Morgunblaðið - 16.04.1987, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 16.04.1987, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1987 Nýr vinstri flokk- ur á Grikklandi Sólstólinn á myndinni hér fyrir ofan er að finna við hraðbraut í Mendrisio í Sviss. Gripurinn, sem er 13 metrar á hæð og vegur sex tonn, var settur upp á mánudaginn og staðhæfðu smiðimir, að hann væri stærsti sólstóll í heimi. Því miður fékk hann ekki að standa lengi, því að lögreglan reif hann niður strax næsta dag. Sagði hún gripinn vera hættuleg- an, þar sem hann drægi að sér athygli ökumanna, sem ættu leið þama um. Markmið smiðanna var að komast á blað hjá Heimsmetabók Guiness. Aþenu, Reuter. LEONIDAS Kyrkos, leiðtogi Evrópu-kommúnista á Grikkl- andi, lýsti yfir því í gær að í næstu viku ætlaði hann opin- berlega að stofna nýjan flokk. Kvaðst Kyrkos vonast til þess að flokknum tækist að blása nýju lífi í vinstri hreyfinguna á Grikklandi. Nýi flokkurinn verður formlega stofnaður 22. apríl, en starfsmenn hans segja að þegar hafí tíu þús- und félagar gengið í flokkinn. Persaflói: Ráðist á gripa flutn- ingaskip Bahrain, Reuter. KINDA-flutningaskipið Corri- edale Express sendi út neyðarkall á Persaflóa í gær og sagðist hafa orðið fyrir árás óþekktra herskipa. Talið var að skipið stæði í ljósum logum. Iranir hafa gert árásir á skip á þeim slóðum, þar sem kindaskipið var statt. Samkvæmt neyðarkallinu var sauðfjárflutningaskipið statt á miðjum Persaflóanum undan strönd Qatar þegar það varð fyrir árás. Var það á leið frá Kuwait til Ástralíu og var talið að það væri tómt. Skipið er í ferðum milli Ástralíu og Kuwait og flytur um 40 þúsund kindur í hverri ferð. Er það 8.186 lestir að stærð. íranir sögðu í gær að hersveitir þeirra og skæmliðar kúrda hefðu gert leifturárás á stöðvar Iraka austur af Kirkuk-olíuvinnslusvæð- inu og fellt eða sært á sjöunda hundrað hermenn. íranir sögðust hafa tekið 98 íraska hermenn til fanga. Stærsti sólstóll í heimi Kyrkos, sem er leiðtogi grískra kommúnista, sagði að flokkurinn ætti að höfða til þeirra, sem hafa orðið fyrir vonbrigðum með sósía- listaflokkinn PASOK, sem nú er við völd, og Kommúnistaflokkur Grikklands (KKE), sem fylgir Moskvu-línunni. „Flokkur okkar verður nefndur Nýi vinstri flokkurinn," sagði Kyrkos á blaðamannafundi. Nú- verandi flokkur Kyrkosar gagn- rýnir bæði ráðamenn í Washing- ton og Moskvu og er hlynntur aðild að Evrópubandalaginu. KKE hafnar aðild að Evrópubandalag- inu og vill draga Grikkland út úr Atlantshafsbandalaginu. Aukin geislun í andrúmsloftinu: Kemur ekki frá Sovétríkjunum - segir kjarnorkumálaráðherra Sovétríkjanna Tókýó, Reuter. NIKOLAI Lukonin, kjarnorkumálaráðherra Sovétríkjanna, fullyrti í gær að ekkert kjarnorkuslys hefði orðið í Sovétríkjun- um nýlega, en víða í Vestur-Evrópu hefur mælst aukin geislun í andrúmsloftinu. til baka. Hluti fólksins bjó í þorp- um í 10-30 kílómetra fjarlægð frá Chernobyl. Hann sagði að hægt yrði að leyfa fólki að snúa til 28 þorpa á þessu svæði eftir leysing- ar í vor. Lukonin sagði á alþjóðafundi um kjamorkunotkun í Tókýó að engin óvenjuleg geislun hefði mælst í geislamælistöðvum Sov- étríkjanna, sem væru 14 talsins og dreyfðar um landið. Hann sagði að mælingar hefðu ekki gefið til kynna að geislun hefði aukist eft- ir að Sovétmenn hófu aftur kjamorkusprengingar í tilrauna- skyni. Wolfgang Weiss, forstöðumað- ur opinberrar stofnunar í Frei- burg, sem fylgist með geislun í andrúmsloftinu, sagði rannsóknir benda til að mikil geislun, sem mælst hefði að undanförnu, hefði borizt frá kjamorkuveri í miðhluta Sovétríkjanna. Lukonin sagði. að 135.000 manns, sem fluttir hefðu verið brott af svæði umhverfis kjarn- orkuverið í Chernobyl, hefðu snúið Bretland: Atvinnulausum fækkar London, Reuter. Atvinnuleysingjum fækkaði í Bretlandi í marz-mánuði og hafa þeir ekki verið færri í hálft þriðja ár. Haldi sama þróun áfram fer tala atvinnulausra undir þrjár milljónir í júni nk. Samkvæmt upplýsingum hins op- inbera voru 3,14 milljónir manna skráðir atvinnulausir í marz eða 82.439 færri en í febrúar og 180.406 færri en í sama mánuði í fyrra. Þegar fjöldinn hefur verið veginn með tilliti til árstíðar nemur fyöldi atvinnulausra 3,04 milljónum manna, eða 11,1% vinnufærra. Hið vegna atvinnuleysi er talið gefa bezt til kynna hvert stefnir á vinnumarkaðin- um og undanfama sex mánuði hefur þessi árstíðabundna viðmiðun lækkað um 25 þúsund á mánuði. HONDA CIVIC SHUTTLE 4 WD REAL TIME Bylting í gerð aldrifsbíla Velursjálfvirkt hvenær þörf er á framhjóla- .afturhjóla- eðaaldrifi. Kynnist þessum frá- bæru eiginleikum. Honda, merki hinnavandlátu. Verð 2. apríl kr. 576.000,- HONDA Á ÍSLANDl, VATNAGÖRÐUM 24 S. 689900
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.