Morgunblaðið - 16.04.1987, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRIL 1987
ÚTVARP/SJÓNYARP
Til sólarinnar
Löngum hafa úrtölumenn ráðið
ferð í hinu íslenska dvergsam-
félagi þótt bjartsýnir kraftakarlar
hafi oft lyft hér grettistaki mitt í
svartnætti elítunnar. Síðastliðinn
þriðjudag ritar Sigurður A. Magnús-
son rithöfundur þarfa hugvekju hér
í blaðið er ber yfirskriftina: Frelsi til
formyrkvunar. Heldur er nú dimm-
leit sú heimsmynd er blasir við í
grein Sigurðar en hún fjallar að stór-
um hluta um bölvaldinn mikla er
nefnist hvunndags ... fijáls fjölmiðl-
un. Virðist mér Sigurður helst vilja
hverfa aftur til ríkiseinokunarinnar.
Flestum þykir sinn fugl fagur þá
hann flýgur úr hendi.
Sá er hér ritar reyndi eitt sinn að
lauma saklausri miðdegissögu inní
dagskrá íslensks ríkisfjölmiðils. Eftir
langa umhugsun komust æðstu
menn hins víðsýna og ftjálslynda
Ríkisútvarps að þeirri niðurstöðu að
sagan skyldi lesin svo fremi sem
nafni annarrar aðalsöguhetjunnar,
Juri Andropovs, þáverandi flokks-
brodds í Sovét, yrði breytt. Auðvit-
að hefði mér aldrei dottið í hug,
kæri Sigurður, að fara með sögukom
þetta til hinna svokölluðu fijálsu út-
varpsstöðva enda borga auglýsendur
ekki fyrir sögulestur. En svona er
nú frelsið, Sigurður minn, það veitist
sumum og öðrum ekki. Við náum
sennilega aldrei því marki að búa við
fullkomið réttlæti og algert frelsi,
en er þá ekki þrautalendingin að
horfa til sólargeislans er brýst í gegn-
um skýjabakkann og sætta sig við
hina þungu elfu tímans er umbyltir
stöðugt mannvistarumhverfínu?
Ég hef löngu sætt mig við að sögu-
komið mitt hljómaði ekki á rás 1 og
enn ber Juri Andropov sitt skímar-
nafn í hinu óbirta handriti. Ég sætti
mig við orðinn hlut því ég sé æ ljós-
ar að blessaður ljósvakinn er ekki
ætlaður okkur menningarvitunum er
teljum okkur vita betur, nei, hann
er ætlaður okkur öllum, hvort sem
við fáumst við svokallaða listsköpun
eða önnur störf. Tími hinna útvöldu
er liðinn og þá er ekki um annað að
gera en brosa og reyna að halda
sjálfsvirðingunni á markaðinum jafn-
vel þótt það kosti að hugverkin
„ódauðlegu" verði músunum að
bráð.
LeifsstöÖ
Og þá lyftum við huganum frá
hinni aðgangshörðu fjölmiðlaveröld
er nartar þessa dagana í sálartötur
okkar „menningarvitanna" og að
hinni stórglæsilegu flugstöð Leifs
Eiríkssonar er vígð var í fyrradag,
en ríkissjónvarpið flutti okkur er
heima sátum nánast á vettvang at-
burðanna — hvílíkt töfratæki er ekki
sjónvarpið. Og á Stöð 2 stiklaði Sig-
urveig Jónsdóttir um flugstöðina og
sagði meðal annars frá því að hún
hefði rætt við bandaríska húsateikn-
ara er lýstu því yfír að Leifsstöð
væri fegurst bygginga og svo spurðu
þeir: Hvar leynast þessir frábæru
handverksmenn, okkur vantar slíka
menn til starfa heima.
En víkjum þá að vígsluhátíðinni.
Hvílík stund er biskup vor hafði stráð
kærleiksblessun yfir þögulan
manngrúann og svo upphófst þjóð-
söngurinn yfír stað og stund til hvítra
fjallanna þar sem sál íslands býr.
Augnablikið geymist og allar böl-
bænimar gleymast og svo er bara
að breyta þessu glæsihúsi — sem ég
hef reyndar bara séð af mynd — í
fijóa menningarmiðstöð þar sem
íslensk menning og þjóðlíf er kynnt
gestum íslensku þjóðarinnar.
Þama gefst okkur kostur á að sýna
umheiminum vort rétta andlit. Og
svo ættu íslensk stjómvöld að taka
sig til og endurgreiða bandarískum
stjómvöldum þeirra framlag því
Leifsstöð ætti að vera alislensk frá
hinni smæstu músagildru í loftræsti-
opi til hins mikilfenglega listaverks
Leifs BreiðQörð er ber ekki sist vott
um höfðingsskap og stórhug þeirra
er reistu flugstöðina. ^
Ólafur M.
Jóhannesson
Rás 1:
Einsöngur í útvarpssal
■^■M Bergþór Pálsson
■j rrOO barítónsöngvari
• og Jónas Ingi-
marsson píanóleikari flytja
ljóðasöngskrá á Rás 1
síðdegis í dag, skírdag. A
söngskránni eru lög eftir
Schubert, Respighi og Ra-
vel. Bergþór hefur verið í
söngnámi og almennu tón-
listamámi í tónlistardeild
Indianaháskóla síðan 1982.
Hann er um það bil að ljúka
þaðan MM-prófi en jafn-
hliða útskrifast hann úr
viðskiptadeild háskólans
með stjóm listastofnana
sem aukagrein. í vetur
fékk Bergþór viðurkenn-
ingu háskólans sem örfáum
nemendum er veitt árlega
fyrir afburða tónlistar-
flutning.
Bylgjan;
Halldór Hansen,
barnalæknir
■■■■ Gestur Jónínu
00 Leósdóttur að
þessu sinni er
Halldór Hansen, bama-
læknir. Halldór er mikill
unnandi klassískrartónlist-
ar og ætlar að leyfa hlust-
endum Bylgjunnar að
hlusta á nokkur falleg verk
milli þess sem hann ræðir
við Jónínu um líf sitt og
ævistarf.
UTVARP
©
FIMMTUDAGUR
16. apríl
8.00 Morgunbæn. Magnús
Guðjónsson biskupsritari
flytur.
8.10 Fréttir
8.16 Veðurfregnir. Lesið úr
forystugreinum dagblað-
anna. Dagskrá.
8.30 Létt morgunlög
9.00 Fréttir
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Siggi og skipiö hans"
Gunnvör Braga les sögu úr
bókinni „Mamma, segðu
mér sögu" sem Vilbergur
Júlíusson tók saman.
9.16 „Kristur á Olíufjallinu"
óratoría eftir Ludwig van
Beethoven
Elizabeth Hanwood, James
King og Franz Crass syngja
með Söngfélaginu og
Fílharmóníusveitinni í Vínar-
borg; Bernard Klee stjórnar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tið.
11.00 Messa á vegum Sam-
starfsnefndar kristinna
trúfélaga
Hádegistónleikar
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Hádegisfréttir
12.46 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Strið og flóttamenn
Umsjón: Anna G. Magnús-
dóttir og Guðjón S. Brjáns-
son.
14.00 „Vill einhver hafál?",
smásaga eftir Jeane Wilkin-
son
Gyða Ftagnarsdóttir les þýð-
ingu sína.
14.30 Tangó frá Argentínu í
útvarpssal
Ernesto Rondo syngur,
Olivier Manoury leikur á
bandoneon, Enrique Pascu-
al á píanó og Leonardo
Sanchez á gítar.
16.10 Landpósturinn
Umsjón: Sverrir Gauti
Diego.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir
16.20 Barnaútvarpiö
17.00 Einsöngur í útvarpssal
Bergþór Pálsson syngur lög
eftir Franz Schubert. Ottor-
ino Respighi og Maurice
Ravel. Jónas Ingimundarson
leikur með á píanó.
17.40 Torgið — Menningar-
straumar
Umsjón: Þorgeir Ólafsson.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar
19.36 Bein lína til stjórnmála-
flokkanna
Áttundi þáttur: Fulltrúar
Kvennalistans svara spurn-
ingum hlustenda.
20.15 Leikrit: „Sendiherrann"
eftir Slavomir Mrozek
Jón Viöar Jónsson þýddi og
samdi útvarpshandrit og er
jafnframt leikstjóri. Leikend-
ur: Róbert Arnfinnsson,
Harald G. Haraldsson, Krist-
björg Kjeld, Erlingur Gísla-
son, Rúrik Haraldsson og
Sigurjóna Sverrisdóttir. (Áð-
ur útvarpað i febrúar 1985.)
21.60 Tvær rómönsur eftir
Árna Björnsson
Guðný Guðmundsdóttir
leikur á fiðlu með Sinfóníu-
hljómsveit (slands; Jean
Pierre Jacquillat stjórnar.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir
22.20 „Haustregn"
Gunnar Stefánsson les úr
nýrri Ijóöabók séra Heimis
Steinssonar.
22.30 Cecil B. deMille og
Bibli-
an
Þáttur í umsjá llluga Jökuls-
sonar.
SJÓNVARP
■O.
VF
FÖSTUDAGUR
17. apríl
föstudagurinn langi
16.30 Jesús frá Nasaret —
Annar hluti. Bresk-itölsk
sjónvarpsmynd í fjórum
hlutum. Leikstjóri Franco
Zeffirelli. Aðalhlutverk: Ro-
bert Powell ásamt Michael
York, Olivia Hussey, Peter
Ustinov, Anne Bancroft,
Claudia Cardinale, Ralph
Richardson, Ernest Borgn-
ine, James Mason, Christ-
opher Plummer, Rod
Steiger, Anthony Quinn,
Stacy Keach og Laurence
Olivier og fleirum. Myndin
er um fæðingu Jesú, lif hans
og boöskap, pínu, dauða
og upprisu eins og lýst er i
guöspjöllunum. Myndin vr
tekin í Norður-Afríku og var
áður sýnd í sjónvarpinu um
páskana 1986. Þýðandi
Veturliöi Guðnason.
18.00 Nilli Hólmgeirsson.
Tólfti þáttur. Sögumaöur
Öm Árnason. Þýðandi Jó-
hanna Þráinsdóttir.
18.30 Stundin okkar — Endur-
sýning. Endursýndur þáttur
frá 12. april.
19.00 Klefi Caligaris. Þýsk
kvikmynd frá árinu 1919
sem þótti tímamótaverk.
Leikstjóri: Robert Wiene.
Aðahlutverk: Werner Kruass
og Conrad Veidt. Dávaldur
fjölleikahúss nokkurs nær
svefngengli á sitt vald og
hyggur á illvirki.
19.60 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.26 Unglingarnir í frumskóg-
inum. Þáttur um ungt fólk
og trúmál með tónlistarívafi.
Umsjón: Gunnbjörg Óla-
dóttir. Stjórn upptöku:
Gunnlaugur Jónasson.
21.00 Silas Marner. Ný, bresk
sjónvarpsmynd gerð eftir
samnefndri skáldsögu eftir
George Eliot. Aðalhlutverk:
Ben Kingsley (Ghandi) og
Jenny Agutter. Sagan gerist
á öldinni sem leið. Vefarinn
Silas Marner er borinn
rangri sök og svikinn i
tryggðum. Hann snýr þá
baki við heimabyggð sinni
og samneyti við annað fólk.
Eina ánægja hans verður
að nurla saman fé. Enn
veröur Silas fyrir skakkafalli
en þegar öll sund viröast
lokuð berst óvæntur sólar-
geisli í líf hans. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
22.30 í minningu Maríu Call-
as. Sjónvarpsþáttur frá
tónleikum sem haldnir voru
i Frankfurt til minningar um
hina dáöu söngkonu Mariu
Callas. James Levine stjórn;
ar Óperuhljómsveitinni í
Frankfurt. Einsöngvarar:
Paata Burchuladze, Anne
Sofie von Otter, Thomas
Hampson og Aprile Milo.
