Morgunblaðið - 12.04.1987, Síða 58
VHPr TtíT'íA vr ímOAnTlVWTTR fTTOTAJHWTOHOT
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987
Nýtt happdrættisár DAS:
Lítilleg hækkun vinninga
- miðaverð óbreytt
NÝTT happdrættisár er að hefj-
ast hjá Happdrætti DAS, en
starfsár þess er frá maí til apríl,
1987—1988. Rekstur happdrætt-
isins verður með svipuðum hætti
og verið hefur, þ.e.a.s. miðaverð
verður óbreytt, mánaðarverð kr.
200 og ársmiði kr. 2.400.
Heildarverðmæti vinninga hækk-
arlítillega, verðurkr. 117.570.000,-
en var kr. 115.200.000. Þremur
bílum verður nú bætt ofan á vinn-
ingaskrána, er eingöngu verða
dregnir úr seldum miðum. Er hér
um að ræða Subaru Sedan 1800
GL sjálfskiptur, dreginn út í júlí,
Pajero Turbo-Diesel í desember og
Volvo 240 GL sjálfskiptur, er verð-
ur dreginn út í febrúar 1988.
Eins og áður verða 48 bílavinn-
ingar á 200 þúsund krónur. Vinn-
ingum til íbúðakaupa á 1 milljón
fjölgar úr einum í sex og íbúðavinn-
ingar á 600 þúsund krónur verða 5.
Aðalvinningur verður að verð-
mæti þrjár og hálf milljón króna,
er veijist til kaupa á báti eða íbúð
og verður útdreginn í apríl að ári.
Utanlandsferðir verða 100 í hveij-
um mánuði á 40 þúsund krónur og
20 myndbandstæki verða í vinninga
í hveijum mánuði á 40 þúsund krón-
ur. 1440 húsbúnaðarvinningar
verða sem áður á 10 þúsund og
lægstu vinningar á 5 þúsund.
Til að létta undir með viðskipta-
vinum við endumýjun miða sinna,
Opið í kvöld
til kl. 00.30.
UFANDl
TÓNLIST
Söngkonan Sheila Bonnick
úr Boney- M f lokknum
komin aftur og skemmtir með
Kaskóíkvöld.
WANG
ENDANLEG
NIÐURSTAÐA
bísa*au*pm/
Sumáreiu
Þ.
aö er vel þekkt fyrirbæri að sumar tölvur
eru fljótvirkari en aörar. Langur biðtími viö
skjáinn veldur oft leiðindum einbeitingin
minnkar og mistök eiga sér staö. Ástæðan á sér
rætur aö rekja til þess aö flestir skjáir eru
ósjálfstæðir og þurfa aö sækja orku til
móðurtölvunnar. Þetta
tekur sinn tíma, ekki síst ef
mörg verkefni eru í gangi í
einu og innsláttur mikill.
Kaupir þú WANG VS
tölvu færðu skjái sem
hver um sig er
sjálfstæður og
svarar þér sam-
stundis. Að auki
hefur þú eignast
alhliða og stillan-
legt tölvukerfi
sem hefur mögu-
leika á allt frá
einum upp í 256
skjái án þess að
afkastagetan
minnki hið
minnsta......
Framkvæmdir á vegum Sjómannadagsráðs hafa að undanförnu
mest beinst að endumýjun hjúkrunardeilda Hrafnistu í Reykjavík.
hefur DAS gert samkomulag við
VISA um „sjálfvirka endurnýjun"
fyrir þá er njóta vilja slíkrar þjón-
ustu.
Framkvæmdir á vegum Sjó-
mannadagsráðs hafa að undan-
fömu mest beinst að endumýjun
hjúkrunardeilda Hrafnistu í
Reykjavík og almennu viðhaldi og
viðgerðum þar á elztu deildum, en
heimilið er nú orðið yfir 30 ára
gamalt.
Við Hrafnistu í Hafnarfirði fer
brátt að hefjast 2. áfangi í bygg-
ingu verndaðra þjónustuíbúða.
Þrátt fyrir stórátak sem unnið
hefur verið í hagsmunamálum aldr-
aðra, bæði af sjómannadagssam-
tökunum og ótal mörgum fleiri
aðilum, eru málefni aldraðra sífellt
meira knýjandi, m.a. sökum hækk-
andi meðalaldurs þjóðarinnar.
Því er höfuðmarkmið Sjómanna-
dagsráðs, hér eftir sem hingað til,
að gera allt sem það megnar til að
stuðla að stöðugum umbótum á
aðbúnaði aldraðra, segir í frétt frá
Happdrætti DAS.
Sigfríð veitingamaður í Krákunni.
Einar Falur
Mexíkanskur matur á Krákunni
KRÁKAN nefnist veitingastaður
á Laugaveginum sem hefur sér-
hæft sig í matreiðslu framandi
rétta. Nýir mexikanskir réttir
voru kynntir blaðamönnum fyrir
skömmu.
Eigandi Krákunnar er Sigfríð
Þórisdóttir, en hún fékk áhuga á
indverskri matargerð er hún var við
nám í London fyrir nokkrum árum
og hefur áhugi hennar á matreiðslu
framandi rétta aukist með árunum.
Á meðan á borðhaldi stóð fræddi
Sigfríð blaðamenn um mexíkanska
matargerðarlist og þær hefðir sem
hún byggir á. Fyrst var boðið upp
á Salsa, mexikanskan forrétt með
tortillubrauði, en tortillabrauð setur
mikinn svip á matarborð Mexíkana.
Yfirleitt er það borið fram nýbakað
og haldið heitu meðan á borðhaldi
stendur.
Þá var boðið upp á sýnishom af
öllum tortillaréttum á matseðlinum,
en þeir eru bomir fram með salati,
baunum, hrísgijónum og chilisósu.
Á borðinu var Chili Rellenos, fyllt
paprika með sterkum osti og djúp-
steikt í orlydeigi, Verdura, en það
er tortilla fyllt með djúpsteiktu
grænmeti frá móður jörð eins og
segir á matseðlinum. „Eftirlæti
Lukku Láka“, er heitið á einum
réttinum og er það sterk kjötsósa.
Quesada Grande er einnig á mat-
seðlinum, fyllt tortilla með sterkum
osti. Meðal réttanna vom einnig
léttkrydduð bauna og ostafylling
og skelfisksfylling.
Að máltíðinni lokinni var boðið
upp skemmtilega nýjung, djúp-
steiktan harðfisk!
íbúar í Smáíbúða-,
Bústaða- og Foss-
vogshverfi
Stjórn og umdæmisfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í hverfinu
bjóða ykkur í heimsókn til okkar í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
mánudags- og þriðjudagskvöld kl. 20.00-22.00. Kaffi og kökur.
Leikhorn fyrir yngstu gestina.
Frambjóðendur og fulltrúar hverfisins til staðar.
Hverfisskrifstofan er opin á sama stað alia daga kl. 17.00-
22.00.
Símar: 689611 - 689612.
Stjórn félags sjálfstæðismanna
í Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi.