Morgunblaðið - 16.04.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1987
45
Minnisblað lesenda um páska
MORGUNBLAÐIÐ veitír les-
endum sínum að venju upplýs-
ingar um heilsugæslu, sérleyf-
isferðir, strætísvagna og aðra
þjónustu um bænadaga og
páska.
Slysadeild
Slysadeild og sjúkravakt Borg-
arspítalans er opin allan sólar-
hringinn. Sími þar er 696600.
Læknaþj ónustua
Helgarvakt lækna hófst kl.
17.00 í gær og lýkur kl. 8.00 á
þriðjudagsmorgun. Sími vaktar-
innar er 21230.
Á Heilsuverndarstöðinni er
hægt að panta viðtalstíma við
heimilislækna á kvöldin og um
helgar, eru nánari upplýsingar
veittar í síma 21230.
Sjálvirkur símsvari Læknafé-
lags Reykjavíkur er í síma 18888.
Tannlæknavakt
Tannlæknavakt verður alla
páskadagana kl. 10.00-11.00.
Á skírdag og föstudaginn langa
sér Friðrik Ólafsson um vaktina.
Hann er til húsa á Barónsstíg 5
og er sími hans 22969.
Laugardag og páskadag verður
Hannes Ríkarðsson, Ármúla 26,
með vaktina. Sími hans er
685865.
Annan páskadag er hægt að
leita til Þorsteins Scheving, Ein-
holti 2, í síma 21430.
Slökkvilið
Slökkviliðið í Reykjavík hefur
símann 11100, slökkviliðið í Hafn-
arfirði símann 51100 og slökkvi-
liðið á Akureyri 22222.
Lögregla
Lögreglan í Reykjavík hefur
símann 10200. Neyðarsími er
11166 og upplýsingasími 11110.
Lögreglan á Akureyri er í síma
23222, í Kópavogi 41200 og í
Hafnarfírði 51166.
Sjúkrabílar
Aðstoðar sjúkrabifreiða má
leita í síma 11100 í Reykjavík. í
Hafnarfírði er síminn 51100 og á
Akureyri 22222.
Lyfjavarsla
í dag eru Laugavegs og Holts
apótek opin, en það fyrrnefnda
sér um næturvörsluna. Á föstu-
daginn langa, páskadag og annan
í páskum sjá Lyfjabúðin Iðunn og
Garðs Apótek um þjónustuna, en
það fyrmefnda verður með nætur-
vörslu.
Guðsþjónustur
Tilkynningar um guðsþjónustur
eru í C blaði á bls. 50 C og 51
C. Skrá yfír fermingarböm er að
finna á bls. 38 C,39 C,40 C,41 C
og 42 C.
Utvarps og sjónvarps-
stöðvar
Dagskrá útvarpsstöðvanna og
sjónvarpsstöðvanna ásamt efnis-
úrdráttum nokkurra dagskrárliða
er að fínna á bls. 6, 64, 65, 66
og 67.
Hvað er að gerast um
páskahelgina ?
Upplýsingar um listir og menn-
ingarviðburði helgarinnar eru
birtar á bls. 64 C og 67 C.
Bilanir
Bilanir hitaveitu, vatnsveitu og
gatnakerfís tilkynnist til Vélamið-
stöðvar Reykjavíkur í síma 27311.
Þar er vakt allan sólarhringinn.
Símabilanir er hægt að tilkynna
í síma 05 frá kl. 8-24 alla daga.
Þá er Rafmagnsveita Reykjavíkur
með bilanavakt allan sólarhring-
inn í síma 686230. í neyðartilfell-
um fara viðgerðir fram eins fljótt
og auðið er.
Opnunartími verslana
og söluturna
Verslanir eru lokaðar um pá-
skana, en á laugardag er leyfílegt
að hafa opið frá kl. 9.00-16.00.
Sölutumar mega vera opnir á
skírdag, laugardag og annan í
páskum til kl. 23.30, en verða að
venju lokaðir á föstudaginn langa
og páskadag.
Afgreiðslutímar
bensínstöðva
Á skírdag og annan í páskum
verða bensínstöðvar opnar frá kl.
9.30-11.30 og 13.30-16.00. Á
laugardag er opið frá 7.30-21.15.
Föstudaginn langa og páskadag
er lokað.
Bensínafgreiðslan á Umferðar-
miðstöðinni er opin frá kl. 21.00-
24.00 í kvöld, á laugardagskvöld
er hún opin frá kl. 21.00-24.00
og á annan páskadag kl. 21.00-
01.00. Föstudaginn langa og
páskadag er lokað.
Utan afgreiðslutíma bensín-
stöðva er bifreiðastjórum bent á
að notfæra sér þjónustu sjálfsala
sem staðsettir em á bensínstöðv-
um víðsvegar um borgina og víða
úti á landi. Athugið að í flestum
tilvikum taka sjálfsalamir einung-
is við 100 króna seðlum.
Strætisvagnar
Reykjavíkur
í dag og annan páskadag aka
strætisvagnamir eins og á sunnu-
dögum. Föstudaginn langa og
páskadag hefst akstur kl. 13.00,
en síðan er fylgt tímatöflu sunnu-
daga. Á laugardag hefst akstur-
inn á venjulegum tíma og verður
ekið eftir laugardagstímatöflu.
Strætisvagnar Kópa-
vogs
Vagnar í Kópavogi fylgja
sunnudagstímatöflu í dag og ann-
an í páskum. Á föstudaginn langa
og á páskadag hefst akstur kl.
14.00 en fylgir síðan tímatöflu
sunnudaga. Á laugardag er venju-
bundinn tímatafla í gildi.
Mosfellsleið
I dag og annan í páskum ekur
Mosfellsleið samkvæmt sunnu-
dagsáætlun. Föstudaginn langa
og páskadag er engin ferð. Á
laugardag em ferðir eins og aðra
laugardaga. Nánari upplýsingar
em gefnar í síma 667411.
Langf erðabílar
Búist er við miklum önnun á
Umferðarmiðstöðinni um pá-
skana, þó sérstaklega í dag. Ejöldi
farþega hefur jafnan skipt þús-
undum bænadagana.
í dag era reglulegar ferðir frá
Umferðamiðstöðinni til allra
áfangastaða. Bflum verður bætt
við þar sem þurfa þykir. Ein au-
kaferð verður farin til Hólmavík-
ur. Á föstudaginn langa verður
ekki ekið á lengri leiðum, en fam-
ar ferðir upp í Bláfyöll, ef skíða-
svæðið verður opið, til staða á
Suðumesjum og austur fyrir fjall.
Um kvöldið er ferð til Borgamess.
Á páskadag er fylgt sömu áætl-
un og á föstudaginn langa, en
annan í páskum verður sunnu-
dagsáætlun í gildi. Engin breyting
verður á áætlun á laugardag.
Allar nánari upplýsingar um
sérleyfisbifreiðir em veittar í síma
91-22300.
Vegaeftirlit
Upplýsingasímar Vegaeftirlits-
ins em 91-21000 og 91-21001.
SigríðurH. Guðjóns-
dóttir - Minning
Tómas Sigurgeirs■
son — Kveðjuorð
Fædd 18. júlí 1921
Báin 7. apríl 1987
Sigríður var fædd og uppalin í
Reykjavík, dóttir hjónanna Mál-
hildar Þórðardóttur og Guðjóns
Jónssonar. Hún var yngst níu systk-
ina. Sigríður missti móður sína
þegar hún var 15 ára gömul og tók
þá við húsmóðurstarfínu á meðan
faðir hennar og eldri systkini, sem
vom ennþá í föðurhúsum, stunduðu
vinnu sína.
7. febrúar 1942 gekk Sigríður
að eiga eftirlifandi eiginmann sinn,
Kristján R. Þorvarðarson bmnavörð
í Reykjavík. Þau hjón eignuðust
þijár dætur, Þórhildi, f. 26. apríl
’42, Sigríði, f. 11. janúar ’42, og
Guðjón, f. 5. apríl ’55, sem dó að-
eins nokkurra vikna gömul. Þór-
hildur og Sigríður eiga þijú börn
hvor. Þórhildur búsett í Mosfells-
sveit, gift Eggert Bogasyni, en
Sigríður á Sauðárkróki, gift Viðari
Vilhjálmssyni. Bamabamabömin
em orðin tvö.
Þegar sest er niðiir til að skrifa
fáeinar línur um ömmu sína fer
hugurinn að reika um allar þær
góðu minningar, sem við eigum um
þessa konu, sem hefur svo margt
kennt okkur og gert fyrir okkur
bamabömin.
Efnið mundi nægja í heila bók.
