Morgunblaðið - 12.04.1987, Side 1
144 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
86. tbl. 75. árg.
SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Koryagin
fær brott-
fararleyfi
Haag, Reuter.
Andófsmanninum þekkta Ana-
toly Koryagin og fjölskyldu hans
hefur verið veitt leyfi til að flytj-
ast frá Sovétríkjunum.
Robert van Voren, sem starfar
við Bukovsky-stofnunina í Amster-
dam, sagði að þær fréttir hefðu
borist frá Kharkov að Koryagin og
fjölskyldu hans hefði verið veitt
vegabréfsáritun til Sviss.
Anatoly Koryagin er einn þekkt-
asti andófsmaður Sovétríkjanna. í
febrúarmánuði var honum sleppt
úr fangelsi eftir að hafa afplánað
sex ára dóm vegna afskipta sinna
af mannréttindamálum í Sovétríkj-
unum.
Japan:
Viðskipta-
stríð í
uppsiglingu
Tókýó, Washington, Reúter.
JAPANIR hafa hótað hefndarað-
gerðum ef Bandaríkjastjórn
fylgir eftir þeim áformum að
leggja 100 prósent toll á tilteknar
útflutningsvörur þeirra. Banda-
ríkjamenn saka Japani um að
virða ekki samkomulag um jöfn-
uð i viðskiptum ríkjanna.
Shinji Fukukawa, aðstoðarráð-
herra utanríkisverslunar Japana,
sagði í gær að Japanir myndu íhuga
gagnaðgerðir en bætti við að þeir
væru fúsir til áframhaldandi við-
ræðna. Harmaði hann að fulltrúar
ríkjanna hefðu ekki náð samkomu-
lagi á tveggja daga neyðarfundi í
Washington. Bandarískir embættis-
menn sögðu að ekkert hefði komið
fram á fundi fulltrúa ríkjanna sem
benti til þess að Japanir væru reiðu-
búnir til auka innflutning á banda-
rískum iðnvarningi eða draga úr
sölu á ódýrum tölvukubbum á al-
þjóðamarkaði. Akvörðun forsetans
stæði því óbreytt.
Flugstöðin vígð á þriðjudag
Morgunblaðið/Rax
Nýja flugstöðin i Keflavik, sem ber nafn Leifs Eirikssonar, verð- I skemmstu og ber uppljómaða bygginguna við Bvarbiáan himin.
ur vigð á þriðjudag. Þessi mynd var tekin af flugstöðinni fyrir | C-blað Morgunblaðsins er að þessu sinni helgað hinni nýju flugstöð.
Sovétríkin:
Afvopnunarmál:
Bandaríkj aforseti fagn-
ar tillögum Gorbachevs
Los Angeles, Washington, Bratislava, Reuter.
RONALD Reagan Bandarikja-
forseti hefur fagnað tillögum
Mikhails Gorbachev, aðalritara
sovéska kommúnistaflokksins,
um takmörkun vígbúnaðar. Reag-
an sagði að aukinnar alvöru
gætti nú í viðhorfi sovésku
stjórnarinnar til afvopnunar-
mála, en þar hefði orðið brestur
á eftir leiðtogafundinn í
Reykjavík í október.
þær deilur, sem spunnist hafa
vegna njósnahneykslisins við
bandaríska sendiráðið í Moskvu.
Þrír landgönguliðar úr banda-
ríska sjóhernum, sem gættu sendi-
ráðsins, og einn landgönguliði, sem
gæti ræðismannsskrifstofunnar í
Leningrad, hafa verið handteknir.
Öldungadeild Bandaríkjaþings
skoraði á Shultz að fara hvergi
vegna njósnamálsins, en Reagan
krafðist þess að ráðherrann frestaði
ekki för sinhi.
Auk þess sem Shultz ræðir við
sovéska embættismenn ætlar hann
að hitta Andrei Sakharov, andófs-
menn úr röðum gyðinga og
mannréttindahópa.
Minnisvarði um Wallen-
Kalla her-
lið frá
Mongólíu
Moskvu, Reuter.
SOVÉTMENN lýstu yfir því í
gær að hafist hefði verið handa
við að kveðja hluta af herliði sínu
brott frá Mongólíu í samráði við
yfirvöld þar.
Erlendir . fréttaskýrendur í
Moskvu sögðu að þetta væri ný til-
raun Sovétmanna til að leita sátta
við Kínveija, sem kveðast lítt hrifn-
ir af veru sovéska herliðsins í
Mongólíu.
Reagan sagði að það væri nú
„greinilegur möguleiki" á að ná
árangri í viðræðum um meðaldræg-
ar kjarnorkuflaugar.
Gorbachev, sem er í opinberri
heimsókn í Tékkoslóvakíu, hélt í
gær til Bratislava ásamt Gustav
Husak, leiðtoga Tékka. Gorbachev
gi-eindi frá nýrri tillögu Sovétmanna
um að heQa sérstakar viðræður um
skammdrægar flaugar í Evrópu, á
útifundi í Prag á föstudag. Tillaga
leiðtogans verður rædd á fundi með
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, þegar hann kemur
til Sovétríkjanna á mánudag.
Shultz lagði i gær af stað til
Sovétríkjanna og hefur hann við-
komu í Helsinki í Finnlandi.
Bandarískir embættismenn vona að
Shultz nái árangri í viðræðum um
takmörkun vígbúnaðar þrátt fyrir
berg reistur í Búdapest
Búdapcst, Reuter.
MINNISVARÐI um Roul Wal-
lenberg verður afhjúpaður í
höfuðborg Ungverjalands í
maí, að því er sagði í dagblaði
sem kemur út á ensku í Búda-
pest. Wallenberg var sænskur
stjórnarerindreki og hvarf
hann í Ungveijálandi eftir að
hafa bjargað mörg þúsund ung-
verskum gyðingum undan
nasistum í heimsstyrjöldinni
síðari.
I dagblaðinu Daily News sagði
að borgarstjórn Búdapest hefði
ákveðið að reisa minnivarðann.
Wallenberg var ritari í sænska
sendiráðinu í Ungveijalandi eftir
að nasistar hertóku landið og gaf
hann út vegabréf handa þúsund-
um gyðinga, sem senda átti í
útrýmingarbúðir. Sovéskir her-
menn handtóku Wallenberg í
janúar 1945, þegar þeir náðu
Ungveijalandi úr klóm Þjóðvetja.
Hann var grunaður um njósnir
og sást ekki á almannafæri eftir
það.
Árum saman kváðust Sovét-
menn ekkert vita um afdrif
Wallenbergs, en árið 1957 gáfu
þeir út yfirlýsingu um að sænski
stjórnarerindrekinn hefði látið
lífið í Lubyanka-fangelsinu í
Moskvu árið 1947.
Enn berast þó fregnir um að
Wallenberg sé á lífi í fángelsi í
Sovétríkjunum. í mars 1986 var
greint frá því í kristilegu frétta-
bréfi, sem gefið er út í Sviss, að
rómversk-katólskur prestur í
Úkraínu hefði smyglað bréfl út
úr sovéskum fangabúðum, þar
sem fram kom að Wallenberg
væri enn á lffí.
Ungveijar ætluðu að reisa
styttu af Wallenberg árið 1948,
en hættu við til að styggja ekki
Sovétmenn. Nú virðast Sovét-
menn ekki jafn viðkvæmir vegna
Wallenberg-málsins og áður.