Morgunblaðið - 16.04.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1987 ^37
MorgunblaÖið/Árni Sæberg
• Sigurborg Gunnarsdóttir og Sjólaug Bjarnadóttir verjast hér sókn
Anniku Joensen í leiknum í gær.
Tap gegn stjörnu-
prýddu liði Ítalíu
„VIÐ erum nú bara svekktir yfir
því að tapa þessum leik,“ sagði
Guðni Kjartansson aðstoðarþjálf-
ari íslenska ólympíuliðsins í
knattspyrnu eftir að liðið hafðt
tapað 2:0 fyrir liði Ítalíu sem er,
eins og við höfum sagt frá, skipað
leikmönnum sem leika með 1.
deildarfélögum þar í landi og geta
Blak:
ísland
því varla kallast áhugamenn.
Það voru tveir leikmenn frá AC
Milan sem skoruðu mörkin. Virtis
á 40. mínútu og síðan bætti
Tassotti síðara markinu við á 87.
mínútu.
íslenska iiðið lék vel að sögn
Guðna þó svo þeir væru meira í
vörn en hinir. Besta marktækifæri
okkar manna var í fyrri hálfleik
þegar Guðmundur Torfason átti
hörku skot úr aukaspyrnu talsvert
utan við vítateig en Tacconi mark-
verði Juventus tókst að verja
meistaralega í horn.
Friðrik Friðriksson stóð í mark-
inu allan tímann og stóð sig vel.
Aðrir leikmenn voru Guðni Bergs-
son, Loftur Ólafsson, Ágúst Már
Jónsson, Ólafur Þórðarson, Njáll
Eiðsson, Viðar Þorkelsson, Pétur
Arnþórsson, Halldór Áskelsson,
Guðmundur Torfason og Guð-
mundur Steinsson.
Ingvar Guðmundsson kom inná
fyrir Halldór undir lok leiksins og
Þorsteinn Þorsteinsson kom inná
fyrir Loft á 30. mínútu er Loftur
snéri sig lítillega.
Ólafur Þórðarson fékk að líta
gula spjaldið hjá slökum dómara
sem var frá Möltu.
vann
ÍSLENSKA karlalandsliðið vann
strákana frá Færeyjum í örðum
landsleik þjóðanna í gærkvöldi
3:0. Lokatölur urðu 15:8, 15:8 og
15:13. Liðin leika í dag í Haga-
skóla og hefst fyrri leikurinn
klukkan 14.
Islenskur sigur gegn
ungu liði Færeyja
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
blaki átti ekki i' miklum erfileikum
með að leggja það færeyska er
liðin mættust í Hagaskólanum f
gærkvöldi. ísland vann 3:0 án
þess að sýna sitt rétta andlit.
Fyrstu hrinuna unnu okkar stúlk-
ur 15:4 og var mótstaða Færey-
inga ekki mikil. Önnur hrinan
byrjaði með því að íslenska liðinu
var stillt vitlaust upp og varð því
að framkvæma skiptingu. Þetta
virtist hafa slæm áhrif á liðið þó
svo breyting væri gerð fljótlega.
Hrinan endaði 16:14 eftir að Fær-
eyingar höfðu haft 13:14 yfir.
Þriðju hrinuna unnum við svo 15:4
eins og þá fyrstu.
Það var enginn í íslenska liðinu
sem lék mjög vel. Allar voru þó
þokkalegar, gerðu ekki mikið af
mistökum en sýndu ekki það sem
þær eiga aö geta.
Lið Færeyinga er mjög ungt og
England:
Dautt jaf ntef li
TOTTENHAM og Manchester City skildu jöfn í gærkvöldi. Bæði
liðin skoruðu eitt mark.
McNab skoraði úr vítaspyrnu fyrir City en Claessen jafnaði fyrir
Tottenham.
Bæði liðin þurftu að vinna leikinn til þess að bjarga sér, City frá
falli en Tottenham til að komast nær Everton. Nú munar 9 stigum
á þeim.
Keilubanar urðu
íslandsmeistarar
KEILUBANAR urðu á dögunum
íslandsmeistarar í keilu er þeir
unnu 1. deildina með nokkrum
yfirburðum. Feykjurnar urðu
meistarar í kvennaflokki og í 2.
deild karla vann Yfirliðið og J.P.
kast vann í þriðju deild.
Hæsta meðalskor einstaklings í
vetur hefur Halldór R. Halldórsson
náð, eða 179 stig, og hann á einn-
ig hæsta skorið, 248 stig og er
NM fatlaðra
um páskana
UM páskana fer fram f Færeyjum
Norðurlandamót fatlaðra f sundi
og munu 14 íselnskir keppendur
taka þátt í mótinu.
Góður árangur íslenska sund-
fólksins á íslandsmótinu sem fram
fór í Keflavík fyrir tveimur vikum
gefur góðar vonir um að í mörgum
greinum munu íslensku keppend-
urnir berjast um verðlaunasæti.
árangur hans ansi hreint góður.
Höskuldur Höskuldsson átti
hæstu seríuna í vetur 612 stig.
Hæsta skor liös voru 782 stig
og þar voru Þrestirnir fremstir,
meðaltalið er 195 stig á mann.
Fellibylur átti hæstu seríuna eða
2160 stig sem eru 540 stig að
meðaltali á mann í liðinu.
Þrestir hafa hæsta meðaltalið
yfir veturinn, 166 stig og þeir eru
einnig stjörnuliðið því þeir unnu
sér inn 121 stjörnu í vetur.
Prost vann
ALLAN Prost hóf tiltilvörn sína í
Formula I kappakstrinum með
sigri í brasilíska kappakstrinum
um síðustu helgi. Hann ók
McLaren, en Nelson Piquet á
Williams varð annar. Þriðji f röð-
inni varð Stefan Johansson á
Ferrari.
léku fimm stúlkur sinn fyrsta lands-
leik. Bestar voru nýliðarnir Annika
Joensen og Susanna Mcbirnie og
Finngerð Sólbjarg átti einnig ágæt-
an leik.
-sus
• Þorgils Óttar og félagar eiga erfitt verkefni fyrir höndum á næstu
Ólympfuleikum.
ísland í erfið-
ari riðlinum
ÍSLENSKA landsliðið í handknatt-
leik getur varla talist öfundsvert
af riðlinum sem það lenti í er
dregið var í riðla fyrir handknatt-
leikskeppnina á Ólympíuleikun-
um í Seoul á næsta ári. Dregið
var í gær og það er ekki laust við
að nokkurrar svartsýni gætti
meðal manna fyrst eftir dráttinn
þvf riðillinn er geysilega erfiður.
Með okkur í riðli eru heims- og
ólympíumeistararnir frá Júgó-
slavíu, Svíar, Sovétmenn og lið frá
Ameríku, líklega Bandaríkin eða
Kúba, og lið frá Afríku, líklega Alsír
eða Túnis.
í hinum riðlinum eru Ungverjar,
Austu-Þjóðverjar, Spánverjar,
Suður-Kórea, Tékkóslóvakía og lið
frá Asíu, líklega Kína eða Japan.
Drátturinn fór þannig fram að
fyrst var eitt land, af þeim sex sem
komust beint úr HM í Sviss, dreg-
ið og sett í A-riðil. Upp kom nafn
heimsmeistarana, Næsta nafn var
Ungverjaland og fóru þeir í B-riðil,
Sviar í A-riðil, A-Þjóðverjar í B-
riðil, ísland í A-riðil og Spánverjar
í B-riöil.
Þar með voru bestu liðin frá
Sviss komin í riðla. Næst á dag-
skrá var að og gestgjafarnir,
S-Kórea, máttu velja sér riðil og
þeir voru ekki lengi að því, völdu
B-riðilinn, enda er hann mun
árennilegri.
✓ Sovétmenn lenntu síðan í A-
riðlinum með okkur en Tékkar í
hinum.
Það má svo sem gera að því
skóna að okkar riðiil sé skárri kost-
urinn. Líklega verða strákarnir
fegnari því að leika við Svía, þó
svo alltaf hafi gengið illa á móti
þeim, en gegn Kóreu með 20.000
áhorfendur á móti sér.
Sovétmenn á að vera hægt að
vinna svo og Júgóslava eins og við
höfum séð á undanförnum misser-
um. Ekki ættum við að þurfa að
óttast liö Afríku né Ameríku þó svo
allt sé mögulegt í íþróttum.
Þrjár efstu þjóðirnar í hvorum
riðli leika síðan um sex efstu sæt-
in sem veita þátttökurétt á HM í
Tékkóslóvakíu árið 1990. Raun-
hæft markmið virðist að ná því.
Allt fyrir ofan það er frábært og
þó svo ekki tækist að komast
þangað þá þarf enginn að skamma
sín fyrir að vera í 8. sæti í keppni
sem þessari.
Þýskaland:
Stórsigur hjá
Stuttgart
Frá Jóhanni Inga Gunnarsuyni f Vestur-Þýskalandi.
STUTTGART vann stórsigur á
Köln í gærkvöldi. Leikmenn liðs-
ins skoruðu fimm mörk gegn einu
marki Kölnar og er Stuttgart nú
í þriðja sæti.
Mannheim vann Kaiserslautern
4:3 í hörkuleik þar sem Walter
skoraði öll fjögur mörk Mannheim.
Liðið fékk dæmdar þrjár vítaspyrn-
ur og skoraði Walter úr tveimur
þeirra. Hann er nú markahæstur í
deildinni með 18 mörk.
Ekkert lát virðist á velgengni
Bayern Miinchen. Liðið vann
Werder Bremen 3:2 og eru þeir
nú fjórum stigum á undan HSV
sem varð að láta sér lynda 1:1
jafntefli gegn Homburg.
Uerdingen tapaði óvænt á
heimavelli fyrir Nurnberg 3:4 og
Frankfurt og Bochum gerðu 1:1
jafntefli.
í fyrrakvöld voru þrír leikir. Glad-
bach vann þá Leverkusen 2:0 og
Schalke vann Dusseldorf 4:2 en
Berlin og Dortmund skildu jöfn,
hvoru liði tókst að gera eitt mark.