Morgunblaðið - 12.04.1987, Page 48

Morgunblaðið - 12.04.1987, Page 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Afgreiðslustarf Okkur vantar hressa og áreiðanlega stúlku, ekki yngri en 25 ára, frá kl. 13.00-18.00. Upplýsingar í síma 29515 í dag og eftir kl. 19.00 næstu daga. Kiassa píur, tískuverslun, Laugavegi 28. Símavörður Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til umsóknar starf símavarðar á aðalskrifstofu í Reykjavík. Um er að ræða 1/2 dags starf. Laun eru samkvæmt kjarasamningum BSRB og ríkisins. Umsóknir er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf sendist starfsmannastjóra fyrir 24. apríl nk. ^RARIK RAFMAGNSVEtTUR RlKISINS Laugavegi 118, 105 Reykjavik. Vélvirkjar, járniðnaðarmenn og rafvirkjar Óskum að ráða nú þegar vélvirkja, járniðnað- armenn og rafvirkja, vana skipavinnu. Getum útvegað húsnæði. m SKIPASMÍÐASTÖÐIN : <^ll^ SKIPAVÍK HF. Stykkishóimi, s. 93-8400 Bifvélavirkjar Óskum eftir bifvélavirkjum á vörubílaverk- stæði okkar. Upplýsingar veitir Guðmundur Kristófersson. SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200 ' ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI Hafnarbúðir Hjúkrunarfræðingar nv Hafnarbúðir er lítill en mjög þægilegur vinnu- staður, góður starfsandi og gott fólk. Þangað vantar nú hjúkrunarfræðinga á næturvaktir. - Athugið að þeir sem taka 60% nv fá deildar- stjóralaun. Upplýsingar veittar í síma 19600-300, hjúkr- unarstjórn, alla daga. Verkfræðingur — tæknifræðingur Byggingafyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða byggingarverkfræðing/tæknifræðing til starfa nú þegar. Nauðsynlegt að viðkomandi hafi reynslu í hönnun, tilboðsgerð og stjórn- un bygginga. Skriflegar umsóknir óskast sendar auglýs- ingadeild Mbl. fyrir 28. apríl nk. merktar : „V - 1421“. Varahlutaverslun Óskum eftir að ráða afgreiðslumann í varahluta- verslun okkar. Starfið er fólgið í eftirfarandi: 1. Almenn afgreiðslustörf. 2. Meðhöndlun vörusendinga. 3. Símaþjónusta. Skilyrði fyrir ráðningu eru: 1. Einhver þekking á bílum. 2. Enskukunnátta. 3. Reglusemi, nákvæmni og góð umgengni. 4. Samstarfsvilji. 5. Meðmæli. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf auk meðmæla sendist til okkar fyrir 22. apríl 1987 merktar „Starfsumsókn — afgreiðsla". TOYOTA NÝBÝLAVECI8 200 KÓPAV0GI SÍMI: 91-44144. Viðgerðarverkstæði Óskum eftir að ráða starfsmann á viðgerðar- verkstæði okkar. Starfið er fólgið í eftirfarandi: 1. Lyftaraviðgerðir. 2. Vélaviðgerðir. 3. Almennar bílaviðgerðir. Skilyrði fyrir ráðningu eru: 1. Reynsla í lyftara- og vélaviðgerðum. 2. Enskukunnátta. 3. Reglusemi, samviskusemi og góð um- gengni. 4. Samstarfsvilji. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, fyrri störf auk meðmæla sendist til okkar fyrir 22. apríl 1987 merktar „Starfs- umsókn — viðgerðir". Upplýsingar um ofangreind störf eru ekki veittar í síma. Farið verður með allar umsókn- ir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað. TOYOTA NÝBÝLAVEGI8 200KÓPAVOCI SÍMI. 91-44144. ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI Hjúkrunarfræðingar bd Hjúkrunarfræðingar, langar ykkur ekki til að starfa á frábærri barnadeild. Unnið er eftir einstaklingshæfðri hjúkrun. Aðlögunarpró- gram sniðið eftir þörfum starfsfólks. Góður starfsandi. Upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkrunarfor- stjóra í síma 19600-220, alla virka daga. Afgreiðslustarf Óskum að ráða nú þegar ábyggilegan og reglusaman starfskraft til almennra verslun- ar- og afgreiðslustarfa. Vinnutími eftir hádegi. Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist auglýsingdeild Mbl. fyrir 15. apríl merkt: „Þ - 8239“. Mjólkurfræðingar! Mjólkursamlag á landsbyggðinni óskar að ráða mjólkurfræðing til starfa sem fyrst. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins. Mjólkurfræðingafélag íslands. Verksmiðjuvinna Óskum eftir að ráða karla og konur til starfa í vélasal og á lager. Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri í síma 18700. Verksmiðjan Vífilfell hf. [fn| IAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVIKURBORG í Árbæjarsafni er staða ráðskonu við Dillons- hús laus til umsóknar. Hlutverk ráðskonu er að annast daglegan rekstur kaffisölunnar í Dillonshúsi á opnunartíma safnsins. Laun skv. kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Umsóknarfrestur er til 27. ápríl 1987. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Kynningar- og fjölmiðlunarstarf Kynningar- og fjölmiðlafyrirtæki leitar að topp starfskrafti til PR-starfa. Reynsla í blaðamennsku, gott vald á íslensku og texta- vinnu, góð málakunnátta og áhugi á við- skiptalífinu er mikilvægt. Framtíðarstarf. Upplýsingar um menntun og fyrri störf legg- ist inn á auglýsingadeild Mbl. merkt: „C - 5250“ fyrir 22 þ.m. Hrafnista Hafnarfirði Óskum eftir að ráða fólk í sumarafleysingar: Hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, starfsstúlkur í umönnun, ræstingu og býtibúr. Uppl. gefur hjúkrunarforstjóri, sími 54288. Leikskólann í Staðarborg vantar uppeldismenntað fólk til starfa vegna stuðnings barna með sérþarfir. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 30345. Verkfræðingar Hafnarfjarðarbær óskar að ráða verkfræðing til að veita forstöðu hönnunardeild embættis bæjarverkfræðings. Nánari upplýsingar veitir undirritaður og bæjarverkfræðingur. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf skulu berast bæjar- skrifstofunni í Hafnarfirði eigi síðar en þriðju- daginn 28. apríl nk. Bæjarstjórinn íHafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.