Alltaf var gott að koma heim til
ömmu og afa í Hólmgarðinn, þar
naut maður hlýju og öryggis. Gam-
an var að hlusta á ömmu segja frá
uppvaxtaráram sínum og eitt er
víst að sú kynslóð fólks mundi og
man tímana tvenna. Það vom viss
atriði sem amma lagði ríka áherslu
á að við framfylgdum, það er. trú-
mennsku, heiðarleika, háttvísi og
snyrtimennsku og því fylgdi hún
ávallt sjálf. Það var ömggt að ef
amma iofaði einhveiju þá stóð hún
við það.
Með þessum fátæklegu orðum
langar okkur bamabömin að þakka
samfylgdina við þessa fómfúsu og
elskulegu konu og við biðjum guð
um að styrkja afa okkar við fráfall
hennar.
Fyrir hönd bamabamanna,
Kristín G. Friðbjörnsdóttír
Útför hennar fór fram 15. apríl.
Fæddur 18. april 1902
Dáinn 17. febrúar 1987
Vegna þess að hann afí, Tómas
Sigurgeirsson á Reykhólum, hefði
orðið 85 ára núna 18. aprfl langar
mig að skrifa örfá orð, enn afa hef
ég kailað hann síðan ég kom inn í
þessa fjölskyldu.
Hann andaðist í Sjúkrahúsi
Akraness 17. febrúar eftir tveggja
mánaða legu og var jarðsunginn frá
Reykhólum laugardaginn 21. febrú-
ar. Það var fremur tómlegt að koma
í Reykhóla núna, enginn afí á hom-
inu við eldhúsborðið og enginn á
neðsta pallinum til að kveðja þegar
við fómm. Það vom mikið dýrmæt-
ar stundir að fá að sitja hjá honum
þessar síðustu vikur og fá að halda
í höndina á þessum yndislega manni
sem gaf mér svo mikið af sjálfum
sér. Hans er sárt saknað. Hrædd
er ég um að drengimir hans, sem
stunduðu grásleppu á vorin, eigi
eftir að sakna að hafa ekki afa til
að tala við um veiði eða veiðileysu.
Litlu iangafastúlkumar á Máva-
túni, þær Dísa og Dídí, sendu afa
sínum bréf i sjúkrahúsið og í því
var mynd af sól og mikið var hann
ánægður að fá bréfíð og bað um
annað sem átti að sýna fífla og
sóleyjar, það lýsir bezt hve mikið
náttúrabam hann var.
Það var gott að koma til afa og
ömmu á vorin og mikið reyndust
þau okkur og bömunum okkar vel.
_______BrSds________
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag
Breiðholts
Sl. þriðjudag var spilaður eins
kvölds tvímenningur og var margt
um manninn, spilað í tveimur 14
para riðlum. Þessi leikur verður
endurtekinn í Breiðholti á þriðju-
daginn kemur en annan þriðjudag
hefst vortvímenningur.
Spilað er í Gerðubergi kl. 19.30.
Bridsdeild
Skag-firðing-a
Þriðjudaginn 14. apríl var spilað-
ur eins kvölds tvímenningur í
tveimur riðlum. Efst urðu þessi pör
A-riðill:
Sigmar Jónsson —
Óskar Karlsson 123»-
Amar Ingólfsson —
Magnús Einarsson 117
Muret Serdas —
Þorbergur Ólafsson 113
B-riðill:
Eyþór Hauksson —
Friðrik Wdowiak 102
Rögnvaldur Möller —
Kristján Ólafsson 96
Ármann J. Lámsson —
Helgi Viborg 92
Þriðjudaginn eftir páska, 21.
apríl, verður spilaður eins kvölds
tvímenningur.
Þriðjudaginn 28. apríl verður
spiluð sveitakeppni við Bridsdeild
Húnvetninga, skráning er hjá Sig-
mari Jónssyni í síma 35271 eða
687070.
Spilað er í Drangey, Síðumúla 35.
Með dóttur minni og afa mynduð-
ust náin tengsl þegar hún var
nokkur sumur hjá þeim meðan þau
stunduðu enn búskap og á hún eft-
ir að njóta þess um ókomna framtíð
að hafa fengið að vera hjá þessum
blíðu og góðu hjónum. Ég vil ljúka
þessu með að þakka fyrir að hafa
fengið að kynnast þeim.
Alda María Magnúsdóttír
Birting afmælis- og
minningargreina
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki em tek-
in til birtingar fmmort Ijóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð
eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir
ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist
undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins em birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar em birtar af-
mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.