Þá eru söngvararnir kynntir
og brugðið upp gömlum
upptökum með Mariu Call-
as. Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir. Þulur Þorsteinn
Helgason.
00.20 Dagskrárlok.
£
0
STOD2
FIMMTUDAGUR
16. apríl
Skírdagur
i 15.00 Leifturdans (Flash-
dance). Jennifer Beals
skaust upp á stjörnuhimin-
inn eftir leik sinn í þessari
mynd. Hún leikur unga
stúlku, sem dreymir um aö
verða dansari og vinnur
höröum höndum til að láta
drauma sína rætast. Leik-
stjóri er Adrian Lyne.
§ 17.00 Myndrokk.
§ 18.00 Knattspyrna. Umsjón-
armaður er Heimir Karlsson.
19.05 Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Opin lina. Áhorfendur
Stöðvar 2 á beinni línu í
síma 673888.
20.25 Ljósbrot. Valgeröur
Matthíasdóttir kynnir helstu
dagskrárliði Stöðvar 2
næstu vikuna og stiklar á
helstu viðburðum helgarinn-
ar.
§21.00 Moskva við Hudson-
fljót (Moscow On The
Hudson). Bandarísk gaman-
mynd með Robin Williams,
Cleavant Derricks, Maria
C. Alonso og Alejandro Rey.
Ungum sovéskum hljóð-
færaleikara fer að leiöast
stöðugar biöraðir eftir nauð-
þurftum í Moskvu. Þegar
hann ferðaðist til Banda-
rikjanna og sér stórmarkað-
inn Bloomingdale's, gerist
hann landflótta. Leikstjóri
er Paul Mazursky.
§ 22.55 Amérika (Amerika).
Bandaríkin árið 1990, tíu
árum eftir valdatöku Sovét-
manna. Splunkuný þáttaröð
sem vakti miklar deilur þeg-
ar hún var sýnd í Bandarikj-
unum fyrr á þessu ári.
Aöalhlutverk: Kris Kristofer-
son, Robert Urich, Christine
Lahti, Cindy Pickett, Muriel
Hemingway og Sam Neil.
Leikstjóri Donald Wrye.
§ 00.55 Drottinn minn dýril
(Wholly Moses). Bandarísk
gamanmynd frá árinu 1980
með Dudley Moore, Ric-
hard Pryor, Madelein Kahn
o.fl. Leikstjóri er Gary Weis.
í rútuferð um landið helga,
finna Harvey (Dudley Mo-
ore) óg Zoey (Loraine
Newman) gamlar skræður I
helli. Þegar þau fara að lesa
skræðurnar birtast biblíu-
sögurnar þeim i nýju Ijósi.
02.35 Dagskrárlok.
23.10 Sálumessa, „Requiem",
í d-moll K626 eftir Wolfgang
Amadeus Mozart
Flytjendur: Mótettukór
Hallgrímskirkju, kammer-
sveit og einsöngvararnir
Sigríður Gröndal, Sigriður
Ella Magnúsdóttir, Garðar
Cortes og Kristinn Sig-
mundsson. Stjórnandi:
Hörður Áskelsson. (Hljóðrit-
að á tónleikum í Hallgríms-
kirkju 23. nóvember sl.)
24.15 Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til morg-
uns.
wa
FIMMTUDAGUR
16. apríl
00.10 Næturútvarp. Snorri
Már Skúlason stendur vakt-
6.00 ( bitiö. Rósa Guðný
Þórsdóttir léttir mönnum
morgunverkin, segir frá
veðri, færð og samgöngum
og kynnir notalega tónlist i
morgunsárið.
9.05 Morgunþáttur í umsjá
Kristjáns Sigurjónssonar og
Sigurðar Þórs Salvarssonar.
Meðal efnis: Tvennir timar
á vinsældalistum, tónleikar
um helgina, verðlaunaget-
raun og Feröastundin með
Sigmari B. Haukssyni.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Leifur
Hauksson.
16.05 Hringiöan. Umsjón:
Broddi Broddason og
Margrét Blöndal.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Vinsældálisti rásar 2.
