Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 40
MORGUNBLÁÐIÐ, SÚNNUDÁGÚR 12. APRÍL 1987
LC ■ ■ l»f rVirMyNDANNA
Isabella
Rossellini
Fólk hneykslast á myndinni
„Blue Velvet“
Isabella Rossellini er umtalað-
asta leikkonan í heiminum um
þessar mundir. Hún lék í fjórum
bíómyndum á síðasta ári, þar á
meðal Blue Velvet eftir David
Lynch og virðist sú mynd fara
fyrir brjóstið á mörgum. Ástæð-
an virðist helst vera sú að
Isabella er dóttir Ingrid Bergman
(og ítalska kvikmyndaskáldsins
Roberto Rossellini) og hinir
hneykslunargjörnu þola ekki að
sjá dóttur þeirrar fraegu konu
striplast og gangast undir kyn-
ferðislega niðurlægingu heila
bíómynd á enda.
Þeir, sem þekkja til kvikmynda
David Lynch (Fílamaðurinn er
vafalaust mesta listaverkið
hans), vita að hann gerir ekki
myndir eins og aðrir. Isabella er
þvi hjartanlega sammála, og það
sem meira er, hún er reiðubúin
að taka þátt í gerð slíkra mynda.
Hún trúir á David Lynch og reng-
ir aldrei orð hans.
Sagan segir að þau hafi fyrst
hist á veitingastað og Lynch á
að hafa sagt við félaga sinn:
Þessi kona gæti verið dóttir
Ingrid Bergman. Þá hnippti félag-
inn í Lynch og sagði: Bjáni
geturðu verið, hún er dóttir henn-
ar.
Isabella hristir bara höfuðið
þegar hún er spurð álits á sterk-
um viðbrögðum almennings,
sérstaklega i Evrópu, þar sem
móðir hennar var alla tíð mikils
metin. „Myndin hneykslanleg?
Ég hneykslanleg í myndinni? Ertu
frá þér? Ég hefði aldrei leikið í
henni ef hún væri gerð til þess
eins að hneyksla fólk. Myndin er
allt annað og meira. Það eru
ókannaðar víddir í heimssýn
Davids Lynch. Ég hef vitanlega
aldrei stundað kynferðislegan
sadisma, hvað þá masókískan,
en það þýðir ekki að hann sé
ekki til."
Isabella, sem hóf feri! sinn
sem Ijósmyndafyrirsæta 28 ára
gömul, þegar flestar aðrar eru
að hætta og varð brátt sú allra
launahæsta, lék í tveimur mynd-
um til viðbótar á síðasta ári, en
engin þeirra hefur enn verið
Richard Gere og Kim Basinger á kafi í vondum málum f myndinni Engin miskunn.
Stjörnubíó
sýnd. Þær eru eins ólíkar og
hægt er að hugsa sér: Siesta,
með Grace Jones, barnaævintýr-
ið Little Red Riding Hood, og
sakamálasagan Tough Guys
Don’t Dance, sam Norman Mail-
er gerði eftir eigin bók.
Teiknimyndin
Valhöll með
íslensku tali
Stjörnubíó frumsýnir innan
skamms spennumyndina Engin
miskunn (No Mercy) með Rich-
ard Gere og Kim Basinger í
aðalhlutverkum. Leikstjóri henn-
ar er Richard Pearce, frægur fyrir
heimildamyndir og hin seinni ár
fyrir að leikstýra þeim Jessica
Lange og Sam Shepard í sveita-
baslmyndinni Country.
Engin miskunn er gerð á tals-
vert öðrum nótum. Richard Gere
leikur lögreglumanninn Eddie Jil-
lette frá Chicago, sem leitar
hefnda þegar glæpaforinginn
Losado (Jeroen Krabbe) myrðir
félaga hans í löggunni. Hann rek-
ur slóð Losado til New Orleans
og kynnist þar og verður ást-
Isabella Rossellini leikur söng-
konu í kvikmyndinni „Blue
Velvet“ og gengur um nakin
mestan part.
Blue Velvet var tekin til sýn-
inga í Bandaríkjunum fyrst landa
í nóvember síðastliðnum. Mynd-
in kallaði strax á sterk viðbrögð,
neikvæð skrif og jákvæð eins og
gengur. En eigum við ekki að
láta Matthías Johannessen, rit-
stjóra Morgunblaðsins, eiga
síðasta orðið, en hann sá þessa
umtöluðu mynd þarvestra. Hann
skrifaði í blað sitt 6. marz sl.:
„Það var myrt og klæmzt og
framin hin ótrúlegustu kynmök
eins og mér skilst að séu sjálf-
sögð hjá náttúrulausu fólki og
allt auðvitað innan einhvers
óáþreifanlegs eiturlyfjahrings
sem var drepleiðinlegur í þokka-
bót.“
HJÓ
Það hefur sem betur fer ekki
verið mikið gert af því setja íslenskt
tal inná erlendar myndir í kvik-
myndahúsunum hér. Íslenskí
textinn undir myndinni er miklu
ódýrari og miklu betri leið heldur
en sú sem farin er í sumum löndum
þar sem innlendir leikarar eru sett-
ir í að tala inná myndir fyrir Jack
Nicholson eða Meryl Streep eða
hvern sem er og gera þær þar
með að hryllilegu skrípi.
