar lokið verði gjaldþrotaskiptum
á þrotabúi Hafskips hf. Viðurlög
við brotum þeim, sem bankastjór-
amir em ákærðir fyrir, em sektir
eða varðhald.
Ragnar Kjartansson sagðist í
gær ætla að leggja fram kröfu um
opinbera rannsókn á málsmeðferð
Hafskipsmálsins. Hann sagði einnig
að þegar málið yrði dómtekið 5.
maí myndi hann krefjast þess að
Hallvarður Einvarðsson, ríkissak-
sóknari, viki og ákæran yrði dæmd
ógild sökum vanhæfís Hallvarðs.
Gagnrýndi hann málsmeðferðina og
það gerði Páll Bragi Kristjónsson
einnig.
Bankastjórar Útvegsbankans
sögðust í gær vera undrandi á
ákæmnni. Þeir hefðu ekki átt von
á henni. Þeir vildu sem minnst segja
um efnisatriði, þegar Morgunblaðið
leitaði álits þeirra í gær, enda lítill
tími gefíst til að kanna ákæmatrið-
in. Flestir höfðu bankastjóramir þó
orð á því að ónotalegt hefði verið
að heyra fréttir um ákæmna úr fjöl-
miðlum, áður en hún hefði verið
birt þeim.
Sjá ákærurnar á bls. 12, 13,
14 og 15 og ummæli ákærðu á
miðopnu.
400 lítrar af eitri
fundust á bersvæði
TUTTUGU plastbrúsar með eit-
urefnum fundust í gær á opnu
geymslusvæði í Vatnsmýrinni og
inniheldur hver brúsi um.20 lítra
—>
af fosfórsýru og brennisteins-
sýru, samkvæmt merkingum
utan á brúsunum. Efnagreining
hefur ekki farið fram.
Það vom nokkrir krakkar, sem
vom að leik, er fundu brúsana í
opinni geymslu er Hafskip hafði til
umráða á sínum tíma. Rúnar
Bjamason, slökkviliðsstjóri, sagði í
samtali við Morgunblaðið að lög-
reglunni hefði verið tilkynnt um
efnin um kl. 14.00 í gær og hefði
slökkviliðinu síðan verið afhent
málið. Slökkviliðsmenn fluttu eitur-
efnin í geymslu slökkvistöðvarinnar
og sagðist Rúnar búast við að þau
yrðu efnagreind fljótlega.
Rúnar sagði að böm hefðu auð-
veldlega getað farið sér að voða ef
þau hefðu komist í efnin, en sem
betur fer hefðu slys ekki hlotist af.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Skemmtigarðurinn undirþak
Skemmtigarðurinn í Hveragerði opnar á morgun, laugardag, undir þaki. Að undanförnu hefur
verið unnið að byggingu húsa yfir starfsemina, meðal annars tveggja skemma sem sjást á myndinni
og veitingastaðarins Tunglsins, sem er í hæsta húsinu. Starfsemi Skemmtigarðsins verður jafn-
framt aukin.
Morgunblaðið/Júlíus
Slökkviliðsmenn fluttu eiturefn-
in í örugga geymslu í gær.
Auglýsendur athugið
MORGUNBLAÐIÐ kemur út á
skírdag þann 16. apríl. Er það
síðasta blað fyrir páska. Skila-
frestur auglýsinga í skírdags-
blað er þriðjudaginn 14. apríl
kl. 16.00.
Fyrstu blöð eftir páska koma
út: Síðasta vetrardag 22. apríl,
skilafrestur auglýsinga er mið-
vikudag 15. apríl kl. 16.00.
Sumardaginn fyrsta 23. apríl,
skilafrestur auglýsinga er þriðju-
dag 21. apríl kl. 16.00. Laugar-
daginn 25. apríl, kosningadag,
skilafrestur auglýsinga er mið-
vikudag 22. apríl kl. 16.00.
Bankastj orar Utvegs-
bankans biðjast lausnar
Liggur ekki ljóst fyrir hvernig bankanum verður stjórnað
- segir Valdimar Indriðason formaður bankaráðs
ALLIR bankastjórar Útvegs-
bankans, þeir Ólafur Helgason,
Halldór Guðbjarnason og Lárus
Jónsson og Axel Kristjánsson,
aðstoðarbankastjóri, hafa tekið
þá ákvörðun að biðjast lausnar
frá starfi sínu nú þegar. Banka-
ráð Útvegsbankans mun fjalla
um máiið á fundi sínum í dag.
„í ljósi þess, að bankastjórar
Útvegsbanka íslands og einn að-
stoðarbankastjóri hafa verið
ákærðir fyrir „stórfellda vanrækslu
og hirðuleysi" í starfí hafa þeir í
dag skrifað bankaráði og óskað
þess að verða leystir frá störfum
nú þegar,“ segir orðrétt í fréttatil-
kynningu frá bankastjórn Útvegs-
banka íslands.
Nýtt fyrirtæki, Útvegsbanki ís-
lands hf., tekur við rekstri Útvegs-
bankans þann 1. maí næstkomandi
en þangað til mun núverandi banka-
ráð, undir formennsku Valdimars
Indriðasonar, sitja. Valdimar sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær-
kveldi að bankaráðið myndi hittast
kl. 10 fyrir hádegi í dag og ræða
þessi mál. „Það liggur engan veginn
ljóst fyrir á þessu stigi, hvernig
bankanum verður stjórnað fram til
mánaðamóta, er nýja bankaráðið
tekur við stjóm bankans," sagði
Valdimar.
Bankaráð hins nýja banka kemur
saman til síns fyrsta fundar í dag
og er búist við að þar verði íjallað
um ráðningu bankastjóra. Banka-
ráðsmenn vildu í gærkvöldi ekkert
segja um það mál.