Gunnar Svanbergsson og
Georg Magnússon kynna
og leika vinsælustu lögin.
20.30 ( gestastofu. Sigurður
Valgeirsson ræðir við Tóm-
as R. Einarsson kontra-
bassaleikara og Einar
Kárason rithöfund.
22.05 Nótur að noröan frá
Ingimar Eydal. (Frá Akur-
eyri.)
23.00 Við rúmstokkinn.
Guðrún Gunnarsdóttir býr
hlustendur undir svefninn
með tali og tónum.
24.00 Næturútvarp. Óskar
Páll Sveinsson stendur vakt-
ina til morguns.
02.00 Á frivaktinni. Þóra Mar-
teinsdóttir kynnir óskalög
sjómanna. (Endurtekinn
þáttur frá mánudegi, þá á
rás 1.)
Fréttir sagðar kl. 8.10, 9.00,
10.00, 12.20, 16.00, 19.00,
22.00 og 24.15.
SVÆÐISUTVARP
AKUREYRI
18.03-19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni
—FM 96,5
Fréttamenn svæðisútvarps-
ins fjalla um sveitarstjórnar-
mál og önnur stjórnmál.
989
BYLGJA
EI
FIMMTUDAGUR
16. apríl
07.00—09.00 Á fætur -með
Sigurði G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður litur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti. Fréttir kl. 07.00,
08.00 og 09.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar,
gömul og ný. Tapað fundiö,
opin lína, mataruppskrift og
sitthvaö fleira. Fréttir kl.
10.00 og 11.00.
12.00-12.10 Fréttir
12.10-14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Frétta-
pakkinn, Þorsteinn og
fréttamenn Bylgjunnar fylgj-
ast með þvi sem helst er i
fréttum, segja frá og spjalla
við fólk í bland við létta tón-
list. Fréttir kl. 13.00 og
14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Pétur spil-
ar síðdegspoppið og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn. Fréttir kl.
15.00, 16.00 og 17.00.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir í Reykjavik síðdeg-
is. Þægileg tónlist hjá Ástu,
hún lítur yfir fréttirnar og
spjallar við fólkiö sem kemur
við sögu. Fréttir kl. 18.00.
19.00—20.00 Anna Björk
Birgisdóttir á flóamarkaði
Bylgjunnar. Flóamarkaður
og tónlist. Fréttir kl. 19.00.
20.00—21.30 Jónína Leós-
dóttir á fimmtudegi. Jónina
tekur á móti kaffigestum og
spilar tónlist að þeirra
smekk.
21.30—23.00 Spurningaleikur
Bylgjunnar. Jón Gústafsson
stýrir getraun um popptón-
list.
23.00-24.00 Vökulok. Frétta-
tengt efni og þægileg tónlist
i umsjá Karls Garöarssonar
fréttamanns. Fréttir kl.
23.00.
24.00—07.00 Næturdagskrá
■ Bylgjunnar. Tónlist og upp-
lýsingar um veöur og flug-
samgöngur. Fréttir kl.
03.00.
ALFA
Guðs
FM 102,9
FIMMTUDAGUR
16. april
8.00 Morgunstund.
orð og bæn.
8.15 Tónlist.
12.00 Hlé.
13.00 Tónlistarþáttur með
lestri úr Ritningunni.
16.00 Hlé.
20.00 Bibliulestur í umsjá
Gunnars Þorsteinssonar.
21.00 Logos. Stjórnandi
Þröstur Steinþórsson.
22.00 Fagnaðarerindið flutt í
tali og tónum. Flytjandi:
Jimmy Swaggart. Þáttur
sérstaklega ætlaður ensku-
mælandi fólki. Stjórnandi:
Eiríkur Sigurbjörnsson.
24.00 Dagskrárlok.
Alfa FM 102,9 er kristileg
útvarpsstöð og er styrkt af
kristnu fólki á íslandi og
færum við öllum stuönings-
aðilum okkar bestu þakkir
og óskir um gæfuríkt ár.