Það er þó einn hópur kvik-
myndahúsagesta, sem lítið er
hugsað um yfirleitt, er hefur hag
og skemmtun af íslenska talinu en
það eru yngstu börnin. Fyrir þau
er íslenskt tal bráðnauðsynlegt ef
þau eiga að njóta barnamyndar
almennilega rétt eins og íslenskur
texti er líklega nauðsynlegur flest-
um öðrum kvikmyndahúsagestum.
Talið hjálpar börnunum að fylgjast
glöggt með atburðarásinni og lifa
sig betur inn i söguna og persónur
hennar.
Þess vegna var það gott og
þarft framtak hjá Hinu leikhúsinu
þegar það stóð fyrir því að íslenskt
tal var sett á barnamyndina Ronja
ræningjadóttir fyrir eins og ári
síðan. Það heppnaðist líka ágæt-
lega. Og nú ætlar Laugarásbíó að
gera það sama við dönsku teikni-
myndina Valhöll, sem líklega
verður sýnd næstkomandi haust.
Teiknimyndasagan, sem mynd-
in byggist á, hefur komið út á
íslensku hjá bókaútgáfunni Iðunni.
Hún gerist í Valhöll eins og nafnið
bendir til, aðsetri hinna fornu
goða, og segir frá ævintýrum
krakkanna Þjálfa og Röskvu á
meðal þeirra.
Samkvæmt upplýsingum frá
Laugarásbíói mun Jóhann Sigurð-
arson tala fyrir þrumuguðinn Þór,
Þórhallur Sigurðson fyrir Loka,
Kristinn Sigmundsson fyrir Út-
garðs-Loka og Nanna Jóha.nns-
dóttir og Páll Úlfar Júlíusson fyrir
þau Röskvu og Þjálfa. Sögumaður
verður Flosi Ólafsson.
Richard Gere. Hann skortir ekki
sjálfstraustið.
voru tveir menn handteknir eitt
kvöldið" segir Gere, sem ásamt
öðru er frægur úr myndinni Am-
erican Gigolo, „og þeir rifust
fram og aftur; þetta er Gigolóinn
- nei, þetta er ekki hann — jú,
víst er þetta hann.“
Það er athyglisverður Hollend-
ingur í Engin miskunn sem er að
hasla sér völl í engilsaxneskum
myndum líkt og landi hans Rut-
ger Hauer. Hann heitir Jeroen
Krabbe og leikur illmennið
Losado í myndinni. Hann fæddist
árið 1944 og mun vera einn fræg-
asti leikari Hollands. Hann hefur
unnið með mönnum eins og Paul
Verhoeven (Fjórði maðurinn) og
leikið með Rock Hudson í smá-
þáttaröð NBC-sjónvarpsstöðvar-
innar, Þriðja heimsstyrjöldin,
einnig í Dagbók skjaldböku með
Glendu Jackson og Ben Kingsley,
nýlega sáum við hann í smáhlut-
verki í Jumpin' Jack Flash með
Whoopi Goldberg og núna er
hann að leika í næstu James
Bond-mynd, The Living Day-
lights, en í henni leikur hann hið
sígilda illmenni Bond-myndanna
á móti hinum nýja 007, Timothy
Dalton (sem er eiginlega 004).
eteveNtvR
M€P P€ NORPISKe <5UPeE
BASCRCT PÁ
fanginn af Michel Duval (Basin-
ger), ástkonu Losados og um
leið eina vitni Eddie í málinu.
Hvað sem segja má um Ric-
hard Gere þá skortir hanri ekki
sjálfstraustið og vissuna um að
hann geti leikið hvað sem er. Að
vísu sannaðist í Davið konungi
að hann getur það ekki en ekki
vantaði viljann til verksins. Lög-
regluhlutverkið á t.d. mun betur
við Gere. Hann mun hafa tekið
talsverðan þátt í gerð þessarar
myndar fyrir utan að fara með
annað aðalhlutverkið. „Gere
vann stöðugt með okkur frá þeirri
stundu sem við ákváðum að gera
myndina," segir Pearce. Þegar
leikstjórinn fór til Chicago í leit
að tökustöðum fylgdi Gere hon-
um til að kynnast betur þeim
heimi sem Eddi Jillette kemur úr
og eyddi löngum tíma með leyni-
lögreglu borgarinnar. Stundum
leist honum ekkert á blikuna og
var feginn þeim fáu skemmtilegu
andartökum sem léttu lífið. „Það
Engin miskunn með
Gere og Basinger