Morgunblaðið - 12.04.1987, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987
31
„Vinaminni“
Helgu Ingólfsdótt-
ur í Kristskirkju
HELGA Ingólfsdóttir sembal-
leikari mun leika á vegum
Tónlistarfélags Kristskirkju,
miðvikudaginn 15. apríl kl. 20.30.
Tónleikarnir verða í Krists-
kirkju, sem um nokkurt skeið
hefur verið lokuð almenningi
vegna viðgerða, innan og utan.
Nú hefur kirkjan verið opnuð á
ný og er messað þar á hverjum
degi einsog áður, en viðeigandi
tónleikar verða haldnir þar á
vegum félagsins nokkuð reglu-
lega í vor og sumar.
Á þessum tónleikum á miðviku-
dagskvöldið, sem eru opnir öllum
almenningi, mun Helga leika verk
frá 17. og 18. öld. Þau eru eftir
Purcell, Froberger, Forquery, Cou-
perin og Bach, og eiga það sameig-
inlegt að vera samin til minningar
um vini tónskáldanna. Nefnir Helga
því tónleikana „Vinaminni". Flest
verkanna hafa ekki verið flutt á
opinberum tónleikum í Reykjavík
áður og eru sum þessara gömlu
tónskálda, svo sem Froberger og
Forquery, lítið sem ekkert þekkt
hér á landi. Á sínum tíma voru
þeir þó í hópi mestu meistara í sem-
balleik og tónsmíðum og sama má
segja um Louis Couperin, sem var
ættingi Francois Couperin „hins
mikla“. Það verk á efnisskránni sem
helst er þekkt hér, og er reyndar
með vinsælustu sembalverkum allra
tíma, er Krómatíska fantasían í
d-moll eftir Bach, en hana samdi
Bach eftir skyndilegt fráfall fyrri
konu sinnar Maríu Barböru. „Vina-
minni“, sembaltónleikar Helgu
Ingólfsdóttur, eru þriðju tónleikar
Tónlistarfélags Kristskirkiu á þessu
ári, 1987.
Þann 26. apríl gengst félagið
fyrir Skáldavöku, í samvinnu við
Mál og menningu. Munu sex íslensk
ljóðskáld lesa þar úr verkum sínum
Helga Ingólfsdóttir semballeikari.
og einnig munu hljóðfæraleikarar
flytja íslensk tónverk og franska
barrokkmúsík. Skáldavakan verður
haldin í minningu Kristínar Önnu
Þórarinsdóttur, sem lést á sl. ári,
en hún var tvímælalaust meðal
bestu ljóðaflytjenda landsins.
(Frá Tónlistarfélagi
Kristskirkju)
#Ull&é>tlfUt
Fægiklútur og hreinsilögur sem fagmenn nota - loksins á almennum markaöi!
Tvöfaldi
skartgripafægiklúturinn
• Innri klúturinn hreinsar.
• Með ytri klútnum færðu hágljáa á alla skartgripina, jafnt gull sem silfur.
• Slípiefni í algjöru lágmarki, engin óþægileg lykt, ekkert ryk.
Skartgripahreinsilögur
fyrir demantsskartgripi og alla skartgripi með steini, svo og gull og platínu,
festar,hálsmeno.þ.h.
I.eysir upp fitu og óhreinindi og gefur skartgripunum sterkan gljáa.
Sem fagmenn mælum við eindregið með þessum vömm sem við höfum
margreynt og notað með einstaklega góðum árangri.
Fyrsta flokks vara og hjónusta i
#ull&g>tlfur m
Laugavegi 35, sími 20620
Verð 300
KOSTNAÐAR-
ÁÆTLUN
OG
TEIKNING
af íbúö í smíðum veröa að
berast Húsnæðistofnun áður
en tii lánveitingar kemur.
Hyggist umsækjandi byggja
íbúð eða kaupa íbúð í
smíðum, verður hann að skila
eftirfarandi áður en
til lánveitingar getur komið:
a) Teikningu af íbúð, sam-
þykktri af byggingarnefnd.
b) Sundurliðaðri kostnaðar-
áætlun, sem unnin er og
undirrituð af höfundi
teikningarinnar.
Þetta eru grundvallaratriði
svo að væntanlegum byggjanda
sé fyllilega Ijóst út í hvað hann er
að fara, jafnframt því sem það
auðveldar Húsnæðisstofnun
að taka afstöðu til
lánsumsóknarinnar.
Munið, að í upphafi skyldi
endirinn skoða.
og fáðu áskriftargjöld-
in skuldfaerð á________
greiftslukortareikning
þinn mánadarlega.
SÍMINN ER
691140 691141
c§3 Húsnæðisstofnun
ríkisins